Morgunblaðið - 07.11.1996, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996 29
LISTIR
Pekka
Niskanen
í Ingólfs-
stræti 8
í DAG, fimmtudag, verður opnuð
sýning á verkum fínnska lista-
mannsins Pekkas Niskanens í Ing-
ólfsstræti 8.
Fáir listamenn nota tölvuna jafn
mikið og Pekka Niskanen. í kynn-
ingu segir: „Vinna hans hvílir að
fullu og öllu á tilbúnum grunni.
Efniviður hans er sögur sem hann
vefur saman í ritvinnslu, svo úr
verður einhvers konar skáldskapur:
ýmist tölvugerðar teiknimyndir eða
sambland ljósmyndunar og letur-
gerða sem hægt er að færa yfír á
stór bleksprautuskilti eða ljósprent-
anir svo dæmi sé tekið ... Lista-
maðurinn kemur skáldskap sínum
fyrir meðal forma raunveruleikans.
Það sem er yfírmáta gervilegt verð-
ur nærtækt í áþreifanlegri mynd.“
Sari Tervani-
emi sýnir í
Umbru
í DAG, fímmtudag, verður opnuð í
Galleríi Úmbru, Bemhöftstorfu,
sýning fínnsku myndlistarkonunnar
Sari Tervaniemi.
í kynningu segir: „Myndlistar-
konan sem býr og starfar í Helsinki
vinnur með ljósmyndir og texta með
tölvu og einnig vídeóverk. í verkum
hennar nú er aðalviðfangsefnið að
skoða viðhorf manna í nútímalegu
samfélagi. Verkin sem hún sýnir
eru í seríunni „Darkly Comics" eða
Gálgahúmor frá árinu 1996. í
myndaröðinni eru sex stórar tölvu-
myndir (100x200 cm). Myndir, sem
hún segir að séu sálrænt rými fyrir
sögur af fólki sem býr í samfélagi
þar sem karlar, fjöimiðiar og tækni
ráði ríkjum, samfélagi sem hefur
búið til hugmyndina um að ná hrað-
astri og mestri ánægju með neyslu.
Þessar sögur segja frá smáum og
stórum félagslegum og sálrænum
truflunum“.
Skáld lesa í
Gerðarsafni
SKÁLDIN Jón Bjarman, Kristjana
Emilía Guðmundsdóttir og Þorvarð-
ur Hjálmarsson lesa úr verkum sín-
um í kaffístofu Gerðarsafns, í dag
fimmtudag milli kl. 17 og 18.
í kynningu segir: „Fyrir u.þ.b.
hálfu öðru ári tóku nokkrir áhuga-
menn um ritlist í Kópavogi að venja
komur sínar í kaffístofu Gerðar-
safns, Listasafns Gerðar Helgadótt-
ur á Kópavogshálsi. Afrakstur viku-
legra stefnumóta varð bókin Gluggi,
safn ljóða skálda úr Kópavogi, sem
kom út tæpu ári eftir að hópurinn
hittist fyrst. Formlegt tilefni útgáf-
unnar var 40 ára afmæli bæjarins
1995.
í haust ákvað hinn afar óform-
legi hópur, sem þó hafði gefið sjálf-
um sér hið formlega nafn Ritlistar-
hópur Kópavogs að efna til fastra
upplestra annanhvem fimmtudag í
bækistöð sinni, Kaffístofu Gerðar-
safns."
Jazztónleikar á
Jómfrúnni
TENÓRSAXÓFÓNLEIKARINN
Efraim Trujillo heldur tónleika
næstkomandi föstudagskvöld 8.
nóvember á Jómfrúnni, Lækjargötu
4 í Reykjavík.
Til liðs við sig hefur hann fengið
Eyþór Gunnarsson á píanó, Þórð
Högnason á bassa og Matthías
Hemstock á trommur. „Efraim er
af bandarísku og hollensku bergi
brotinn, búsettur í Hollandi og í röð
fremstu jazzleikara þar. Hann hefur
komið fram á jazzhátíðum víða um
heim með hljómsveitinni Fra Fra
Sound, sem hefur um árabil verið
leiðandi á sviði afró-karabískrar
jazztónlistar í Hollandi," segir í
kynningu.
