Morgunblaðið - 07.11.1996, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDÁGUR 7. NÓVEMBER 1996 55
Flugþing fjallar um Evrópumál
: Málþing um
ferðamál
FERÐAMÁLANEFND Hafnarfjarð-
ar efnir til málþings um ferðamál í
dag, fimmtudag, í Hraunholti, Dals-
hrauni 15, 2. hæð, kl. 14-18. Þar
verður fjallað um mikilvægi gæða,
samvinnu og markaðssetningar í
ferðaþjónustu.
Ása María Valdimarsdóttir, for-
I maður ferðamálanefndar, setur mál-
þingið. Framsögumenn verða Rögn-
valdur öuðmundsson, ferðamálafull-
trúi Hafnarfjarðar, Gunnar Steinn
Pálsson, framkvæmdastjóri GSP Al-
mannatengsla, Inga Sólnes, gæða-
fulltrúi á Hótel Sögu, og Paul Ric-
hardsson, framkvæmdastjóri Ferða-
þjónustu bænda. Fundarstjóri verður
Einar Bollason, framkvæmdastjóri
íshesta.
> Fyrirlestur um
makamissi
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, stendur að fyrirlestri
um makamissi í kvöld ki. 20 í Gerðu-
bergi. Gunnar Rúnar Matthíasson
sjúkrahúsprestur ijallar um efnið og
umræður og fyrirspurnir verða í kjöl-
t farið. Þátttakendum gefst að endingu
kostur á að skrá sig í svokallaða
1 nærhópa sem samanstanda af fáum
' syrgjendum.
Fyrirlestur um
streitu og kvíða
ÁSMUNDUR Gunnlaugsson, jóga-
kennari, heldur fyrirlestur í Yoga-
stúdíó, Hátúni 6a í Reykjavík, föstu-
j daginn 8. nóvember kl. 20. Hann
s mun fjalla um streitu, kvíða og fælni
' og hvernig nota má öndun, jógaæf-
t ingar og slökun til að koma á jafn-
vægi, bæði andlega og líkamlega.
Kyrrðarstundir í
Vídalínskirkju
SÖFNUÐUR Vídalínskirkju efnir til
fyrstu kyrrðarstundar vetrarins í
| kirkjunni í kvöld kl. 22.
Framvegis verða kyrrðarstundir á
. þessum tíma á fimmtudagskvöldum.
P Kirkjan verður opin frá kl. 21.30.
Leikin verður sígild tónlist í fimmtán
mínútur fyrir athöfn. Kyrrðarstundir
byggjast upp á tilbeiðslu og fyrir-
bænum ásamt almennum söng.
Morgunblaðið/Örn Johnson
Georg Ólafur Tryggvason tekur
við sigurverðlaunum sínum úr
hendi Davíðs Jóhannssonar, sem
var dómari í báðum keppnunum.
Lendingakeppni
*
Georg Olafur
Tryggvason
náði bestum
árangri
GEORG Ólafur Tryggvason náði
bestum árangri tólf keppenda í
lendingakeppni sem kennd er við
silfur-jodelinn og fer fram á veg-
um Flugklúbbs Mosfellsbæjar á
Tungubökkum við Leirvogsá.
Keppt er tvisvar á ári hverju og
gildir betri árangur keppanda til
úrslita. Georg fékk 57 stig í fyrri
hluta keppninnar og 105 í þeim
síðari og dugði árangurinn í fyrri
umferðinni til sigurs. Arngrímur
Jóhannsson varð í 2. sæti. Hann
tók ekki þátt í fyrri hluta keppn-
innar en fékk 66 stig í seinni hlut-
anum. í 3.-4. sæti urðu Jón Karl
Snorrason og Magnús Víkingur
með 71 stig og í 5. sæti Haukur
Snorrason með 80.
Fræðslustundir í
Kirkjuhvoli
EFNT verður til fræðslustundar á
vegum Garðasóknar í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ í kvöld,
fimmtudagskvöld, sem stendur frá
kl. 21-22.
Sr. Kjartan Jónsson kristniboði
mun fjalla um forsendur fyrir
kristniboði kirkjunnar og tengsl þess
við almennt safnaðarstarf. Er þetta
fyrsti fyrirlesturinn af fjórum sem
fjallar um fyrrnefnt efni. Hinir verða
fluttir næstu þijú fimmtudagskvöld.
FLUGMÁLASTJÓRN efnir til mál-
þings í dag, fimmtudag, undir heitinu
Flugþing ’96 - Framtíð íslenskra
flugmála í Evrópu. Sérstök áhersla
er lögð á tvö viðfangsefni: Flugörygg-
ismál og flugsamgöngumál.
„Aðalmarkmið Flugmálastjómar
með flugþingi, sem haldið er árlega,
er að efla faglega umræðu um íslensk
og alþjóðleg flugmál. Annar tilgangur
er að skapa opinn og virkan vettvang
þar sem ýmsir aðilar geta skipst á
skoðunum og miðlað nýjustu straum-
um og stefnum í flugmálum," segir
í fréttatiikynningu.
