Morgunblaðið - 16.11.1996, Page 6
6 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Námsmenn héldu útifundi víða um land til að leggja áherslu á kröfur sínar
Morgunblaðiö/Kristinn
ÞEGAR þeir Friðrik Sophusson og Halldór Asgrímsson gengu út um dyr Alþingishússins hófst orrahríð snjóbolta utan af Austur-
velli. Hríðinni linnti þó eftir að fundarstjóri hafði sussað á mannskapinn og í lok ræðu sinnar þakkaði fjármálaráðherra sérstaklega
fyrir að hafa ekki fengið í sig snjóbolta.
7. J LV ' ,,mí JN veríi
Mfe >m.
Baráttan rétt að byija
FJÖLMENNT var á útifundi náms-
mannahreyfinganna á Austurvelli í
gær þar sem námsmenn skoruðu á
ríkisstjómina að breyta lögum um
Lánasjóð íslenskra námsmanna og
forgangsraða í þágu menntunar við
skiptingu ríkisútgjalda.
Avörp fluttu Gissur Páll Gissur-
arson, formaður Félags framhalds-
skólanema, og Vilhjálmur H. Vil-
hjálmssont formaður Stúdentaráðs
Háskóla Islands. Fundarstjóri var
Drífa Snædal, formaður Iðnnema-
sambands íslands. í máli þeirra kom
meðal annars fram að ráðamenn
þjóðarinnar hefðu fullan stuðning
námsmanna til þess að sýna það í
verki sem þeir forgangsröðuðu í orði
þegar þeir segðust vilja hlut mennt-
unar sem mestan og bestan. í því
sambandi var vitnað til orða mennta-
málaráðherra á nýliðnu menntaþingi
og samþykkta landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins þessa efnis. Auk
þess voru rifjuð upp þau ummæli
úr stefnuræðu forsætisráðherra að
20% hagvaxtar á tímabilinu 1971-
1992 mætti rekja til mannauðs og
þar með menntunar. Því töldu náms-
menn að boðaður niðurskurður til
framhaldsskólastigsins á fjárlögum
næsta árs skyti nokkuð skökku við.
Nauðsynlegt að skapa
fjárhagslegt svigrúm
Að loknum avörpum námsmanna
voru Halldóri Ásgrimssyni, formanni
Framsóknarflokksins, og Friðriki
Sophussyni, varaformanni Sjálfstæð-
isflokksins, afhentar áskoranir undir-
ritaðar af um 15 þúsund námsmönn-
um. Halldór Ásgrímsson fagnaði
áhuga námsmannanna og sagði að
ríkisstjóminni yrði gerð grein fyrir
áskorununum. Hann minnti á að
unnið væri í nefnd að breytingum á
lögum um LÍN og kvaðst eiga von á
að nefndin lyki störfum innan tíðar.
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, bað námsmenn
um að sýna biðlund, þar sem verið
væri að vinna í málum lánasjóðsins.
Hann lagði á það áherslu að vanda
þyrfti alla meðferð þeirra mála, þar
sem hugsa yrði til framtíðar. Hann
sagði nauðsynlegt að skapa yrði fjár-
hagslegt svigrúm til breytinga og að
Morgunblaðið/Knstján
NEMENDUR framhaldsskólanna á Akureyri fjölmenntu á Ráðhústorg.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
NEMENDUR í Framhaldsskóla Vestfjarða með mótmælaspjöld-
in í miðbæ ísafjarðar í gærdag.
það væri í þágu námsmanna og fram-
tíðarinnar að safna ekki skuldum.
Fundinum bárust skeyti víða að,
m.a. frá BHMR og íslenskum náms-
mönnum erlendis, þar sem lýst var
stuðningi við baráttu námsmanna
og tekið undir áskoranir þeirra.
Fundarstjóri sleit fundi með þeim
orðum að baráttan væri rétt að byrja
og ef marka má undirtektir fundar-
manna voru þeir á sama máli.
Nemendur Menntaskólans á Egils-
stöðum héldu fund í mótmælaskyni
við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar-
innar um framhaldsskólana. Þeir
höfðu sent frá sér undirskriftalista
þar sem skráð voru nöfn 250 ein-
staklinga.
Sesselja Stefánsdóttir, formaður
nemendaráðs, sagði m.a. að Lána-
sjóður íslenskra námsmanna hefði
misst gildi sitt sem sjóður og sú
eftirágreiðsla sem nú viðgengst inn-
an sjóðsins hafi steypt nemendum í
skuldir um leið og bankastofnanir
hagnist á þessu fyrirkomulagi.
Sesselja sagði að mánaðarlegar
greiðslur væru eðlilegri lausn heldur
en að greitt sé úr sjóðnum tvisvar
á ári eins og nú er gert. Nemendur
skoruðu á þingmenn Austurlands-
kjördæmis að endurskoða afstöðu
sína til ofangreinds frumvarps.
