Morgunblaðið - 16.11.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Lífeyrissjóður bænda
Ríkissjóður ber
lífeyrisgr eiðslur
LIFEYRIR til bænda, fæddum árið
1914 eða fyrr, verður fjármagnaður
til frambúðar með beinum hætti úr
ríkissjóði og af Stofnlánadeild land-
búnaðarins en ekki borinn af Lífeyr-
issjóði bænda, þótt þessar lífeyris-
greiðslur falli að núgildandi lögum
undir verksvið sjóðsins.
Þetta fyrirkomulag hefur tíðkazt
lengi á þeim forsendum, að sjóðurinn
hafi ekki haft bolmagn til að standa
undir greiðslunum og jafnan verið
framlengt til fímm ára í senn eða
skemur, en samkvæmt lagafrum-
varpi, sem Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra mælti fyrir á Alþingi
á fimmtudag í tengslum við röð
skattalagabreytingafrumvarpa ríkis-
stjómarinnar, er lagt til að þetta
fyrirkomulag verði bundið í lög og
ábyrgðinni á þessum greiðslum
þannig lyft af Lífeyrissjóði bænda
til frambúðar. Friðrik sagði þetta
fyrirkomulag byggjast á sams konar
samkomulagi og náðst hefði áður um
lífeyrissjóð aldraðra, en í báðum til-
vikum á fólk í hlut, sem á sínum tíma
tryggði sig ekki í neinum lífeyris-
sjóði.
Kostnaður ríkissjóðs af greiðslum
þessum nema að sögn Friðriks um
140 millj. króna á þessu ári og mun
væntanlega nema samtals um einum
milljarði króna er greiðslurnar falla
niður af náttúrulegum ástæðum eftir
um 15 ár.
Til sölu 193 fr við Skipholt. Til afh. fljótle Upplý / /ovW ' SKIPHOLT ^ n verslunarhúsnæ&i í nýuppgerSu húsi neSarlega ijart og gott húsnæöi m. stórum gluggum. ga. singar gefur: FASTEIGNAÞJÓNUSTAN ® 552-6600 Lovísa Kristjánsdóttir, lögg. fasteignasali. ^
- kjarni málsins!
Doktor í
tölvunar-
fræðum
•GUÐJÓN Guðjónsson varði sl. vor
doktorsritgerð sína í tölvunarfræðum
(Computer Science) við Pennsylvania
State University,
Department of
Computer Science
and Engineering.
Leiðbeinandi var
dr. William H.
Winsborough að-
stoðarprófessor.
Heiti doktorsrit-
gerðarinnar er Compile Time Me-
mory Reuse in Single Assignment
Programming Languages: Updating
Recursive Data Structures in Place.
Ritgerðin fjallar um niðurstöður
rannsókna á nýtingu Single Assign-
ment forritunarmála á tölvuminni.
Þróuð var aðferð til að endumýta
minni á þýðingartíma í þeim tilgangi
að draga úr ruslasöfnun á keyrslu-
tíma. Sýnt var fram á að aðferðin
getur leitt til mun hagkvæmari nýt-
ingar minnis og þar af leiðandi auk-
ins keyrsluhraða, einkum þegar
henni er beitt á þá hluta forrits sem
uppfæra endurkvæmar gagnagrind-
ur.
Guðjón fæddist í Reykjavík þann
25. október 1965. Hann lauk verslun-
arskólaprófi frá Verslunarskóla ís-
lands vorið 1983 og stúdentsprófí frá
sama skóla árið 1985. Vorið 1988
brautskráðist hann með BS gráðu í
tölvunarfræði frá Háskóla íslands.
Dr. Guðjón starfar nú hjá hugbúnað-
arfyrirtækinu OZ hf.
Foreldrar dr. Guðjóns eru Guðjón
Jónasson hárskerameistari og Þóra
Jenný Hendriksdóttir sjúkraliði.
♦ ♦ ♦-----
Heimir Már til
Alþýðubanda-
lagsins
•FRAMKVÆMDASTJÓRN Al-
þýðubandalagsins hefur ráðið
Heimi Má Pétursson, fréttamann á
Stöð 2, í stöðu framkvæmdastjóra
flokksins. Heimir
tekurtil starfa 1.
desember næst-
komandi, að því er
segir í fréttatil-
kynningu frá Al-
þýðubandalaginu.
Heimir Már
fæddist á ísafirði
árið 1962. Hann
lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskó-
lanum í Ármúla og B.A.-prófi í
stjórnmálafræði og fjölmiðlafræðin
frá Háskóla íslands árið 1989. Hann
sat í stúdentaráði fyrir vinstrimenn
á árunum 1986-88. Hann varblaða-
maður á Þjóðviljanum 1988-90, rit-
stjóri héraðsfréttablaðsins Norður-
land 1990-91 og hefur verið frétta-
maður á Stöð 2 frá 1991. Heimir
hefur sent frá sér þrjár Ijóðabækur
og hefur samið texta á hljómplötur
bróður síns, Rúnars Þórs.
Það verður mikið
Garðabæ I
Hagkaups
kók á 50 Kr.
þetta er náttúrulega
ekkert verðL^tfð
' heitt
nnunni
Andlits-
málun
Viltu verða
kisa eða
sjóræningi?
' Þetta
en9Wn st
Blöðrur
fyrir alla
krakka, konur
og kalla
HAGKAUP
fmælis-
terta
ekki bjóða
pmnar
- alveg
svetlkaldir