Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 39
F organgsröðun
í þágu menntunar
Á UNDANFÖRN-
UM vikum hefur ýmsu
verið slegið föstu um
fjárframlög til
menntamála í fjár-
lagafrumvarpi ársins
1997 sem ekki á við
rök að styðjast. Stað-
reyndin er sú að fram-
lög til mennta- og
menningarmála eru í
jafnvægi milli áranna
1996 og 1997 sé tekið
tillit til þess að grunn-
skólinn og það fjár-
magn sem honum
fylgdi hefur verið flutt
til sveitarfélaga.
Sé litið á heildartöl-
ur fjárlagafrumvarpsins fyrir árið
1997 borið saman við árið 1996
eftir málaflokkum er útkoman eft-
irfarandi:
1. Lækkunin er hlutfallslega mest
á aðalskrifstofu menntamála-
ráðuneytisins. Framlög til
hennar lækka um liðlega 3%
eða um 8-9 milljónir króna.
2. Háskólar og rannsóknir hækka
um 1-2% umfram verðlagsfor-
sendur eða um 70 milljónir
króna. Nefna má að gert er ráð
fyrir auknu fé til Landsbóka-
safns-Háskólabókasafns, sem
er mikilvæg þjónustustofnun
skóla. Einnig er auknu fjár-
magni veitt til Vísindasjóðs hjá
Rannsóknaráði íslands.
3. Útgjöld til framhaldsskóla
lækka um 2-3% eða um 100
milljónir króna auk stofnkostn-
aðar um 30 milljónir króna.
4. Námsaðstoð hækkar um 15
milljónir króna vegna jöfnunar
námskostnaðar.
5. Framlög ríkisins til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna hækka
um 50 milljónir króna.
6. Útgjöld vegna safna og lista-
stofnana lækka um 1-2%.
7. Ýmis framlög hækka umfram
verðlagsforsendur, þ. á m. eru
skuldbindingar vegna alþjóða-
samninga og framlög til hag-
ræðingar.
Sé grunnskólinn ekki reiknaður
með er fjárveiting ársins 1996 lið-
lega 12,6 milljarðar króna en í
frumvarpi ársins 1997 eru útgjöld-
in Iiðlega 13 milljarðar króna.
Raunhæfari innritun
Ieiðir til sparnaðar
Umræður um fjárveitingar til
framhaldsskólans hafa gefið
ranga mynd af fjárlagafrumvarp-
inu. Menn hafa haft það hver eft-
ir öðrum að niðurskurður sé um
200 milljónir króna þó að stað-
reyndin sé sú að hann er mun
minni líkt og fram kemur hér að
ofan. í fjárlagafrumvarpinu er lagt
til að innan framhaldsskólans
verði hagrætt og sparað. Liggja
fyrir tillögur um aukið samstarf
milli skóla og sameiningu í því
skyni að nýta fjármuni betur og
tryggja betur aðstöðu
til náms.
Eins og oft áður,
þegar slíkar tillögur
eru gerðar, mikla
menn afleiðingarnar
fyrir sér. Með öllu er
ástæðulaust að líta
þannig á, að verið sé
að kippa grundvelli
undan skólastarfi í
einstökum landshlut-
um.
Það er einnig til
marks um lélegan
málstað að hamra á
því, að tillögum um
svonefnt endurinnrit-
unargjald í framhalds-
skólum sé sérstaklega stefnt gegn
fötluðum eða efnaminni náms-
mönnum. Sérstök nefnd er nú að
vinna að gerð viðmiðunarreglna
fyrir innheimtu próftökugjalda þar
sem tekið verður tillit til sérþarfa
nemenda.
Mestu skiptir að gjaldtaka
vegna endurtekningar prófa og
áfanga er ekki ætluð til að auka
tekjur skólanna. Henni er ætlað
að leiða til þess, að nemendur at-
hugi sinn gang betur og innritist
ekki í fleiri áfanga en þeir ráða
við. Það er reynsla fyrir því, að
mikið fall er í sumum áföngum
og það veldur skólum auknum
útgjöldum, að nemendur innrita
sig í áfanga, sem þeir ekki sinna
nema hluta annar. Skólinn hefur
hins vegar þurft að semja stunda-
töflur, sem taka mið af öllum inn-
ritunum og ráða kennara miðað
við fleiri hópa nemenda en síðan
sýna sig. Tilgangurinn er fyrst og
fremst að ná þannig fram sparn-
aði. Þegar áætlaðar eru sértekjur
skólanna vegna þessa, er í raun
verið að meta, hvað þeim gæti
sparast, ef nemendur innrituðust
af meira raunsæi. 20-30% fall,
sem þekkist í sumum áföngum,
og 15% fall að meðaltali er í raun
Staðreyndin er sú, segir
Björn Bjarnason, að
framlög til mennta- og
menningarmála eru í
jafnvægi milli áranna
1996 og 1997.
sóun, sem snúast á gegn, ekki
með því að minnka kröfur, heldur
með markvissara skólastarfi, sem
raunhæfari innritun nemenda
myndi leiða af sér.
