Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 1
96 SÍÐUR B/C
274. TBL. 84.ÁRG.
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jesúmynd
grætur í
Betlehem
Jerúsalem. The Daily Teleg^raph.
JESÚMYND í Fæðingarkirkj-
unni í Betlehem hefur að sögn
tekið upp á því að depla auga
og gráta rauðum tárum. Hófust
þessi undur fyrir um sex vikum
og hefur gríska rétttrúnaðar-
kirkjan lýst yfir, að um krafta-
verk sé að ræða.
„Þetta eru boð um að fólk snúi
aftur til trúarinnar," sagði An-
astasios, háttsettur klerkur
grísku rétttrúnaðarkirkjunnar í
Betlehem, en kaþólska kirkjan,
sem deilir Fæðingarkirkjunni
með grísku kirkjudeildinni, er
öllu vantrúaðri. Segir talsmaður
hennar, að verið sé að „rann-
saka“ kraftaverkið.
Margir vona, að kraftaverkið,
hvernig sem því er annars farið,
geti að minnsta kosti orðið
kraftaverk fyrir ferðamannaiðn-
aðinn í Betlehem en hann er í
rústum vegna sprengjutilræða,
átaka í Líbanon og væringanna,
sem eru með Israelum og Palest-
ínumönnum.
Kristnir pílagrímar hafa af-
pantað ferð til Landsins helga í
stórum stíl en þessar fréttir af
Jesúmyndinni virðast þó vera
farnar að hafa nokkur áhrif.
Á stærri myndinni má sjá trú-
að fólk knékrjúpa fyrir framan
Jesúmyndina, sem hér er inn-
felld.
Vörubílstjórar í Frakklandi halda áfram verkfallsaðgerðum
Reuter
TUGÞÚSUNDIR Belgradbúa fylltu aðaltorgið í borginni og nálægar götur í gær á tíunda degi
mótmælanna gegn Milosevic forseta og leiðtoga sósíalistastjórnarinnar. Var þess krafist, að hann
færi frá en stjómin reyndi á sama tíma að koma í veg fyrir óháðan fréttaflutning af ástandinu í landinu.
Samið í
Danmörk
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
DANSKIR flutningabílstjórar sam-
þykktu í gærkvöld málamiðlunartil-
lögu Carsten Kochs skattaráðherra.
{ henni felst að skattafrádráttur
bílstjóranna hækkar úr 1.710 ísl.
kr. í 2.710 kr. á dag þegar þeir
keyra erlendis.
Dönsku bílstjórarnir samþykktu
tillöguna með semingi, enda var
krafa þeirra 5.700 kr. frádráttur,
en þeir töldu að frekari aðgerðir
bökuðu þeim óvild almennings og
stjórnmálamanna. Óstaðfestar
fréttir eru um að einstakir útflytj-
endur hyggist kreíja bílstjóra um
allt að tíu millj. ísl. króna í bætur
fyrir skaðann, sem ólöglegar að-
gerðir þeirra hafa valdið.
í gær var farið að bera á vöru-
skorti í dönskum búðum, einkum á
mjólk og mjólkurvörum, og fyrir-
tæki vantaði hráefni.
-----* * *----
Famar að lama at-
vinnulífið í landinu
París. Reuter.
FRANSKIR vörubílstjórar sam-
þykktu í gær að halda verkfallsað-
gerðum áfram en þær höfðu þá stað-
ið í 11 daga. Eru þær famar að lama
atvinnulífið í Frakklandi og áhrif
þeirra á efnahagslífið í nágranna-
löndunum aukast með hveijum degi.
Vörubílstjórarnir hafa lokað
helstu þjóðbrautum og höfnum í
Frakklandi á 250 stöðum og komið
í veg fyrir olíu- og bensíndreifingu
á stórum svæðum. Er bensín-
skömmtun hafin sums staðar og
mörgum verksmiðjum hefur verið
lokað. Þúsundir erlendra vömflutn-
ingabifreiða komast hvorki aftur á
bak né áfram og er varningurinn í
sumum þeirra, viðkvæm matvara,
farinn að skemmast.
Vömbílstjórarnir samþykktu að
hafa að engu áskoranir Bemards
Pons, samgönguráðherra Frakk-
lands, um að hverfa aftur til vinnu
en hann sagði, að búið væri að verða
við flestum kröfum. Samþykkt hefur
verið að færa eftirlaunaaldur þeirra
í 55 ár í stað 60 og samkomulag er
um styttingu vinnutímans og sjúkra-
dagpeninga. Litlar undirtektir hafa
hins vegar verið við miklum kaup-
kröfum vörabílstjóra.
