Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 15
Víða komið við í umræðum um
atvinnumál í Borgarfirði
Ymsir mögu-
leikar í atvinnu-
lífi héraðsins
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
FRÁ atvinnumálafundinum í Reykholtsdal.
Borgarfirði - íbúar í Andakíls-,
Skorradals-, Lundarreykjardals-,
Reykholtsdals- og Hálsahrepps
funduðu nýlega í Logalandi í Reyk-
holtsdal um atvinnumál. Ellefu
frummælendur voru á fundinum
sem var vel sóttur. Víða var komið
við í umræðum á fundinum og ljóst
að ýmsir möguleikar eru fyrir hendi
í atvinnulífi héraðsins.
Örn D. Jónsson frá Tæknigarði
fjallaði um „nýsköpun í atvinnulíf-
inu“. Örn gerði að umhugsunarefni
hvað væri „mannsæmandi“, það
færi eftir hverjar viðrniðanimar
væm, sagði hann. Er þekking eina
auðlind framtíðarinnar eða er nýt-
ing náttúmnnar það sem koma skal
með því að hafa sjálfbæra nýtingu
í huga?
Fuglaveiðar vannýttur þáttur
Ingibjörg Bergþórsdóttir, ferða-
bóndi í Fljótstungu, fjallaði um
„bóndann og ferðamanninn". í
Fljótstungu hefur verið rekin
bændagisting frá árinu 1970 og var
Fljótstunga með fyrstu stöðunum
þar sem boðið var upp á þessa þjón-
ustu. Ingibjörg furðar sig á af
hverju laxveiði er ekki flokkuð sem
ferðaþjónusta og telur að fuglaveið-
ar séu vannýttur þáttur í ferðaþjón-
ustu. „Græn ferðamennska er fram-
tíðin,“ sagði Ingibjörg að lokum.
Bergþór Kristleifsson gerði grein
fyrir fjölskylduferðaþjónustufyrir-
tækinu að Húsafelli og Langjökli
hf. Núna er veitingasala og gisting
í gamla bænum á Húsafelli, sund-
laug, golf, tjaldsvæði, sumarhús og
sumarhúsalóðir. Hitaveita er rekin
og rafstöð á Húsafelli.
Bergþór gerði að umtalsefni þeg-
ar sveitarfélög væm í samkeppni
við einstaklinga sem em í ferðaþjón-
ustu og nefndi nokkur dæmi, t.d.
væm sveitarstjómir með tjaldsvæði
þar sem ekkert kostaði að tjalda.
Flugleiðir sem em stærsti ferðaþjón-
ustuaðilinn í landinu einangmðu
fullmikið farþegana með því að nýta
ekki meir gistingu á landsbyggð-
inni. Bergþór lagði til við sveitar-
stjómimar að sveitarfélögin legðu
meira fé til markaðsstarfs.
Heillandi hitaveitur
María Hildur Maack leiðsögu-
maður talaði um og skýrði frá rann-
sóknum á tengingu fræðimennsku
og ferðaþjónustu og hvernig mætti
best samhæfa ferðaþjónustuna.
Sýndi María fram á að meðal þess
sem ferðamaðurinn vildi helst kynn-
ast hér á landi væm orkumál og
hitaveitur.
Þómnn Reykdal, oddviti í Hálsa-
hreppi, gerði grein fyrir mennta- og
menningarstofnunum á Vesturlandi
og sagði frá þeim margfeldisáhrifum
sem stöðvun á skólarekstri í Reyk-
holti hefði, 18 einstaklingar frá 15
heimilum hefðu nú einhveija vinnu
við Reykholtsskóla. í Reykholti hef-
ur verið stofnað þjónustufyrirtæki
Heimskringla ehf. til að veita upplýs-
ingar um hvað er í boði á Vestur-
landi í almennri ferðaþjónustu.
Þómnn sagði að heimamenn yrðu
að fara að hugsa alvarlega um
hvaða möguleiki væri á því að koma
tillögu menntamálaráðherra í fram-
kvæmd, að gera Reykholt að
menntasetri í norrænum fræðum
og fornbókmenntum í samvinnu við
hin Norðurlöndin.
Hvanneyri menntastofnun á
háskólastigi
Magnús B. Jónsson gerði grein
fyrir stöðu Bændaskólans á Hvann-
eyri og möguleikum þar. Hann
sagði að á síðasta ári hefðu um 850
aðilar sótt alls konar endurmennt-
unarnámskeið. Háskólagráða í bú-
vísindum væri það lengsta sem
hægt væri að komast þar á bæ.
Finnur Torfi Stefánsson talaði
um tvöfalda búsetu, að vinna í
Reykjavík og búa í Lundarreykjad-
al. Það væri raunhæfur möguleiki
ef ríkið skattlegði ekki ökutæki,
eldsneyti og síma eins gróflega og
nú væri gert. Það væri betra að
vera bara heima heldur en að vinna
fyrir einhveijum aurum sem færu
að fullu og öllu aftur í ríkiskassann.
Jóhann V. Aðalbjörnsson talaði
um garðyrkju og kom fram að 8,8%
af landbúnaði á íslandi eru garð-
yrkja, en 1500 ársverk. í Borgar-
firði væru um 55 sumarstörf fyrir
unglinga í garðyrkju. Með EES-
samningi og kjarasamningum hafa
tollar iækkað úr 90% í 30%. GATT
tollvernd er gagnkvæm þannig að
hún á ekki að skekkja samkeppnis-
myndina. Framtíðarmöguleikar
garðyrkjunnar eru fólgnir í vaxtar-
lýsingu með innlendri orku, varnar-
efni eru í lágmarki í garðyrkju á
Islandi og samkeppnisstaða okkar
er góð þegar sjóðagjöld hafa verið
felld niður, sagði Jóhann.
Ágúst Ámason lagði út af því
hvort Suðurlandsskógaáætlun væri
til eftirbreytni. Um 130 bújarðir
væru nú í nytjaskógakerfinu. Þar
af 4 á Vesturlandi. Agúst upplýsti
að nú væru skógar flokkaðir í fjöl-
notaskóga, landbótaskóga og viðar-
skóga. Ef Suðurlandsskógaáætlun-
in gengur eftir sem er áætlað að
kosti 4 milljarða ætti eftirleikurinn
að verða léttur fyrir bændur á
Vesturlandi, því aðstæður til skóg-
ræktar væru bestar þar á öllu land-
inu.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson+
NEMENDUR úr Stóru-Vogaskóla og A.T. Mahan High School í Glaðheimum.
Nemendaheimsókn af Flugvellinum
Vogum - Nemendur tveggja elstu
bekkja Stóru-Vogaskóla fengu
10 nemendur úr A.T. Mahan
High School á Keflavíkurflug-
velli í heimsókn og voru gestirn-
ir daglangt í Vogum við leiki og
störf.
Að sögn Helga Hólm tungu-
málakennara er heimsóknin hluti
af enskunámi við skólann og
gerð til að gefa krökkunum tæki-
færi til að ræða við enskumæl-
andi fólk. Heimsóknina skipu-
lögðu nemendurnir sjálfir og var
farið í heimsóknir í fyrirtæki,
fiskvinnslufyrirtækið Valdimar
og matvælaframleiðslufyrirtæk-
ið Vogabæ þar sem vel var tekið
á móti þeim. í íþróttamiðstöðinni
var farið í íþróttir og leiki og í
Glaðheimum var boðið í pizzu-
veislu svo eitthvað sé nefnt.
Að hálfum mánuði liðnum
munu nemendur Stóru-Voga-
skóla síðan fara í heimsókn á
Keflavíkurflugvöll.
Basar hjá heimilisfólki
á Dvalarheimilinu Asi
Hveragerði - Hinn árlegi basar
heimilisfólksins á Dvalarheimilinu
Ási, Hveragerði, verður haldinn í
föndurhúsinu, Frumskógum 6b,
laugardaginn 16. nóvember og
sunnudaginn 17. nóvember frá kl.
14-18 báða dagana. Á basarnum
verður margt góðra muna til sýnis
og sölu sem heimilisfólkið hefur
unnið sl. ár. Má þar til dæmis nefna
pijónavöru ýmiss konar, muni úr
tré; útsaum og margt fleira.
I huga margra er þessi basar
ótvírætt merki þess að nú fer að
styttast í jólin og tími til kominn
að fara að huga að jólagjöfunum.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
HEIMILISMENN á Ási við hannyrðir og föndur.
Fundur um kornrækt
og fóðurverð
Sögunar-
mylla kynnt
á Islenskum
dögum
Flateyri - Trésmíðaverkstæði Sæv-
ars I. Péturssonar á Flateyri kynnti
laugardaginn 9. nóvember sl. af-
kastamikla sögunarmyllu sem
keypt var til landsins fyrir ári, frá
Illinois í Bandaríkjunum. Kaupverð
var 1,4 milljónir íslenskra króna.
Sögunarmyllu þessa hefur Sævar
notað til að saga níður rekavið sem
rekið hefur á fjörur vestra, þ.e. í
Trékyllisvík og víðar. Að sögn Sæv-
ars hefur sögunarmyllan uppfyllt
vissar þarfir markaðsins hvað varð-
ar viðhald gamalla húsa og einnig
framleiðslu á 9 fm sumarhúsi, en
Sævar kynnti fyrir gestum og gang-
andi eitt slíkt sem er smíðað ein-
göngu úr rekaviði. Sem dæmi um
afkastagetu vélarinnar, þá er hún
hálftíma að saga niður 500 metra
af viði og getur tekið allt að 72 cm
breið borð.
HVER verður framtíðarþróun í
kornrækt og kjarnfóðurverði á ís-
landi? Framsóknarfélag Rangæ-
inga heldur opinn fund um þetta
mál í Hlíðarenda á Hvolsvelli
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 14.
Frummælendur verða dr. Björn
Sigurbjörnsson, ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu. Þorsteinn
Miðhúsum - Nokkrar skemmdir
urðu á veginum um hafnargarð
Reykhólahafnar í vonskuveðri á
fimmtudag, en annars er ekki vitað
um skemmdir þar. Þörungaverk-
smiðjan á pramma úti en þeir voru
það vel festir að enginn skaði varð.
Verksmiðjan hefur gengið vel i ár
og er söluaukning um 50% á árinu.
I Flatey hafa orði nokkrar
skemmdir á grótgarðinum fyrir ofan
Tómasson, forstjóri Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins, og Jónat-
an Hermannsson, plöntubótafræð-
ingur, segja frá nýjungum í kynbót-
um og byggi og útsæðisræktun.
Magnús Finnbogason, bóndi,
segir frá kornrækt og innlendri
fóðurframleiðslu frá sjónarhóli
bóndans.
bryggjuna og svo hefur Silfurgarð-
urinn eitthvað skemmst meira, en
fyrir innan hann er ein öruggasta
smábátalega í Flatey.
Nýlega hefur verið lokið við að
grafa rafmagnslínuna í jörð í inn-
sveit Reykhólahrepps frá Kambi að
Hríshóli, en á undanförnum árum
hefur hún skemmst meira og minna,
bæði hafa staurar brotnað og línur
slitnað.
Skemmdir á grjótgörðum