Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
KOSIMINGARNAR I BANDARIKJUNUM
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 23
Repúblikanar áfram
í meirihluta á þingi
Washington. Reuter.
REPÚBLIKANAR héldu meirihluta
sínum á þingi, í öldungadeild og
fulltrúadeild, þrátt fyrir mikinn sigur
Bill Clintons í forsetakosningunum.
Er þetta í fyrsta sinn í 68 ár, að
þeir fá meirirhluta í tvennum kosn-
ingum í röð en þegar þeir tryggðu
sér hann í kosningunum 1994 var
það í fyrsta sinn í 40 ár.
Repúblikanar, sem höfðu 53 sæti
f öldungadeild á móti 47 sætum
demókrata, juku meirihlutann um
eitt sæti að minnsta kosti með því
að vinna þingsæti af demókrötum í
Alabama, Nebraska og í Arkansas,
heimaríki Clintons, þar sem þeir
fengu nú öldungadeildarþingmann í
fyrsta sinn frá lokum borgarastyij-
aldarinnar á síðustu öld.
Demókratar unnu eitt þingsæti
af repúblikönum í Suður-Dakota en
þar féll Larry Pressler, formaður
viðskiptanefndar þingsins, fyrir Tim
Nýtt þing mun ein-
kennast af mála-
miðlunum milli þess
og forsetans
Johnson. Kosið var um 34 sæti í
öldungadeild og er enn ekki ljóst
hver úrslitin verða í Oregon en þar
mun það ráðast þegar utankjör-
staðaatkvæði hafa verið talin.
Tapa 5 til 10 sætum
í fulltrúadeild var kosið um öll
þingsætin 435 og í gærmorgun voru
komin úrslit varðandi þau öll nema
14. Hafa repúblikanar haft 235
sæti á móti 197 demókrata en Newt
Gingrich, leiðtogi repúblikana í full-
trúadeildinni viðurkenndi í gær, að
þeir myndu missa fimm til tíu sæti.
Talning utankjörstaðaatkvæða mun
ráða úrslitum um sum sætanna 14,
sem eftir eru, og um tvö sæti fyrir
Texas verður kosið aftur í desember.
Stjórnmálaskýrendur segja og spá
því, að næsta þing muni einkennast
af málamiðlunum þar sem ljóst sé,
að hvorki meirihluti repúblikana né
Clinton forseti muni geta komið í
gegn umdeildum málum. Á síðasta
þingi hafi hvorirtveggju gengið of
langt, Clinton með heilsugæslufrum-
varpi sínu og repúblikanar í fjárlaga-
deilunni.
Clinton sagði líka í fyrrinótt, að
niðurstaða kosninganna væri meðal
annars yfirlýsing frá kjósendum um,
að þeir vildu að allir tækju höndum
saman og Gingrich var sammála því.
Sáttfús Gingrich
„Ég tel, að okkur beri skylda til
að hafa samvinnu við nýkjörinn for-
Fjöldi kjörmanna samtals
Fjöldi ríkja sem þeir unnu
Clinton
Clinton
Clinton
Frambjóðendur þurfa 270 al 538
kjörmönnum til aö ná kjöri
New Hampshire
Vermont \
N.-Dakota
Vestur-
Virginia
S.-Dakota
\ \_..A Massachusetts
kP-'\ilá Rhode *
IslandH
Connecticut 8
jNewJersey 15
Delaware 3
'Maryland 10
Washington D.C. 3
Wyoming
Nebraska
Colorado
Kansas
N.-Carolina'
Oklahoma
'Suður-
Carolina
Hawaii
Alaska
Niöurstaöa forsetakosninganna 1992
Öldungadeildin eftir kosningarnar
Repúblikanar Demókratar
Clinton
Alls eru ^
þingsætin 100
NIÐURSTOÐUR FORSETAKOSNINGANNA I BANDARIKJUNUM
1 379
| 159
Reuter
HÆGRIMAÐURINN Jesse
Helms var endurkjörinn
í öldungadeildina í
Norður-Karólínu.
