Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 2

Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn ÞAKKARGJÖRÐARKALKÚNNINN skorinn og diskarnir hlaðnir á jólahlaðborðinu. Bandaríkjamenn á þakkar- gjörðarhátíð í Reykjavík HÉR á landi eru nú staddir 200 Bandaríkjamenn í svokallaðri þakkargjörðarferð á vegum Flugleiða og snæddu þeir meðal annars íslenskan kalkún á jóla- hlaðborði Hótel Loftleiða í gær- kvöldi. í Boston í Bandaríkjun- um sátu aftur á móti á þriðja hundrað Islendingar að kalk- únasnæðingi á þakkargjörðar- hátið í gær. Flugleiðir hafa að undanförnu unnið að kynningu og markaðssetningu á vetrar- ferðum til íslands, á tíma þegar annars eru lítil viðskipti á hót- elum, veitingahúsum og í ann- arri ferðaþjónustu. Fyrir nokkrum árum hófu Flugleiðir kynningu á áramóta- ferðum hingað til lands og hef- ur sú kynning þegar skilað sér í miklum viðskiptum á annars dauðum tíma, að sögn Einars Sigurðssonar, aðstoðarmanns forstjóra Flugleiða. Bandarísku ferðamennirnir gista hér í þijár nætur og greið- ir hver um 32 þúsund krónur fyrir flug, hótel og kalkúna- veislu. RAE og Robert Cavoto Gott að komast í frí frá krökk- unum MEÐAL þeirra sem brugðu sér í þakkargjörðarferð til Islands voru hjónin Rae og Robert Cavoto frá Denver. Aðspurð hvað hefði dregið þau alla leið til íslands á þakk- argjörðarhátíð sagði Rae að eiginmaður hennar hefði kom- ið hingað til lands ásamt frænda sínum fyrir 7 árum en aðeins dvalið hér dagstund. Honum hafi þótt landið fallegt og síðan hafi hann alltaf lang- að til að koma hingað aftur. Því hafi þau gripið tækifærið nú. „Og svo er líka gott að komast aðeins í frí frá krökk- unum,“ sagði Robert. Þau kváðust enn ekki hafa séð mikið enda rétt nýkomin til Reykjavíkur, en voru þó sammála um að fólkið væri afar viðkunnanlegt. Þau voru heldur ekki farin að skipu- leggja dvölina út í æsar. „En eitt er víst, við erum ákveðin i að fara í Bláa lónið. Við höf- um heyrt mikið um það og það hljómar mjög spennandi," sagði Rae. Sala á svínakjöti hefur aukist um 5001 Slátra yngri grísum til að anna jólasölunni þessu ári. „Það rétt sleppur að við eigum nægjanlegt kjöt fyrir jóla- j söluna. Jólahlaðborðin eru orðin vinsæl og margir kjötdagar um jólin og svo getur farið að bændur verði að slátra fyrir jólin yngri grísum en þeir höfðu ætlað sér til ; þess að anna eftirspurninni," segir Kristinn Gylfi. Veltir nautakjötinu úr sessi Kindakjöt er enn sem fyrr lang- vinsælasta kjötið hjá íslendingum > en nú er svínakjötið búið að tryggja sér annað sætið í fyrsta skipti og veltir þar nautakjötinu úr sessi. A síðustu tólf mánuðum hafði kinda- kjötið 42,6% af kjötmarkaðnum, svínakjötið 22,7% og nautgripa- kjötið 20%. Alifugla- og hrossakjöt j kemur þar nokkuð langt á eftir. „Ótrúlega hvasst“ á Suðurlandi Bíll fauk og rúður brotnuðu í fárviðrii SALA á svínakjöti var liðlega 500 tonnum meiri síðustu tólf mánuði en á sama tímabili í fyrra. Svína- kjöt er nú orðið annað söluhæsta kjötið á eftir kindakjöti og hefur slegið nautakjötinu við í því efni. Frá byijun nóvember 1995 og til loka október á þessu ári seldust 3.736 tonn af svínakjöti, 519 tonn- um meira en á sama tímabili fyrir ári. Nemur aukningin 16,1%. Kristinn Gylfí Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, segir að verðlækkun á tímabilinu eigi sinn þátt í söluaukningunni og bendir á að nú fái framleiðendur 13-14% lægra verð fyrir hvert kíló af fyrsta flokks kjöti en fyrir ári. Með aukinni sölu hefur tekist að eyða svínakjötsfjallinu sem var að myndast fyrir ári þrátt fyrir töluverða framleiðsluaukningu á TÓMUR tengivagn fauk á hliðina á veginum skammt frá Skógum undir Eyjafjöllum í gærdag vegna fárviðr- is. Einnig brotnuðu rúður í tveimur bifreiðum í Freysnesi af sömu sökum og skemmdir urðu á lakki. Þá voru hátt í tíu böm veðurteppt í leikskó- lanum á Hofí í gærkvöldi. Vagninn var á flutningabíl frá HP og sonum sem var að koma að austan og náði bílstjórinn að af- tengja hann svo bíllinn fyki ekki allur á hliðina. Lögreglan á Hvolsvelli fór á stað- inn þar sem tengivagninn lokaði annarri akreininni en hann var fok- inn út af þegar að var komið. Unn- ið var við að ná honum upp í gær- kvöldi. Segir lögreglan að „ótrúlega hvasst" hafí verið á þessum slóðum og allt að tólf vindstigum á Skeiðar- ársandi. Til dæmis