Flugþing ’96 hefst kl. 9 með ávörp-
um Hiimars B. Baldurssonar, for-
manns Flugráðs, og Halldórs Blön-
dals samgönguráðherra. Kl. 9-11
verður gefíð yfírlit um flugsamgöngu-
og flugöryggismál í Evrópu. Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri mun flalla um
um ísland í evrópsku flugmálaum-
hverfí, Klaus Koplin, aðalritari Flu-
göryggissamtaka Evrópu (JAA), segir
frá hlutverki og stefnu samtakanna
og ioks mun Alan Winn, ristjóri Flight
Intemational, segja frá nýjum
Kristni-
boðsdagar
í Hafnar-
firði
HALDIN verður kristniboðs-
samkoma í húsi KFUM og K,
Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði, í
kvöld, fimmtudaginn 7. nóvem-
ber, kl. 20.30. Siguijón Gunn-
arsson, bankamaður, flytur
ferðaþátt með myndum frá
Eþlópíu, kórJÍFUM og K syng-
ur og sr. Ólafur Jóhannsson
flytur hugvekju.
Samkomur halda síðan
áfram á sama stað þijú næstu
kvöld, fram á sunnudag, og
verður starf Kristniboðssam-
bandsins kynnt.
Það er kristniboðsdeild
KFUM og K í Hafnarfirði sem
stendur fyrir þessum samkom-
um ásamt heimastarfsmönnum
Kristniboðssambandsins. Marg-
ir þeirra sem annast dagskrárl-
iði hafa dvalist lengur eða
skemur á starfssvæðum kristni-
boðsins í Eþíópíu og Kenýu.
straumum og stefnum í evrópskum
flugsamgöngum.
Annar hluti flugþingsins, kl.
11-12.30, íjallar um evrópskar flug-
samgöngur á krossgötum. Reynsla
íslands af flugmálalöggjöf Evrópu-
sambandsins og framtíðarsýn heitir
fýrirlestur Ragnhildar Hjaltadóttur,
skrifstofustjóra í samgönguráðuneyt-
inu, og Þórður Öm Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri alþjóðadeildar Flug-
málastjómar fjallar um framkvæmd
flugmálareglugerða Evrópusam-
bandsins á íslandi. Tveir forstjórar
íslenskra flugfélaga, Sigurður Helga-
son hjá Flugleiðum hf. og Arngrímur
Jóhannsson hjá Atlanta hf. greina
síðan frá afstöðu félaga sinna til
þeirra breytinga sem eru að verða á
evrópsku flugsamgönguumhverfí.
í þriðja hluta flugþingsins verða
evrópsk flugöryggismál tekin til um-
fjöllunar. Þorgeir Pálsson flugmála-
stjóri gerir grein fyrir þátttöku ís-
lands í JAA og annarri evrópskri flu-
göryggissamvinnu. Jens Bjamason,
flugrekstarstjóri Flugleiða hf., mun
ræða um áhrif reglugerða JAA á ís-
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp og
Öryrkjabandaiag íslands halda ráð-
stefnu um ferðamál, ferðalög fyrir
alla. Ráðstefnan verður haldin 8.-9.
nóvember nk. á Hótel Sögu í A-sal.
Dagskráin hefst kl. 9.30 með setn-
ingu og stendur til kl. 17 þann dag.
Á laugardeginum hefst dagskráin
kl. 9.30 og stendur til kl. 12.
„Á ráðstefnunni verður leitast við
að benda á sem flesta ferðamögu-
leika fyrir fatlað fólk. Til þess verða
fengnir innlendir þjónustuaðilar í
ferðaþjónustu, stjórnmálamenn,
notendur þjónustunnar og fleiri.
Þarna er um að ræða fólk með mikla
reynslu af þessum málum. Þá munu
þrír hæfír erlendir gestafyrirlesarar
koma til ráðstefnunnar. Einn þeirra
er Els de Vries frá Mobility Internat-
ional, Belgíu en hún hefur mikla
reynslu af skipulagningu ferða fyrir
fatlað fólk víða um heim. Þess má
geta að margir íslendingar hafa
sótt margskonar tilboð vítt og breitt
um Evrópu fyrir tilstilli Mobility
lenskan flugrekstur og loks mun Ell-
ert Eggertsson, gæðastjóri í tækni-
deild Islandsflugs hf., Qalla um áhrif
þessara sömu reglugerða á rekstur
islenskra viðhaldsstöðva. Þessum
hluta lýkur síðan með afstöðu stéttar-
félags innan flugsins til þróunar flu-
göryggismála í Evrópu en nafn stétt-
arfélgs og fyrirlesara liggur ekki fyr-
ir núna.
Flugþinginu lýkur með hringborðs-
umræðum um framangreint efni und-
ir stjóm Boga Ágústssonar, frétta-
stjóra Sjónvarpsins. Að lokinni dag-
skrá býður Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra til móttöku.
