Morgunblaðið - 16.11.1996, Side 4
4 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þróunarfélag Reykjavíkur, atvinnu- og ferðamálanefnd og samtökin íslensk verslun
Viðurkenningar
tiltveggja
miðbæj arverslana
VERSLUNIN Sautján hefur
hlotið viðurkenningu Þróunar-
félags Reykjavíkur fyrir fram-
lag til uppbyggingar í miðborg
Reykjavíkur og verslunin Mál
og menning hlaut Njarðar-
skjöldinn, hvatningarverðlaun
ferðamannaverslunar, sem at-
vinnu- og ferðamálanefnd
Reykjavíkur og samtökin ís-
lensk verslun veita í fyrsta
sinn.
Vel að verð-
launum komin
Að mati dómnefndar er
verslun Máls og menningar við
Laugaveg 18 vel að verð-
laununum komin. Þar hafí ver-
ið sýnt frumkvæði í þjónustu
við ferðamenn og metnaður
lagður í að þjónusta þá sem
best. Afgreiðslutíminn er
lengri en almennt gerist í
verslunum og hæft starfsfólk
með góða málakunnáttu, fjöl-
breytt vöruúrvai, góðar merk-
ingar og aðlaðandi útlit. Þá
hafí kaffíhúsið á efri hæð
verslunarinnar aukið vellíðan
viðskiptavina.
í ávarpi Guðrúnar Ágústs-
dóttur formanns Þróunarfé-
lags Reykjavíkur og forseta
borgarstjórnar við afhending-
una kom fram að verslunin
Sautján hafí hlotið nær öll
greidd atkvæði stjórnarmanna
við kjör um árlega viðurkenn-
ingu fyrir framlag til uppbygg-
ingar í miðborg Reykjavíkur
en viðurkenningin er nú veitt
í fimmta sinn.
Byggja upp
á Laugavegi
Verslunin Sautján er rekin
af hjónunum Svövu Johansen
og Ásgeiri Bolla Kristinssyni
og hafa þau staðið að
verslunarrekstri í miðborginni
um árabil. Fyrir 20 árum hóf
Ásgeir Bolli verslunarrekstur
á Laugavegi 46, síðar á
Laugavegi 33 og fyrir sex
árum opnuðu þau hjónin
verslunarhús við Laugaveg 91,
sem þau höfðu endurbyggt, og
í sumar opnuðu þau annað
verslunarhús við hliðina á
Laugarvegi 89. „Bæði húsin
eru að sönnu glæsileg
miðborgarhús með virðulegu
útliti,“ sagði Guðrún.
Morgunblaðið/Golli
ÞRÖSTUR Ólafsson stjórnarformaður Máls og menningar, Hall-
dór Guðmundsson útgáfustjóri, Anna Einarsdóttir deildarstjóri,
Sigurður Svavarsson framkvæmdastjóri, Bertha Sigurðardóttir
deildarstjóri og Árni Kr. Einarsson verslunarstjóri Máls og
menningar taka á móti Njarðarskildinum frá Guðrúnu Ágústs-
dóttur forseta borgarstjórnar.
ÁSGEIR Bolli Kristinsson og Svava Johansen, eigendur verslun-
arinnar, Sautján taka við viðurkenningu Þróunarfélagsins frá
Guðrúnu Ágústsdóttur formanni Þróunarfélagsins og forseta
borgarstjórnar.
Morgunblaðið/Áadls
Ljósmyndarar sýna
AÐ LÝSA flöt er yfirskrift ljós-
myndasýningar sem Ljósmynd-
arafélag íslands heldur í Gerðar-
safni í Kópavogi í tilefni 70 ára
afmælis félagsins. Sýningin verð-
ur opnuð í dag og þar verða sýnd-
ar u.þ.b. 400 ljósmyndir eftir 56
Ijósmyndara. Á myndinni sjást
þau Bragi Þór Jósefsson, Anna
Fjóla Gísladóttir, Jóhannes Long
og Kristján Maack hengja mynd-
ir á veggina.
