Morgunblaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍZÁ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
KLIKKAÐI PRÓFESSORINN
tllDlDDll MQi)
★★★
A.I.MBL
Mynd sem lífgar
uppá tilveruna.
H.K. DV
Talktím Iþatíii ö
IPTOfeSSOCP
feoröcnityi;, apii
p^örKdöuiia ®u
l]iscf®m
§(P®PÖiíal8
DAUÐUR
DEAD MAN
SHANGHAI
TRIAD
SHANGHAI GENGIÐ
FLOWER OF MY
SECRET
Harðsviraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring sem
hefur aðalbækistöðvar i gagnfræðaskóla í suður Flórída. Aðalhlutverk
Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie Hudson (Congo, The
Crow), Diane Venora (Heat)
Sýnd kl. 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
u - ami
Sagt er að hörðustu brimbrettagæjar heims séu i suður-Englandi
Þetta eru brjálaðir Lundúnarbúar sem ferðast suður til að kljúfa
stórhættulegar öldur reifa allar nætur og lifa eins hratt og mögulegt
er. Blue Juice er kröftug, spennandi og rennandi blaut kvikmynd með
Ewan McGregor úr Trainspotting i aðalhlutverki.
BRIMBROT
Heppnir gestir sem kaupa miða a Blue Juice fá gefins Stuzzy bol
eða derhúfu frá Xtra á Laugavegi 51.
AvSlvv"
A.Þ. Öágsljós
Nýasta mynd meistara
Zhang Yimou
(Rauði lampinn)
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. 5. ísl. texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Af ávöxtunum
skuluð þið
þekkja þá
BÖRN framtíðarinnar? - spádómsgáfa George Lucas í THX 1138
Frumraun framtíðarmanns
KRIMMAR, vestrar, framtíðarskáld-
skapur, dramatík og kómík - allt þetta
og meira til er á kjarapöllum sjónvarps-
stöðvanna þessa helgina. En samt er
eins og tilboðin séu flest afgangar sett-
ir á rýmingarsölu. Látum svo vera ef
rýmt er til fyrir safaríkari steikum og
framandi og jafnvel forboðnum ávöxt-
um á næstunni.
Föstudagur
Sjónvarpið ►22.10 Blessuð kellingin
hún Ruth Rendell situr enn við sinn
keip og rær sínum kæjak á hafsjó bre-
skra sakamála (hvemig finnst ykkur
líkingamálið?). Föstudagskrimmi henn-
ar að þessu sinni fjallar um dularfullan
dauðdaga karls og konu. Helstu leikar-
ar eru Owen Teal, Amanda Redman,
Lucy Cohn og Adam Welch.
Stöð 2 ► 21.00 Aðdáendur Star
Trekmyndanna og -þáttanna komast í
feitt þar sem er Star Trek-kynslóðir
(Star Trek: Generations, 1994), því þar
leiða saman geimskip sín gamla kyn-
slóðin og nýja kynslóðin af þessum
ágætu geimferðalöngum undir forystu
Kirks og Picards, leiknum af William
Shatner og Patrick Stewart, og and-
stæðingurinn er hinn vondi vísindamað-
ur Malcolm McDowell. Ekki merkileg
kvikmyndagerð en ómissandi fyrir aðdá-
' enduma dyggu. Leikstjóri David Car-
son. -k-k'h
Stöð 2 ►23.05 Táningagamanmynd-
in Kaliforníumaðurinn (Califomia
Man, réttu nafni Encino Man, 1992) er
rétt bærileg afþreying um tvo vini sem
finna forsögulegan mannslíkama fros-
inn og þegar hann er afþíddur leikur
fomeskjan lausum hala - hvað annað?
Leikstjóri Les Mayfield en Sean Austin,
Brendan Fraser og Pauly Shore leika
meðal annarra. ★ ★
Stöð 2 ►0.40 - Sjá umfjöllun í
ramma.
Stöð 3 ►22.35 Sök bítur sekan
~ (Judiciai Consent, 1995) er spennumynd
úr réttarsal þar sem Bonnie Bedelia leik-
ur dómara á framabraut inn í hæsta-
rétt þegar vinur hennar finnst myrtur
á afar óheppilegum stað — í réttarsaln-
um. Martin og Potter segja þessa mynd
Williams Bindley handritshöfundar og
leikstjóra byija vel en fara út af sporinu
í seinni hlutanum. Góður leikhópur komi
* engu að síður ótrúverðugri fléttu til
hjálpar. Þau gefa ★ ★ (af fimm mögu-
legum).
Stöð 3 ►0.05 Engar umsagnir liggja
fyrir um Barnavfg (Precious Victims)
um móður sem grunuð er um morð á
bömum sínum.
