Morgunblaðið - 15.11.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.11.1996, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C 262. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lá við flugárekstri yfir Heathrow London. Daily Telegraph. Reuter. ÁRVEKNI breskra flugumferðar- stjóra afstýrði á ögurstundu á þriðjudag árekstri tveggja flugvéla frá KLM og SAS með á fjórða hundrað farþega innanborðs skammt frá Heathrow-flugvelli. Þotumar voru í biðflugi yfír flugvitanum í Lamboume í Essex og biðu þess, ásamt fjölda annarra flugvéla, að fá að koma inn til lendingar á Heathrow. SAS-þotan beið í 14.000 feta hæð. Hún er af gerðinni MD-80 og um borð voru rúmlega 200 manns. KLM-þotan, af gerðinni Boeing-737, hafði verið í farflugi í 16.000 fetum er hún kom að vitanum og var þar beðin um að lækka flugið í 15.000 fet. Gerðu flugmennirnir gott betur og lækk- uðu niður í 14.100 fet eða 100 fetum hærra en SAS-þotan. Eftir þessu tóku flugumferðarstjórar og skipuðu KLM-flugmönnunum að hækka þegar í stað flugið. Vom þá rúmlega 200 metrar á milli flugvélanna eða tveggja sekúndna flugtími. Atvikið átti sér stað klukkan 16:39 sl. þriðjudag, eða nokkrum stundum eftir flugáreksturinn við Nýju Delhí, en ekki var frá því skýrt opinberlega fyrr en í gær. „Hér fór saman árvekni flug- umferðarstjóra og góður tækni- búnaður og afstýrði það stórslysi af sömu stærðargráðu og því sem átti sér stað í Indlandi," sagði full- trúi samtaka breskra flugumferð- arstjóra. SAS-þotan var að koma frá Árósum í Danmörku en KLM-þot- an frá Amsterdam. Fjöldi flugvéla i biðflugi inn til Heathrow var óvenju mikill sakir þess að ein flugbraut vallarins var lokuð. Vegna veðurs er ólíklegt, að flug- menn þotnanna hafi orðið varir hver við annan. ■ Haldið fram að mistök/24 Reuter Yetri fagnað í Davos BÖRN í bænum Davos í Sviss fögnuðu vetrarkomunni í gær með þvi að búa til snjókarla. Eftir sólarhrings snjókomu mældist 60 sentimetra djúpur jafnfallinn snjór í bænum. Kulda- hret í Evrópu og vestan hafs varð til þess að þrýsta olíuverði upp á við i gær. Kostaði fatið af Brent-olíu til afhendingar i desember 23,80 dollara, miðað við 22,11 dollara í síðustu viku. Reuter Jackson kvænist Los Angeles. Reuter. STÓRSTJARNAN Michael Jackson gekk í hjónaband í gær, að sögn talsmanns hans. Sú hamingjusama er 37 ára hjúkrunarkona, Debbie Rowe, en hann hefur getið henni barn. Hjónavígslan fór fram í Sydney í Ástralíu í gær, en síð- degis hélt Jackson þar mikla tónleika. Þau Rowe hafa verið vinir um árabil. Fyrir 10 dögum tilkynnti hann, að hún gengi með barn og myndi ala honum erfingja snemma næsta árs. Þetta er annað hjónaband Jacksons. í janúar sl. slitu þau Lisa Marie Presley samvistum, 20 mánuðum eftir að hafa látið pússa sig saman við leynilega athöfn í Dóminíkanska lýðveldinu. Reuter UM 800 flóttamenn komu á bátum til borgarinnar Goma í Zaire í gær og skýrðu frá bardögum uppreisnarmanna og hútúa á svæðum vestur af borginni. Hörð átök brjótast út í austurhluta Zaire Telja komu fjölþjóða- hersins gagnslitla Goma. Reuter, UPPREISNARMENN tútsa í aust- urhluta Zaire sögðu í gær, að koma fjölþjóðahers yrði gagnslaus ef hann hefði ekki heimild til að stía her- mönnum hútúa frá venjulegum flóttamönnum. Undir það tóku starfsmenn alþjóðlegra hjálparsam- taka. Búist er við að hersveitir verði komnar til Zaire um helgina. Pjölþjóðaherinn í Zaire verður undir stjórn Kanadamanna en í hon- um verða m.a. um eitt þúsund bandarískir hermenn. William Perry varnarmálaráðherra sagði í gær að sveitirnar yrðu aðeins vopnaðar til að veijast en ekki til stríðsaðgerða. Á það var lögð áhersla af vestræn- um yfirvöldum í gær, að sveitirnar myndu einvörðungu sinna hjálpar- starfí og þær hefðu ströng fyrir- mæli um að láta ekki dragast inn í stríðsátök. „Það er ekki tilgangurinn að af- vopna stríðandi fylkingar eða stía hermönnum og flóttamönnum í sundur,“ sagði Perry. Talsmenn hjálparsamtaka segja, að koma fjöl- þjóðahersins muni ekki leiða til þess að flóttamenn hverfi aftur til Rú- anda, verði ekki reynt að einangra þúsundir fyrrverandi hermanna hútúa, sem sakaðir eru um að nota flóttamennina sem skjöld sér til varnar. Uppreisnarmenn tútsa í Zaire og yfirvöld í Rúanda óttast, að fjölþjóða- herinn muni í raun einungis vernda hútúaherinn i flóttamannabúðunum. Til snarpra átaka kom í austur- hluta Zaire í gær, einkum umhverfis borgina Goma þar sem sveitir upp- reisnarmanna og hútúa börðust í sex stundir. ■ Bíða aðeins/22 Morð- aldaí Alsír París. Reuter. LIÐSMENN hryðjuverkasveita íslömsku frelsisfylkingarinnar (AIS) skáru 18 óbreytta borgara á háls í tveimur þorpum, Ain- Dema og Douar Zemala, í Alsír í skjóli náttmyrkurs í fyrrinótt, að sögn alsírsku lögreglunnar. Atburðirnir áttu sér stað með klukkustundar millibili. Sólarhring fyrr létu 12 manns lífið, þ.á m. fjórar konur og þijú börn, er hóp- ur manna réðst á hús í litlu þorpi í Alsír. Spenna vegna þjóðaratkvæðis Af tilkynningum stjórnvalda mátti ráða að fólkið hefði verið skorið á háls en það er aðferð sem hermdarverkamenn ofsatrúar- múslima hafa oft beitt gegn fórn- arlömbum sínum. Tilkynnt hefur verið um níu ill- virki af sama tagi sl. tvær vikur í Alsír. Gerast þau á sama tíma og yfirvöld hafa rekið mikinn áróð- ur í fjölmiðlum fyrir því, að lands- menn flykkist á kjörstað í þjóðar- atkvæði 28. nóvember. Öfgamenn múslima vilja hins vegar hræða menn frá þátttöku í kjörinu. 60 þúsund fallnir Þjóðaratkvæðið snýst um hugs- anlegar breytingar á stjórnarskrá Alsírs en meðal mikilvægustu breytinga, sem lagðar eru til, er að bönnuð verði starfsemi stjórn- málasamtaka sem byggja tilveru sína á trúarbrögðum. Um 60.000 manns hafa fallið í innanlandsátökunum í Alsír und- anfarin fjögur ár, að mati vest- rænna stjórnarerindreka og als- írskra mannréttindasamtaka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.