Menntamál í öndvegi
Opinberir fjármunir eru helsti
bakhjarl menntakerfisins, þess
vegna er óhjákvæmilegt að fjár-
hagslegt svigrúm í þágu mennta-
mála ráðist af stöðu ríkissjóðs
hveiju sinni. Ég hef hins vegar
lagt mikla áherslu á að við for-
gangsröðun á verkefnum sem rík-
ið sinnir eigi að setja menntamál
í öndvegi. Til að árétta þetta var
boðað til menntaþings í síðastliðn-
um mánuði.
Við skiptingu á takmörkuðu
opinberu fjármagni komumst við
einfaldlega ekki hjá því að for-
gangsraða í þágu menntunar,
rannsókna og vísinda, ef við viljum
ná árangri sem þjóð og bæta kjör
okkar á varanlegum og traustum
forsendum. Það verður hins vegar
einnig að forgangsraða innan
menntakerfisins. Aldrei er hægt
að gera það þannig að öllum líki.
Eg vona að fjárlagafrumvarp
næsta árs og þau frumvörp sem
eiga eftir að líta dagsins ljós í
minni ráðherratíð verði til þess að
styrkja menntakerfið og treysta
þannig framtíð þjóðarinnar.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
OROBLU
KYNNING
20% AFSLÁTTUR
af öllum OROBLU sokkabuxum
föstudaginn 15. nóv. og laugar-
daginn 16. nóv. kl. 13.00-18.00.
Björn
Bjarnason
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 -Sími 568 8055
■ PLAISIR 40 DEN
Frábærar lycra stuðnings/nudd-
sokkabuxur - 40 den.
Venjulegt verð 579 kr. - kynningarverð 463 kr.
Munið nýtt VISA-tímabil.
Ath. Leitið ekki langtyfir skammt - lægsta
verðið á 0R0BLU sokkabuxunum er á íslandi
APÓTEK AUSTURBÆJAR
Háteigsvegi l - Sími 562 1044
w
VELKOMIN I FONIX OG GERI
---25
REYFARAKAUP
RAFTÆKI OG INNRÉTTINGAR Á TILBOÐSVERÐI
-5
m ASKO
ÞVOTTAVÉIAR - ÞURRKARAR - UPPÞVOTTAVÉLAR
Nú er lag að fá sér sænskt hágæðatæki
frá Asko - með verulegum afslætti.
ALLT AÐ 10% AFSLÁTTUR
10
•15
-20
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
Dönsku GRAM kæliskáparnir eru rómaðir
fyrir glæsileika, hagkvæmni, styrk og endingu.
Þú getur valið um 20 gerðir kæliskápa,
með eða án frystis. Einnig 8 stærðir
frystiskápa og 4 stærðir af frystikistum.
ALLT AÐ 15% AFSLÁTTUR
ibernQ
ÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR
Bjóðum nú Ibema þvottavél
með 800 sn. vindu á aðeins 39.990,-
Erum að fá 6 gerðir af Ibema kæliskápum á
verði, sem mun koma þér verulega á óvart.
INNBYGGINGAROFNAR OG -HELLUR
Margar gerðir og litir af ofnum til innbyggingar.
Helluborð með 2 eða 4 hellum, bæði
„venjuleg" og keramik. Einnig gashelluborð.
DéLonghi - Dásamleg tæki
ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR
ELDHUSVIFTUR - MARGAR GERÐIR
Venjulegar, hálfinnbyggðar, m/útdregnum gler-
hjálmi, veggháfar eða til innbyggingar í háf.
ALLT AÐ 15% AFSLÁTTUR
(gBBSEl
BORÐOFNAR FYRIR SÆLKERA
Þeir eru notadrjúgir litlu borðoftiarnir frá
DéLonghi.
Þú getur steikt, bakað eða grillað að vild á
styttri tíma og með mun minni orkunotkun
en í stómm ofnum eða eldavélinni.
ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR
O O.ERRE
LOFTRÆSTING ER OKKAR FAG!
Mikið úrval af loftræstiviftum fyrir
hvers konar húsnæði,
til heimilisnota eða í atvinnuhúsnæði.
SMARAFTÆKI
EMIDE (jirPfl'Ni')) euRiu
Ávaxtapressur, brauðristar, brauð- og áleggshnífar,
djúpsteikingarpottar, dósahnífar, eggjasjóðarar,
handsugur, hárblásarar, hitamælar, hnífabrýni,
hrærivélar, hraðsuðukönnur, matvinnsluvélar,
rafmagnsofnar, ryksugur, ryk- og vatnssugur,
safapressur, straujárn - og ótal margt fleira.
ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR
NettOuc
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Dönsku NETTOIine innréttingamar
em falleg og vönduð vara á vægu verði.
Við bjóðum þér allt sem þig vantar í eldhúsið,
baðherbergið eða þvottahúsið, og þar að auki
fataskápa í svefnherbergið, bamaherbergið
eða anddyrið.
Frí teiknivinna og tilboðsgerð.
rli:'
.iaial
XgS
o
FRÍ HEIMSENDING - FJARLÆGjUM GAMLA TÆKIÐ ÁN GREIÐSLU
LFOniX
OPIÐ VIRKA DAGA 9-18
OPIÐ LAUGARDAG 10-16
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMI 552 4420