Morgunblaðið - 07.11.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 25
Giulio Andreotti
„Enginn
engill“
Róm. Reuter.
GIULIO Andreotti, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ítalíu, segist ekki vera
„neinn engill“ en vísar á bug öllum
ásökunum um mafíutengsl.
Vitnaleiðslur standa nú yfir í
máli Andreottis. Hann sat rólegur í
sæti sínu er Francesco Marino
Mannoi, sem hefur snúið baki við
fyrrverandi glæpafélögum sínum í
mafíunni, lýsti því yfir í réttarsal í
Róm á mánudag að hann hefði séð
ráðherrann fyrrverandi á fundi með
mafíuleiðtogum á Sikiley.
„Þetta er óhróður, það er ekkert
nýtt í þessu,“ sagði Andreotti.
Mannoi hefur viðurkennt að hafa
stundað heróínvinnslu fyrir mafíuna.
„Ég held ég sé enginn engill en tel
að ég sé merkilegri maður en hann.“
----------♦ ♦ ♦---
Kongó-Krímveiki
í Suður-Afríku
Sala á strúta-
kjöti bönnuð
Jóhannesarborg. Reuter.
VÍSINDAMENN í Suður-Afríku
reyndu á þriðjudag að greina orsök
þess að starfsmenn í strútaslátur-
húsi hafa sýkst af Kongó-Krímveiki,
sem er skyld ebóla-veikinni.
Útflutningur strútakjöts var þeg-
ar bannaður. Einn maður er látinn
og 16 sjúkir. Smitið er talið berast
með maurum í fjöðrum fuglanna.
Einkenni sjúkdómanna eru svipuð,
holdið verður vökvakennt og miklar
blæðingar í líffærum valda dauða.
ERLENT
Skipta þurfti um fimm æðar í Jeltsín
Hefur tekið við
forsetavöldum á ný
Moskvu. Reuter.
LÍÐAN Borís Jeltsíns Rússlands-
forseta er góð eftir atvikum og
hann tekur stöðugum framförum,
sagði í tilkynningu sem barst frá
stjórnvöldum í Kreml í gær. Lækn-
ar hans sögðu að ekki hefðu kom-
ið upp nein sérstök vandamál í
tengslum við afturbatann og það
kæmi þeim á óvart hve skjótt hann
virtist ætla að ná sér. Sagt var
að ný tilkynning yrði birt í dag,
fimmtudag, um líðan forsetans.
Jeltsín tók á ný við forsetavöld-
um í gær og undirritaði yfirlýsingu
þess efnis en Víktor Tsjernomýrd-
ín forsætisráðherra gegndi emb-
ættinu tímabundið meðan forset-
inn var á skurðarborðinu. „Þetta
merkir að hann er aftur kominn
til starfa,“ sagði Tsjernomýrdín
sem ræddi við Jeltsín í 15 mínútur
í gær en engar sjónvarpsmyndir
hafa enn verið sýndar af forsetan-
um eftir aðgerðina.
Talsmaður forsetans, Sergej
Jastrzhembski, sagði að hann bæði
í sífellu um að fá að fara aftur á
sjúkrahúsið þar sem hann naut
áður aðhlynningar vegna krans-
æðastíflunnar. Yrði þessi bón hans
rædd í dag. „Við erum öll bjartsýn
hér í Kreml vegna þess að [Jeltsín]
tekur hröðum framförum, lækn-
arnir eru undrandi á því hve heilsa
hans er góð og hve viljasterkur
hann er,“ sagði talsmaðurinn.
Stjórnvöld hafa sent frá sér
margar tilkynningar um gang
mála og fagnaði dagblaðið Ísvestía
þeim umskiptum sem orðið hefðu
í landinu þegar upplýsingar um
heilsufar leiðtoganna væru á dag-
skrá. í tíð kommúnista varð al-
menningur nær einvörðungu að
treysta á sögusagnir í þeim efnum.
Flókin aðgerð
Stjórnandi læknahópsins sem
skar forsetann upp var Renat
Aktsjúrín. Alls reyndust fimm
hjartaæðar svo stíflaðar að skipta
þurfti um þær. Var aðgerðin því
óvenju flókin, tók sjö klukkustund-
ir. Lét breskur sérfræðingur í ljós
efasemdir um að rússnesku lækn-
arnir hefðu verið einir að verki,
þeir hefðu sennilega fengið aðstoð
erlendra hjartaskurðlækna þótt
því hefði verið leynt af pólitískum
ástæðum. Engar vísbendingar eru
á hinn bóginn um að svo hafi verið.