Reuter
DEMÓKRATINN og öldunga-
deildarþingmaðurinn John
Kerry fagnar endurkjöri í
Massachusetts ásamt konu
sinni, Teresu Heinz.
seta enda leggur hann áherslu á
jafnvægi í ríkisbúskapnum og
skattalækkanir á sumum sviðum,
hann er andvígur eiturlyfjum og
styður raunar flest okkar baráttu-
mál,“ sagði Gingrich.
Tveir kunnustu hægrimenn í öid-
ungadeildinni, Jesse Helms í Norður-
Karólínu og Strom Thurmond í Suð-
ur-Karólínu, voru endurkjörnir en
Thurmond verður 94 ára gamall í
desember. Endist honum aldur til
kemst hann á 100. aldursárið sem
öldungadeildarþingmaður en hann
er nú að bytja sitt áttunda kjörtíma-
bil.
1,3 milljarðar kr. fyrir sætið
Helms tókst nú öðru sinni að vetj-
ast atlögu frá Harvey Gantt, sem
er blökkumaður og fyrrverandi borg-
arstjóri í Charlotte, en slagurinn
þeirra var sá dýrasti í baráttunni
um öldungadeildarsæti. Herkostnað-
ur Helms var um 1,3 milljarðar ísl.
kr. og hjá Gantt var hann um 400
millj. kr.
Kurteislegasta kosningabaráttan
var háð í Massachusetts en þar var
demókratinn og öldungadeildarþing-
maðurinn John Kerry endurkjörinn.
Átti hann í höggi við repúblikanann
og ríkisstjórann William Weld. Per-
sónulegar árásir og skítkast kom þar
hvergi við sögu enda lögðu þeir
áherslu á, að þeir bæru mikla virð-
ineru hvor fyrir öðrum.
Kaneho
-cngu líkt!
HUÐGREININ.G
MEÐ TÖLVU í DAG
OGÁMORGUN KL. 13-18
Á SNYRTISTOFUNNIJÓNU,
HAMRABORG 10.
^ VERIÐ VELKOMIN.
SÉRFRÆÐINGUR
FRÁ KANEBO
Á STAÐNUM.
Kaneho
Art through Technology
japanskar snyrfívörur
Rí kisstj órakosningar
Demókratar sigra í
sjö ríkjum af ellefu
Seattle. Reuter.
DEMÓKRATAR báru sigur úr být-
um í ríkisstjórakosningum í sjö ríkj-
um af ellefu og fjöldi ríkisstjóra
stóru flokkanna tveggja breyttist
ekki í kosningunum.
Mesta athygli vakti að sonur kín-
verskra innflytjenda, demókratinn
Gary Locke, fór með sigur af hólmi
í Washington-ríki og verður fyrsti
ríkisstjórinn af asískum uppruna á
meginlandinu. Locke sigraði þar
Ellen Craswell, fyrrverandi öldung-
ardeildarþingmann, með 60% at-
kvæða gegn 40%.
Demókratar sigruðu einnig í
tveimur af hefðbundnum vígjum
repúblikana, Indiana og New
Hampshire. Öldungadeildarþing-
maðurinn Jeanne Shaheen varð
fyrsta konan til að verða kjörinn
ríkisstjóri New Hampshire og jafn-
framt fyrsti demókratinn í því emb-
ætti frá árinu 1980.
Demókratar héldu embætti ríkis-
stjóra Indiana þar sem Frank
O’Bannon, bar sigurorð af repúblik-
ananum Stephen Goldsmith, borg-
arstjóra Indianapolis, með 52% at-
kvæða gegn 47%.
Repúblikaninn Cecil Underwood
sigraði hins vegar í Vestur-Virgi-
níu, þar sem demókratar hafa yfir-
leitt verið öflugri.