Morgunblaðið - 07.11.1996, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
HELGI Þorgils Friðjónsson: Flug. 1996.
Flug andans
MYNPLIST
Geröuberg/Sjónar-
hóll
MÁLVERK, TEIKNING-
AR O.FL.
Helgi Þorgils Friðjónsson. Gerðu-
berg: Opið kl. 9-23 mánud.-
fimmtud., kl. 9-19 föstud. ogkl.
12-16 laugard.-sunnud. til 10.
nóvember; aðgangur ókeypis.
Sjónarhóll: Opið kl. 14-18 alla
daga nema mánud. til 10. nóvem-
ber; aðgangur kr. 200.
SÚ nýjung sem bryddað var
upp á síðasta vetur með Sjón-
þingum í Gerðubergi hefur
reynst vel heppnuð, bæði hvað
varðar aðsókn að Sjónþingunum
sjálfum svo og gæðum þeirra
sýninga, sem tengjastþeim. Hér
ræður auðvitað miklu að þingin
hafa verið helguð dugmiklu li-
stafólki sem hefur ýmislegt til
málanna að leggja, bæði hvað
varðar eigin listþróun sem og
stöðu myndlistarinnar almennt.
Nú standa yfir tvær sýningar
á verkum Helga Þorgils Frið-
jónssonar, sem fylgja í kjölfar
Sjónþings með listamanninum í
upphafi sýningartímans. Helgi
Þorgils hefur verið stöðugt vax-
andi sem listmálari frá því um
miðjan síðasta áratug, þegar
hann tók að þróa þann sterkan
og persónulega myndstíl, sem
hefur skipað honum á bekk
meðal okkar fremstu listmálara
í dag. Því er áhugavert að fá
tækifæri til að sjá hér hvernig
myndmál hans tók að koma
fram í málverkinu.
Gerðuberg
Sú venja hefur skapast í þess-
um flokki sýninga að í Gerðu-
bergi er komið fyrir eldri verk-
um listafólksins og svo er einnig
hér. Elsta myndin hér er sjálfs-
mynd listamannsins frá 1971,
þegar hann var átján ára gam-
all; ábúðarfullt og kröftugt and-
lit æskumannsins er í skemmti-
legri andstöðu við aðra sjálfs-
mynd sem Helgi Þorgils gerði
þegar hann var orðinn helmingi
eldri og hafði mótað sér allt
annan myndstíl.
Myndir eru hér ekki settar
upp í tímaröð, heldur blandað
nokkuð saman, þannig að skoða
þarf verkin á báðum hæðum
áður en örlítill heildarsvipur
fæst af þeirri þróun sem hér
má lesa. Verkin frá áttunda og
framan af níunda áratugnum
eru yfirleitt smá og einföld og
tengjast á stundum greinilega
þeirri hugmyndalist sem var
ríkjandi; þó er áberandi að verk
Helga Þorgils fjalla nær undan-
tekningarlaust með einum eða
öðrum hætti um fólk eða dýr
og samband þeirra við umhverfi
sitt, fremur en huglægari þætti.
Þetta kemur vel fram í dýrasög-
um jafnt sem myndum af inn-
setningum og langri röð smá-
mynda sem hann gerði 1979-81
og kallaði „Atburði“.
I viðtali vegna sýningarinnar
kemur fram hjá listamanninum
að sú breyting sem varð grunn-
urinn að síðari stíl hans hafi
tekið að geijast á tímabilinu
1983-86, hægt og bítandi.
Þessa má sjá merki í nokkrum
verkanna; tvær myndir af ung-
um dreng og hundi (nr. 6 og
7) frá 1985 sýna þessa þróun,
og segja má að hún sé komin í
það form sem listamaðurinn
hefur unnið út frá síðan í verk-
inu „Fornt vé“ (nr. 5) frá 1988.
Hinar fjarrænu, draumkenndu
persónur málverkanna eru oftar
en ekki byggðar á listamannin-
um sjálfum og fjölskyldu hans,
en virðast byggja veröld sem
er mitt á milli þessa heims og
annars þar sem þær svífa yfir
stílfærðu landinu.
