Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 47
t
1
I
I
i
I
1
J
I
3
4
4
1
i
í
í
i
i
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
MÓRGUNBLAÐIÐ___________
MINNINGAR
__________LAÚGÁRDAGÚR 16. NÓVEMBER 1996 47
SKÁK
Við fráfall Guðmundar Arnlaugs-
sonar, fyrrverandi rektors Mennta-
skólans við Hamrahlíð, sækja á
minningar um einkar heilladijúgt
samstarf, þegar hinum nýja
menntaskóla var komið á fót fyrir
þremur áratugum. Við vorum 6
kennarar, sem fastráðnir voru þar
á árinu 1966, þegar skólinn tók til
starfa. Auk mín, sem þetta skrifar,
voru það tveir „gamlir" og góðir
kennarar mínir, Ingvar Brynjólfsson
(d. 1979) og Björn Þorsteinsson (d.
1986), ennfremur félagar mínir af
svipaðri kynslóð, Ingvar Ásmunds-
son, Jón Böðvarsson og Jón Hannes-
son. Frá upphafi lyfti þessi fámenni
hópur, undir forystu Guðmundar
Arnlaugssonar, merkinu hátt og var
samstíga í að gera 'hlut hins nýja
skóla sem glæsilegastan og árang-
ursríkastan, enda stóðu flest efni
til þess, m.a. með hinni nýju skóla-
byggingu, sem reist var í áföngum
á næstu árum.
Guðmundur vann framar öðru
farsælt verk við uppbygginguna á
þessum byijunarárum og mikill
metnaður bjó með honum, að úr
yrði nýt menntastofnun. Yfir störf-
um hans hvíldi reisn með víðsýni
og umburðarlyndi, en jafnframt
nauðsynlegri festu, og allir þessir
eiginleikar báru vitni hins fjöl-
menntaða og gáfaða manns, sem
öllum vildi koma til nokkurs þroska.
Hann var einkar vel failinn til leið-
sögu æskulýðs á þessum árum, góð-
viljaður og skilningsríkur, og það
kom sér vei, þegar umrót 68-kyn-
slóðarinnar skall yfir, en í gegnum
þá váboða hygg ég, að Guðmundur
hafi komizt klakklaust. Framganga
hans og málflutningur var einlægt
með þeim menningarblæ, að maður
bar virðingu fyrir honum, og stjórn-
unarstíll hans var slíkur, að betri
húsbónda var vart hægt að hugsa
sér. Um leið var hann sannur og
yfirlætislaus félagi og vinur okkar
kennara, bæði á vinnustað og á
gleðistundum, — kom ávallt fram
eins og fremstur meðal jafningja.
Þess vegna hugsum við hlýtt til
hans með söknuði nú þegar hann
er allur.
Ég hygg, að Guðmundur Arn-
laugsson hafi haft háar hugmyndir
um framgang skólamála á landi hér
og með honum búið sú bjartsýni,
sem þá var uppi í tímanum. Ég
þykist líka vita, að hann hafi talið
sig ná þeim árangri á þessu sviði,
sem lengi eigi eftir að sjá stað. Slíkt
kom fram fyrir hans tilstilli í nýmæl-
um í innra skólahaldi hins nýja
menntaskóla á fyrstu árunum. Og
svo mikið er víst, að Guðmundur
hafði forystu um róttæk umskipti,
þegar hann vann að því að koma á
áfangakerfínu á árunum 1972-74,
— auðvitað í nánu samstarfí við
marga ágæta kennara sína, — sem
síðan hefur orðið fyrirmynd ýmissa
mennta- og fjölbrautaskóla í land-
inu. Einnig var stofnun svonefndrar
öldungadeildar (kvöldskóla fullorð-
inna), sem hann stóð fyrir á þessum
árum, merkilegt spor. Þó að ég
væri ekki að öllu leyti sáttur við
það, hvernig það mál bar að innan
MH, þegar dagskólinn var enn í
mótun og húsbyggingu ekki lokið,
— þá var það vissulega staðreynd,
að rík þörf var á þessum tíma fyrir
hina nýju deild fullorðinna, — það
sá Guðmundur manna bezt og hafði
þá trú, að það leystist farsællega,
og það hefur vonandi gert það með
tímanum.
