Morgunblaðið - 07.11.1996, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.11.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 21 NEYTENDUR Gullaugað á ísafirði DÝRFINNA Torfadóttir er hér með blómavasa úr fjöru- gijóti. Skartgripir úr fjörustein- um á íslenskum dögum Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson FYRIRSÆTAN er með skart eftir Dýrfinnu. ÞESSA vikuna er íslenskt átak á Vestíjörðum og Vesturlandi. Dýr- finna Torfadóttir gullsmiður og eig- andi Gullaugans á ísafirði ætlar að kynna íslenska steina á íslenskum dögum. „Auk hefðbundinna ís- lenskra steina í skartgripagerð hef ég undanfarið ár verið að vinna mikið með fjörusteina og búa til ýmsa skartgripi þar sem þeir koma við sögu og líka notað þá í kertastj- aka og blómavasa. Auk þess sem ég kynni fólki steina kemur til mín Ragnheiður Óladóttir frá Þingeyri og talar um áhrifamátt steinanna á mannfólkið." Dýrfinna notar ýmislegt úr nán- asta umhverfí sínu í skartgripa- gerð. Hún hefur gert nælur úr stein- bíts- og lúðuroði og gjarnan notað roðið í hálsbönd líka. Þá hefur hún smíðað töluvert úr trjáberki úr Tunguskógi, notað leður og hross- hár og jafnvel blandað öllu þessu saman. - Hvemig eru vinsælustu skart- gripimir núna? „Það er mikið spurt um íslenska steina, fjörusteinarnir hafa verið vinsælir og roð líka. í fínlega skart- gripi nota ég íslenska steina á við jaspis, ópal og granít. Það er þó nokkuð beðið um fínlega skartgripi en líka grófa og ef eitt- hvað er, er eftirspurnin að verða meiri eftir grófu skarti", segir hún. Þess má geta að fyrir skömmu var haldin samkeppni um skart árs- ins á vegum tímaritsins Hárs og fegurðar og þá lenti Dýrfinna í öðru sæti með skart þar sem hún notaði hráefni frá ísafírði í munina, fiskroð, tijábörk úr Tunguskógi og fjörusteina úr fjörunni fyrir vestan. Nýtt Jólagjafa-, og barna- fataverslun í DAG, fimmtudag, opnar ný verslun að Vatnsstíg 3 og ber hún heitið Allt á góðu verði. Þar verður áhersla lögð á ýmsar vör- ur til jólagjafa auk þess sem seld- ur verður fatnaður fyrir börn og herra- og dömuvörur. Cfl'W Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensínstöðvar og helstu byggingavöruverslanir. Dreifing: Hringás ehf., Langholtsvegi 84, s. 533 1330. Morgunblaðið/Emilía GYÐA Brynjólfsdóttir að stilla út barnafatnaði í glugga verslunarinnar v*trarv$rum tfestingum Skiss barnavattbuxur á kr. 1.000. Laekhað verði Leðurkuii Frtttl 4ltld> , | -fSildri gerðir af keppnisskíðum á mikið lækkuðu verði! 'Skíði með bindtngu^nt frá kr. iriski eitthva Eldri módel af Hevica - úlpum og skí ■■Rv2 með allt að 5Ö% afslaetti. Yfirförum sktðin og brettin án endurgjalds í nóvember. Innifalin er stilling á bindingum ogskerping á köntum. Sérfraeðingar ráðieggja við val á skíðabúnaði! Ýmsar vetrarvörur á góðu ^ höfur. , svo sem hanskar og UTILIF Glæsibæ - sími 581 2922 ,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.