Morgunblaðið - 13.11.1996, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Baráttan um forsetaembættið í Rúmeníu
Hallar undan
fæti hiá Diescu
Búkarest. Reuter.
RÚSSNESKA flugvélamóðurskipið Admíral Kútsnetsov, eitt öflugasta herskip norðurflotans.
Rússar hyggjast stórefla Norðurflotann
Mikilvægi Kólaskaga |
meira en á Sovétskeiðinu ’
Rússnesk blöð segja að samkvæmt nýjum
áætlunum um vamarmál verði öfiugustu
Iqamorkuvopn landsins höfð á Kólaskaga,
Norðurflotinn hefur fengið fjölda nýrra og
fullkominna skipa til umráða síðustu árin.
ION Iliescu Rúmeníuforseti og and-
stæðingur hans, Emil Constanti-
nescu, háðu sjónvarpseinvígi á
mánudagskvöld en síðari umferð
forsetakosninganna fer fram um
helgina. Sakaði Iliescu keppinaut
sinn um að vilja koma fyrrverndi
konungi landsins, Mikjáli, á ný til
valda og afhenda þeim sem áttu
stórar jarðeignir fyrir síðari heims-
styijöld eignirnar á ný.
Stjómmálaskýrendur segja að
flestir öflugir stuðningsmenn for-
setans í fyrri umferð hafi nú snúið
við honum bakinu. Leiðtogi sterkrar
hreyfingar þjóðemissinna, sem áður
studdi flokk Iliescus, sakaði forset-
ann á mánudag um að nota „lygar
og blekkingar" í kosningabarátt-
unni. Munurinn á frambjóðendun-
um í fyrri umferðinni var um 4%
og hefur Constantinescu þegar
tryggt sér stuðning þess sem var í
þriðja sæti, Petre Romans.
Iliescu var um hríð liðsmaður
einræðisherra landsins um áratuga
skeið, Nicolaes Ceausescus, en féll
í ónáð. Hann hreppti síðan völdin
er Ceausescu var steypt í blóðugri
byltingu 1989. Flokkur fyrrverandi
kommúnista, samtök Iliescus, hefur
einnig haldið um stjómartaumana
en tapaði þingkosningunum fýrir
skömmu.
Spilling og umbætur
Constantinescu sagði forsetann
hafa vikist undan því að taka á
spillingu, binda enda á orku-
skömmtun sem þjakar landsmenn
og semja raunhæfa áætlun um
bætt lífkjör. Benti hann á að ekki
hefði einn einasti maður enn verið
dæmdur fyrir spillingu sem öllum
væri þó ljóst að væri víðtæk. Iliescu
sagði að áætlun flokks Constanti-
nescus um skattalækkanir og fé-
lagslegar umbætur væri ófram-
kvæmanleg og myndi kosta ríkis-
sjóð 1,45 milljarða Bandaríkjadoll-
ara, nær 100 milljarða króna, ár-
lega. Svaraði Constantinescu því til
að áætlun sem flokkur Iliescus hefði
lagt fram væri þrisvar sinnum dýr-
ari. Forsetinn virtist kveinka sér
og sagðist hann verða að fara betur
yfir þessar tölur.
Iliescu reynir nú að beita
hræðsluáróðri vegna væntanlegra
stjórnarskipta. Hefur hann m.a.
varað við því að hætta sé á að
verksmiðjum verði lokað vegna
markaðshyggju hægrimanna og
starfsmennirnir missi vinnuna,
einnig að bændur geti glatað jörð-
um sínum vegna þess að gömlu
stórbændurnir heimti aftur óðul
sín. Hann segir auk þess að fái
flokkur ungverska minnihlutans
ráðherraembætti muni það ýta
undir hugmyndir um fullveldi Ung-
veijanna sem eru um 1,6 milljónir.
Rúmenía og Ungveijaland hafa
árum saman reynt að ná samkomu-
lagi um sáttmála þar sem full rétt-
indi þjóðarbrotsins til að nota eigin
tungu í skólum séu virt.
Spurt um trúmál
Constantinescu, sem er prófessor
í jarðfræði og skipti sér ekki af
stjórnmálum í valdatíð kommúnista,
kom Iliescu mjög á óvart í kappræð-
unum er hann spurði forsetann
undir lokin hvort hann tryði á Guð.
„Ég var skírður til rétttrúnaðar-
kirkjunnar rúmensku en hef tekið
nokkrum breytingum samtímis því
sem andlegt atgervi mitt hefur þró-
ast,“ svaraði Iliescu. „En ég er enn
gegnsýrður af grundvallarhug-
myndum kristins siðferðis. Ég er
kristnari en margir aðrir sem nota
þetta í kosningabaráttunni."
NORÐURFLOTINN rússneski, sem
hefur aðalbækistöð í Severomorsk
við Múrmansk, mun gegna lykil-
hlutverki í framtiðarvörnum lands-
ins. Norska blaðið Aftenposten seg-
ir að í nýjum áætlunum um endur-
bætur á hervörnum og framtíðar-
stefnuna, sem rússnesk blöð hafí
komist yfír, sé sagt að fullkomn-
ustu kafbátar, herskip og orrustu-
þotur sem Rússar eigi muni verða
komið fyrir á þessum slóðum. Þar
verði einnig helstu kjarnorkuvopn
þeirra.