Tónleikamir heíjast kl. 21.
Hátíðarmyndir
sýndar áfram
KVIKMYNDAHÁTÍÐ í Reykjavík
er lokið og þykir hátíðin hafa
heppnast í alla staði mjög vel.
Vegna fjölda áskorana hefur verið
ákveðið að sýna áfram nokkar af
myndum Kvikmyndahátíðar.
Háskólabíó mun áfram sýna
„Dauður“, „Sanghæ-gengið“ og
„Brimbrot" en vegna góðrar að-
sóknar að þeirri mynd hefur verið
ákveðið að færa hana í stærri sal.
Regnboginn mun halda áfram
sýningum á „Emmu“, „Chabert
ofursta", „Elísu“, „Einstimi",
„Stjörnufangaranum", „Reyk“,
„Helbláum“ og einnig verða nokkr-
araukasýningar á „Áhugamannin-
um“ og „Hvítu blöðrunni".
Stjörnubíó mun halda áfram
sýningum á „Ameríku" og „Bleika
húsinu“.
Sambíóin munu halda áfram
sýningum á „Fortölum og full-
vissu“ og „Ríkarði III".
Laugarásbíó mun halda áfram
sýningum á „Kristínu Lavrans-
dóttur".
Grímur
Thomsen
á dagskrá
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas minnist Gríms Thomsens á
skemmti- og fræðslufundi í dag
fimmtudaginn 7. nóvember kl.
20.30, en 27. nóvember næstkom-
andi eru 100 ár liðin frá láti Gríms
Thomsens, skrifstofustjóra, þing-
manns, skálds og bónda að Bessa-
stöðum.
Að venju verður fundurinn hald-
inn í Komhlöðunni, Bankastræti 2,
Reykjavík.
Sveinn Yngi Egilsson bók-
menntafræðingur mun flytja erindi
um ritstörf Gríms, sem hann nefnir
„Norrænar bókmenntir og suðræn-
ar í greinaskrifum Gríms Thoms-
ens“.
Kristján Ámason dósent, formað-
ur Grikklandsvinafélagsins, mun að
svo búnu segja nokkuð frá þýðing-
um Gríms Thomsens.
Islandskvöld á
Súfistanum
Í KVÖLD verður efnt til bókakvölds
í Súfístanum - bókakaffínu í Bóka-
búð Máls og menningar að Lauga-
vegi 18. Þar verða kynntar bækum-
ar Island - framandi land eftir Sig-
urliða Ísleifsson og Úr plógfari Gefj-
unar eftir Bjöm Th. Björnsson.
Höfundamir rabba um bækur sínar
og lesa úr þeim kafia.
ísland - framandi land fjallar um
það hvaða augum útlendingar hafa
litið ísland og íslendinga í aldanna
rás, einkum á tímbilinu frá 1500-
1900.
Úr plógfari Gefjunar inniheldur
tólf íslendingaþætti frá þeirri tíð
er Kaupmannahöfn var höfuðborg
íslands.
Upplestrarkvöldið hefst kl. 20.30
og stendur til 22. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Hekluð teppi,
og myndlist
MYNDLJSTAR- og handverkssýn-
ing á verkum Kristínar Bryndísar
Bjömsdóttur verður í Risinu (aust-
ursal), Hverfísgötu 105 í Reykjavík,
sunnudaginn 10. nóvember.
Til sýnis verða hekluð veggteppi,
málverk, vatnslitamyndir, klippi-
myndir o.fl.
Kristín Bryndís hefur um árabil
stundað myndlistamám, meðal ann-
ars við Myndlistarskóla Reykjavíkur
og er þetta önnur einkasýning henn-
ar.
Sýningin er opin daglega kl.
13-18 og lýkur 17. nóvember.
Vegna flutnings seljum við öll gólfteppi, rúllur, stór stykki,
smá stykki og teppabúta með STÓRAFSLÆTTI næstu daga
' a jmo á* r e9a meðan birgðir endast.
50-80% afsláttur
og þú mátt líka PRÚ
Talcið MÁLIN með ylclcur
og gerið gó
Opnum á Grensásvegi (Litavershúsinu)
síðar I þessum mánuði.
TEPPAVERSLUNIN