Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ l\lý viðharf Átjánda öldin í Englandi var að mörgu leyti róstusöm, erlendii- straumar bárust að, þensla myndað- ist innbyrðis sem ól af sér ný við- horf. Velmegun jókst og millistéttin stækkaði. Margir fjárfestar efnuð- ust vel á viðskiptum sínum við Aust- urlönd. Fjöldi félaga og einstaklinga missti að vísu fótfestuna um stund- arsakir eða fyrir fullt og allt. Drykkjuskapur var algengur. Fjöl- skylduharmleikir voru margir og sumir átakanlegir. Þeir sem sluppu voru reynslunni ríkari. Ofáir höfðu líka auðgast verulega á forsjálni eða hreinu glópaláni. Valdastéttirnar höfðu mun meiri tök á ríkisvaldi og atvinnulífi en þekktist á meginlandi Evrópu. Margir efnamenn eignuðust jarðir eða landareignir og hnýttust þannig sterk bönd milli stórjarðeigenda og auðmanna. Bændastéttin hafði • flosnað upp. Á 18. öld mót- aðist enskt þing- ræði svo að það hefur ótrúlega litið breyst síð- an. í engu öðru landi nutu menn jafnmikilla borgaralegra réttinda á þess- um tíma. Rétt- indi þessi voru að miklu ef ekki að öllu leyti bundin við eignir. Þátttaka í stjórnmálum var langtum meiri í Bretlandi en nokkru öðru landi og frelsi þegn- anna til orðs og æðis hvegi sam- bærilegt annars staðar í álfunni. Auður opnaði mönnum jafnvel fleiri dyr en ættgöfgin ein, þegar hér var komið. Enska þjóðin var eins og tvær þjóðir sem bjuggu við gjörólíkt hlutskipti. Hurðarhúnninn i/arð að list Efri stéttin bar yfirieitt mjög gott skyn á verðmæti hlutanna. Húsa- kynni hennar þóttu glæsileg, enda var það þessi stétt sem gaf tóninn varðandi tískuna, hvort sem var í klæðaburði eða húsbúnaði. Marga fýsti að vita hvernig þessi stétt bjó; sjón, jafnvel á mynd, er sögu ríkari. Gegnfágaður smekkur var þó áber- andi. Hvorki fyrr né síðar hefur hönnun verið jafn falleg í Bretlandi og á átjándu öldinni. Listmunir og húsgögn voru handunnin, það var ekki fyrr en á 19. öld að fjöldafram- leiðslan tók við. Það var jafnvægi milli fegurðar og notagildis, sem kom fram í því að hurðarhúnninn varð að list, sama máli gegndi um súpuskeiðina, vínglasið og kommóð- una. Hlutirnir voru ekki bara til yndisauka heldur höfðu talsvert notagildi. John Gloag sagði: „Það var ekkert sem stakk í augu í hús- búnaði á þessu tímabili.“ Það leikur enginn vafi á því, að bestu húsgögnin sem smíðuð hafa verið í Englandi eru frá 18. öld eða georgíska tímabili í Englandi. Vissulega voru húsgögn hönnuð með tilliti til efna og hvernig fólk lifði. Lögun stóls og útskurður á húsgögnum gefur okkur vísbend- ingu um stöðu og efni fólks í þjóðfé- laginu. Feg- urstu húsgögnin eftir þekkta hönnuði voru dýr og það var einungis á færi forréttindastétt- arinnar að kaupa þau. Engu að síður voru húsgögnin sem voru smíð- uð íyrir millr- stéttina í háum gæðaflokki og þykja enn í dag góð fjárfesting. Borðstofuhús- gögn urðu vinsæl á þessu tímabili. Mikið var lagt upp úr borðstofu. Áhersla var lögð á að hafa kvöld- verðarboð sem glæsilegust, þar sem siðareglur voru í hávegum hafðar. Kvöldverðurinn gat tekið upp undir fimm klukkustundir. Bókaherbergið hafði herralegan blæ, en setustofan var fínlegri. Tedi-ykkja var orðin vinsæl. Smíðuð voru borð sem aðeins þóttu hæfa tedrykkju. Kvöldverður og tedrykkja var meira en afþrey- ing, áhersla var á góða mannasiði og fágun, að taka þátt í samræðum létt og leikandi, allt þetta ræktuðu menn með sér eins og listgrein. Það var þó ekki fyrr en um 1740 að rókókóstíllinn barst til Bretlands og hafði þá rutt sér til rúms á meg- inlandi Evrópu. Veruleg þáttaskil urðu í enskri húsgagnagerð með Chippendale stílnum. Fjallað verður um hann í næstu grein. STÓLL úr mahóní, Georg III, frá 1765. LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 25 í LÆGRI hlíðuni Mont, Blanc. HELGI á tindi Kit'kjunnar í Öræfajökli í roki og brunagaddi. FjaUgöngur í fjarlæg- um heimsharnum Á TINDI Matterhorus. í baksýn sést í hæsta tind Sviss, Monte Rosa. FJALLAMENNSKA er eitt af því sem heillar marga og fer sá hópur ört stækkandi sem leggur stund á fjallgöngur, ekki aðeins hér heima heldur einnig í öðrum heimsálfum. Helgi Benediktsson hefur stundað fjallamennsku frá unga aldri og er án efa einn af reyndustu tjallmönnum landsins. Helgi hefur farið víða um lönd til að stunda þetta áhugamál sitt og meðal annars klifið fyrstur manna margar leiðir hér heima svo sem Kirkjuna í Ör- æfajökli, Fingurbjörgí Mávabyggðum í Breiða- merkurjökli og norðvesturhlið Hvannadalshjúks. Þá hei'ur hann einnig klifið þrisvar Matterhorn í Sviss, Mt. Blancí Frakklandi, Kilimanjaro og Mt. Kenya í Afríku, Mt. McKinley í Alaska, ásamt nokkrum tindum í Indlandi og Nepal. Hæsta tjall sem Helgi hefur klifið erDiran í Pakistan, en það er 7.273 metrar á hæð. Aðspurður um hvað fengi menn til að leggja upp í dýrar og stundum hættulegar ferðir upp um fjöll og íh-nindi sagði Helgi, að það væri líklega þörfin fyrir að reyna sig við náttúruöflin og sjálfan sig í falleg- asta og stórbrotnasta umhvei-fi sem hugsast getur. Fyrir þá sem vilja kynnast nánar áhugamáli Helga og tjallamennsku almennt má benda á að hann, ásamt Ara Trausta Guðmundssyni og Hreini Magn- ússyni, mun halda fyrirlestur og myndasýningu í nýjum sýningarsal Ferðafélags íslands í Mörkinni næstkomandi þriðjudagskvöld. „í&lendingar eiga fjallegasta ficlk í heimi" því kunnum við be&t við að hanna tiallegar og vandaðar vörur íilemk hönnun hefur geticl iérgott 5 "69Ö'58i"1ÍÍÍÖÖí orð. bœði hér heima og erlendii. íilemkir hönnuðir þekkja krötur ÍMemkra neytenda 03 vita vel að aðeim það beita er nógu gott. Berðu alltah iaman verð og gœði. íilemkur iðnaður á he'nmmœlikvarða SAMTÖK IÐNAÐARINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.