Morgunblaðið - 16.11.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 13
FRÉTTIR
Úthlutun styrkja til hótela á landsbyggðinni
Farið að tilmælum
Samkeppnisráðs
FARIÐ verður að tilmælum Sam-
keppnisráðs við úthlutun styrkja
til heilsárshótela á næsta ári, að
því er fram kom í máli samgöngu-
ráðherra við umræðu um úthlutun
styrkja til heilsárshótela á lands-
byggðinni utan dagskrár á Alþingi
sl. fimmtudag.
Málshefjandi var Lúðvík Berg-
vinsson, Alþýðuflokki, en hann
hafði fyrr í haust beint fyrirspurn
sama efnis til samgönguráðherra,
en taldi svör ráðherrans við fyrir-
spurninni ekki vera fullnægjandi
og krafði hann því um betri svör
með því að taka málið til utandag-
skrárumræðu.
Fyrirspurn Lúðvíks var í megin-
dráttum á þá leið, að samgöngu-
ráðherra skýrði frá því eftir hvaða
reglum og sjónarmiðum sú nefnd
hafi unnið, sem ráðherrann skip-
aði til að gera tillögur að úthlutun
á 20 milljónum kr. sem Alþingi
veitti á fjárlögum ársins 1995 til
eflingar markaðsstarfi heilsárs-
hótela á landsbyggðinni, sem alls
munu vera 42 talsins, og hvaða
rök hefðu legið að baki styrkveit-
ingar til hvers hinna ellefu hótela
sem styrk hlutu.
Lúðvík gagnrýndi tilhögun út-
hlutunarinnar; styrkjunum hafi
verið úthlutað án undangenginnar
kynningar eða auglýsingar og
samkeppnisaðilum þeirra sem
styrkina hlutu hefði ekki verið
gert kleift að sækja um þessa
styrki og að keppa um þá á jafn-
réttisgrundvelli. Með þessum ríkis-
styrkjum hafi keppinautum í
rekstri heilsárshótela á lands-
byggðinni því verið mismunað.
Þetta hafi Samkeppnisráð staðfest
í áliti sínu; úthlutunin hafi tví-
mælalaust brotið í bága við mark-
mið samkeppnislaga. Lúðvík
greindi frá því, að þeir sem teldu
sig hafa þurft að þola óréttmæta
mismunun hygðust kæra út-
hlutunina til Samkeppnisráðs.
Farið verður að tilmælum
Samkeppnisráðs
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra greindi frá því í svari sínu,
að til stæði að safna upplýsingum
um hvemig styrkfé því sem úthlut-
að var í janúar sl. hafi verið varið,
og að hann hefði ákveðið að farið
skyldi að tilmælum Samkeppnis-
ráðs við úthlutun þeirra 15 milljóna
króna, sem úthluta á í sama til-
gangi eftir áramót. Auglýst verði
eftir umsóknum sem berast skuli
ráðuneytinu fyrir miðjan desember.
Ungliðar úr flokkum á vinstri
væng og óháðir
Undirbúa stofnfund
sljórnmálasamtaka
UM 30 manna hópur ungs fólks úr
Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi,
Þjóðvaka og einstaklingar sem
starfað hafa innan Kvennalistans,
auk óflokksbundins ungs fólks úr
Háskóla íslands, ætla að halda und-
irbúningsfund fyrir stofnun sameig-
inlegra stjórnmálasamtaka í Bifröst
í Borgarfirði í dag.
Hefur verið unnið af krafti að
undirbúningi þessa á undanförnum
vikum en á fundinum á Bifröst á
m.a. að ákveða dagsetningu stofn-
fundar samtakanna, leggja fram
málefnagrunn og gera verkefna-
áætlun um vinnuna fram að stofn-
fundi, að sögn Hrannars B. Arnars-
sonar, sem tekið hefur þátt í undir-
búningnum.
„Þetta er ungt fólk úr öllum fylk-
ingum stjórnmálanna á vinstri
vængnum og óflokksbundið fólk.
Markmiðið er að búa til vettvang
fyrir þessa hópa til að vinna saman
að framgangi jafnaðarstefnunnar
og að sameiningarmálunum í eitt
skipti fyrir öll,“ sagði Hrannar.
Ungir framsóknarmenn ekki
með í viðræðunum
Hann segir að þrátt fyrir stofnun
þessara regnhlífarsamtaka muni fé-
lög og samtök ungs fólks innan
stjómmálaflokkanna starfa áfram.
Verða samtökin að öllum líkindum
stofnuð formlega fljótlega upp úr
næstu áramótum. Að hluta til er
þetta sami hópurinn og stóð að undir-
búningi fyrir stofnun Reykjavíkur-
listans á sínum tíma, að sögn Hrann-
ars en hann segist aldrei hafa orðið
var við jafn mikinn einhug og ein-
drægni sem nú um að láta þetta
ganga upp. Félagar í Sambandi
ungra framsóknarmanna hafa ekki
tekið þátt í þessum samstarfsviðræð-
um en Hrannar sagði að þeir væm
velkomnir ef þeir kærðu sig um.
ORYGGIÐ
Sknminí* og númer innifaiin *Verötryggt lán. 7,8% vextir. 1,596 verðbólga
890.000.-
Meðal afborgun pr.m. kr 22.600.-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán.*
FIAT GINQUECENTO
1.1 SPORTING
UPPMÁLAÐ
1.366.000.-
Meðal afborgun pr.m.34.500.
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán.’
1.072.000.-
Meðal afborgun pr.m. kr 27.000.-
Miðað við 25% útborgun og
36 mánaða bílalán.*
FIAT PUNTO 60 S