Morgunblaðið - 16.11.1996, Qupperneq 64
Wtadowsi
NT4.0
I
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NKTFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hagnaður Samherja 553 milljónir á síðasta ári
Samherji brátt á
hlutabréfamarkað
Morgunblaðið/Ingvar
*
Ovenjuleg
afferming
FLUTNINGABÍLL frá Kaupfé-
lagi Borgnesinga valt út af vegin-
um í Hvalfirði, við Múlafjall,
skömmu fyrir kl. 15 í gær. Hópur
manna úr björgunarsveitinni
Brák í Borgamesi kom á vettvang
og handlangaði farm bílsins út
úr honum og upp á veg, svo koma
mætti bílnum á réttan kjöl á ný.
Okumaður slapp án meiðsla.
Ógnaði
vagnstjóra
með hnífi
TVEIR unglingspiltar voru
handteknir í Grafarvogi í
gærkvöldi eftir að annar
þeirra ógnaði strætisvagn-
stjóra með hnífi. Báðir pilt-
arnir, sem eru um 16 ára
gamlir, voru ölvaðir.
Piltamir vom í strætisvagni
á Fjallkonuvegi, létu dólgslega
og kröfðu bílstjórann um pen-
ingalán. Þegar hann neitaði
tók annar piltanna í hálsbindi
bílstjórans, dró upp hníf og
ógnaði honum.
Lögregla hafði síðast af-
skipti af piltinum þegar hann
ógnaði fólki með hnífi í Graf-
arvogi fyrir skömmu. Hann
hefur áður orðið uppvís að lík-
amsárásum og hótunum.
FORMAÐUR nefndar, sem vinnur
að tillögum um breytingar á tekju-
skatti einstaklinga til að draga úr
jaðaráhrifum skattsins og ýmissa
bótagreiðslna, lagði á seinasta fundi
fram ákveðnar hugmyndir sem
byggðar eru á störfum nefndarinn-
ar á undanförnum mánuðum og
talið er að megi útfæra sem tillögur
til ráðherra. Nefndin er skipuð full-
trúum stjórnvalda og aðila vinnu-
markaðarins og hefur haldið nokkra
fundi á undanförnum mánuðum.
ASÍ hefur ekki tekið afstöðu til
hugmyndanna en þær voru ræddar
á miðstjómarfundi ASÍ sl. miðviku-
dag.
Námsmenn
mótmæla
NÁMSMENN fjölmenntu á úti-
fundi viða um land á hádegi í
gær til þess að skora á ríkis-
stjórnina að breyta lögum um
Lánasjóð íslenskra námsmanna
og forgangsraða í þágu mennt-
unar við skiptingu ríkisút-
gjalda.
Á Austurvelli í Reykjavík, þar
sem myndin var tekin, voru full-
trúum stjórnarflokkanna af-
hentar áskoranir með undir-
skriftum um 15 þúsund náms-
manna. Mótmælaaðgerðir voru
á sex stöðum á landinu; í Vest-
mannaeyjum, á Selfossi, Egils-
stöðum, Akureyri, ísafirði og í
Reykjavík.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra og Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra ávörpuðu
útifundinn á Austurvelli. Hall-
dór sagði að unnið væri í nefnd
að breytingum á lögum um LÍN
og kvaðst eiga von á að nefndin
lyki störfum innan tíðar.
■ Baráttan/6
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fela hugmyndirnar m.a. í
sér að tekinn verði upp tveggja eða
þriggja þrepa tekjuskattur, gerðar
verði breytingar á bótagreiðslum í
tekjuskattskerfinu til frekari tekju-
jöfnunar og að dregið verði úr
kostnaði ríkisins vegna sjómannaaf-
sláttar með því að þrengja reglur
um skattaafslátt sjómanna, í þeim
tilgangi að skapa svigrúm til lækk-
unar jaðarskatta.
Kostnaður ríkissjóðs vegna sjó-
mannaafsláttarins nemur um einum
og hálfum milljarði kr. á ári. Einn-
ig er gert ráð fyrir að unnt verði
að skapa svigrúm til lækkunar jað-
SAMHERJI og tengd fyrirtæki
verða sameinuð í eitt og er þess
vænst að vinnu við sameininguna
verið lokið á næstu vikum. Félag-
ið verður skráð á almennum
hlutabréfamarkaði, fyrst í stað á
Opna tilboðsmarkaðnum en síðar
á Verðbréfaþingi íslands. Endan-
leg ákvörðun um hvort og hvenær
hlutafjáraukning í Samheija
verður, en hún gæti orðið umtals-
verð jafnvel þegar á fyrsta ári,
jafnvel allt að einum milljarði
króna.
Fyrstu skrefin á verðbréfa-
markaði hafa þegar verið stigin
með 300 milljóna króna skulda-
bréfaútboði sem Landsbréf á Ak-
ureyri og útibú Landsbankans á
Akureyri annast.
arskatta með afnámi sérstaks
skattafrádráttar vegna hlutabréfa-
kaupa en ríkisstjórnin hefur þegar
lagt frumvarp þess efnis fram á
Alþingi. Áætlað er að ríkissjóður
verði. af um 650 millj. kr. á ári
vegna þessa afsláttar.
