Morgunblaðið - 07.11.1996, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FLOWER OF MY SECRET
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
STAÐGENGILLINN
'fHgr
KLIKKAÐI PROFESSORINN
Harðsvíraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring
sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla í suður Flórída.
Aðalhlutverk: Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie
Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat)
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
★ ★★
A.I.MBL
Mynd sem lífgar
uppá tilveruna.
H.K. DV^
INNRASIN
1
★ ★★
Taka 2
Sýnd kl. 9 og 11.15.
SHANGHAI TRIAD
SHANGHAI GENGIÐ
Nýasta
mynd
meistara
Zhang
Yimou
(Rauði V i w
lampinn) I.
■ ó ■
) W
hreyfimynda-
Blagið
Kynnir vestra í nóvember.
STAGECOACH
eftir John Ford.
Aðalhlutverk: John Wayne
Sýnd kl. 11.
DAUÐUR
BREAKING THE WAVES
BRIMBROT
Sýnd kl. 7.
DEAD^
MAN
Sýnd kl. 6.10.
„Heldur manni hugföngnum"
★ ★★1/2 SVMBL
„Brimbrot er ómissandi"
★ ★★1/2 GB DV
★ ★★★ ÁS Bylgjan
★ ★★ ÁÞ Dagsljós
Sýnd kl. 9.
Reykvíkingar!
Reglulegum fundi
Borgarstjórnar Reykjavíkur
sem haldinn verður í dag.
Nýjar plötur
Tónlist fyrir
60% þjóðarinnar
fimmtudag kl. 17:00, verður
útvarpáð á Aðalstöðinni FM 90.9.
HEILBRIGÐIR FÆTUR HAFA
ÁHRIF Á ALLAN LÍKAMANN
Tilboð (i Scholl fótavörum
í nóvember
Fótaböð, fótasölt, krem, vörtuplástur, líkþornaplástrar,
svitalyktareyðir, hlífðarsvampar, filthringir, skóspray,
áhöld til fótahirðingar og Scholl heilsuskór.
Skeifan
Apótek
Skeifutini 8 • 108 Reykjavtk * Stmi 5881444
Morgunblaðið/Golli
TORFI Ólafsson tónlistarmaður.
Torfí Ólafsson tónlistar-
maður hefur gefíð út
tvo geisladiska: íslands-
tóna, sem er fyrsta ís-
lenska platan með pan-
flaututónlist, og Jólahá-
tíð sem inniheldur
söngva, sögur og kvæði
í flutningi Hjalta
Rögnvaldssonar leikara
og Söngsystra meðal
annarra.
„ÉG ER ánægður með að hafa feng-
ið hann Hjalta til að lesa á Jólahá-
tíð. Ég hef alltaf verið svo hrifínn
af röddinni hans, hann er svona
Richard Burton íslands," segir Torfí
Ólafsson í samtali við Morgunblaðið.
Á bakvið lestur Hjalta hljómar lág-
vær tónlist en á plötunni er bæði
nýtt efni við ljóð Jóhannesar úr
Kötlum, Arnar Arnarsonar, Davíðs
Stefánssonar og fleiri auk eldra efn-
is, allt sígilt efni tengt jólum og
jólahátíð. Meðal annars kemur lagið
„Vögguvísa", betur þekkt sem Nótt-
in var sú ágæt ein, tvisvar fyrir á
plötunni, annars vegar sungið og
hinsvegar lesið. Nokkur lög koma
fyrir á báðum diskunum en á ís-
landstónum eru öll lögin án söngs
og panflautan er rafræn. „Það er
enginn sem leikur á svona flautu
hér á landi þannig að ég notaði
bara panflautuhljóm á hljómborði
sem er mjög góður.“
20 ár frá fyrstu spilun
í ár eru tuttugu ár frá því að
fyrsta Iag Torfa var leikið í útvarp.
Hann segir blaðamanni söguna á
bakvið það. „Ég var í hljómsveit
með fósturföður 11 ára gamallar
stúlku sem var að læra á þver-
flautu. Hann og móðir hennar sögðu
mér að hún ætti bráðum að fara
að koma fram í barnatíma sem send-
ur var út frá Fossvogsskóla og leika
þar á flautuna og ég sagðist eiga
lag sem gaman væri að láta stelp-
una fá. Svo veit ég ekki fyrr en
bjöllunni er hringt hjá mér og þar
er stúlkan komin að ná í lagið. Ég
sat spenntur heima fyrir framan
útvarpið þegar barnatíminn byijaði.
Hún byijaði á því að syngja með
undirleik gítars lagið „I Love to
Love“, og gerði það rosalega flott
með bjartri hárri rödd og vakti með
því undrun mína. Síðan tók hún
flautuna og lék lagið mitt. Þetta var
Björk Guðmundsdóttir að koma í
fyrsta skipti fram í útvarpi,“ sagði
Torfí og sagði að hún væri ekki sú
eina sem hefði hafíð ferilinn með
lagi eftir hann. Mezzoforte hljóðrit-
aði sitt fyrsta lag á plötu hans árið
1978 og bæði söngvararnir Bjarni
Arason og Eiríkur Hauksson tóku
fyrstu söngspor sín í lögum eftir
hann að sögn Torfa. „Ég kynnntist
Bjarna þegar hann var strákur í
Árbænum og heyrði hvað hann söng
flott. Ég sagði honum að ég vildi
fá hann til að syngja á plötu sem
ég ætlaði að fara að gera. Svo varð
hann stjarna hálfum mánuði síðar
í Látúnsbarkakeppninni."
Truflar mann ekkert
Torfí ólst upp í Kópavogi og seg-
ir að um miðjan sjöunda áratuginn
hafi verið hljómsveit í öðrum hveij-
um bíiskúr í bænum. „Það hafa
verið um það bil 100 strákar að
spila en aðeins þrír hafa haldið
áfram, ég, Tryggvi Hiibner og Viðar
Jónsson. Aðspurður hvaða aldurs-
hóps hann haldi að diskarnir höfði
til, segir hann að það sé alltaf verið
að búa til diska fyrir 16 ára og
yngri. „Við sem erum 30 ára og
eldri fáum aldrei neina diska en hér
er breyting á því, því þessir diskar
eru einmitt fyrir þann aldurshóp.
Þetta eru yfír 100.000 manns og
því er þetta efni fyrir um 60% af
þjóðinni. Diskarnir eru góðir til að
hlusta á í rólegheitunum heima.
Þeir trufla mann ekkert."