Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
-
Frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar
Skatttekjur um 1.975 millj.
en gjöldin um 1.547 milljónir
SKATTTEKJUR Akureyrarbæjar
eru áætlaðar um 1.975 milljónir
króna á næsta ári, en rekstrargjöld
um 1.547 milljónir króna. Til fram-
kvæmda, gjaldfærðs stofnkostnaðar
og eignabreytinga verður varið 417
milljónum króna á næsta ári. Frum-
varp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Akureyrar var til umræðu á fundi
bæjarráðs í gær og verður lagt fram
til fyrri umræðu á bæjarstjórnar-
fundi á þriðjudag í næstu viku.
Meirihluti bæjarráðs leggur til að
útsvarsprósenta í staðgreiðslu opin-
berra gjalda verði 11,7% af útsvars-
stofni á næsta ári. Útsvarið lækkar
um 0,2% milli ára. Álögð gjöld á
fasteignir eru með svipuðum hætti
og á þessu ári, en sérstakur skattur
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
sem var fullnýttur lækkar í 0,625
af álagningarstofni. Sorphreinsigjald
á íbúðarhúsnæði verður áfram 2.000
krónur á hveija íbúð. Lagt .er til að
gjalddagar fasteignagjalda á næsta
ári verði 8, 1. dagur hvers mánaðar
frá febrúar til september. Fasteigna-
skattur af eigin íbúð elliiifeyrisþega
sem verða 70 ára og eldri á næsta
ári verða samkvæmt tillögu bæjar-
ráðs lækkaðir um allt að 15 þúsund
krónur og um sömu upphæð hjá ör-
orkulífeyrisþegum.
Framlög til fræðslumála hækka
um 53% milli ára sem kemur einkum
til af því að rekstur grunnskóla er
nú á vegum sveitarfélaga. Framlög
til félagsmála hækka um 9%, til
menningarmála um 7,4% og hrein-
lætismála um 7,3%.
Óskalistarnir skoðaðir
milli umræðna
Gísli Bragi Hjartarson bæjarfull-
trúi Alþýðuflokks segir að gengið
verði frá skiptingu framkvæmdaíjár
milli umræðna í bæjarstjórn. „Við
munum þá skoða óskalistana og sjá
hvað við höfum mikið svigrúm." Sem
kunnugt er hefur Akureyrarbær ver-
ið að selja hlutabréf sín í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa og er gert ráð fyr-
ir að um áramót verði búið að greiða
niður um 600 milljóna króna skuld
Framkvæmdasjóðs sem á hlutbréf
bæjarins í atvinnufyrirtækjum.
Stefnt er að því, að sögn Gísla Braga,
að sjóðurinn eigi um 100 milljónir
króna um áramót og verða vextirnir
notaðir til atvinnuskapandi verkefna
á næsta ári. Það svigrúm til aukinna
framkvæmda sem skapast við hluta-
bréfasöluna verður nýtt til að gera
sérstakt átak í umhverfismálum.
I bókunum bæjarfulltrúa minni-
hlutans, Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks kemur fram að þeir legg-
ist ekki gegn því að frumvarpið verði
lagt fram í bæjarstjórn, en taka fram
að margt hefði mátt vinna betur og
enn sé töluverð vinna eftir. Fulltrúi
Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn fagn-
aði þeirri ákvörðun meirihlutans að
draga tii baka útsvarshækkun, sem
lögð hafi verið á bæjarbúa í upphafi
kjörtímabilsins.
Aðventudag-
skrá á Öng-
ulsstöðum
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir frá
Grenjaðarstað opnar myndlistarsýn-
ingu í Hlöðunni á Öngulsstöðum á
morgun, laugardag, kl. 14. Sýning-
una nefnir Þorgerður Bænir og
brauð, en hún sýnir tréristur. Efni
myndanna er sótt í gömul útskorin
brauðmót sem voru oft með tilvitnun-
um í bænir. Þorgerður tileinkar sýn-
inguna ömmu sinni og afa, Þorgerði
Siggeirsdóttur og Halldóri Sigur-
geirssyni sem bjuggu allan sinn bú-
skap á Öngulsstöðum. Sýningin er
opin til 20. desember.
Ferðaþjónustan á Öngulsstöðum
mun standa fyrir aðventudagskrá í
Hlöðunni. Næstkomandi föstudag,
6. desember, verður jólaglögg með
piparkökum og tónlist í umsjá Ing-
ólfs Jóhannssonar. „Jólaborðið henn-
ar ömmu í sveitinni," er yfirskrift
laugardagsins 7. desember. Séra
Pétur og Inga í Laufási flytja hug-
vekju og lesa upp úr nýútkominni
bók sinni. Húsið verður opnað kl. 19.
Aðventukvöld með Tjarnarkvart-
ettinum verður 14. desember. Að-
ventudagskránni lýkur 20. desember
með hátíðarkvöldi þar sem Björg
Þórhallsdóttir flytur nokkur lög. Sér-
stakur gestur hennar verður Óskar
Pétursson. Séra Hannes Örn Blandon
flytur hugvekju. Báðir þessir við-
burðir hefjast kl. 21.
Morgunblaðið/Kristján
Bærínn í jólabúning
Starfsmenn Akureyrarbæjar
eru byrjaðir á að færa bæinn
í búning jólanna. Kristinn As-
geirsson, sem vinnur hjá Raf-
veitu Akureyrar, var með fé-
lögum sinum að festa jóla-
stjörnur á Ijósastaura í Glerár-
götu í gær.
