Morgunblaðið - 16.11.1996, Side 18
18 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Harðvítugur kosningaslagur í Rúmeníu
Baráttunni lýkur með
hvössum orðaskiptum
Búkerest. Reuter.
SÍÐASTA sjónvarpseinvígið fyrir
forsetakosningarnar í Rúmeníu á
sunnudag var háð í fyrrakvöld
með hvössum orðaskiptum fram-
bjóðendanna, Ions Iliescus for-
seta, sem er fyrrverandi kommún-
isti, og miðjumannsins Emils
Constantinescus. Iliescu vísaði þar
á bug ásökunum mótframbjóðand-
ans um að hann hefði valdið al-
mennri örbirgð í landinu og spill-
ingu í stjórnkerfinu á sjö ára
valdatíma sínum.
Kosið verður á milli frambjóð-
endanna tveggja þar sem hvorugur
þeirra fékk tilskilið fylgi til að ná
kjöri í fyrri umferð kosninganna
3. nóvember. Flokkur Iliescus og
fyrrverandi kommúnista galt þá
afhroð í þingkosningum og Const-
antinescu segir að í síðari umferð
forsetakjörsins losi Rúmenar sig
endanlega við arfleifð kommún-
ismans.
Constantinescu sakaði forsetann
um að hafa valdið mikilli efnahags-
kreppu í landinu með því að hafna
markaðsumbótum. „Land okkar er
gjöfult en þjóðin fátæk,“ sagði for-
setaefnið í síðasta sjónvarpseinvíg-
inu af fjórum. „Auðurinn hefur
safnast í hendur pólitískra með-
reiðarsveina þinna. Þú hefur glatað
öllum tengslum við fólkið í land-
inu. Teldu þér ekki í trú um að
fyrirfram skipulagðar heimsóknir
þínar með lífvörðum og í glæsi-
vögnum geti talist viðræður við
fólkið."
Constantinescu spurði forsetann
hvort hann teldi að fjögurra manna
fjölskylda gæti lifað á jafnvirði
3.000 króna, sem eru algeng mán-
aðarlaun verkamanna í Rúmeníu.
„Ég geri mér grein fyrir slíkum
hlutum. Ég kem úr venjulegri fjöl-
skyldu og hef kynnst bjargarleys-
inu,“ svaraði forsetinn og bætti við
að hann vildi koma á efnahagsum-
bætum, sem bættu hag hinna fá-
tæku.
Forsetinn varaði verkamenn við
því að efnahagsstefna Constantin-
escus yrði til þess að ljölmörgum
verksmiðjum yrði lokað og starfs-
menn þeirra misstu vinnuna.
Bændur ættu einnig á hættu að
missa jarðir sínar því hægrimenn
vildu færa gömlu stórbændunum
óðulin sem þeir misstu eftir valda-
töku kommúnista.
Constantinescu kvaðst hins veg-
ar vilja lækka skatta, hækka fé-
lagslegar bótagreiðslur, rétta efna-
haginn við á 200 dögum og tryggja
að Rúmenar geti búið við svipuð
kjör og almenningur í fyrrverandi
kommúnistalöndum eins og Pól-
landi og Ungverjalandi.
„Þú óttast ekki guð“
Iliescu áréttaði að hann tryði á
guð, enda skipta slíkar yfirlýsingar
máli í landi þar sem 80% íbúanna
eru að minnsta kosti að nafninu til
í rétttrúnaðarkirkjunni. „Eitt boð-
orðanna er: „þú skalt ekki ljúgvitni
bera“,“ sagði þá Constantinescu.
„Samt laugstu í kosningabarátt-
unni og lést breiða út hatursá-
róðri. Þú óttast ekki guð.“
Forsetinn kvaðst sjálfur hafa
orðið fyrir barðinu á lygaáróðri,
t.a.m. um að hann hefði verið viðr-
iðinn sovésku leyniþjónustuna,
KGB. „Þér ferst ekki að tala um
siðferðismál," sagði hann. „Þú
verður að sýna meiri ábyrgðar-
kennd viljir þú gegna æðsta emb-
ætti landsins."
Vaclav
Havel á
kjörstað
VACLAV Havel, forseti Tékk-
lands, sýnir skilríki sín þar sem
hann bíður þess ásamt fleira
fólki að kjósa í fyrri umferð
kosninganna til nýstofnaðrar
öldungadeildar.
