Morgunblaðið - 07.11.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Húsatryggingar
Reykjavíkur
Möguleikar
á sölu kann-
aðir í fyrra
INGIBJÖRG Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri segir að
möguleikar á sölu Húsa-
trygginga Reykjavíkur hafi
verið kannaðir á síðasta ári.
Horfið hafi verið frá því, þar
sem tími var naumur en salan
þurfti að fara fram fyrir 1.
desember þegar trygginga-
samningar eru lausir. Að
sögn borgarstjóra breytti töf-
in litlu um söluverðið.
Breytir litlu um söluverðið
„Þetta var skoðað í fyrra
en við runnum út á tíma,“
sagði hún. „Auk þess fannst
mönnum þetta nokkuð flókið
mál hvernig ætti að standa
að sölunni, þar sem þetta var
ekki fyrirtæki sem hægt var
að selja. Spurningin var því
hvað væri til sölu? Þarna eru
einstaklingar sem tryggja
sínar húseignir hjá þessu fé-
lagi þannig að aðferðafræðin
er nokkuð flókin. Þar að auki
má segja að menn hafi ekki
sætt sig við að fara út úr
þessu fyrr en í fulla hnef-
ana.“
Borgarstjóri sagði tafirnar
litlu breyta um söluverðið.
„Það hefur ekki orðið sú
breyting frá síðasta ári,“
sagði hún. „Breytingin varð
strax fyrsta árið eða árið
1994 um leið og einkaréttur
Húsatrygginga var afnum-
inn. Þá fluttu fyrst og fremst
fyrirtækin sig til annarra
tryggingafélaga. Þannig að
stóri bitinn var farinn."
Morgunblaðið/Kristján
BJARNI Gunnarsson, skipstjóri á Rifsnesi SH, sýnir á korti sem var um borð hvar skipið var statt
er það var lagt til reks um kl. 1 aðfaranótt mánudagsins 21. október sl. Við borðið silja dómararn-
ir Sverrir Valdimarsson, Ásgeir Pétur Ásgeirsson og Gunnar Arason, við borðendann standa Jónat-
an Sveinsson, hrl., lögmaður útgerðar Rifsnessins og Guðmundur Sigurðsson, Iögfræðingur frá
Tryggingamiðstöðinni, þá Bjarni skipstjóri, Kristján Guðmundsson frá Rannsóknarnefnd sjóslysa
og Þorsteinn Þorsteinsson frá Siglingastofnun íslands.
Sjópróf vegna strands Rifsnessins við Grímsey
Enginn yfirmanna skips-
ins hafði fullgild réttindi
Akureyri. Morgunblaðið.
SJÓPRÓF vegna strands Rifsness
SH-44, 230 tonna stálskips frá Rifi,
í Grenivík í Grímsey að morgni
mánudagsins 21. október sl., fóru
fram hjá Héraðsdómi Norðurlands
eystra í gær. Þar kom m.a. fram
að enginn yfirmanna skipsins hafði
fullgild réttindi.
Afleysingaskipstjórinn, sem var
með skipið í þessum túr, var með
skipstjórnarréttindi á skipið, en skír-
teini hans var runnið úr gildi, stýri-
maður skipsins hafði einungis 30
rúmlesta réttindi og yfirvélstjóri og
vélavörður voru báðir réttindalausir.
Jafnframt kom fram að 7 skipverjar
voru skráðir í áhöfn Rifsnessins en
aðeins 5 skipveijar voru um borð
er óhappið varð.
Yfirvélstjóri skráður sem
matsveinn
Yfirvélstjóri í veiðiferðinni var
skráður sem matsveinn um borð,
en hann er lærður rafvirki og véia-
vörðurinn er réttindalaus og var
skráður sem háseti. Stýrimaðurinn
í veiðiferðinni var skráður sem
vélavörður og hefur réttindi sem
slíkur. Ekki hafði verið sótt um
undanþágur fyrir skipverjana né
að lögskráningu hafi verið breytt.
Rifsnesið var við rækjuveiðar fyrir
norðan land en hafði leitað vars
við Grímsey vegna veðurs er
óhappið varð.
í máli skipstjórans kom fram að
hann og vélavörður voru á vakt
umrædda nótt, skipstjórinn einn í
brúnni en vélavörðurinn neðan þilja.