Fundarstjórar á Flugþingi ’96
verða: Jón Birgir Jónsson, ráðuneyt-
isstjóri í samgönguráðuneytinu, Guð-
mundur Magnússon, prófessor í við-
skipta- og hagfræðideiid Háskóla ís-
lands, og Guðmundur Matthíasson,
framkvæmdastjóri Loftferðaeftirlits
Flugmálastjómar.
Flugþing verður haldið í ráðstefn-
umiðstöð Scandic Hótels Loftleiða frá
kl. 9-17 og er opið öllum áhugamönn-
um um flug-, ferða- og samgöngumál.
International. Einnig kemur Poul
Erik Fink frá Egmont Hojskolen,
Danmörku. Hann hefur starfað við
skóla þar sem uppbyggjandi dag-
skrá hefur verið í boði fyrir fatlað
fólk. Hann mun fjalla um skipu-
lagningu hópferða þar sem hjóla-
stólanotendur eru meðal þátttak-
enda. Þá kemur Jackie Scott frá
London en hún rekur ferðaskrif-
stofu sem nefnist „Can be done“
og sérhæfir sig í skipulagningu
ferða fyrir fatlað fólk. Jackie notar
hjólastól og þekkir því þessi mál
einnig út frá eigin reynslu.
Á ráðstefnunni verður túlkað yfir
á íslensku. Kaffiveitingar verða í
boði samtakanna báða dagana. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir
og ekki gert ráð fyrir þátttökugjaldi.
ísland hefur átt aðild að verkefni
innan Evrópusambandsins sem
nefnist Helios II. Ráðstefnan verður
haldin í tengslum við Evrópusam-
bandið og með styrk frá því“, segir
í fréttatilkynningu.
Ráðstefna um
ferðamál fatlaðra
Umhverfismál frá
, sjónarhóli refsi- og
skaðabótaréttar
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands stendur fyrir síðdeg-
isnámskeiði um umhverfismál frá
sjónarhóli refsi- og skaðabótaréttar
12.-13. nóvember nk. Námskeiðið er
einkum ætlað lögfræðimenntuðu fólki
en er opið öðrum er vel þekkja til á
þessu sviði.
Meðal þess sem ijallað verður um
eru markmið og meginreglur um-
hverfisréttarins, helstu lög og alþjóða-
samningar og stjórnkerfí umhverfis-
mála. Tengsl umhverfísréttar og
skaðabótaréttar. Gildandi reglur um
skaðabótaábyrgð vegna umhverfis-
tjóna. Mengunartjón og reglur hefð-
bundins skaðabótaréttar um sönnun
orsakatengsla, hvaða tjón skuli bæta
7 0 ára afmæli
og hveijir geti átt skaðabótakröfu.
Ennfremur mengunartjón og vá-
tryggingar.
Loks verður fjallað um hugtakið
umhverfisbrot og tengsl þess við efna-
hagsbrot. Þá verður gerð grein fyrir
reglum íslensks réttar sem veita um-
hverfinu refsivemd og fjallað bæði
um refsiverða háttsemi og viðurlög.
Að lokum verður rætt um skýringar
á því hvers vegna refsiákvæði sem
eiga að vemda umhverfið em ekki
virkari en raun ber vitni. Kennarar
verða lögfræðingamir Guðný Bjöms-
dóttir hdl., lögfræðingur hjá Sjóvá-
Almennum, Ingimar Sigurðsson, skrif-
stofustjóri umhverfisráðuneyti og
Ragnheiður Bragadóttir, dósent HI.
. Jósefsspítala
í TILEFNI af 70 ára afmæli St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði verð-
ur haldin ráðstefna um heilbrigð-
ismál í Hafnarborg föstudaginn
8. nóvember kl. 15. Ráðstefnan
ber yfirskriftina: „Heilbrigðis-
þjónustan í Hafnarfirði og ná-
grenni. Hvernig er hún nú og
hvert stefnir í framtíðinni?
Á ráðstefnunni verða fram-
söguerindi frá fulltrúum allra
stofna sem koma að heilbrigðis-
þjónustunni í Hafnarfirði og ná-
grenni. Leitast verður við að fá
svör við eftirfarandi spurning-
um: Hvaða heilbrigðisþjónustu
viljum við hafa á svæðinu? Hvaða
heilbrigðisþjónustu er eðliegt að
sækja til Reykjavíkur? og Hvert
á hlutverk St. Jósefsspítala að
vera í sérfræðiþjónustunni?
STEINAR WAAGE
Verð frá
5.495
Verð frá
5.495
it, rautt. Litur: Brúnt.
Loðfóðraðir og með góðum grófum gúmmísóla
Pantanir óskast sóttar
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
STEINAR
waage *rToppsknrinn steinarwaage
RSLUN/ 1 vZndi v/lngólfstorg S K O V E R S L U N /
i 0,!° nÁ Sími 552 1212 ^
S K O V E
SIMI 551 8519
SIMI 568 9212 ^