Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
262. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lá við flugárekstri
yfir Heathrow
London. Daily Telegraph. Reuter.
ÁRVEKNI breskra flugumferðar-
stjóra afstýrði á ögurstundu á
þriðjudag árekstri tveggja flugvéla
frá KLM og SAS með á fjórða
hundrað farþega innanborðs
skammt frá Heathrow-flugvelli.
Þotumar voru í biðflugi yfír
flugvitanum í Lamboume í Essex
og biðu þess, ásamt fjölda annarra
flugvéla, að fá að koma inn til
lendingar á Heathrow.
SAS-þotan beið í 14.000 feta
hæð. Hún er af gerðinni MD-80
og um borð voru rúmlega 200
manns. KLM-þotan, af gerðinni
Boeing-737, hafði verið í farflugi
í 16.000 fetum er hún kom að
vitanum og var þar beðin um að
lækka flugið í 15.000 fet. Gerðu
flugmennirnir gott betur og lækk-
uðu niður í 14.100 fet eða 100
fetum hærra en SAS-þotan. Eftir
þessu tóku flugumferðarstjórar og
skipuðu KLM-flugmönnunum að
hækka þegar í stað flugið. Vom
þá rúmlega 200 metrar á milli
flugvélanna eða tveggja sekúndna
flugtími.
Atvikið átti sér stað klukkan
16:39 sl. þriðjudag, eða nokkrum
stundum eftir flugáreksturinn við
Nýju Delhí, en ekki var frá því
skýrt opinberlega fyrr en í gær.
„Hér fór saman árvekni flug-
umferðarstjóra og góður tækni-
búnaður og afstýrði það stórslysi
af sömu stærðargráðu og því sem
átti sér stað í Indlandi," sagði full-
trúi samtaka breskra flugumferð-
arstjóra.
SAS-þotan var að koma frá
Árósum í Danmörku en KLM-þot-
an frá Amsterdam. Fjöldi flugvéla
i biðflugi inn til Heathrow var
óvenju mikill sakir þess að ein
flugbraut vallarins var lokuð.
Vegna veðurs er ólíklegt, að flug-
menn þotnanna hafi orðið varir
hver við annan.
■ Haldið fram að mistök/24
Reuter
Yetri fagnað í Davos
BÖRN í bænum Davos í Sviss
fögnuðu vetrarkomunni í gær
með þvi að búa til snjókarla.
Eftir sólarhrings snjókomu
mældist 60 sentimetra djúpur
jafnfallinn snjór í bænum. Kulda-
hret í Evrópu og vestan hafs
varð til þess að þrýsta olíuverði
upp á við i gær. Kostaði fatið af
Brent-olíu til afhendingar i
desember 23,80 dollara, miðað
við 22,11 dollara í síðustu viku.
Reuter
Jackson
kvænist
Los Angeles. Reuter.
STÓRSTJARNAN Michael
Jackson gekk í hjónaband í
gær, að sögn talsmanns hans.
Sú hamingjusama er 37 ára
hjúkrunarkona, Debbie Rowe,
en hann hefur getið henni barn.
Hjónavígslan fór fram í
Sydney í Ástralíu í gær, en síð-
degis hélt Jackson þar mikla
tónleika. Þau Rowe hafa verið
vinir um árabil. Fyrir 10 dögum
tilkynnti hann, að hún gengi
með barn og myndi ala honum
erfingja snemma næsta árs.
Þetta er annað hjónaband
Jacksons. í janúar sl. slitu þau
Lisa Marie Presley samvistum,
20 mánuðum eftir að hafa látið
pússa sig saman við leynilega
athöfn í Dóminíkanska
lýðveldinu.
Reuter
UM 800 flóttamenn komu á bátum til borgarinnar Goma í Zaire í gær og skýrðu frá bardögum
uppreisnarmanna og hútúa á svæðum vestur af borginni.
