Morgunblaðið - 07.11.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 17
Byggðalína Landsvirkjunar á Skeiðarársandi rofin og ljósleiðari Pósts & síma í sundur
SKEIÐARARHLAUP
Minna öryggi en kemur
ekki niður á notendum
LANDSVIRKJUN telur að tjón sitt
vegna hlaupsins á Skeiðarársandi
nemi um það bil 60 milljónum króna.
Byggðalínuhringur Landsvirkj-
unar rofnaði í hlaupinu á Skeiðarárs-
andi á þriðjudagsmorgun. Könn-
unarflug starfsmanna Landsvirkj-
unar í gær og fyrradag hefur leitt
í ljós að 22 staurastæður í Prest-
bakkalínu 1 eru fallnar á um fjög-
urra kílómetra kafla og er tjón talið
um 60 milljónir króna.
Alls var talið að um 50 staura-
stæður á 6-7 km löngum kafla getu
fallið í hlaupinu og að heildartjón
Landsvirkjunar vegna hlaupsins
gæti numið 100 milljónum króna.
Að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar,
ull á Skeið-
arársandi
TEIKNINGIN sýnir snið af brú-
arstöpli á Skeiðarársandi. Stöpullinn
er þannig gerður, að fyrst voru rekn-
ir niður tólf 11 metra langir steypt-
ir staurar, sem mynda undirstöðu.
Ofan á þá var steypt botnstykki, 2,5
metra djúpt og 1,6 metra þykkt, og
þar ofan á sjálfur stöpullinn, sex
metra hár. A honum situr brúin á
hálfs annars metra háu sæti. Allar
brýrnar voru smíðaðar eins, með 44
metra á milli stólpa. Lengsta brúin,
sú á Skeiðará, var á 21 stöpli, en
þrír þeirra skoluðust burt í hlaupinu.
Brúin á Gígjukvísþsem sópaðist burt,
var byggð á 9 stöplum og brúin á
Sæluhúsavatni á 3 stöplum.
-----»--»-♦---
Lengri leiðin
farin á fund
ráðherra
NEMENDUR Framhaldsskólans í
Austur-Skaftafellssýslu gefast ekki
upp þótt á móti blási en fyrirhugað
var að aka skemmstu leið til
Reykjavíkur á fund menntamála-
ráðherra Björns Bjarnasonar og
afhenda honum undirskriftalista
þar sem niðurskurði á fjárframlög-
um til skólans er mótmælt. Eftir
hamfarirnar á Skeiðarársandi er
aðeins norðurleiðin fær; til Egils-
staða, Akureyrar og þaðan til
Reykjavíkur, um 950 km leið.
Tæpur helmingur nemenda skól-
ans verður með í för, um 40 ung-
menni á aldrinum 16-20 ára, að
sögn Páls Guðbrandssonar í nem-
endaráði framhaldsskólans. „Við
ætlum að afhenda menntamálaráð-
herra mótmælaskjalið með um 1000
undirskriftum klukkan 16 á föstu-
dag en það tekur okkur tæpan sól-
arhring að keyra þessa leið,“ sagði
Páll.
er áætlað að um það bil þriggja vikna
bráðabirgðaviðgerðir þurfi til að
koma byggðalínunni inn að nýju eft-
ir að hlaupi slotar.
Rafmagnslaust varð í um 20 mín-
útur í grennd við Kirkjubæjarklaust-
ur þegar hlaupið brast á meðan ver-
ið var að aðlaga raforkukerfið breyt-
ingunni. Þorsteinn sagði að þótt all-
ir notendur hafi nú rafmagn þýði
þetta ástand að rekstraröryggi kerf-
isins sé nú minna en ella.
Prestbakkalína, sem hefur til
þessa staðið af sér hlaup í Skeiðará,
er hluti af hringtengingu línukerfis
Landsvirkjunar og liggur um Skeið-
arársand og yfír Skeiðará, Sandg-
ígjukvísl og Núpsvötn. Þótt kerfið
þoli að hringurinn rofni á einum stað
stendur það þá berskjaldað gagnvart
alvarlegum bilunum annars staðar á
landinu.
Ljósleiðari í sundur
Starfsmenn Pósts og síma hafa
ekki metið hve mikið tjón er orðið á
ljósleiðarastreng fyrir fjarskipti, sem
lá í sunnanverðum veginum yfir
Skeiðarársand og í stokkum á brún-
um yfir árnar. Jón Kr. Valdimars-
son, yfirtæknifræðingur Pósts og
síma, segir of snemmt að áætla
hvernig staðið 'verði að viðgerðum
þegar hlaupi sloti en hæpið sé að
beðið verði eftir því að brýr verði
aftur lagðar yfir árnar. Til greina
komi að plægja strenginn eftir ár-
botninum eða strengja yfir árnar.
Jón segir að skemmdir geti numið
20-25 milljónum króna en kominn
í jörðu kosti strengurinn um það bil
500 þúsund krónur hver kílómetri.
Hann segir að símasambandslaust
hafi orðið í augnablik meðan verið
var að bregðast við hlaupinu og
flytja símasamband norður og aust-
ur um land í stað ljósleiðarans með
suðurströndinni. Hann segir að eftir
sem áður anni símkerfið öllu al-
mennu álagi.
Sestu í þann sem þér
þykir bestur!
9.975 kr.
47.000 kr.
Tilboðsverð:
12.900 kr.
Tilboðsverð:
30.220
14.250 kr.
Tilboðsverð:
34.720
É&
Tilboðsverð:
frá 9.500 kr.
Tilboðsverð:
21.760 kr.
Tilboðsverð:
34.935 kr.
TilboðsverðT Iboðsverð:
29.600 kr. J.600 kr.
með örmui
14.915 kr.
36.100
Tilboðsverð:
22.000 kr.
▲w
Á.GUÐMUNDSSON ehf.
húsgagnaverksmiðja
Skemmuvegi 4 Kópavogi Sími 557 3100