Havel hvatti landsmenn sína
til að mæta vel á kjörstað en
margir segjast ekki skilja
hvaða nauðsyn bar til að koma
á fót öldungadeild í þinginu.
Reuter
Jevgení Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, heimsækir Japani
Tókýó. Reuter.
RÁÐAMENN í Japan sögðust í gær
ætla að veita Rússum 500 milljóna
dala efnahagsaðstoð, sem ákveðið
var að fresta
vegna upplausn-
ar Sovétríkjanna
árið 1991. Skýrt
var frá þessu í
Tókýó í tilefni af
heimsókn Jevg-
enís Prímakovs,
utanríkisráð-
herra Rússlands,
sem reyndi að
leysa áratuga
gamla deilu Rússa og Japana um
Kúril-eyjar og lagði til að þjóðirnar
Rússum veitt
efnahagsaðstoð
Bjóða samstarf á Kúrileyjum
Prímakov
nýttu náttúruauðlindir eyjanna í
sameiningu.
Efnahagsaðstoðin nemur sem
svarar 33 milljörðum króna og felst
í lánum til iðnaðaruppbyggingar í
Rússlandi. Japanskir fjölmiðlar
segja líklegt að lán verði veitt vegna
bílaverksmiðju nálægt Moskvu,
vatnsveitukerfis í Nahodka í austur-
hluta Rússlands og verksmiðja sem
framleiða hjólbarða, barnamat og
plastflöskur.
Aðstoðin kann að tengjast þeirri
tillögu Prímakovs að Japanir og
Rússar taki höndum saman um
nýtingu jarðefnaauðlinda Kúril-eyja
og gjöfulla fiskimiða. Sovétmenn
hertóku eyjarnar undir lok síðari
heimsstyijalda og deilan um þær
varð til þess að ríkin hafa ekki enn
undirritað formlegan friðarsamn-
ing.
Japanskir ráðamenn sögðust
ætla að íhuga tillöguna og ekki er
víst að þeir samþykki hana þar sem
slíkar sættir við Rússa gætu haft
áhrif á deilur Japana við Kínveija,
Tævani og Suður-Kóreumenn um
aðrar eyjar.
Tebbit hótar stofnun nvs
flokks ESB-andstæðingi'
Tebbit
London. The Daily Telegraph.
TEBBIT lávarður, fyrrverandi for-
maður brezka íhaldsflokksins, segir
að reyni stjórn Johns Major að koma
Bretlandi í Efnahags- og mynt-
bandalag Evrópu (EMU) muni það
eyðileggja
íhaldsflokkinn
og hugsanlega
leiða til þess að
andstæðingar
ESB-aðildar úr
öllum flokkum
taki höndum
saman og stofni
nýjan stjóm-
málaflokk.
í ræðu, sem
hann hélt hjá stofnuninni Conserva-
tive 2000, sagði Tebbit að John
Major tæki flokkshagsmuni fram
yfir þjóðarhagsmuni er hann neitaði
að útiloka aðild Bretlands að EMU.
Tebbit sagði að tilraun til að ganga
í EMU myndi eyðileggja íhalds-
flokkinn: „Allir íhaldsmenn, sem
telja að frelsi, sjálfstæði og lýðræði
séu öðrum stjómmálastefnum æðri,
myndu ganga út og taka höndum
saman við menn úr öðmm flokkum
eða hvern sem er, sem væri sömu
skoðunar. Slíkt bandalag þyrfti ekki
að vera eins máls flokkur. Það
gæti orðið hugsanlegur stjórnar-
JACQUES Santer gagnrýndi afstöðu Breta til vinnutímatilskipun-
arinnar harkalega, sagði hana afturhvarf til síðustu aldar.
flokkur. Það þyrfti ekki að vera
meiri samsuðuflokkur en íhalds-
flokkurinn eða Verkamannaflokk-
urinn em í dag.“
Árás Tebbits kom mörgum
íhaldsmönnum á óvart, sem töldu
að gamlir fylgismenn Margaretar
Thatcher hefðu samið vopnahlé við
Major, að minnsta kosti fram að
kosningunum næsta vor. Tebbit
virtist hins vegar í vígahug.
