Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 21
ÚRVERINU
Islenzkar
sjávarafurðir
Margir vilja
fá vinnu á
Kamtsjatka
ÍSLENZKAR sjávarafurðir eru nú
að undirbúa sig fyrir alaskaufsa-
vertíðina við Kamtsjatkaskagann
austast í Rússlandi. IS sér þar um
veiðar, vinnslu og sölu afurða fyr-
ir rússnesku útgerðina UTRF eins
og á síðasta ári og verður þar með
á fjórða tug manna í vinnu. Aug-
lýst hefur verið eftir fólki í 14
stöður og hafa margir sótt um.
Ymsar breytingar
Friðrik Sigurðsson, sem hefur
umsjón með þessu verkefni ÍS,
segir að nokkrar breytingar verði
á starfseminni frá því sem var við
upphaf hennar í fyrra. „í fyrra var
knappur tími til undirbúnings og
við höfum einnig dregið margvís-
legan lærdóm af því, hvernig þá
tókst til. Því verða ýmsar breyting-
ar á starfsháttum okkar þarna
fyrir austan, sem hafa manna- og
stöðubreytingar í för með sér, en
einnig hafa nokkrir starfsmenn
horfið til annarra starfa. Því þurf-
um við að ráða nokkurn fjölda
fólks nú, en stöndum að því á
svipaðan hátt og þá,“ segir Friðrik.
Námskeið haldin
fyrir starfsfólk
Þegar gengið hefur verið frá
ráðningu fólksins, verða haldin
fyrir það námskeið um starfsemi
ÍS, UTRF og Rússland kynnt.
„Þarna er um fjarlægt og fram-
andi umliverfi að ræða og nauð-
synlegt að búa starfsfólkið vel
undir það.“
Vinna ufsa, þorsk og síld
„Mesti álagstíminn er þegar al-
askaufsinn er unninn, en hrognin
úr honum eru mjög verðmæt. Sú
vertíð stendur frá áramótum og
fram í apríl. Um sumarið verður
svo farið á veiðar og vinnslu á
kyrrahafsþorski. Þær veiðar voru
hafnar í sumar og gáfu góða raun,
en íslenzk vinnslulína fyrir þorsk
var sett upp í einu verksmiðjuskipa
UTRF. Loks verður farið á síld
með haustinu. Þær veiðar standa
yfir nú og fer síldin aðallega á
markað í Japan og Kína. Rússar
hafa lítið stundað þessar veiðar
og vinnslu áður, en þær hafa geng-
ið vel,“ segir Friðrik.
Vegna árstíðabundinna sveiflna
í veiðum og vinnslu er ráðningar-
tími hluta fólksins aðeins fram á
vorið, en að því loknu verður fram-
haldið endurmetið. Unsóknarfrest-
ur í þessi störf hjá ÍS rennur út á
mánudag.
Blað allra Iandsmanna!
PtorgttftMitfrifr
-kjarni málsirn!
Amazing Animation
Sammy's Science House
Thinkin' Things
Spectre Supreme
Geisiadiskar:
3D Atlas
Asterix
Concertware
Daedalus Encounter - 3 diskar
Grolier
Making Music
Peanuts a
Rock Rap'n Roll aM,
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíða: http://www.apple.is
síður nar i
símaskránni