Norski varnarmálaráðherrann,
Jorgen Kosmo, segist ekki vera
undrandi á stefnu Rússa, hugmynd-
ir þeirra sýni einfaldlega að á Kóla-
skaga verði áfram helsta víghreiður
í álfunni. Ekki sé í sjálfu sér um
neina nýja ógnun við Norðmenn að
ræða heldur lið í heildarvörnum
Rússa. „Kólaskagi er í reynd orðinn
mikilvægari fyrir Rússland en hann
var fyrir Sovétríkin vegna umskipt-
anna í viðbúnaði hersins í kjölfar
hruns Sovétríkjanna," segir Kosmo.
Rússneska dagblaðið Sevodníja,
sem hefur áður sýnt að það hefur
trausta heimildarmenn meðal ráða-
manna landvarna, segir að Norður-
flotinn muni verða mjög ofarlega á
forgangslistanum þegar hugað
verði að endurnýjun rússneska flot-
ans. Verði fjárskortur, sem tals-
menn varnarmála kvarta mjög und-
an, ekki látinn tefja fyrir henni.
ígor Rodíónov vamarmálaráðherra
átti í liðinni viku að heimsækja
Severomorsk en heimsókninni var
frestað vegna aðgerðarinnar á Bor-
ís Jeltsín forseta. Er fýrirhuguð för
Rodíonovs talin vera merki um
áhersluna sem ráðamenn í Moskvu
leggja nú á uppbyggingu Norður-
flotans.
Loftvarnir verða efldar og komið
verður upp hlustunarbúnaði til að
fylgjast með ferðum vestrænna
kafbáta í grennd við norðursvæði
Rússlands, þ.e. Kólaskaga og land-
svæðin við Hvítahaf. Gert er ráð
fyrir að lunginn úr kjarnorkuvöm-
um Rússlands verði á norðursvæð-
inu ekki síst vegna þess að Moskvu-
stjómin álítur að rússneski flotinn
hafí „augljósa yfirburði einmitt i
norðurhöfum" segir Sevodníja.
Stöðug endumýjun
Á undanfömum árum hefur skip-
um flotans fækkað, gömlum skipum
hefur verið lagt í afskekktum fjörð-
um við Kólaskaga eða þau seld í
brotajárn til útlanda en jafnframt
hefur mikil endumýjun farið fram,
þrátt fyrir stöðugan skort á pening-
um og hæfum mannskap á skipin.
Fram kemur í Aftenposten að frá
1992 hafi fjórir kjarnorkuknúnir
kafbátar sem búnir eru langdræg-
um flugskeytum, sjö kjarnorkukaf-
bátar sem ætlaðir eru til árása á
aðra kafbáta og herskip, tveir
dísilkafbátar, tveir tundurspillar og
12 minni herskip, auk sjö herflutn-
ingaskipa, bæst við Norðurflotann.
Búist er við að tvö ný og afar full-
komin skip, kafbátaspillirinn Adm-
íral Tsjabanenko og kjarnorku-
knúna beitiskipið Pétur mikli, muni
verða send norður á bóginn. Flug-
vélamóðurskipið Admíral Kúts-
netsov var sent norður á bóginn
fyrir nokkrum árum.
í lok október var kjölur lagður
að nýrri gerð kjarnorkukafbáta,
Borej, í Severodínsk við Arkang-
elsk. Eru þetta nokkru stærri skip
en svonefndir Delta-bátar Rússa en
minni en hinir risastóru Typhoon-
bátar en þeir eiga nú sex slíka.
Borej-bátarnir verða einstaklega
hljóðlátir og búnir ijölodda kjarn-
orkuflugskeytum.
Alb.ióðavinnumálastofnunin
250 millj. barna þrælar
Genf. Reuter.
BARNAVINNA, vændi og þræla-
hald fara vaxandi í heiminum og
um 250 milljónir bama, tvöfalt
fleiri en áætlað hefur verið, eru
látin vinna fullan vinnudag, segir
í nýrri skýrslu frá Alþjóðavinnu-
málastofnuninni (ILO). Um 61%
umræddra barna eru í Asíu, 32%
í Afríku og 7% í Rómönsku Amer-
íku. ILO segir að beitt sé nýjum
tölfræðiaðferðum til að komast að
niðurstöðu og auk þess séu nú
böm undir tíu ára aldri talin með
'í fyrsta sinn; í sameiningu valdi
þetta hækkuninni.
Michel Hansenne, forstjóri ILO,
sagði ljóst að fátækt í þriðja heim-
inum væri aðalorsök bamavinnu
en hvatti ríkisstjórnir landanna til
að reyna að minnsta kosti að binda
enda á bamavændi, þann sið að
láta böm í hlekkjum greiða skuld-
ir með vinnu og hreinræktað
þrælahald.