Hótar lagasetningu
Pons sagði í gær, að leystist deil-
an ekki fljótlega, myndi hann leggja
til við ríkisstjórnina, að hún yrði
leyst með lagasetningu en leiðtogar
ýmissa annarra verkalýðsfélaga
gefa í skyn, að þau muni grípa til
sömu aðgerða og vörubílstjórar.
Verkfallsaðgerðimar eru farnar
að hafa alvarleg áhrif á franskt
efnahagslíf og þúsundir flutninga-
bíia frá mörgum löndum eru inn-
lyksa í Frakklandi. Hafa Bretar og
Þjóðveijar lýst yfir, að þeir muni
krefjast skaðabóta. Eru bresku bíl-
stjórarnir ævareiðir og segja, að í
raun séu þeir í gíslingu í Frakk-
landi. Franskir starfsbræður þeirra
leyfðu þó 200 breskum bílum að
halda áfram til Bretlands í gær.
Dregið úr framleiðslu
Ýmis stærstu iðnfyrirtækin í Evr-
ópu, til dæmis bílaverskmiðjur,
verða líklega að draga úr fram-
leiðslu vegna þess, að þeim berast
ekki lengur vörar frá birgjum, og
tjón flutningafyrirtækjanna er gíf-
urlegt. Nóvember og desember eru
mesti annatíminn hjá þeim vegna
jólahátíðarinnar.
Mótmæli stj órnarandstöðunnar í Serbíu halda áfram
Afsagnar Milosevic krafist
Belgrad. Reuter.
TUGÞÚSUNDIR manna komu saman á aðaltorg-
inu í Belgrad í Serbíu í gær til að mótmæla ein-
ræði sósíalista og Slobodan Milosevic, forseta
landsins, og er þess ekki lengur krafist að úrslit
sveitarstjórnarkosninganna verði viðurkennd,
heldur að hann segi af sér. Grýttu mótmælendur
byggingar og aðsetur helstu ríkisíjölmiðlanna
þótt leiðtogar þeirra hefðu hvatt til stillingar.
Vuk Draskovic, einn leiðtoga Zajedno, kosn-
ingabandalags stjórnarandstöðuflokkanna, skor-
aði í gær á fólk að forðast ofbeldi og sagði að
þar til í fyrradag hefði baráttan snúist um að
fá úrslit sveitarstjórnarkosninganna virt en nú
væri krafan sú að Milosevic færi frá. Samt sem
áður grýttu margir sjónvarpshúsið í Belgrad eða
Verkalýðsfélögin sögð vera
að undirbúa aðgerðir
„Bastilluna" eins og stjórnarandstæðingar kalla
það.
Útsendingar einu óháðu útvarpsstöðvarinnar
í Belgrad, B-92, hafa verið truflaðar í tvo daga
og efast enginn um að stjórnvöld standi á bak
við það. Hefur útvarpsstöðin flutt fréttir af mót-
mælunum og sagt frá ýmsu sem sósíalistastjórn-
in vill ekki að komist í hámæli. Getur stöðin flutt
tónlist óáreitt en þegar kemur að fréttum og
töluðu máli byija traflanirnar.
Zoran Djindjic, annar leiðtogi Zajedno, sagði
í gær að stjórnarandstaðan og verkalýðsfélög í
landinu væru að undirbúa verkföll og aðrar að-
gerðir en síðustu daga hefur þátttaka verka-
manna í mótmælunum aukist mikið.
Milosevic varaður við
Bandaríkjastjórn hefur varað Milosevic við að
beita valdi gegn mótmælendum eins og hann
gerði 1991 og samtökin „Fréttamenn án landa-
mæra“ hafa krafist þess, að aðgerðum gegn
B-92 verði hætt. Ritstjórar nýs, óháðs dagblaðs,
Blic, segja að þeir hafi einnig orðið fyrir barðinu
á sósíalistastjórninni sem hefur skipað þeim að
minnka upplagið úr 200.000 eintökum í 80.000
vegna „tæknilegra erfiðleika".
Plötufyrirtæki
óttast alnetið
Genf. Reuter.
STÓRU plötufyrirtækin hvöttu til
þess í gær, að gerður yrði nýr, al-
þjóðlegur samningur um verndun
höfundarréttar til að sporna við sí-
vaxandi þjófnaði á hugverkum í
gegnum alnetið.
Fulltrúar þessa útgáfuiðnaðar,
sem sitja nú á ráðstefnu í Genf,
viðurkenna, að þeir séu allt að því
varnarlausir gagnvart hinni nýju,
stafrænu tækni en Philippe Kern
hjá PolyGram í Hollandi sagði óhjá-
kvæmilegt að breyta núgildandi
lögum um höfundarrétt.
Sérfræðingar segjast raunar ekki
sjá hvernig unnt verði að hafa hem-
il á alnetinu og koma í veg fyrir,
að það verði notað eða misnotað í
þessum tilgangi.