Hörð átök brjótast út í austurhluta Zaire
Telja komu fjölþjóða-
hersins gagnslitla
Goma. Reuter,
UPPREISNARMENN tútsa í aust-
urhluta Zaire sögðu í gær, að koma
fjölþjóðahers yrði gagnslaus ef hann
hefði ekki heimild til að stía her-
mönnum hútúa frá venjulegum
flóttamönnum. Undir það tóku
starfsmenn alþjóðlegra hjálparsam-
taka. Búist er við að hersveitir verði
komnar til Zaire um helgina.
Pjölþjóðaherinn í Zaire verður
undir stjórn Kanadamanna en í hon-
um verða m.a. um eitt þúsund
bandarískir hermenn. William Perry
varnarmálaráðherra sagði í gær að
sveitirnar yrðu aðeins vopnaðar til
að veijast en ekki til stríðsaðgerða.
Á það var lögð áhersla af vestræn-
um yfirvöldum í gær, að sveitirnar
myndu einvörðungu sinna hjálpar-
starfí og þær hefðu ströng fyrir-
mæli um að láta ekki dragast inn í
stríðsátök.
„Það er ekki tilgangurinn að af-
vopna stríðandi fylkingar eða stía
hermönnum og flóttamönnum í
sundur,“ sagði Perry. Talsmenn
hjálparsamtaka segja, að koma fjöl-
þjóðahersins muni ekki leiða til þess
að flóttamenn hverfi aftur til Rú-
anda, verði ekki reynt að einangra
þúsundir fyrrverandi hermanna
hútúa, sem sakaðir eru um að nota
flóttamennina sem skjöld sér til
varnar.
Uppreisnarmenn tútsa í Zaire og
yfirvöld í Rúanda óttast, að fjölþjóða-
herinn muni í raun einungis vernda
hútúaherinn i flóttamannabúðunum.
Til snarpra átaka kom í austur-
hluta Zaire í gær, einkum umhverfis
borgina Goma þar sem sveitir upp-
reisnarmanna og hútúa börðust í sex
stundir.
■ Bíða aðeins/22
Morð-
aldaí
Alsír
París. Reuter.
LIÐSMENN hryðjuverkasveita
íslömsku frelsisfylkingarinnar
(AIS) skáru 18 óbreytta borgara
á háls í tveimur þorpum, Ain-
Dema og Douar Zemala, í Alsír í
skjóli náttmyrkurs í fyrrinótt, að
sögn alsírsku lögreglunnar.
Atburðirnir áttu sér stað með
klukkustundar millibili. Sólarhring
fyrr létu 12 manns lífið, þ.á m.
fjórar konur og þijú börn, er hóp-
ur manna réðst á hús í litlu þorpi
í Alsír.
Spenna vegna
þjóðaratkvæðis
Af tilkynningum stjórnvalda
mátti ráða að fólkið hefði verið
skorið á háls en það er aðferð sem
hermdarverkamenn ofsatrúar-
múslima hafa oft beitt gegn fórn-
arlömbum sínum.
Tilkynnt hefur verið um níu ill-
virki af sama tagi sl. tvær vikur
í Alsír. Gerast þau á sama tíma
og yfirvöld hafa rekið mikinn áróð-
ur í fjölmiðlum fyrir því, að lands-
menn flykkist á kjörstað í þjóðar-
atkvæði 28. nóvember. Öfgamenn
múslima vilja hins vegar hræða
menn frá þátttöku í kjörinu.
60 þúsund fallnir
Þjóðaratkvæðið snýst um hugs-
anlegar breytingar á stjórnarskrá
Alsírs en meðal mikilvægustu
breytinga, sem lagðar eru til, er
að bönnuð verði starfsemi stjórn-
málasamtaka sem byggja tilveru
sína á trúarbrögðum.
Um 60.000 manns hafa fallið í
innanlandsátökunum í Alsír und-
anfarin fjögur ár, að mati vest-
rænna stjórnarerindreka og als-
írskra mannréttindasamtaka.