Stórverkefnaskrá
niðurskurðar
Nemendur Framhaldsskóla Vest-
Qarða á ísafirði fjölmenntu í mót-
mælagöngu í gær og mótmæltu nið-
urskurði ríkisins á fjárframlögum til
framhaldsskólanna.
í fréttatilkynningu frá Nemenda-
félagi Framhaldsskóla Vestfjarða
segir m.a. að félagið lýsi yfir ein-
dregnum stuðningi við mótmælaað-
gerðir Félags framhaldsskólanema
og annarra námsmannahreyfinga.
Nemendafélagið furðar sig á því að
Framhaldsskóli Vestfjarða skuli
vera á stórverkefnaskrá niður-
skurðarverkefnis menniamálaráð-
herra, nú þegar ásókn nemenda í
skólann hefur aldrei -verið meiri og
æ fleiri Vestfirðingar kjósa að
stunda framhaldsnám í sinni heima-
byggð, m.a. vegna bættra sam-
gangna innan héraðs.
„Ráðamenn þjóðarinnar, sem í
ræðu og riti stæra sig af hinu fyrir-
myndarmenntakerfi þjóðarinnar,
ættu að sjá sóma sinn í því að hlúa
vel að skólunum í landinu. Innan
þeirra eyða jú landsmenn allir dýr-
mætum hluta ævi sinnar," segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
Framlag í samræmi
við fögur orð
Námsmenn við framhaldsskólana
á Akureyri, Verkmenntaskólann á
Akureyri, Menntaskólann á Akur-
eyri og Háskólann á Akureyrp komu
saman á Ráðhústorgi í gær. A fund-
inum voru lagðar fram undirskriftir
675 nema í VMA og MA þar sem
mótmælt var niðurskurði til fram-
haldsskóla auk þess sem 967 nemar
höfðu skrifað undir óskir um að for-
gangsröðun í þágu menntunar verði
breytt.
Helga Sif Friðjónsdóttir formaður
stúdentaráðs Félagsstofnunar Há-
skólans á Akureyri og Guðmundur
Ingi Guðbrandsson formaður skóla-
félags Menntaskólans á Akureyri
fluttu stutt erindi þar sem þess var
m.a. krafist að ríkisstjórnin leggi
fram frumvarp um lánasjóðinn þar
sem kveðið verði á um samtíma-
greiðslur og léttari endurgreiðslu-
byrði lána. „Einnig förum við fram
á það að ríkisstjórnin móti heild-
stæða menntastefnu og að framlag
til menntamála verði í samræmi við
þau fögru orð ráðamanna að mennt-
un sé góð fjárfesting," sagði Helga.
Svavar Gestsson alþingismaður
ávarpaði fundinn á Ráðhústorgi og
hvatti námsmenn til dáða gegn
óréttlátum lögum um lánasjóðinn,
en Alþýðubandalagið hefði margoft
bent á að breytingar á lögunum frá
1992 hefðu margt illt í för með sér
fýrir námsmenn. „Allt bendir til þess
að þessar breytingar hafi komið sér-
staklega illa við þá sem búa við erfið-
ar aðstæður, en hafa viljað stunda
nám,“ sagði Svavar og benti á að
vegið væri að jöfnunarhlutverki
lánasjóðsins.
Heimskra manna skattur
Nemendur Fjölbrautaskóla Suð-
urlands og Menntaskólans á Laug-
arvatni söfnuðust saman á Tryggva-
torgi og fóru í mótmælagöngu um
miðbæ Selfoss í gær og mótmæltu
„heimskra manna skatti" sem er
gjald fyrir endurtöku prófa í fjöl-
brautaskólum. Mótmælagangan var
mjög fjölmenn og fór vel fram.
Nemendur bentu á að ráðherra
vildi að nemendur hugsuðu sinn
gang og skráðu sig ekki í fleiri
áfanga en þeir gætu sinnt. Þá spurðu
nemendur hvernig nemendur í
menntaskólum með bekkjakerfi
gætu ráðið við stundaskrána sem
þeim væri fengin. í máli nemenda
kom fram að skattur þessi beindist
eingöngu að skólum með áfanga-
kerfl.
Mótmælt var lægri framlögum til
menntamála og bentu nemendur á
að með þessari stefnu yrðu það for-
réttindi að stunda nám. Nemendur
settu fram dæmi um að aðalskrif-
stofa forsætisráðherra kostaði 83
milljónir króna og fyrir það fé mætti
reka 400 manna skóla. Þá hvöttu
nemendur yfirvöld til að hækka laun
kennara en það leiddi til betri
kennslu.
Allir mættu
Nemendur Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum mættu allir sem
einn á mótmælafund í skólanum á
hádegi í gær, þar sem veður leyfði
ekki fundahöld utandyra.
Þar voru flutt ávörp og lýst yfir
stuðningi við mótmælaaðgerðir
námsmannahreyfinganna og sent
skeyti til fundarmanna á Austurvelli.
.