hafí nokkrir ferðalangar að austan beðið af sér hvassviðrið í Vík í gærdag. Tíndi möl og gler úr hárinu Jón Benediktsson, sem rekur Hótel Skaftafell ásamt konu sinni, Önnu Maríu, skaust inn í sjoppu með pakka að eigin sögn og skildi fjölskylduna eftir í bíl fyrir utan. „Eg tafðist þar inni í hálfa mínútu og allt í einu kom svakaleg hviða, bara eins og sprenging. Konan mín og dóttir voru í bílnum og ég hugs- j aði bara um það hvort hann færi. j Ég komst ekki út, það var svo mik- j ið sog,“ segir hann. Jón segir að möl ofan á slitlagi I á plani fyrir framan sjoppuna hafi) þyrlast upp í fárviðrinu og braut hún hliðarrúðu á öðrum bíl sem þarna stóð. Rúða brotnaði farþega- megin í bíl Jóns, við sæti Önnu Maríu, og hliðarrúða að aftanverðu sömu megin, þar sem sjö ára dótt- ir hans, Eyrún Halla, sat. Einnig kvarnaðist úr lakki bílsins. „Konan mín þurfti að tína bæði möl og glerbrot úr hárinu þegar hún kom heim en dóttir okkar beygði sig niður. Hún fékk algert sjokk.“ Sluppu þær ómeiddar. Énn var mikið hvassviðri með rigningu í Freysnesi í gærkvöldi og lak vatn inn á hótel þar sem vindurinn stóð upp á húsið, að Jóns sögn. Samningaviðræður um vinnutímatilskipun ESB Vonast eftir niðurstöðu innan fárra vikna Skólum lokað vegna lúsa- faraldurs VARMÁRSKÓLI og Gagnfræða- skóli Mosfellsbæjar eru lokaðir í dag vegna lúsafaraldurs sem borið hefur á í skólunum undanfarna daga. Jónas Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar og formaður skóla- nefndar, segir að tilgangurinn sé að losna við lús úr skólahúsnæðinu. Jónas segir að skólastjórar skól- anna beggja og fleiri embættis- menn hafi komið saman í fyrradag til þess að fjalla um hvað til ráða væri og að skólanefnd hafí sam- þykkt lokun í kjölfarið. „Niðurstaðan varð sú að loka báðum skólunum [í dag]. Með þessu fá foreldrar tækifæri til þess að hreinsa börn sín og ef lúsin er í skólahúsnæðinu, sem hún vænt- anlega er, ætti hún að vera dauð eftir helgina. Mér skilst að hún drepist á 60 klukkustundum," seg- ir Jónas jafnframt. FORSVARSMENN ASÍ og VSÍ eru þeirrar skoðunar að í ljós komi á næstu vikum hvort aðilar vinnu- markaðarins ná samkomulagi um breytingar á kjarasamningum, sem miða að því að hrinda í framkvæmd ákvæðum vinnutímatilskipunar Evr- ópusambandsins en hún átti að taka gildi hér á landi 1. desember. ASI og samtök opinberra starfs- manna áttu í gær fund með fulltrú- um ríkisins, Reykjavíkurborgar og Sambands sveitarfélaga og síðdegis var haldinn fundur milli ASI og VSI vegna sama máls. Skv. tilskipun ESB bar aðildar- ríkjum EES-samningsins að hafa lögfest eða samið um tilskipunina 23. nóvember. Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB, segir að ef við- ræðurnar dragist von úr viti megi eiga von á að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi íslenskum stjómvöldum formlegar athugasemdir vegna þess að ákvæðum tilskipunarinnar hefur ekki verið komið í framkvæmd. Ólíkar útfærslur deiluaðila á fjölmörgum atriðum Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASI, sagði eftir fundinn í gær að aðilar væru búnir að fara yfír efni tilskipunarinnar en eftir væn að skil- greina ágreiningsefnin. „Á næsta fundi á að taka á álitaefnum. Við emm nokkuð sammála um að við gefum þessu ekki mjög langan tíma í viðbót og teljum okkur vera komna það langt að á næstu tveim til þrem- ur vikum komi í ljós hvort við náum sameingilega landi eða ekki,“ sagði hann. Hannes G. Sigurðsson.aðstoðar- framkvæmdarstjóri VSÍ, segir að útfærsla aðila sé ólík á fjölmörgum atriðum. „Við erum staðráðin í því að halda áfram að reyna að slípa þetta saman á næstu vikum,“ segir hann. „Við höfum sett okkur það mark- mið að reyna að Ijúka þessu fyrir áramótin," segir Björn Arnórsson. „Við ætlum að byija á því að reynal að ganga frá gildissviði, skilgrein- ingum og öðru þess háttar en geyma okkur umræðu um frávik, sem upp kynnu að koma, þangað til á síðari stigum málsins," segir hann. Skv. upplýsingum blaðsins stendur aðalágreiningurinn um gildissvið reglnanna, skilgreiningu á nætur- vinnustarfsmönnum, viðmiðunar- tímabilum sem útreikningar á há- marksvinnutíma eru miðaðir við og um frávik frá meginreglum tilskip- unarinnar. Ákveðið hefur verið að halda næstu samningafundi um mál- ið 5. desember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.