Sýn ^21.00 Á indíánaslóðum (The
Comancheros, 1961) er bráðfjörugur og
spennandi vestri eftir þann mikilvirka
leikstjóra Michael Curtiz, sem leikstýrði
Casablanca jafnt sem Elvis Presley. í
þessum svanasöng Curtiz er vestra-
kóngurinn John Wayne að beijast við
bófalýð sem á viðskipti við Comanche-
indíánana. Meðal annarra góðra leikara
eru Stuart Whitman, Lee Marvin og
NehemiahPersoff. kkk
Sýn ►23.30 Kelly Lynch leikur lesbíu
sem leigir sér fylgisveininn William
Baldwin til að ðgra fyrrum ástkonu sinni
Sherilyn Fenn í óvenjulegu og nokkuð
frísklegu þríhymingsgamandrama Þrí-
hyrningur (Three OfHearts, 1993).
Leikaramir blása lífi í myndina. Leik-
stjóri Yurek Bogayevicz. ★ ★ 'h
Laugardagur
Sjónvarpið ^21.25 Hinn mæddi og
mæðulegi bandaríski grínisti Rodney
Dangerfield leikur ómenntaðan auð-
mann sem sest á skólabekk tii að verða
syni sínum fyrirmynd í gamanmyndinni
Aftur á skólabekk (Back To School,
1986). Dellan er töluverð en Dangerfi-
eld á nokkra góða brandara. Leikstjóri
Alan Metter. ★ ★
Sjónvarpið ►23.05 Sálfræðileg
spennumynd af skárri sortinni er
Mömmudrengir (Mother’s Boys,
1994). Jamie Lee Curtis er býsna mögn-
uð í hlutverki galinnar konu sem snýr
aftur til fjölskyldunnar sem hún yfirgaf
mörgum árum áður og krefst þess að
allt sé eins og það var. En það er það
bara ekki og þá fer frúin sínar eigin
gölnu leiðir. Kanadíski leikstjórinn Yves
Simoneau hefur rennilegt handbragð en
handritið hefði mátt vera burðarmeira.
kk'h
Stöð2 ►l5.00Þijúbíóiðertímaflakk-
sævintýri frá Walt Disney um dauðvona
táning sem berst við ófreskjur á tveim-
ur veruleikaplönum. Fjórir demantar
(The Four Diamonds, 1995) þykir vel-
heppnuð fjölskyldumynd með góðum
leik Christine Lahti, Thomas Guiry og
fleiri, en myndin er byggð á sögu 14
GEORGE Lucas telst í hópi áhrifa-
mestu kvikmyndagerðarmanna
samtímans þótt hann hafi upp á
eigin spýtur einvörðungu leikstýrt
þremur bíómyndum í fullri lengd.
Sú fyrsta er framtíðarmyndin THX
1138 (Stöð 2 ►0.40) sem Lucas
og starfsbróðir hans Francis Ford
Coppola tókst að sannfæra Wamer
Brothers um að fjármagna árið
1971. THX 1138 er eins konar
framlenging á lokaverkefni Lucas
í kvikmyndadeild Háskóla Suður
Kaliforníu og minnir á sýn George
Orwells; framtíðin er kaldur, tilfinn-
ingalaus og töivustýrður heimur þar
sem er þó einn Akkilesarhæll -
manneskjan. Þetta er vel útfærð
mynd, yst sem innst, en hún er að
sumu leyti álíka dauðhreinsuð og
sá heimur sem hún lýsir, enda gekk
hún illa. Tveimur árum síðar sann-
aði Lucas hins vegar að hann kunni
ekki aðeins að gera kvikmyndir sem
ára drengs sem lést úr krabbameini
1992. Leikstjóri Peter Wemer. Maltin
segir þessa sjónvarpsmynd yfir meðal-
lagi.
Stöð2 ►21.20RobertRedfordleik-
stýrir jafnan af vandvirkni og það á
líka við um Gettu betur (Quiz Show,
1994), sanna dæmisögu um spillingu í
bandarísku sjónvarpi á sjötta áratugn-
um. En myndin er dálítið stíf og per-
sónusköpunin lítt aðlaðandi, þótt leikar-
amir, einkum John Torturro sem sérvit-
ur spurningaþáttaofviti, standi fyrir
sínu. Vel gert en skortir dýpt og sjarma.
kk'h
Stöð2 ►23.35 Spádómar
Nostradamusar em mörgum sígiit
rannsóknarefni. Kvikmynd Rogers
Christian Nostradamus (1994) spáir
höfða til heilans heldur hjartans líka
- hinn alþýðlegi og alþjóðlegi smell-
ur American Graffiti var persónu-
legur lofsöngur Lucas til unglings-
áranna, tilfinninga þeirra og tónlist-
ar. Myndin rakaði inn seðlum og
gat af sér óþolandi magn eftir-
hermumynda. Á gróðanum reisti
George Lucas svo kvikmyndaveldi
sem hann renndi enn traustari stoð-
um undir árið 1977 með Star Wars,
fyrstu mynd í syrpu geimævintýra
sem hann hyggst enn bæta við.