Skipstjórinn sagði að skipinu hafi
verið siglt að eyjunni á um 15 faðma
dýpi og lagt til reks um kl. 1 aðfara-
nótt mánudags. Hann hafi setið í
miðri brúnni og m.a. litið í dagblöð.
Er hann leit á dýptarmælinn sá hann
að dýpið var orðið 5 faðmar og hafi
hann þá kúplað saman og siglt skip-
inu af stað en það tók niðri ör-
skömmu síðar.
Þegar þetta gerðist, um kl. 4 um
nóttina, sneri skipið bakborðssíðu
að landi að sögn skipstjóra og hann
hafi því siglt í stjór. Hann sagði að
skipið hafí barist í klöppum og gijóti
í um eina klukkustund en sér hafi
ekki verið fullljóst hvar skipið tók
niðri í upphafi.
Fjögur skip sameinuðust
við björgiin
Vélavörður á vakt sagðist hafa
verið í borðsal er óhappið varð. Hann
hafi strax farið upp í brú og þá
hafi stefni skipsins vísað á land en
skipstjórinn verið að snúa skipinu
er hann kom upp.
Fjögur skip sameinuðu krafta
sína við björgun Rifsnessins, Mar-
grét EA, Dagfari GK, Sæljón SU
og Þorleifur EA, auk þess sem þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, og
björgunarmenn í Grímsey komu að
björguninni. Þorleifur EA kom línu
á milli Rifnessins og Margrétar og
frá Margréti yfir í Dagfara og
Sæljónið og sameiginlega tókst
skipunum þremur að draga Rifsnes-
ið á flot á flóði seinni part mánu-
dags.
Við sjópróf töldu skipstjórar Þor-
leifs og Margrétar að björgun skips-
ins hafi gengið nokkuð vel, þrátt
fyrir erfiðar aðstæður. Einu sinni
lenti Þorleifur utan í Margréti án
þess þó að verða fyrir skemmdum.
Skipstjórinn á Margréti sagði að sér
hafi komið mjög á óvart hversu mik-
ill straumur var við Grímsey á þess-
uin tíma.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson stjórnaði
sjóprófunum en meðdómarar hans
eru Gunnar Arason og Sverrir Valdi-
marsson.
Morgunblaðið/Ásdís
FIMMTÁN aðilar hafa verið styrktir af Umhverfissjóði verslunarinnar
með tæplega 22 milljónum kréna á árinu.
Ársfundur Umhverfissjóðs verslunarinnar
48. flokksþing Alþýðuflokks hefst á morgun
Rannveig gefur ekki
kost á sér til formanns
UMHVERFISSJÓÐUR verslunar-
innar hefur úthlutað fimmtán aðilum
styrkjum fyrir tæpar 22 milljónir á
árinu. Á ársfundi sjóðsins í gær
bættust tveir nýir styrkþegar í hóp-
inn þegar einni milljón var úthlutað
til minningarsjóða Flateyrar og
Súðavíkur.
Umhverfissjóður verslunarinnar
tók til starfa 1. október 1995. í upp-
hafi voru 110 verslanir í sjóðnum en
á einu ári hefur þeim fjölgað í 150
og að sögn Bjarna Finnssonar, for-
manns stjórnar sjóðsins, mun hópur
sérverslana bætast fljótlega í hópinn.
Að sögn Einars Odds Kristjánsson-
ar, alþingismanns, sem veitti styrkn-
um viðtöku fyrir hönd Flateyrar verð-
ur styrkurinn notaður til þess að
varðveita skrúðgarð á Flateyri til
minningar um þá sem létust í snjó-
Styrkir til
Flateyrar og
Súðavíkur
flóðinu. „Hugmyndin er að umbreyta
hryllingnum og grimmdinni sem snjó-
flóðið olli í eitthvað fagurt og gott.
Þess vegna er það með mikilli þökk
að við tökum við þessum styrk.“
Ný verslun á Súðavík
Ágúst Björnsson, sveitarstjóri
Súðavíkur, tilkynnti formlega um
nýjan félaga að sjóðnum um leið og
hann þakkaði fyrir styrkinn. Sjóðsfé-
laginn sem um ræðir er ný verslun
á Súðavík sem var opnuð 31. októ-
ber sl. Að sögn Ágústar er verslunin
í eigu nánast allra fjölskyldna í
hreppnum.