Sjónarhóll
Hér er síðan að finna fimmtán
málverk sem nær öll eru unnin
á síðustu tveimur árum og undir-
strika því vel þá miklu fágun sem
hefur orðið á verkum Helga
Þorgils hin síðari ár. Landslagið
hefur orðið sterkari þáttur í
myndunum og má eflaust kenna
þar staði við utanverðan
Hvammsfjörð og Breiðafjarða-
reyjar, sem listamaðurinn hefur
lengi sótt til. Táknrænt samspil
manns og fugls er einnig áber-
andi þáttur í myndmálinu, eins
og sést vel í málverkum eins og
„Helgimynd“ (nr. 2), „Svanir og
drengir“ (nr. 5) og loks „Flug“
(nr. 12); íkarus og englakórar
eru ekki langt undan í þessum
verkum, sem líkt og breiða ör-
yggi og ró yfir hverfulleik og
hraða samtímans.
Myndlist Helga Þorgils hefur
hin síðari ár fundið mikinn endu-
róm meðal verka yngri lista-
manna, einkum hvað varðar
þann fjarlæga frið, sem yfir þeim
hvílir, og nægir að vísa til manna
eins og Birgis Snæbjörns Birgis-
sonar og Sigtryggs Bjarna Bald-
vinssonar í því sambandi sem
báðir hafa þróað afar persónu-
lega myndgerð á svipuðum nót-
um. Rekstur hans á litlu galleríi
í heimahúsum hefur einnig verið
mikilvægur þáttur í listalífinu
þó ekki hafi hann alltaf farið
hátt. Loks ber að nefna að Helgi
Þorgils hefur án efa átt meiri
þátt í endurnýjun málverksins í
íslenskri myndlist síðasta ára-
tuginn en almennt hefur verið
viðurkennt, einfaldlega með því
að sýna fram á persónulega
myndgerð í hefðbundnum miðli
í hringiðu breytinga og krafna
um nýja miðla. Þannig beindi
hann sjónum manna að því sem
mestu skipti, þ.e. því flugi and-
ans sem framlag listamannsins
sjálfs byggist á.
Er rétt að hvetja listunnendur
til að láta þessar sýningar ekki
fram hjá sér fara.
Eiríkur Þorláksson
Nýjar plötur
Lítið brölt
GEISLAPLATAN „Lítið brölt“ með
söng Hauks Morthens er komin út.
Það var í kjölfar Stjörnumessu í
febrúar 1980 sem sú hugmynd kvikn-
aði að fá Jóhann Helgason til að semja
ný lög fyrir Hauk Morthens sem rúm-
ast gætu á einni hæggengri hljóm-
plötu. Á þessari uppskeruhátíð hafði
Haukur verið heiðraður fyrir störf sín
í þágu íslenskrar
tónlistar og þakk-
aði fyrir sig með
söng við undirleik
hljómsveitarinnar
Mezzoforte.
I kynningu seg-
ir að Jóhann hafí
kynnt Hauki ellefu
ný lög sín, sex við
eigin texta, eitt við
texta Jóns Sig-
urðssonar, eitt við texta þeirra Jó-
hanns og Jóns og þijú við ljóð skáld-
anna Kristjáns frá Djúpalæk, Matthí-
asar Jochumssonar og Þorsteins Erl-
ingssonar. Upptökur fóru fram í júní
1980 undir stjóm Baldurs Más Arn-
grímssonar.
Tæpu ári eftir útkomu „Lítils
brölts“ kom úttveggja laga smáskífa
þar sem Haukur naut liðsinnis sömu
tónlistarmanna. Innihélt sú plata lög-
in „Tilhugalíf* og „Hvert liggur leið?“,
en að auki hafði Haukur tekið upp
þriðja lagið „Hvar ert þú?“ sem geyma
átti til seinni tíma. Einhverra hluta
vegna varð ekkert af því að þetta
þriðja lag kæmi út á plötu og kemur
það því fyrst nú fyrir eyru almenn-
ings. Til að skapa sem gleggsta mynd
af tónlistarflutningi Hauks Morthens
á þessu tveggja áratímabili hefur
lögunum þremur nú verið bætt við.