Það var sannarlega eftirsjá að
Guðmundi Arniaugssyni frá skóla-
starfi í Menntaskólanum við Hamra-
hlið, þegar hann hvarf þaðan að
eigin ósk haustið 1980. Merkilegt
frumheijatímabil var á enda, en
hann hafði sjálfur áfram mörg járn
í eldinum. En þótt leiðir skildu með
þeim hætti sýndi Guðmundur skóla
sínum ræktarsemi og hafði gott
samband við hann löngum, meðan
ég þekkti til. Vináttu hans og góð-
vild í minn garð alla tíð síðan er
gott að minnast og sýndi glöggt
hvern mann hann hafði að geyma.
Á vissum stundum lét hann ætíð frá
sér heyra, þegar honum þótti
ástæða til, kom á heimili mitt,
hringdi til mín eða sendi bréfleiðis
orðsendingar, þar sem hann tjáði
vinarhug, gladdist yfír góðum tíð-
indum og minntist samstarfsins í
Hamrahlíð. Það yljaði um hjartaræt-
ur að vita af svo góðum hug óvanda-
bundins manns í minn garð. Fyrir
það vil ég þakka Guðmundi Arn-
laugssyni, sem og öll samskipti okk-
ar á Iiðnum árum, ekki sízt mikils-
vert traust, sem hann sýndi mér,
allt frá þeim dögum, er hann sigldi
glaðbeittur úr vör með okkur fá-
mennu kennaraliði á skólaskútunni,
sem síðan hefur siglt á fullu skriði.
Lengi mun hún bera þess merki,
að þar hélt um stýrisvöl í upphafí
sá, sem kunni vel til verka.
Ég kveð Guðmund Amlaugsson
með virðingu og þökk, og sendi öll-
um aðstandendum innilega samúð-
arkveðju við fráfall hans.
Einar Laxness.
Kveðja frá Reykja-
víkurlistanum
Falla hinar öldnu eikur, -
ófullt skarð til tveggja handa, -
rótafastar, fagurkrýndar,
friðarmerki skógaríanda.
(Sigurður Nordal.)
Vorið í Reykjavfk 1994 verður
öllum sem stóðu að Reykjavíkurlist-
anum ógleymanlegt. Þetta var vorið
þegar sólin skein því sem næst upp
á hvem dag, vorið þegar það var
svo gaman að vera saman og vinna
saman. í Reykjavík vann samstilltur
og dugmikill hópur fólks að því að
vinna borgina - og það tókst.
í þessum hópi var Guðmundur
Arnlaugsson heiðursgestur. í borg-
arstjómarkosningunum 1994 skip-
aði hann heiðurssætið á Reykjavík-
urlistanum. Það var engin tilviljun.
í þessu sæti vildum við hafa grand-
varan og greindan mann sem nyti
trausts og álits í samfélaginu fyrir
störf sín og andlegt atgervi. Guð-
mundur var slíkur maður. Ekki veit
ég til þess að hann hafi áður haft
afskipti af stjórnmálum. Þegar ég
færði það í tal við hann hvort hann
vildi taka þetta sæti á listanum
varð hann í fyrstu mjög undrandi
en sagði svo, eftir mjög skamma
umhugsun, að það væri orðið tíma-
bært að hann skipti sér af pólitík -
áttræður maðurinn. Hann gæti ekki
hafnað þessu tækifæri til að taka
þátt í merkilegri pólitískri tilraun.
í kosningabaráttunni og eins eft-
ir kosningar mætti Guðmundur á
þá fundi sem listinn var boðaður til
og lagði þar sitt til málanna. Hann
var ekki orðmargur en talaði af
yfírvegun og íhygli, sótti í reynsiu-
sjóð skólamannsins og bjó að víð-
sýni heimspekingsins. Lagði hann
mikla áherslu á að við leiddum æfín-
lega fram málefnaleg rök í glímunni
við andstæðinga okkar og værum
heiðarleg í málflutningi. Taldi hann
að í þessu væri styrkur Reykjavíkur-
listans fólginn. Hafði hann óbilandi
trú á því að höfða til skynsemi kjós-
enda.
Þrátt fyrir að við Guðmundur
værum grannar á Hagamelnum
þekkti ég hann lítið þegar leiðir
okkar lágu fyrst saman í Reykjavík-
urlistanum. Ég var ekki nemandi í
MH og kann lítið fyrir mér í skák
þannig að ég naut því miður aldrei
leiðsagnar hans í námi af neinu tagi.
Ég naut þess engu að síður að hlusta
á skákskýringar hans í sjónvarpinu
sem einkenndust af auðmýkt gagn-
vart skáklistinni, húmor og rósemi
hugans.
Þó að Guðmundur væri orðinn
83 ára gamall þá hvarflaði aldrei
annað að mér en að hann ætti mörg
góð ár eftir ólifuð. Líkamleg snerpa
hans virtist engu minni en hin and-
lega. En öllu er mörkuð stund. Eft-
ir stendur minning um mætan
mann.
Að leiðarlokum þökkum við í
Reykjavíkurlistanum forsjóninni
fyrir að hafa orðið þeirra forréttinda
aðnjótandi að fá að kynnast Guð-
mundi - þó að þau kynni hafi stað-
ið alltof stutt. Öldu Snæhólm og
fjölskyldu Guðmundar sendum við
hugheilar samúðarkveðjur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
• Fleirí minningargreinar um
Guðmund Amlaugsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Loksins mætast
heimsmeistaramir
JÓN Viktor Gunn- INGVAR Ás-
arsson, hraðskák- mundsson teflir á
meistari TR HM öldunga.
SKAK
6 manna stórmót á
Kanarícyjum
LAS PALMAS, 8. - 20.
desember
SEX stigahæstu skákmenn heims
keppa á stórmóti í desember. Ana-
tólí Karpov, heiinsineistari FIDE
og Gary Kasparov, heimsmeistari
atvinnumannasamtakanna PCA,
tefla í fyrsta sinn í tæp þijú ár.
Mótið verður það sterkasta
nokkru sinni, mælt í stigum sem
giltu 1. júlí sl. Meðalstigin eru
hvorki meira né minna en 2.757.
Keppendurnir eru þessir, í röð
eftir stigum. í sviga eru fram-
reiknuð stig þeirra miðað við 1.
nóvember:
1. Kasparov, Rússl.
2.785 (2.794)
2. Karpov, Rússl.
2.775 (2.762)
3. Ivantsjúk, Úkraínu
2.730 (2.741)
4. Topalov, Búlgaríu
2.750 (2.738)
5. Anand, Indlandi
2.735 (2.735)
6. Kramnik, Rússl.
2.765 (2.731)
Eins og sést á stigunum hefur
dregið sundur með Kasparov og
helstu keppinautum hans frá því
í sumar. Karpov og Kramnik
hafa teflt óvenju illa undanfarna
mánuði. Það gæti hver hinna sex
unnið mótið. Sigur hefur gífur-
lega þýðingu vegna þess ruglings
sem klofningur FIDE og tvær
heimsmeistarakeppnir hafa vald-
ið.
Kasparov og Karpov hafa ekki
teflt frá því í febrúar 1994. Þá
mættust þeir á Linares mótinu.
Skákinni lauk með jafntefli, en
Karpov vann frækinn sigur á
mótinu. Síðast háðu þeir heims-
meistaraeinvígi árið 1990 og hafa
frá því teflt átta skákir. Kasparov
hefur unnið þrjár þeirra, en hin-
um fimm lokið með jafntefli.
Hann virðist kominn með tak á
Karpov.
Skákáhugamenn vonast nú
eftir því að þeir heyi sameininga-
reinvígi á næsta ári og vitleys-
unni í kringum FIDE og heims-
meistaratitilinn fari að linna. Það
var eitt af kosningaloforðum
Kirsans Ilumsjínovs, FIDE for-
seta, fyrir aðalfundinn í Jerevan
um daginn.
Ný ávirðing hefur nú verið
borin upp á Kirsan og mátti hann
þó vart við fleirum. Hún er þess
eðlis að hann hafí falsað undir-
skriftir Bobby Fischers og aldna
stórmeistarans Lilienthals á
stuðningsbréf við sig.
Ingvar á HM öldunga
Skákmeistarinn góðkunni,
Ingvar Ásmundsson, skólastjóri
Iðnskólans, situr nú að tafli á
heimsmeistaramóti öldunga í Bad
Liebenzell í Þýskalandi. Ingvar
hlaut tvo vinninga úr þremur
fyrstu skákunum. Efstir með þijá
vinninga eru Vasjukov, Rúss-
landi, núverandi heimsmeistari
öldunga, Krogius, Suetin og Ka-
talymov, allir Rússlandi, Forint-
os, Ungveijalandi, Lein, Banda-
ríkjunum, Niebling og Franck,
Þýskalandi og Neri, Ítalíu.
Á meðal þeirra sem hafa tvo
og hálfan vinning eru stórmeist-
ararnir Taimanov, Rússlandi og
Uhlmann, Þýskalandi.
Haustmót TR
Keppni í A flokki, sem var al-
þjóðlegt mót, lauk talsvert á und-
an öðrum flokkum og úrslit þar
hafa þegar verið tíunduð. Þröstur
Þórhallsson varð skákmeistari
T.R. Niðurstaða í öðrum flokkum
liggur nú fyrir. Röð efstu manna
varð þessi:
B flokkur:
1. Þorvarður F. Ólafsson 6 v. af 8
2. Einar Hjalti Jensson 5‘/2 v.
3. -4. Davíð Kjartansson og Ei-
ríkur Björnsson 5 v.
5. -6. Stefán Kristjánsson og Jó-
hann H. Ragnarsson 4 v. o.s.frv.
C flokkur:
1. Atli Hilmarsson 7‘/2 v. af 11
2. -3. Matthías Kormáksson og
Kristján Halldórsson 7 v.
4. Kjartan Thor Wikfeldt 6 V2 v.
5. Sigurður Páll Steindórsson 6 v.
6. -7. Þorsteinn Davíðsson og
Ingi Þór Einarsson 5 ‘/2 v. o.s.frv.
D flokkur: (opinn)
1. Guðni Stefán Pétursson 8'/2 v.
2. Ólafur Kjartansson 8 v.
3. -5. Jóhannes I. Árnason, Bald-
vin Þ. Jóhannesson og Davíð
Guðnason 7l/2 v.
6. -7. Anna Björg Þorgrímsdóttir
og Helgi Hauksson 7 v.
8. -10. Hallgrímur J. Jensson,
Birgir Örn Hreinsson og Héðinn
Björnsson 6'/2 v.
11.-13. Hlynur Hafliðason,
Grímur Daníelsson og Dagur
Arngrímsson 6 v. o.s.frv.
í unglingaflokki sigraði
Davíð Kjartansson en Stefán
Krisljánsson varð í öðru sæti.
Hraðskákmót TR
Jón Viktor Gunnarsson, einn
allra efnilegasti skákmaður okk-
ar, varð hraðskákmeistari Taflfé-
lags Reykjavíkur. Hann hlaut 16
vinninga af 18 mögulegum. Jafn-
aldri hans, Einar Hjalti Jensson,
veitti honum harðasta keppni og
hlaut 15 v. Röð efstu manna:
1. Jón Viktor Gunnarsson 16 v.
2. Einar Hjalti Jensson 15 v.
3. Arnar E. Gunnarsson 12'/2 v.
4. Atli Hilmarsson 11 v.
5. -6. Bergsteinn Einarsson og
Matthías Kormáksson 10‘/2 v.