Bandariski skurðlæknirinn Mic-
hael DeBakey, sem var Rússum
til ráðgjafar, sagði allt hafa geng-
ið frábærlega vel. „Eftir þijá eða
fjóra mánuði verður hann fær um
að gera nánast allt sem han vill,“
sagði hann um Jeltsín eftir að
hafa hitt hann í gær. DeBakey
sagði að eftir fjóra mánuði gæti
Jeltsín leikið tennis á ný en ráð-
lagði honum að fara vandlega eft-
ir ráðum lækna sinna og fara ekki
of geyst.
Zjúganov hlýlegur
Erlendir stjórnmálaleiðtogar
sendu Jeltsín kveðjur og óskir um
góðan bata, þ. á m. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti. Jafnt samheij-
ar sem andstæðingar forsetans
bíða þess með eftirvæntingu
hvernig honum reiði af og sögðu
stjórnmálaskýrendur að Jeltsín
myndi leggja áherslu á að taka
sem fyrst aftur við öllum stjórnar-
taumum til að draga úr óvissu.
Leiðtogi kommúnista, Gennadí
Zjúganov, lét hlýleg orð falla.
„Hann verður að hugsa meira um
heilsuna," sagði Zjúganov. „Hann
verður að treysta betur fólkinu
sem hann starfar með, annars
verður hvorki heilsan né stjórnarf-
arið í góðu ásigkomulagi."
Verð á skuldabréfum og hluta-
bréfum i rússneskum fyrirtækjum
hækkaði mikið er fréttist að að-
gerðin hefði heppnast vel en
stjórnmálaskýrendur benda á að
efnahagsmálin séu í ólestri og
mörg torleyst verkefni framundan.
Ný stofnun er á að bæta skatt-
heimtu fyrirtækja hefur enn sem
komið er engu áorkað. Milljónir
manna fá ekki laun greidd á rétt-
um tíma og margir óttast að vetur-
inn verði erfiður.
Flugslysið í Perú
Límbandið
fannst á
brakinu
Lima. Reuter.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTI Perú
staðfesti í gær, að svo virtist, sem
brotlending Boeing-757 þotu per-
úska flugfélagsins Aeroperu, væri
afleiðing þess, að hreingerninga-
menn gleymdu að fjarlægja límband
af mikilvægum hæðar- og hraða-
skynjurum þotunnar.
„Tilvist límbandins gæti útskýrt
rangar og ruglingslegar upplýs-
ingar sem bárust flugmönnum um
hæð og hraða þotunnar eftir flug-
tak,“ sagði í yfírlýsingu ráðuneytis-
ins. Menn, sem bónuðu flugvélina,
gleymdu að fjarlægja límbönd af
loftinntökum skynjara, sem þeir
höfðu límt yfir, svo sem venja er
við hreinsun flugvéla. Skynjararnir
eru hluti af hraða- og hæðarmæli-
kerfum þotunnar.
Rannsókn ólokið
Þotan fórst á hafi úti hálfri
stundu eftir miðnætti 2. október sl.
Svartaþoka var á flugleiðinni.
Skömmu eftir flugtak tilkynntu
flugmennimir flugumferðarstjór-
um, að stjórntækin virkuðu ekki.
Tilvist límbandsins kom í ljós, er
brak þotunnar náðist upp af hafs-
botni.
Rannsóknin á slysinu er ólokið
og af þeim sökum hafa hvorki Bo-
eing-verksmiðjurnar né bandarísk
yfirvöld viljað tjá sig um hugsanleg-
ar orsakir þess.
Með þotunni fórust allir sem um
borð vora, 70 manns. í gær höfðu
lík 55 þeirra fundist.
Söfnunarsíminn
sjálf boöaliöar verða við símann |§tfl
kl. 12.00- 21.00 5^
dagana 5. - 8. nóvember. tl|t|
Gíróseðlar Hjálparsjóðs
í bönkum og sparisjóðum.
Reikningur Hjálparsjóðs:
ávísanareikn. nr. 12 í SPR0N, Seitjarnarnesi
Framlögin renna óskert til hjálparstarfsins.
RAUÐI KROSS ISLANDS
I I I
>M»|
I r?® >| hT *.vv
<5 > • '|í i| f !
g|T; 1 . , 1 j.
rt
1 \Jy*\ íuv:l
i fji 3 p^> tjí,