Morgunblaðið - 16.11.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 51
FRÉTTIR
Hafnarfjarðarkirkja
Ungur flautuleikari í
tónlistarguðsþj ónustu
FJÖLDI álfta og sendlinga í fjöru í Sandgerði sl. vetur.
Fuglaskoðun
í Skeijafírði
TÓNLISTARGUÐSÞJ ÓNU STUR
hafa verið haldnar annan hvern
sunnudag um nokkurt skeið við
Hafnarfjarðarkirkju. Þær hefjast
kl. 18. Við tónlistarguðsþjónustu á
sunnudaginn mun Eyjólfur Eyjólfs-
son leika á þverflautu, en hann er
nemandi í Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar og stundar nám á sjötta
stigi. Eyjólfur hefur þrátt fyrir ung-
an aldur, 16 ára, getið sér gott orð
fyrir flautuleik og víða komið fram
öðrum til ánægju, segir í fréttatil-
kynningu.
Það er einkum fjölbreytt tónlist,
sem setur svip sinn á tónlistarguðs-
þjónusturnar, þó vissulega hvíli
Útivist á
slóðum risa-
orma og
risakatta
í FJÓRÐU þjóðsagnarferð Útivist-
ar, sunnudaginn 17. nóvember,
verður gengið með Kleifarvatni og
í nágrenni þess.
Rifjaðar verða upp sagnir og far-
ið á þær slóðir þar sem fólk á 18.
öld taldi sig samkvæmt samtíma-
heimildum hafa séð dýr er líktust
risaormum og risaköttum í Kleifar-
vatni og Grænavatni. Einnig gengu
sögur um skrímsli í Kleifarvatni
sem stíflaði frárennsli þess á nokk-
urra ára fresti en við það hækkaði
mikið í vatninu. Þá hvíldu álög á
vatninu frá landnámstíð.
I ferðinni verður komið við á
stæði gömlu brennisteinsvinnslunn-
ar í Seltúni og gengið að Austur-
Engjahver, stærsta leirhverasvæði
á Suðvesturlandi. Vert er að vera
nokkuð vel skóaður í ferðinni.
Ókeypis er fyrir börn fimmtán ára
og yngri í fylgd með fullorðnum.
Farið verður kl. 10.30 með rútu frá
Umferðarmiðstöðinni. Stansað á
Kópavogshálsi og við Sjóminjasafn
Islands í Hafnarfirði.
Ahættuslys til
umfjöllunar
ÁHÆTTUSLYS eru umfjöllunar-
efni Landsfundar um slysavarnir
sem haldinn verður í Félagsheimil-
inu á Seltjarnarnesi mánudaginn
18. nóvember nk. Fundurinn hefst
kl. 9 og stendur til kl. 16.20. Fjall-
að verður um flugslys, umferðar-
slys, sjóslys og frístundaslys.
Landsfundurinn er ætlaður öllum
sem láta sig varða slys og slysa-
varnir, bæði þeim sem hafa það að
atvinnu og áhugafólki.
Þátttökugjald er kr. 2.000 og er
innifalið í því kaffi, meðlæti og
hádegisverður. Þátttaka tilkynnist
til skrifstofu landlæknir.
Það er Slysavarnafélag íslands
sem skipuleggur landsfundinn.
Fjallað um V-
Islendinga og
byggingarlist
VINÁTTUFÉLAG íslands og
Kanada heldur opinn fund þriðju-
daginn 19. nóvember kl. 20.30 í
Lögbergi, H.Í., stofu 101.
A fundinum mun Ólafur Ólafsspn
landlæknir gera samanburð á ís-
lendingum og Vestur-íslendingum.
Síðan mun Pétur H. Ármannsson
arkitekt fjalla um kanadíska bygg-
ingarlist í máli og myndum.
einnig þung áhersla á guðspjall
dagsins, íhugun þess og bænagjörð.
Auk Eyjólfs verða flytjendur tónlist-
ar félagar úr kór Hafnarfjarðar-
kirkju og Helgi Pétursson, sem verð-
ur við orgelið. Prestur verður séra
Þórhildur Ólafs, safnaðarprestur.
Almenn guðsþjónusta verður jafn-
framt við kirkjuna kl. 14. Þar munu
fermingarbörn úr Setbergsskóla
koma fram, sýna helgileik, sem þau
hefa verið að æfa undanfarið og
lesa ritningartexta og fara með
bænir. Léttir sálmar verða sungnir.
Kór Hafnarfjarðarkirkju syngur,
organisti, verður Nataía Chow og
prestur sr. Gunnþór Ingason.
■ UNGLINGAMÉISTARAMÓT
Taflfélagsins Hellis verður haldið
mánudagana 18. og 25. nóvem-
ber. Þátttökurétt hafa unglingar
fæddir 1981 og síðar. Tefldar verða
sjö umferðir eftir Monrad-kerfi og
umhugusunartími er 20 mínútur á
hvorn keppanda. Verðlaunaafhend-
ing verður strax að lokinni síðustu
umferð.
Haustþing
kennara
SVÆÐAFÉLÖG Kennarasam-
bands íslands í Reykjavík og á
Reykjanesi halda sameiginlegt
haustþing á Hótel Loftleiðum í dag,
laugardaginn 16. nóvember. A
þinginu munu verða fluttir margir
fyrirlestrar um ýmis áhugaverð
efni.
Til dæmis mun Þórkatla Aðal-
steinsdóttir fjalla um aga, Lára
Stefánsdóttir mun §alla um hvernig
læra má með alnetinu, fulltrúar
Rannsóknarstofnunar uppeldis- og
menntamála um samræmd próf o.fl.
Fræðslufundur
um ferðabúnað
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
og Slysavarnafélag íslands stendur
fyrir fræðslufundi fyrir almenning
um ferðabúnað í göngu- og fjalla-
ferðum þriðjudaginn 19. nóvember
kl. 20. FVrirlesari verður Árni Birg-
isson.
Fundurinn verður haldinn í hús-
næði Björgunarskólans, Stangarhyl
1 í Reykjavík, og er öllum opinn.
Þátttökugjald er 1000 kr. og er
fræðslurit um ferðamennsku inni-
falið í þátttökugjaldinu.
VETT V AN GSFRÆÐSLA og
fuglaskoðun verður sunnudaginn
17. nóvember við Skeljungsstöð-
ina í Skerjafirði milli kl. 13.15
og 15.15, þar sem tegundafjöldi
er meiri en annars staðar á Inn-
nesjum.
Samkvæmt upplýsjngum frá
Fuglaverndarfélagi íslands sáust
t.d. 1. nóvember dílaskarfur, grá-
hegri, álftir, stokkendur, urtend-
Námskeið
Lífsskólans
LÍFSSKÓLINN, Vesturbergi 73,
byijar námskeiðin laugadaginn 23.
nóvember nk.
Á dagskrá skólans í vetur verða
meðal annars helgamámskeið í
meðferð ilmolía, sogæðanudd, reiki,
stjörnuspeki fyrir byijendur og
haldinn verða erindi á vegum skól-
ans um leiðir til betra daglegs lífs
og ræddar verða forvarnir gegn
öldrun og veiku ónæmisskerfi, segir
í fréttatilkynningu.
Einnig verða kynntar bækur um
óhefðbundnar leiðir til auðveldara
og betra lífs.
Selma Júlíusdóttir, ilmolíufræð-
ingur, og Óskar Indriðason, véí-
fræðingur, reka Lífsskólann.
Guðsþjónusta í
Nýju postula-
kirkjunni
WILHELM Leber svæðispostuli
heldur guðsþjónustu á morgun
sunnudag kl. 11 í kirkjusal Nýju
postulakirkjunnar á íslandi í Ár-
múla 23.
Sem postuli Jesú Krists ferðast
hann víða og m.a. til íslands og
Grænlands auk þess sem hann þjón-
ar í kirkjunni í norðurhluta Þýska-
lands. Guðsþjónustan verður þýdd
jafnóðum.
ur, gargendur, rauðhöfðaendur,
ljóshöfðasteggur, duggendur,
skúfendur, sjö hvinendur, hávell-
ur, æðar, fálki, heiðlóur, tjaldar,
stelkar, 3 lappjaðrakanar, rauð-
brystingnr, sendlingar, tildrur,
bjartmáfar, hvítmáfar, svartbak-
ar, músarindill, starar og snjótit-
lingar.
Sérfróðir fuglaskoðarar verða
til leiðsagnar.
Nóvember-
messa Kvenna-
kirkjunnar
NÓVEMBERMESSA Kvennakirkj-
unnar verður haldin í Laugames-
kirkju sunnudaginn 17. nóvember
kl. 20.30.
Umfjöllunarefni messunnar verð-
ur: Er kyn Guðs aðalatriði kvenna-
guðfræðinnar? Elín H. Kristjáns-
dóttir, nemi í kvennafræðum í HÍ,
séra Yrsa Þórðardóttir og séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédika.
Þómnn Guðmundsdóttir syngur
einsöng og Júlía Traustadóttir, 11
ára, leikur á fiðlu.
Kór Kvennakirkjunnar leiðir al-
mennan messusöng undir stjórn
Bjarnveigar Ingibjargar Gunn-
laugsdóttur, við undirleik Aðalheið-
ar Þorsteinsdóttur. Kaffi verður á
eftir í safnaðarheimilinu.
Sýning í
Hornstofu
SNJÓLAUG Guðmundsdóttir, Brú-
arlandi, Mýrum, sýnir og selur
muni, unna úr skeljum og flóka,
ásamt vefnaði, í Homstofu Heimil-
isiðnaðarfélagsins, Laufásvegi 2, í
dag, laugardag, og á morgun.
Snjólaug er vefnaðarkennari að
mennt og kenndi m.a. við Hús-
stjórnarskólann að Varmalandi í níu
ár. Hún hefur unnið og selt hand-
verk í um það bil tíu ár. Úr skeljun-
um býr hún til skartgripi, úr flókan-
um orkupoka, bækur og myndir,
vefur svuntur við þjóðbúninga,
púða, refla og mottur.
Snólaug hefur tekið þátt í sýning-
um Handverks - reynsluverkefnis
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni
og Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er
fyrsta einkasýning Snjólaugar.
Sýningin verður opin á laugardag
frá kl. 10-18 og sunnudag frá kl.
13-18. Aðgangur er ókeypis.
Fundur um hús-
s1j órnarskólann
á Hallormsstað
FUNDUR verður haldinn í Hús-
stjórnarskólanum á Hallormsstað,
sunnudaginn 17. nóvember kl. 16,
vegna tillögu í fjárlagafrumvarpi
ríkisstjómarinnar um að leggja
skólann niður í núverandi mynd.
í fréttatilkynningu er skorað á
velunnara skólans að mæta til fund-
ar, og sýna samstöðu gegn þessum
áformum.
Fyrirlestur
um siðfræði
PÁLL Skúlason, prófessor í heim-
speki, flytur opinberan fyrirlestur á
vegum Siðfræðistofnunar háskólans,
mánudagskvöldið 18. nóvember kl.
20.15.
Fyrirlesturinn er sjálfstætt fram-
hald tveggja lestra sem Páll flutti á
síðasta vetri undir fyrirsögninni
Umhverfí I og II. Þar fjallaði hann
meðal annars um greinarmun á um-
hverfisvend og náttúruvemd og leit-
aðist við að skýra þann hugsun-
arhátt og þau öfl sem standa vemd
náttúru og umhverfis fyrir þrifum. í
lestrinum á mánudagskvöldið hyggst
Páll fjalla um þær spurningar sem
hann telur mestu skipta í umhverfis—
siðfræði. Markmið hans er að sýna
hvernig stofna megi til málefnalegr-
ar umræðu um þær spumingar og
hin ólíku og stundum öndverðu svör
sem gefín hafa verið við þeim, segir
í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn er haldinn í Odda
stofu 101. Hann er öllum opinn og
aðgangur er ókeypis.
FÍ-ferð
að Hjöllum
FERÐAFÉLAG íslands stendur
fyrir gönguferð að Vífílsstaðahlíð,
Grunnuvötnum og í Heiðmörk á
sunudaginn. Brottför er klukkan-
13 frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin, og Mörkinni 6. Ekið verð-
ur að Maríuvöllum og gengið þaðan
að Hjöllum. Verð er krónur 800.
Kvenfélag
Kristskirkju
með basar og
kaffisölu
KVENFÉLAG Kristskirkju i Landa-
koti heldur sinn árlega basar, happ-
drætti og kaffisölu í safnaðarheim-
ilinu við Hávallagötu á morgun
sunnudag kl. 15.
Eins og undanfarin ár verða á
boðstólum handunnar vörur sem
kvenfélagskonur hafa unnið sl. ár,
brauð, kökur og engin núll í happ-
drættinu.
Ronja ræningja-
dóttir í
Norræna húsinu
KVIKMYNDIN Ronja ræningja-
dóttir verður sýnd í fundarsal Nor-
ræna hússins sunnudaginn 17. nóv-
ember kl. 14.
Kvikmyndin er gerð eftir sögu
Astrid Lindgren en flest börn og
unglingar kannast við Ronju og
leikfélaga hennar, Birki. Sýningin
tekur um 2 klst. og er aðgangur
ókeypis.
Málþing
presta um
þagnarskyldu
STJÓRN Prestafélags íslands
stendur fyrir málþingi mánudaginn
18. nóvember kl. 17-19 um þagnar-
skylduna.
Frummælendur verða Ástríður
Stefánsdóttir, læknir og MA í heim-
speki, dr. Björn Björnsson og sr.
Úlfar Guðmundsson. Málþingið
verður haldið í Digraneskirkju í
Kópavogi og er öllum opið.
LEIÐRÉTT
Nýtt nafn
í frétt á bls. 2 í gær kom fram
að lýsingu Reykjanesbrautar lyki
við fyrirtækið Ramma. Fyrirtækið
hefur breytt um nafn og heitir nú
Bykó — gluggar og hurðir.
Agricola
Jónas Knútsson BA í latínu frá
Háskóla íslands þýddi verkið Agric-
ola eftir Tacítus en ekki öfugt eins
og stóð á bls B3 í Mbl í gær.
Á MYNDINNI eru f.v. Þórey Una Þorsteinsdóttir, Gísli Davíðsson,
Haukur Þ. Ólafsson og Olga H. Sverrisdóttir.
■ DREGIÐ hefur verið í sumar-
leik Silfurbúðarinnar „heppin
brúðhjón" og hlutu eftirtalin
brúðhjón ferðavinninga til ein-
hvers af áfangastöðum Flugleiða
í Evrópu að eigin vali og gilda
þeir í eitt ár: Edda Svavarsdótt-
ir og Emil B. Hallgrímsson,
Olga H. Sverrisdóttir og Hauk-
ur Þ. Ólafsson og Þórey Una
Þorsteinsdóttir og Gísli Davíðs-
son.
EDDA Svavarsdóttir
og Emil B. Hallgrímsson.
Reykjavík og
Reykjanes