Síðan hefur hann ekki leikstýrt bíó-
mynd - því miður - en framleitt
þeim mun meira. Hann er nú kóng-
ur í ríki sem hefur innan sinna vé-
banda framleiðslufyrirtækið Lucas-
Film Ltd, brellugerðarfyrirtækið
Industrial Light And Magic og
framleiðslu hljóðkerfa fyrir bíó sem
draga nafn sitt af myndinni sem
Stöð 2 sýnir nú - THX Sound Sy-
stem. kk'h.
hins vegar í líf spámannsins. Það þarf
enga spádómsgáfu til að sjá að myndin
er illa heppnuð. Leikhópnum - Tcheky
Karyo, F. Murray Abraham, Rutger
Hauer, Amanda Plummer, Julia Orm-
ond - er vorkunn. ★ 'h
Stöð2 ►1.35 Robert Mulligan er
einn af færustu og vanmetnustu leik-
stjórum Bandaríkjanna. Hann gerði
eftirminnilega þroskasögu Summer Of
’42 árið 1971 og í Karlinum ítunglinu
(TheManln TheMoon, 1991) snýr
hann sér tveimur áratugum síðar aftur
að því sem gerist þegar kynhvötin
vaknar. Fín en dálítið viðkvæmnisleg
mynd um tvær systur sem verða skotn-
ar í sama stráknum. Sam Waterston,
Tess Harper og Gail Strickland meðal
fullorðinna leikara en þeir yngri eru
bestir. ★★★
Stöð 3 ►20.50 Örþrifaráð (Her
Desparate Choice) nær ekki í handbæk-
ur en þessi dramantíska spennumynd
fjallar um mæðgur á flótta undan
brengluðum föður jafnt sem yfirvöldum.
Stöð 3 ►22.20 Fjarvistarsönnun
(Perfect Alibi) Húsmóður langar aftur
út á vinnumarkaðinn og til að gera það
kleift kemur barnfóstra á heimilið en
sú fer að sinna húsbóndanum meðfram
heimilinu. Martin og Potter segja þessa
spennumynd hefja sig upp fyrir meðal-
lag vegna leikstjórnar Kevins Meyer
og góðra leikara á borð við Kathleen
Quinlan, Teri Garr og Hector Elizondo.
Þaugefa kkk
Stöð 3 ►23.50 í Eldraun (Trial By
Fire) leikur Gail O’Grady (ljóskan úr
NYPD Biue) kennslukonu sem sökuð
er um kynferðislegt samband við nem-
anda sinn.
Sýn ►21.00 Hormónatröllið Arnold
Sehwartzenegger reyndi fyrst á þanþol
hormóna sinna og takmarkaðra leik-
hæfileika sem Ofurmennið Conan
(Conan The Barbarian, 1982). Ofbeldis-
ríkt og nokkuð vöðvastælt hasarævin-
týri sem John Milius leikstýrði og samdi
ásamt Oliver Stone(!). Og þar örlar á
húmor, sem betur fer. kk'h
Sunnudagur
Sjónvarpið ►22.30 Andi Monty Pyt-
hon-gengisins þykir svífa yfir vötnun-
um í bresku gamanmyndinni Svína-
bóndinn (Leon The Pig Farmer, 1992).
Mark Frankel leikur gyðing sem á nógu
bágt fyrir þegar gráu er bætt ofan á
svart með þeirri uppgötvun að kynfað-
ir hans er svínabóndi! Meðal annarra
leikara eru Janet Suzman, Brian Glover
og Connie Booth. Leikstjórar Gary
Sinyor og Vladim Jean. Martin og Pott-
er segja þetta launfyndna mynd og
gefa kkk'h (af fímm mögulegum)
ogBlockbusterVideo kkk.
Stöð 2 ►23.25 Engar umsagnir
liggja fyrir um Enn eitt fjall (One
More Mountain, 1994) um hrakningar
hóps Bandaríkjamanna í leiðangri yfir
fjöll og fímindi Kalifomíu á síðustu
öld. Aðalhlutverk Meredith Baxter og
Chris Cooper en leikstjóri er Dick
Lowry.
Stöð 2 ►0.55 Hollenska leikstjóran-
um Dick Maas tókst að komast út fyr-
ir landsteinanna með spennumyndina
Lyftan (TheLift, 1983) um lyftu í
háhýsi einu sem gerist nánast mann-
æta þegar dyrnar lokast! Nokkuð vel
heppnaður tryllir. kk'h
Sýn ►23.00 Það gneistar töluvert af
vestranum Útlagasveitin (Posse,
1993), þar sem Mario Van Peebles
bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið
- foringja svartra fótgönguliða sem
segja skilið við herdeild sína. Þéttur
leikhópur, þróttmikil atburðarás, hrá
úrvinnsla. ★ ★ 'h
Árni Þórarinsson