Morgunblaðið - 16.11.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 17
Nýir tímar í fiskviðskiptum
hjá Seagold Limited í Hull
SEAGOLD Ltd. í Hull var stofnað 1. maí 1 vor
til að annast sölu á sjófrystum afurðum
Samheija hf., dótturfyrirtækja og samstarfs-
fyrirtækja í Bretlandi og á nálægum mörkuðum.
Guðni Einarsson ræddi við Gústaf Baldvinsson
framkvæmdastjóra um Seagold Ltd. sem líklega
er yngst í hópi fyrirtækja íslendinga á
Humberside-svæðinu.
Morgunblaðið/Guðni
GÚSTAF Baldvinsson er framkvæmdastjóri Seagold Ltd.
VIÐSKIPTI
Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn hf.
Selur 6%
hlut í ís-
landsbanka
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Alþýðu-
bankinn hf., stærsti hluthafi Islands-
banka hf., hefur selt helming hluta-
bréfa sinna í bankanum. Félagið átti
um 12,4% hlut í bankanum eða um
480 milljónir að nafnvirði, en seldi
kringum 240 milljónir að nafnvirði.
Kaupendur bréfanna voru nokkrir
lífeyrissjóðir, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Kaupverð
fékkst ekki uppgefið í gær, en ljóst
er að verðið er nálægt núverandi
markaðsverði bréfanna á Verðbréfa-
þingi. Hlutabréf í íslandsbanka hafa
verið að seljast á genginu 1,80 í vik-
unni, þannig að söluverðmætið hefur
að öllum líkindum verið í kringum
430 milljónir. Hjá Eignarhaldsfélag-
inu er gert ráð fyrir að stærstum
hluta fjármagnsins verði varið til
kaupa á skráðum hlutabréfum á
Verðbréfaþingi. Félagið hefur raunar
fjárfest töluvert að undanförnu. Það
jók við hlut sinn í Tæknivali nýlega
um 6 milljónir og greiddi 40 milljón-
ir fyrir bréfin. Þá voru lagðar 25
milljónir í nýtt hlutafé i Stöð 3.
Fólk
Ráðinn yfirmaður
markaðsviðskipta
Búnaðarbankans
• ÁRNI Oddur Þórðarson við-
skiptafræðingur hefur verið ráðinn
yfirmaður markaðsviðskipta Bún-
aðarbankans.
Hann mun hefja
störf hinn 1.
febrúar næst-
komandi. Mark-
aðsviðskipti
Búnaðarbank-
ans sinna við-
skiptum við fyr-
irtæki og stofn-
anafjárfesta á
sviði verðbréfa,
gjaldeyris og framvirkra samninga.
Arni Öddur lauk cand. oecon. prófi
frá Háskóla íslands árið 1993 og
hefur frá brautskráningu starfað
hjá Fjárfestingarfélaginu Skandia.
Hann var forstöðumaður fyrir-
tækja- pg stofnanasviðs þess fyrir-
tækis. Á háskólaárum sínum sinnti
hann ýmsum trúnaðarstörfum, var
m.a. formaður Mágusar, félags við-
skiptafræðinga, 1991-1992 og sat
í stúdentaráði fyrir hönd Vöku, fé-
lags lýðræðissinnaðra stúdenta, um
tveggja ára skeið. Markaðsviðskipti
Búnaðarbankans eru hluti af hinu
nýstofnaða verðbréfa- og fjárstýr-
ingarsviði bankans.
Gústaf á að baki 10 ára dvöl í
Hull. Að loknu BA-prófi í sagn-
fræði frá Háskóla íslands fór
hann til framhaldsnáms í stjórn-
unarfræðum við háskólann í Hull
og lauk þaðan MA-prófi. Gústaf
vann síðan í átta og hálft ár hjá
Isberg Ltd. þar til Seagold Ltd.
var stofnað. Auk Gústafs vinnur
Ingibjörg Aradóttir hjá fyrirtæk-
inu. Reiknað er með að þriðji
starfsmaðurinn bætist við fljót-
lega.
Fiskur frá fjórum
löndum
„Fyrirtækið var fyrst og fremst
stofnað til að selja afurðir Sam-
heija hf., dótturfyrirtækja og sam-
starfsfyrirtækja og við seljum fyr-
ir aðra líka,“ sagði Gústaf. Dóttur-
fyrirtæki Samheija utan íslands
eru Framheiji í Færeyjum, Deutsc-
he Fischfang Union í Þýskalandi
og Onward Fishing Company í
Skotlandi.
Gústaf segir að Samheijahópur-
inn geri út 10 frystitogara. Frá
stofnun hefur Seagold Ltd. selt
400-500 tonn af frystum flökum
á mánuði. Áætlað er að ársveltan
verði um 1,5 milljarðar króna.
