Morgunblaðið - 13.11.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 23
ERLENT
Reuter
WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandarikjanna (t.h.), ræðir við Dick Spring, utanríkisráð-
herra írlands, áður en efnahagsráðstefna Miðausturlanda og Norður-Afríku var sett í Kaíró í gær.
Warren Christopher á efnahagsráðstefnu í Kaíró
Telur samníng um
Hebron í sjónmáli
iró. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
efnahagsráðstefnu í Kaíró í gær
að arabar og ísraelar væru stað-
ráðnir í að tryggja varanlegan frið
í Miðausturlöndum þrátt fyrir
„áföll“ síðustu mánaða. Hann
kvaðst telja að samkomulag væri
í sjónmáli í viðræðum ísraela og
Palestínumanna um brottflutning
ísraelskra hermanna frá borginni
Hebron á Vesturbakkanum.
Warren Christopher lét þessi
orð falla á fyrsta fundi ráðstefnu
um efnahagsmál Miðausturlanda
og Norður-Afríku í Kaíró. Hann
sagði að ættu friðarviðræður
araba og ísraela að bera árangur
þyrftu þeir að skilja að enginn
gæti staðið uppi sem sigurvegari
eða farið halloka í friðarviðræðun-
um.
Robert Pelletreau, aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði að samkomulag væri í nánd
um skiptingu svæða í Hebron, þar
sem 400 gyðingar búa meðal
100.000 Palestínumanna. „Þeir
hafa nú náð svo langt að ef þeir
vildu gætu þeir náð samkomulagi
innan sólarhrings. Það gæti hins
vegar einnig tekið tvær til þijár
vikur. Þetta er spurning um að
hve miklu leyti menn vilja tengja
samninginn um Hebron öðrum
málum og því hefur ekki verið
svarað.“\
Embættismenn sögðu að Yasser
Arafat, leiðtogi sjálfstjórnarsvæða
Palestínumanna, vildi að í samn-
ingnum yrði m.a. kveðið á um
brottflutning ísraelskra hermanna
frá öðrum svæðum, sem átti að
hefjast í september. Ennfremur
krefðist hann þess að ákveðið yrði
hvenær lokaviðræðurnar um fram-
tíðarstöðu sjálfstjórnarsvæðanna
hæfust og að ísraelar féllu frá
áformum um stækkun byggða
gyðinga á svæðunum. Stefnt er
að því að lokaviðræðunum um
stöðu Vesturbakkans, Gaza-svæð-
isins og Jerúsalemborgar ljúki árið
1999.
Nieholas Burns, talsmaður ut-
anríkisráðherrans, sagði við
fréttamenn að þeir ættu ekki að
búast við samkomulagi í Hebron-
viðræðunum á næstu dögum.
„Enginn sérstakur árangur“ hefði
náðst á 90 mínútna fundi
Christophers með Yassers Arafat
fyrir efnahagsráðstefnuna.
Christopher lætur af störfum í
janúar og hann sagði að næsti
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem hefur ekki enn verið valinn,
myndi leggja mikla áherslu á mál-
efni Miðausturlanda næstu fjögur
árin.
Ávarpi Springs
fagnað
Arabískir kaupsýslumenn eru í
miklum meirihluta á ráðstefnunni
og þeir fögnuðu ákaft þegar Dick
Spring, utanríkisráðherra írlands
og formaður ráðherraráðs Evrópu-
sambandsins, sagði að ísraelar
yrðu að afsala sér landsvæðum til
að geta tryggt varanlegan frið.
Hægristjórn Benjamins Net-
anyahus, forsætisráðherra ísraels,
hefur reitt arabíska nágranna
ísraela til reiði með tregðu sinni
til að láta fleiri svæði af hendi,
t.a.m. Gólan-hæðir sem Sýrlend-
ingar krefjast.
Innbrots-,
öryggls- 00
brunakarfl
ELFA-GRIPO
ein mest seldu öryggiskerfin
í Evrópu.
Samþykkt af viðurkenndum
prófunarstofnunum og
fjarskiptaeftirliti ríkisins.
Mjög hagstætt verð.
Kapalkerfi frá kr. 11.610.
Þráðlaus kerfi frá kr. 22.050.
Úrval aukahluta:
Reykskynjarar, sírenur,
símhringibúnaður, fjarstillingar.
Ódýr og örugg heimilisvernd.
Tæknileg ráðgjöf - auðvelt í
uppsetningu.
/;// Einar
\MmM Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 • Símar 562 2901 og 562 2900
Söluumboð Akureyri: L/ósgjaftnn
Lúxus sportbíll á tilboði!
2.m3X>m kr.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010
Volvo bílar eru víðfrægir fyrir mikið rými, öryggi
og aksturseiginleika sem hefur gert þá að
fyrirmynd annarra bílaframleiðenda um
áratugaskeið. Þegar við bætist kraftmiklar vélar
og mikill staðalbúnaður verður augljóst hvers
vegna Volvo 850 er mest seldi bíll á íslandi í
sínum flokki.
Sem dæmi um staðalbúnað má nefna:
• Læsivarðir hemlar
• Vökva- velti og aðdráttarstýri
• Fullkomin hljómflutningstæki með 8 hátölurum
• Rafknúið loftnet
• Þokuljós að framan
• Upphituð framsæti
• Innbyggður barnastóll
• Loftpúði í stýri
• Loftpúði fyrir farþega
• Hliðarloftpúðar (SIPS)
• Framdrif með spólvörn
• Rafknúnar rúður
• Rafknúnir og upphitaðir speglar
• Fjarstýring fyrir samlæsingu
• Armpúði með glasahaldara og Volvo taumottur
• og margt, margt fleira!
Við getum nú boðið örfáa bíla af árgerð 1996
með þessum ríkulega búnaði og sjálfskiptingu á: