Morgunblaðið - 15.11.1996, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
Kr. 4.975
, 1 lítil skál, 1 stór skál, 1 fat.
Kr. 4.975
, 6 kökudiskar, rjómakanna
Leirstettið „Bláa laufið"
fcgmið aftur, - sama (gga verðið
matarstell: kf. 2.950
kaffistell: kf. 2.950
Kringlunni og Faxafeni.
heimiíib- og verðið gíeður
Bkð allra landsmanna!
-kjarni rnáhinv!
AÐSENDAR GREINAR
Verjum Kúbu, mótmæl-
um viðskiptabanninu
Gylfi Páll Ölöf Andra
Hersir Proppé
UM ÁRAMÓT 1959
varð bylting á eyríkinu
Kúbu í Karíbahafi,
150 kílómetra undan
ströndum Bandaríkj-
anna. Endi var bund-
inn á langt tímabil þar
sem bandaríska ráða-
stéttin réði lögum og
lofum. Bandaríkja-
menn „áttu“ 22% jarð-
næðis og 90% náma-
auðæfa Kúbu, 80%
þjónustugreina (járn-
brautir, rafmagns- og
símafyrirtæki), nær
allan iðnað og naut-
gripabú og helming
sykurframleiðslunnar.
Höfuðborgin, Havana, var miðstöð
veðmála og vændis, einkum sótt
af bandarískum viðskiptajöfrum.
Bandarísk fyrirtæki græddu á tá
og fíngri á sykri, nikkel, tóbaki,
sítrusávöxtum og kaffi, auk ódýrs
vinnuafls. Árið 1958 fór 71% út-
flutnings Kúbu til Bandaríkjanna
og 64% innflutnings kom þaðan.
Einræðisherrann var þeirra maður.
Til að tryggja þessa tilhögun hafði
Bandaríkjastjórn herstöð í Guantá-
namo á Kúbu (sem er þar enn).
Síðastliðin nær 40 ár hefur afar
mikilvæg tilraun verið í gangi á
Kúbu. Það sýndi sig að hægt var
að kasta kúgurum og ræningjum
út. Það kom líka í ljós að vel má
skipuleggja samfélagið öðruvísi
miðað við þarfir og óskir flestra
landsmanna. Stór hluti íbúanna var
ólæs og óskrifandi og eitt fyrsta
verkefni byltingarsinnanna sigur-
sælu var að efna til herferðar svo
allir mættu læra að lesa og skrifa.
Konur fengu heiðvirða vinnu. Lög
um kynþáttamismun voru numin
úr gildi. (Til fróðleiks má geta
þess að blönduð hjónabönd voru
leyfð í Bandaríkjunum 1967.)
Heilsugæsla á Kúbu jafnast á við
þróuðustu iðnríki og er ókeypis.
Dánartíðni ungbarna er ein lægsta
í heiminum og lífslíkur yfir 74 ár,
hafa aukist um 20 ár síðan 1959.
Jarðnæði var úthlutað til smá-
bænda sem bjuggu við örbirgð
(fyrir byltingu áttu 8% landeigenda
75% jarðnæðis).
Auðvitað kom fljótt í ljós að
„eigendurnir", kúgararnir og ræn-
ingjamir voru ekki á því að sleppa
Kúbu. Strax árið 1960 hóf Banda-
ríkjastjórn hatursherferð í garð
Kúbu. Verslun með sykur var skor-
in niður og síðar hætt, stjómmála-
IÐNAÐARHURÐIR
í SVAL-íiORGA EHr.
HOFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK
SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
samband rofið, ferðabann sett á,
skemmdarverk unnin, innrás gerð
(við Svínaflóa) og í febrúar 1962
undirritaði Kennedy, Bandaríkja-
forseti lög um algjört viðskipta-
bann. Bandarískir auðjöfrar geta
hvorki gleymt né fyrirgefíð að þeir
misstu spón úr aski sínum.
Kúba er ögmn við einkaeignar-
Það er erfitt, segja Gylfi
Páll Hersir og Ólöf
Andra Proppé, að
fínna fylgismenn
viðskiptabannsins hér
á landi.
rétt og kapítalísk sérréttindi. Hún
ögrar gildum sem er reynt að troða
í hausinn á okkur í skólakerfinu,
í vinnunni og víðar. Hún er for-
dæmi fyrir svo marga, svo víða.
Þess vegna hefur Bandaríkjastjórn
lagt svo ríka áherslu á að kollvarpa
byltingarforystu sem stýrir í um-
boði verkamanna og bænda á
Kúbu. Öll kapítalísk ríki eru henni
sammála um það. En þau gæta
svolítið ólíkra hagsmuna. Andstaða
Mexíkó, Kanada, Evrópuríkja og
fleiri er viðskiptalegs eðlis (45%
viðskipta Kúbu em nú við Evrópu-
sambandslönd). Auk þess standa
auðmenn í þessum löndum í sívax-
andi samkeppni við Bandaríkin og
finnst óþolandi að láta þau segja
sér við hverja þeir megi skipta og
hveija ekki!
Bandaríkin em þó sterkust. Þau
hafa reynt flest: Innrás málaliða,
ýtt undir hryðjuverk, hótað kjarn-
orkuárás, viðskiptabann, tilraunir
til að ráða leiðtoga af dögum,
styrkt Guantánamo herstöðina og
reynt að einangra landið.