Gústaf segir það jafna út sveiflur
í framboði hvað fiskurinn kemur
víða að. í sumar komu til dæmis
1.300 tonn frá Þýskalandi á 10
vikum en síðan þá hefur framboð
þaðan minnkað, en aukist að sama
skapi frá Færeyjum og íslandi.
Gústaf segir að megnið af þessum
fiski hafi selst í Bretlandi, einnig
fór nokkuð til Frakklands og
Bandaríkjanna.
„Við erum einvörðungu með sjó-
fryst flök,“ segir Gústaf. „Vænt-
anlega mun Seagold Ltd. einnig
hafa umsjón með sölu á ísfiski af
skipum Onward Fishing Company,
þótt stefnan sé alls ekki að fara út
í sölu á ferskfiski eða rækju.“ Að
sögn Gústafs á Samheiji hf. mjög
gott samstarf við Royal Greenland
í rækju og engin ástæða til að
hrófla við því.
Kjarvalsstaðir
Frá framleiðanda til neytenda
Gústaf segir að með stofnun
Seagold Ltd. sé stefnt að því að
stytta bilið á milli framleiðenda
og neytenda. „Samheiji vill hafa
ítök í afurðum sínum alla leið á
áfangastað." Hann segir að Sea-
gold sé afsprengi nýrra tíma í fis-
kviðskiptum. Það sé úrelt að fisk-
urinn fari í gegnum marga millil-
iði, hvort heldur á íslandi eða í
Englandi. Kaupendurnir fylgi fisk-
inum en ekki sölumönnunum.
Gústaf sagði Samheija hf. hafa
frá upphafi lagt megináherslu á
mikil og jöfn gæði. Framleiðsla
þeirra undir merkinu Ice Fresh
hefði á sér gæðastimpil og væri
þekkt víða. Með áhrifum sínum
erlendis hefði fyrirtækið fylgt sömu
gæðakröfum. „Samheiji er í þeirri
lykilaðstöðu að geta aðlagað veiðar
og vinnslu þörfum markaðarins og
þar með þjónað viðskiptavinum
með jöfnu framboði á fyrsta flokks
vöru,“ sagði Gústaf.
Um 90% af sjófrysta fiskinum,
sem Seagold Ltd. selur í Bret-
landi, fer til „Fish and Chips“
(fiskur og franskar) veitingastaða.
„Mínir viðskiptavinir eru litlir
heildsalar um allt land sem dreifa
fiskinum. Dæmigerður viðskipta-
vinur áA~5 sendibíla og dreifir
daglega fiski til 100-200 veitinga-
staða,“ segir Gústaf. „Það er ekki
hægt að komast nær ferskleika
en að nota sjófrystan fisk. Kaup-
endur okkar þíða flökin eftir þörf-
um og djúpsteikja. Stærri flökin
eru skorin í bita og smæstu flökin
eru djúpsteikt heil. Þeir eru mjög
meðvitaðir um gæði og gera mikl-
ar kröfur, en eru jafnframt tilbún-
ir að borga vel.“
Fiskur og franskar
Gústaf segir að fiskur og
franskar að hætti Breta sé fyrsta
flokks matur. Sjálfur borðar hann
oft slíkan mat en sleppir þó edik-
inu. „Ég mæli með því fyrir íslend-
inga að þeir prófi Fish and Chips
þegar þeir koma í verslunarferðir
hingað,“ segir Gústaf. Hann á
fjögur börn, frá 7 mánaða upp í
12 ára aldur, með konu sinni Önnu
Gunnlaugsdóttur. Þegar fjölskyld-
an gerir sér dagamun og fer út
að borða vilja krakkarnir ekki
hamborgara heldur fisk og fransk-
ar. „En ég hef sagt við krakkana
að um leið og þau fari að fá sér
edik út á fiskinn, þá sé_ kominn
tími til að fara heim til íslands."
oÚtihurðir
«gluggar
Smíðum útihurðiry bílskúrshurðir,
svalahurðir, glugga, fog ogfleira.
Vélavinnum efni.
BjLDSHÖFÐA 18 • 112 REYKJAVIK
SIMI 567 8100 • FAX 567 9080
Árni Oddur
Þórðarson
Stærsti viðburður á sviði upplýsingatækni hér á landi til þessa
Ráðstefna um
Scandic Hótel Loftleiðir
26. - 27. nóvember
► Network
► Sjáðu
,-V ...
TI:YM
■ GF/- <~3Jz
Fc rzl'cl ár, íyrrrluGÍncrj «-r'«=*==*
Oracle •
Sun •
Netscape •
Legato •
Skýrr •
Þróun •
Intranet •
ie •
Unisys •
http://www.oracle.is/