Á ársfundinum kynntu fulltrúar
nokkurra styrkþega þau verkefni
sem hlutu styrki á árinu. Hulda
Valtýsdóttir frá Skógræktarfélagi
íslands sagði í sínu erindi að styrk-
urinn væri ómetanlegur fyrir áhuga-
mannaféiög, en öll aðildarfélög
Skógræktarfélags íslands hafa notið
góðs af styrknum.
Aðrir fulltrúar styrkþega sem
fluttu erindi á fundinum voru Þórir
Jónsson frá Ungmennafélagi Is-
lands, Óðinn Helgi Jónsson frá Sól-
heimum í Grímsnesi og Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri, fyrir hönd
Húsgulls, sem vinnur að uppgræðslu
Hólasands.
RANNVEIG Guðmundsdóttir, for-
maður Þingflokks jafnaðarmanna,
lýsti því yfir í gær að hún gæfi ekki
kost á sér í kjöri formanns Alþýðu-
flokksins á 48. flokksþingi Alþýðu-
flokksins sem hefst á morgun.
Rannveig sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki ætla að gefa upp
afstöðu sína til frambjóðenda til for-
manns en Sighvatur Björgvinsson og
Guðmundur Árni Stefánsson gefa
báðir kost á sér til formennsku. Eng-
inn hefur enn lýst yfir framboði til
varaformennsku. Rannveig segist í
sérstakri yfirlýsingu, sem hún sendi
frá sér í gær, hafa átt viðræður við
fjölda Alþýðuflokksfólks um land allt
um hugsanlegt formannsframboð.
Hún hafí hins vegar komist að þeirri
niðurstöðu að hún vildi einbeita sér
að þeim verkefnum sem formaður
þingflokks hefur með höndum.
„Næst formannsembætti býður
formennska í þingflokki jafnaðar-
manna upp á mestan möguleika til
að hafa áhrif á framvindu og þróun
samvinnu allra jafnaðarmanna,"
segir hún.
Flokksþing Alþýðuflokksins verð-
ur haldið í Perlunni 8.-10. nóvember
undir kjörorðunum: „Samstaða gegn
sérhagsmunum - jöfn tækifæri". í
gær höfðu borist tilkynningar um
335 flokksfulltrúa sem sitja þingið.
Þingsetning fer fram kl. 10 á föstu-
dagsmorgun og þá flytur Jón Bald-
vin Hannibalsson, fráfarandi for-
maður, setningarræðu sína.
í hádeginu mun Valgerður
Bjarnadóttir, starfsmaður EFTA í
Brussel, flytja ávarp á þinginu, síð-
degis mun Svanfríður Jónasdóttir
þingmaður Þjóðvaka flytja ávarp og
á laugardag fer m.a. fram pallborðs-
umræða um sameiningu jafnaðar-
manna undir stjórn Einars Karls
Haraldssonar en meðal þátttakenda
verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri. Kosning í embætti for-
manns og varaformanns og önnur
embætti fer fram síðdegis á laugar-
dag og kjör flokksstjórnar fer fram
á sunnudag.
Sótt verði um
aðild að ESB
á næsta ári
ÍSLENSK stjórnvöld eiga að skil-
greina samningsmarkmið sín og
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu strax að lokinni ríkjaráðstefnu
sambandsins á næsta ári, segir í
drögum að ályktun starfshóps Al-
þýðuflokksins, sem lögð verða fram
á flokksþinginu sem hefst á morgun.
í ályktunardrögunum segir að
tímabært sé að stjórnvöld ljúki sem
fyrst þeirri heimavinnu að leggja
mat á kosti og galla aðildar að ESB,
skilgreini samningsmarkmið og
leggi fram aðildarumsókn. í fram-
haldi af því gætu samningaviðræður
hafist. Niðurstöðu samninganna á
svo að bera undir þjóðaratkvæða-
greiðslu. í ályktunardrögunum segir
einnig að þótt enginn dragi í efa að
samningar við ESB um sjávarút-
vegsmál verði erfiðir sé engan veg-
inn útilokað að tillit verði tekið til
sjávarútvegshagsmuna Islendinga í
viðræðum við bandalagið.