Gæðastjórnun í ríkisrekstri
Sémefndar tillög-
ur væntanlegar
TILLÖGUR um hvemig ná megi
betri hagræðingu í ríkisrekstrinum
og reikningshaldi ríkissjóðs í nafni
árangursstjómunar munu, að sögn
Friðriks Sophussonar fjármálaráð-
herra, verða lagðar fram í lok þessa
mánaðar og kynntar í ríkisstjóm.
Þetta kom fram er Friðrik mælti
fyrir frumvarpi ríkisstjómarinnar
um fjárreiður ríkisins á Alþingi í
gær.
Sérstök nefnd, sem ijármálaráð-
herra skipaði í byijun þessa árs
undir formennsku dr. Guðfinnu
Bjamadóttur, hefur unnið að til-
lögugerðinni. Guðfinna, sem er sér-
fræðingur í gæðastjómun, hélt fyr-
ir ári fyrirlestur um nútímastjómar-
hætti í opinberri stjómsýslu og
ákvað fjármálaráðherra í kjölfar
þess að skipa nefndina, sem lið i
þeirri stefnu ríkisstjómarinnar sem
gegnt hefur heitinu „nýskipan í rík-
isrekstri" og snýst um kerfísbundn-
ar breytingar á ríkisrekstrihum.
Undir þessa yfírskrift falla ýmsar
skipulagsbreytingar sem tillögur
hafa verið gerðar um að undan-
fömu og hefiir að hluta þegar ver-
ið hrint í framkvæmd, s.s. fyrirhug-
aðar breytingar á fjárreiðuhaldi rík-
isins, tillögur um þjónustusamninga
og verkefnavísa, o.fl.
Að sögn Friðriks er meginmark-
mið þessarar nýjustu tillögugerðar
að fá fram hugmyndir um hvemig
tryggja megi að fjármunir ríkissjóðs
séu sem allra bezt nýttir. Friðrik
leggur þó áherzlu á, að þessar hug-
myndir gangi ekki eingöngu út á
bættan hagrænan árangur, heldur
ekki síður um gæði þjónustunnar
sem stjómsýslan og aðrar stofiianir
ríkisins veita skattborgumnum.
Samkeppnis-
staðaþjóð-
tungnnnar
PÉTUR Pétursson, fyrrverandi
útvarpsþulur, hefur sent Sam-
keppnisstofnun eftirfarandi er-
indi í tilefni af Degi íslenskrar
tungu:
„I tilefni af Degi íslenskrar
tungu bið ég háttvirta stofnun
yðar að ganga úr skugga um
hvort þjóðtungan njóti jafnrétt-
is í flutningi söngva í útvarpi
og sjónvarpi, eða verði að una
því hlutskipti að lúta í lægra
haldi fyrir engilsaxneskum
söngvum og búi af þeim sökum
við lakari samkeppnisstöðu
hvað varðar efni sem ætlað er
uppvaxandi kynslóð."
Ríkið sýknað af kröfum loðdýrabænda á ríkisjörðum
Samningur ráðherra
hafði ekki lagastoð
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm
Héraðsdóms í máli fyrrum ábúenda
ríkisjarðanna Kirkjufeiju og Kirkju-
feijuhjáleigu í Ölfusi á hendur ís-
lenska ríkinu. Ríkið er þar með sýkn-
að af öllum kröfum þessarra tveggja
loðdýrabænda.
Málin voru höfðuð vegna vanefnda
ríkisins á samningi sem Steingrímur
J. Sigfússon, þáverandi landbúnaðar-
ráðherra, gerði við ábúenduma í
marsmánuði 1991 um kaup ríkisins
á níu refahúsum á jörðunum ásamt
fylgifé fyrir samtals 47 milljónir kr.
Fram kom á sínum tíma að fjármála-
ráðuneytið féllst ekki á greiðslu-
skyldu ríkissjóðs og vísaði málinu til
ríkislögmanns sem taldi að kaup
landbúnaðarráðuneytisins ættu sér
enga stoð í lögum.