Þeim hefur ekki orðið ágengt.
Margir ætluðu að Kúba mundi falla
eftir hrun Sovétríkjanna og stalín-
istaríkja í Austur-Evrópu (viðskipti
Kúbu við þau námu 85%). Svo
varð ekki, efnahagslíf á Kúbu byij-
aði að rétta úr kútnum eftir 5 ára
erfiðleikatímabil.
Skömmu áður en Bush lét af
embætti Bandaríkjaforseta undir-
ritaði hann svokallað Torricelli-
ákvæði sem bannar skipum sem
WICANDERS
GUMMIKORK vy
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljoðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
í rúllum — þykktir 2.00 og 3.2 mm.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIK0RK róar gólfin niður!
PP
&co
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 • 568 6100
sigla til Kúbu að koma til Banda-
ríkjanna í 6 mánuði. Mun styttra
er síðan Clinton undirritaði Helms-
Burton lögin. Þau gera bandarísk-
um borgurum sem áttu eignir á
Kúbu fyrir byltingu kleift að krefja
erlend fyrirtæki um skaðabætur
fýrir bandarískum dómstólum, ef
þau eiga viðskipti við kúbönsk fyr-
irtæki sem tengjast „eign“ þeirra
fyrir byltingu. Einnig er þar
ákvæði um ferðabann forstjóra og
eigenda erlendra fyrirtækja til
Bandaríkjanna og nær það til fjöl-
skyldna þeirra. Samkomulagið var
ekki undirritað fyrr en nokkru eft-
ir að það var borið upp í þinginu,
því ekki var hægt að herða við-
skiptabannið svo mikið án sýni-
legrar ástæðu.
Tylliástæða var notuð til þess
að undirrita lögin. Síðastliðinn vet-
ur skutu Kúbanir niður tvær flug-
vélar sem komnar voru inn fýrir
lofthelgi Kúbu og stefndu á Hav-
ana, þrátt fyrir ítrekaðar aðvar-
anir. Þetta var tíunda sinnið á 20
mánuðum sem lofthelgi landsins
var rofín. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) fékkst ekki til þess
að fordæma varnaraðgerðir Kúbu
eins og Bandaríkjamenn vildu.
Utanríkisráðherra íslands for-
dæmdi aðgerð Kúbumanna - í
bandarískum stíl. Alþjóðaflug-
málastofnunin (ICAO) treysti sér
hvorki til að fordæma Kúbu né
staðhæfa að flugvélamar hefðu
verið á alþjóðlegu flugsvæði. Og
það þrátt fyrir gróf afskipti banda-
rískra stjómvalda af starfsemi
stofnunarinnar.
Á Allsheijarþingi SÞ í fyrra var
samþykkt ályktun gegn viðskipta-
banni Bandaríkjanna á Kúbu með
117 atkvæðum gegn 3. Það er
erfítt að fínna fylgismenn við-
skiptabannsins hér á landi. Þó ótt-
ast fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
utanríkisnefnd, Lára Margrét
Ragnarsdóttir að Bandaríkjastjórn
muni ekki þóknast túristaferðir
íslendinga til Kúbu.
Viðskiptabann gegn Kúbu er
hvorki leifar kalda stríðsins né
tímaskekkja. Það er einfaldlega
helsta úrræðið til að gera Kúbu
erfitt fyrir. En því er líka beitt
gegn stuðningsmönnum Kúbu. í
Bandaríkjunum eltir lögregla og
annað yfírvald einstaklinga sem
hafa af einhveijum ástæðum farið
til Kúbu, jafnvel háskólakennara
sem eru að vinna verkefni er varða
Kúbu. Markmiðið er að hræða fólk
og gera afskipti af Kúbu eða jafn-
vel stjórnmálum í víðara sam-
hengi, glæpsamleg. Þannig varðar
málið auðvitað ekki bara Kúbu,
heldur persónulegan og lýðræðis-
legan rétt miklu fleiri.
Föstudaginn 1. nóvember mót-
mæltu um hundrað manns við-
skiptabanninu við bandaríska
sendiráðið í Reykjavík, þrátt fyrir
fímbulkulda og engar auglýsingar
í fjölmiðlum. Til aðgerðanna boð-
uðu einstaklingar, studdir af nem-
endafélögum í MK, MH, FG og
Flensborg í Hafnarfirði, Skólafé-
lagi Iðnskólans í Reykjavík, Sós-
íalistafélaginu, Verðandi samtök-
um ungs fólks Alþýðubandalags-
fólks, Alþýðubandalaginu í Reykja-
vík, Ungum sósíalistum og Vin-
áttufélagi íslands og Kúbu. Nánast
enginn fjölmiðill, hvorki sjónvarp,
útvarp eða dagblöð greindu frá
þessu. Um aðgerðina ríkir þögn,
líkt og um 1. mai göngu í Havana
á þessu ári þar sem milljón manns
tók þátt. Eða eins og einn þátttak-
enda staðhæfði: blöðin eru ekki
fyrir okkur sem lesa þau heldur
fyrir þá sem gefa þau út.-
Gylfi er Dagsbrúnarverkamaður,
Ólöf Andra er menntaskólanemi.