ASÍ vill breytingar á
þjónustugjöldum
Gert er ráð fyrir að fulltrúar
verkalýðshreyfingarinnar svari því
á næsta fundi nefndarinnar hvort
þeir vilja fara þá leið sem hugmynd-
ir formannsins gera ráð fyrir og
útfæra tillögur til ráðherra á grund-
velli þeirra. ASÍ hefur á stefnuskrá
Nýtt hlutafé gæti
numið milljarði
Hagnaður af rekstri Samheija
og dótturfyrirtækja nam 553
milljónum króna á síðasta ári og
veltufé frá reksti var 815 milljónir
króna. Áætluð velta Samheija og
dótturfélaga er um 7,8 milljarðar
króna á þessu ári. Félagið skuldar
um 3,4 milljarða króna, mest
vegna fyrirtækja innanlands eða
um 3 milljarða.
Umfangsmikil starfsemi
Þorsteinn Már Baldvinsson
framkvæmdastjóri segir að síðasta
ár hafi verið hið besta í sögu fé-
lagsins, en 13 ár eru frá því það
sinni að tekinn verði upp fjölþrepa
tekjuskattur með hóflegum per-
sónuafslætti en forystumenn ASÍ
hafa einnig lýst miklum áhyggjum
vegna aukinna þjónustugjalda og
talið koma til álita að fella hluta
þeirra inn í tekjuskattskerfið, með
það að markmiði að ná fram jöfnun
innan skattkerfisins, þótt það gæti
þýtt lækkun persónuafsláttar eða
skattleysismarka. Þær hugmyndir
hafa ekki fengið hljómgrunn innan
nefndarinnar, skv. upplýsingum
Morgunblaðsins.
Nefndinni ber að skila niðurstöð-
um sínum fyrir áramót.
hóf starfsemi. Hagnaður hefur
verið af rekstrinum öll árin.
Starfsemi Samheija er umfangs-
mikil, en félagið á og rekur nokkur
önnur sjávarútvegsfyrirtæki bæði
innanlands og utan, en í útlöndum
er fyrirtækið í rekstri í Þýska-
landi, Bretlandi og Færeyjum. Á
komandi árum verða kraftar starf-
seminnar einkum nýttir erlendis.
Samheiji hefur ríflega 21 þús-
und tonna þorskígildiskvóta hér
við land og aflaheimildimar eru
ekki minni erlendis, en veiðisvæði
skipa fyrirtækisins eru víða, auk
íslenskrar lögsögu, m.a. á Reykja-
neshrygg, í grænlenskri, norskri,
rússneskri og kanadískri lögsögu.
■ Hagnaður/14
Flugleið-
sögubún-
aður fyrir
100 millj.
ÍSLENSK flugmálayfirvöld eru í
þann mund að ganga frá samstarfs-
samningi við bandarísku flugmála-
stjórnina um að reka GPS-jarðstöð
með leiðréttinga- og viðvörunarbún-
aði fyrir flugleiðsögukerfi. Haukur
Hauksson varafiugmálastjóri segir
að jarðstöðin verði sett upp á næsta
ári og mun uppsetning hennar og
þriggja ára prófun kosta rúmar 100
milljónir að hans sögn.
Búnaðurinn verður síðar hluti af
alþjóðlegu neti GPS-leiðréttinga-
stöðva og er búist við að bandaríska
netið verði komið í notkun árið 1998.
Per Enge, prófessor við Stanford-
háskóla, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að uppsetning banda-
ríska netsins myndi kosta rúma 33
milljarða króna og er um að ræða
18 stöðvar. Tæknin er meðai annars
hugsuð til að nýta loftrými betur en
umferðarspá í lofti til ársins 2015
gerir ráð fyrir 4% aukningu flugum-
ferðar á ári.
Lægri skekkjumörk
í alþjóðlega kerfínu eru leiðrétt-
ingar á staðsetningum með GPS,
eða „Global Positioning System“,
sendar gegnum gervihnött sem
staðsettur er yfir miðbaug. Mun það
nýtast Islendingum á Norður-Atl-
antshafssvæðinu, nærri norðurpól,
niður undir Afríkustrendur og í
innanlandsflugi, segir Haukur.
Skekkjumörk GPS-staðsetningar
hafa hingað til verið um 100 metrar
og minnkar leiðréttinga- og eftir-
litsbúnaður jarðstöðvar þau niður í
1 metra sem er nógu nákvæmt fyr-
ir flugumferð.
Kostnaðurinn verður væntanlega
greiddur að hálfu leyti af Banda-
ríkjamönnum og að hálfu leyti með
notendagjöldum vegna alþjóðlegrar
flugumferðar, segir Haukur. Einnig
segir hann að bandarísk flugmálayf-
irvöld fyrirhugi samstarf við aðrar
Evrópuþjóðir, til dæmis Ira.
Morgunblaðið/KriBtinn
Hugmyndir í nefnd aðila vinnumarkaðar og ríkis um jaðarskatta
Fjölþrepa tekjuskattur og
þrengri sjómannaafsláttur
■ Gervihnattaleiðsögn/33