„Lítið brölt", sem aukalögum enda
voru þau hljóðrituð í rökréttu fram-
haldi af „Litlu brölti".
„Lítið brölt“ með Hauki Morthens
er hluti af úgáfuröðinni „Homsteinar
íslenskrar tónlistar". Verð hvers ein-
staks er 1.299 krónur.
Nýjar bækur
• ÁSÓKNernýleg Úrvalsbókeftir
James Herbert, var fyrst gefin út
hjá Hodder og Stoughton á Eng-
landi árið 1988. Móttökumar vom
svo góðar að bókin hefur verið gefin
út aftur og aftur síðan; til dæmis er
þýðing sú sem hér fylgir gerð eftir
sjöttu prentun New Engilsh Library
Paperback Editions 1993. íslensk
þýðing er eftir Sólveigu Jónsdóttur
ogVilborgu Harðardóttur.
í fyrra var síðan gerð kvikmynd
eftir bókinni og er hún nú fáanleg í
öllum helstu myndbandaleigum hér-
lendis undir hinu enska heiti sögunn-
ar, Haunted. Úrvalshækur koma úr
allt árið og er áætlað að tvær bækur
enn komi út áður en þetta ár er á
enda. Fyrsta bókin á þessu ári var
Morð íhverfinu eftir Johnnie
Jacobs, rómantísk spennusaga. Þá
kom Brotin ör, kvikmynda- og
spennusaga eftir Jeff Rovin. Þriðja
bókin var rómantískur spennuvestri,
Sinnaskipti eftir Lyndu Kay Car-
penter, en því næst kom Fyrrver-
andi eftir John Lutz, sálfræðilegur
spennutryllir. Loks má nefna róman-
tísku spennu- og ævintýrasöguna
Óravíddir Speglanna eftir Lindu
Davies. Spennusaga eftir Scott
Smith, Einföld áætlun er komin út.
Á frummálinu heitir hún Simple Plait
og spennusagnahöfundurinn Stephen
King staðhæfir að þetta sé besta
spennusagan síðan Lömbin þagna
kom út. Simple Plan var á metsölu-
listum vestan hafs svo vikum skipti
eftir að hún kom út fyrir rúmu ári.
Síðust á lista þessa árs er loks bók
eftir Stephen Humprey Bogart - son
Humprey Bogart leikara og leikkon-
unnar Lauren Bacall. Bogartyngri
hefur getið sér gott orð sem rithöf-
undur og fyrsta bók hans sem þýdd
er á íslensku er spennusaga sem ger-
ist í heimi kvikmyndaleikaranna. Á
ensku heitir bókin Playitagain en
hefur þegar þetta er skrifað ekki enn
hlotið íslenskt nafn.
Útgáfufélagið Úrval gefur út Úr-
valsbækur. Þærkosta 895 krónur út
úr búð og minna í áskrift.
Þakskífur
úr steini
fyrir íslenskt
veðurfar.
Þakskífur úr steini hafa lengi verið húsaprýði í grannlöndum
okkar. BM*Vallá framleiðir nú þakskífur sem þróaðar eru
sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður og standast ströngustu
kröfur um frostþol og endingu.
_ Þakskífurnar eru sérstaklega fallegar og setja glæsilegan
svip jafnt á ný hús sem gömul.
_ Þakskífurnar frá BM*Vallá eru viðhaldsfríar. Þær ryðga ekki
og þær þarf aldrei að mála.
_ Þakskífurnar eru mjög þéttar og auðvelt er að leggja þær.
Kynntu þér þetta hagkvæma og spennandi þakefni.
Pantaðu ókeypis bækling með ítarlegum upplýsingum
m.a. um lögn og frágang.
Pantaðu bækling í síma 577 4200 • Grænt númer 800 4200 • Netfang: bmvalla.sala@skima.is
Haukur
Morthens