Hann sagði að úrskurður Evrópu-
dómstólsins fyrr í vikunni, um að
vinnutímatilskipun ESB skuli gilda
í Bretlandi, sýndi að brezka þingið
væri „þing, sem að stórum hluta
er samsett af þingdvergum og sam-
þykkir að verða smátt og smátt lít-
ið meira en héraðssamkunda með
löggjafarvald á lægra stjórnsýslu-
****★.
EVROPA^
stigi, sem setur lög um æ smærri
hluta landsmála okkar.“
Þurfum ekki afturhvarf
til 19. aldar þrælakistna
Tebbit hélt ræðu sína fáeinum
klukkustundum eftir að Jacques
Santer, forseti framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins, réðst
harkalega að brezku stjórninni í
ræðu í Brussel. Santer vék að þeim
röksemdum Breta að vinnutímatil-
skipunin stuðlaði að minni sveigjan-
leika á vinnumarkaði og skaðaði
samkeppnisstöðu atvinnulífsins.
„Það er rétt að við þurfum sveigj-
anlegri vinnumarkað, en við þurfum
ekki afturhvarf til 19. aldar þræla-
kistna í anda Dickens-bóka,“ sagði
forsetinn. „Þeir sem segja að því
minni félagsmálalöggjöf, sem við
höfum, þeim mun betra sé það fyr-
ir samkeppnisstöðuna — eiga þeir
við alls enga löggjöf? Fjörutíu og
átta stunda vinnuvika er mjög löng,
en hún er lágmarksstaðall og þeir,
sem vilja vinna meira eru fijálsir
að því.
Tilskipunin leyfír að vinnutími
sé skipulagður með sanngjörnum
og sveigjanlegum hætti. Hún er
ekki skaðleg og það er álit flestra
vinnuveitenda.11
Mótmæla
fegurðar-
keppni
Bombay. Reuter.
MÓTMÆLI hafa verið á Ind-
landi gegn því að fegurðar-
samkeppnin Ungfrú heimur
skuli haldin þar í landi. Náðu
þau hámarki á fimmtudag,
er 24 ára gamall Indverji
kveikti í sér.
Maðurinn, atvinnulaus
skraddari, hellti eldfimum
efnum yfír sig frammi fyrir
hundruð manns sem fengu
ekkert að gert er hann bar
eld að sér. Á sekúndubroti
varð hann alelda.
Atvikið átti sér stað í borg-
inni Madurai í suðurhluta
landsins, en fegurðarkeppnin
fer fram þar 23. nóvember nk.
Madurai er 430 km suður
af Bangalore en stúlkumar
89, sem um heimsfegurðartit-
ilinn keppa, komu til síðar-
nefndu borgarinnar í vikunni.
Öflugur lögregluvörður gætir
þeirra. Meira en 20 samtök
hafa mótmælt keppnishaldinu
í Indlandi og hefur umsátri
um Chinnaswamy krikket-
leikvanginn, þar sem krýning-
arhátíðin fer fram, verið hót-
að.
Mannréttindadóm-
stóllinn
Bannað að
selja lyf í
stórmarkaði
Strassborg. Reuter.
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu í Strassborg dæmdi í gær
að frönskum eiganda stórmark-
aðs væri óheimilt að selja lyf á
borð við vítamín og spritt í verzl-
un sinni. Staðfesti dómstóllinn þar
með niðurstöðu franskra dóm-
stóla í málinu.
Mannréttindanefnd Evrópu,
sem fjallar um mál áður en þau
fara fyrir dómstólinn, hafði mælt
gegn því að franski dómurinn
yrði staðfestur. Dómstóllinn
komst hins vegar að þeirri niður-
stöðu að réttmætt hefði verið að
banna verzlunareigandanum Mic-
hael Cantoni í borginni Sens að
selja „lækningavörur" sem sam-
kvæmt frönskum lögum má að-
eins selja í apótekum. Eigendur
apóteka í borginni höfðu kært
Cantoni fyrir að seilast inn á
þeirra verksvið.
Mannréttindadómstóllinn við-
urkenndi að vísu að skilgreining
á lyfjum væri ekki einhlít, en
sagði að franskir dómstólar hefðu
til þessa sýnt samkvæmni í túlkun
sinni á því hvaða vörur teldust til
lyfja og hveijar ekki.