7. -8. Eiríkur Björnsson og Stef-
án Kristjánsso 9'/2 v.
9. -10. Guðni Stefán Pétursson
og Þorsteinn Davíðsson 9 v.
Hausthraðskákmót
Skákskólans
Hraðskákmót fyrir nemendur
í almennum flokki í Skákskóla
íslands var haldið sunnudaginn
10. nóvember. Efst urðu:
1. Guðni Stefán Pétursson 13 v.
af 14
2. Emil Petersen 12‘/2 v.
3. Einar Ágúst Árnason 10 ‘/2 v.
4. Ingibjörg Edda Birgisdóttir 10
v.
5. Harpa Ingólfsdóttir 9 */2 v.
6. -8. Hulda Katrín Stefánsdóttir,
Kristján Freyr
Kristjánsson og
Hilmar Þorsteins-
son 9 v. o.s.frv.
Auk verðlauna
fyrir þijú efstu
sætin voru sérstök
verðlaun veitt
þremur efstu stúlk-
unum. Þær Ingi-
björg, Harpa og
Hulda hrepptu þau.
Unglingameista-
ramót Hellis
Mótið fer fram í
Menningarmið-
stöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti
næstu tvo mánudaga. Taflið
hefst kl. 17 mánudaginn 18.
nóvember. Mótið er öllum opið
sem fæddir eru 1981 og síðar.
Tefldar verða sjö umferðir og
umhugsunartíminn er 20 mínút-
ur á skákina.
Auk verðlaunapeninga fyrir
þijú efstu sætin, fá fimm efstu
bókaverðlaun. Sigurvegarinn fær
farandbikar til varðveislu í eitt
ár. Styrktaraðili unglingastarfs
Hellis er íslandsbanki í Breið-
holti. Núverandi unglingameist-
ari Hellis er Egill Guðmundsson.
Þátttökugjald er ekkert fyrir
skuldlausa félagsmenn Hellis en
300 krónur fyrir aðra.
Ein hvöss frá Kára
Skákþættinum var að berast
þessi skrautlega bréfskák frá
Kára Elíssyni, einum allra sókn-
djarfasta skákmanni landsins.
Hún er tefld í Norbalt Cup:
Hvítt: Kári Elísson
Svart: Ivar Bohlin
ítalski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bc4
- Rf6 4. d4 - exd4 5. Rg5 -
Re5 6. Bb3 — h6 7. f4 - hxg5
8. fxe5 - Rxe4 9. Bd5!
Þetta kýs Kári fremur en 9.
0-0 - d5, en þannig tefldist
skák Adolfs Anderssen við de
Riviera í París 1858. Nú ætti
svartur að svara með 9. - f5!
eins og í skák ensku stórmeistar-
anna Willie Watson og Michael
Adams í Englandi 1991. í staðinn
gerist svartur fullgráðugur og
Kári fær stórhættulega sókn:
9. - Bb4+?! 10. c3! - dxc3 11.
bxc3 - Rxc3
12. Bxf7+! - Kxf7 13. 0-0+ -
Ke8 14. Rxc3 - De7
Skákin Zezulkin-Kurbedinov,
Rússlandi 1988 tefldist þannig:'
14. - Bxc3 15. Dd3 - Bd4+ 16.
Khl - Hh6 17. Df3! - De7? 18.
Bxg5! - Hxh2+ 19. Kxh2 -
Dxe5+ 20. Khl og svartur gaf.
15. Dd3 - De6? 16. Rd5 - Dh6
17. Rxc7+ - Kd8
(Eða 17. - Ke7 18. Dg3! -
Db6+ 19. Khl - Dxc7 20.
Dxg5+ og vinnur)
18. Bxg5+! og svartur gafst upp.
Margeir Pétursson