I dómi Hæstaréttar er vísað til
þess að landbúnaðarráðherra hlut-
aðist til um að fá samþykki Alþingis
til efnda samkomulagsins, en fjár-
veitinganefnd hafí dregið tillögu þess
efnis til baka. Ríkið er sýknað af
kröfum ábúendanna en málskostnað-
ur fyrir Hæstarétti felldur niður.
Málin dæmdu hæstaréttardóm-
aramir Haraldur Henrysson, Guðrún
Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason,
Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf-
stein. Hjörtur skilaði séráliti þar sem
tekið er undir kröfur bændanna í
meginatriðum.
V W
Okumanns-
trvffffinjaf
bætti fall
af palli
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi sl. fimmtudag trygg-
ingafélag til að greiða vörubíl-
stjóra bætur fyrir slys sem hann
varð fyrir árið 1992. Dómurinn
taldi tjón mannsins bótaskylt sam-
kvæmt ákvæðum umferðarlaga
þar sem maðurinn hefði unnið við
lestum vörubílsins og teldist sú
vinna til notkunar bifreiðarinnar,
í skilningi laganna.
Maðurinn var uppi á vörubíls-
palli að hagræða farmi þegar hann
datt aftur yfir sig og til jarðar.
Hlaut hann opið beinbrot á fram-
handlegg og var mat læknis að
varanleg örorka hans eftir slysið
væri 20%. Hann fór fram á bætur
á grundvelli þess að tryggingafé-
lagið hefði tryggt vörubílinn lög-
boðinni ábyrgðartryggingu, þar
með talið vegna slysa á öku-
manni. Alls krafðist maðurinn
tæplega 3,4 milljóna króna.
Tryggingafélagið krafðist sý-
knu þar sem maðurinn hefði slas-
ast þegar bíllinn var kyrrstæður
og slysið því ekki hlotist af notkun
bílsins í skilningi umferðarlaga.
Lestun þáttur í notkun
Dómarinn, Arngrímur ísberg,
sagði að lestun og losun vörubif-
reiðar, þ.m.t. að hagræða farmi,
væri þáttur í notkun hennar og
þar með eðlilegur hluti af starfi
vörubifreiðarstjóransog bætti við
að þar sem maðurinn hefði slasast
við starf sitt sem ökumaður ætti
hann rétt á bótum úr hendi trygg-
ingafélagsins.
Dómurinn taldi bætur hæfileg-
ar 3 milljónir króna. Þá var trygg-
ingafélaginu gert að greiða tæpar
400 þúsund krónur í málskostnað.
Valur Ingimundarson
Hernám ráð-
gert ef sós-
íalistar næðu
völdum
BANDARÍKJAHER gerði áætlanir
á árunum 1948-1951 um að her-
taka ísland ef sósíalistar rændu hér
völdum, að því er fram kemur í
væntanlegri bók Vals_ Ingimundar-
sonar sagnfræðings, / eldlínu kalda
stríðsins. Valur segir að herinn
hafí ætlað að senda hingað hermenn
með skipum og flugvélum til að
vernda Keflavíkurflugvöll og bæla
niður uppreisn sósíalista.
í bókinni kemur fram, að áætlan-
ir hersins hafi ekki fallið úr gildi
fyrr en varnarsamningur íslands
og Bandaríkjanna var gerður árið
1951. Bandaríska utanríkisráðu-
neytið hafí verið andvígt áætlunum
hersins og dregið í efa að mikil
hætta væri á valdaráni.
Þá segir, að eftir komu varnar-
liðsins til íslands hafi bandaríski
sendiherrann haft úrslitavald um
hernaðaríhlutun ef valdarán yrði
framið á íslandi og hafí ekki þurft
að bíða fyrirmæla frá Washington.
Bandaríkjastjórn hafi ætlað að fá
skriflega staðfestingu frá háttsett-
um íslenskum ráðamönnum um
þessa tilhögun, en Valur segir eng-
ar heimildir hafa fundist sem bentu
til að það hafí verið gert.
Að því er fram kemur í bókinni
lögðu embættismenn i bandaríska
utanríkisráðuneytinu áherslu á póli-
tískt forvarnarstarf á íslandi, en
ekki hernaðaríhlutun.