Bókin Þeir vörðuðu veginn komin út
Sögur þriggja
Akureyringa
ÚT er komin bókin Þeir vörðuðu
veginn, en þar segir frá þremur
Akureyringum sem aliir settu mark
sitt á þjóðarsöguna.
Fjallað er um hinn nafntogaða
skipstjóra og útgerðarmann, Vilhelm
Þorsteinsson, lýst græskulausu
gamni um borð í síðutogurunum,
frækilegu björgunarafreki og barátt-
unni fyrir framtíð ÚA.
I öðrum þætti er ævi Ingimars
Eydal í brennipunkti. Hann varð
þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og er
hér skyggnst á bak við tjöldin, Sjalla-
árin lifna við, kennarinn stígur fram
og stjórnmálamaðurinn lýsir von-
brigðum sínum.
Gunnar Ragnars er þriðji maður-
inn sem greint er frá í bókinni. Hér
segir hann nreinskilnislega frá lífs-
baráttu sir.ni, sigrum og ósigrum,
vinnuþrældómi og veikindum. „Ég
fann það síðustu þijú árin að ég
héldi ekki út öllu lengur. Ég segi
þessa sögu mína öðrum til viðvörun-
ar,“ eru orð Gunnars Ragnars og
hann dregur ekkert undan.
Morgunblaðið/Kristján
UNNUR Karlsdóttir og Stef-
án Sæmundsson sem skráðu
sögur þriggja Akureyringa í
bókina Þeir vörðuðu veginn.
Unnur Karlsdóttir sagnfræðingur
og Stefán Sæmundsson skráðu. Bók-
in er 300 síður að lengd, ríkulega
myndskreytt og kostar 3.440 krónur.
Framleiðsla komin í fullan gang hjá Kexsmiðjunni
Viðtökur
verið mjög
góðar
FRAMLEIÐSLA er komin í
fullan gang hjá Kexsmiðjunni,
nýrri kexverksmiðju á Akur-
eyri. „ Við erum að baka 6 teg-
undir af smákökum þessa dag-
ana og þar af tvær tegundir
af piparkökum. Viðtökur hafa
verið mjög góðar og í raun
mun betri en við þorðum að
vona í upphafi og fórum við
þó fullir bjartsýni af stað,“
sagði Eyþór Jósepsson, fram-
kvæmdasljóri Kexsmiðjunnar.
Morgunblaðið/Kristján
STARFSFOLK Kexsmiðjunnar í óða önn að pakka dropakökum.
Hann segir að framleiðsla
fyrirtækisins sé komin inn í
allar helstu matvöruverslanir
landsins. Verksmiðjan anni
vart eftirspurn eftir smákök-
um, sem nánast renni út úr
húsi jafnóðum og þær eru
bakaðar. Eyþór segir að í nú-
tíma þjóðfélagi hafi fólk lítinn
tíma fyrir bakstur og kaupi
því meira af tilbúnum vörum.
„Og hér erum við að baka
smákökur eftir heimilisupp-
skriftum.“
Framleiðslan fór í gang fyr-
ir rúmum mánuði og hefur
farið vel af stað. Alls eru 10
fastráðnir starfsmenn hjá
Kexsmiðjunni, auk nokkurra
lausamanna nú á háannatíma.
„Við förum fljótlega í fram-
leiðslu á kexi sem kemur á
markað upp úr áramótunum.
Stefnt er að því að bjóða upp
á 2-3 tegundir af kexi til að
smyija, 2-3 tegundir af
súkkulaðikexi og eitthvað
fleira,“ sagði Eyþór.
Emilíana
Torrini í
Sjallanum
EMILÍANA Torrini og hljóm-
sveit verða með útgáfutónleika
fyrir Akureyringa og nærsveit-
armenn í Sjallanum í kvöld,
föstudagskvöldið 29. nóvem-
ber.
Fyrir rúmum tveimur vikum
hélt Emilíana tónleika í ís-
lensku óperunni og endurtekur
nú leikinn norðan heiða, en
hvergi verður til sparað að gera
tónleikana sem glæsilegasta.
„Merman", nýjasti geisla-
diskur Emilíönu, hefur nú selst
í nær 4000 eintökum á aðeins
3 vikum, en hún flytur lög af
honum sem og eldri lög, m.a.
úr leikritinu Stone Free, á tón-
leikunum í kvöld.
Henni til aðstoðar verða þeir
Jón Ólafsson, Guðmundur Pét-
ursson, Jóhann Hjörieifsson,
Róbert Þórhallsson, Ingólfur
Magnússon, Bjarni Bragi
Kjartansson og Óli Öder, að
ógleymdu starfsfólki Sjallans.
Miðaverð er 1000 krónur og fer
forsala fram í versluninni Bók-
val.
Tóku skipti-
myntina
TILKYNNT var um innbrot í
fiskvinnsluna Hnýfil við Skipa-
tanga í gærmorgun. Þeir sem
að verki voru höfðu sparkað
upp hurð og brotið sér þannig
leið inn í fiskvinnsluna. Þeir
höfðu á brott með sér peninga-
kassa en í honum var dálítið
af skiptimynt.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli á morgun, laugar-
dag 30. nóvember kl. 11 í
Svalbarðskirkju og kl. 13.30 í
Grenivíkurkirkju. Guðsþjón-
usta í Grenivíkurkirkju á
sunnudag, 1. desember kl.
14, á fyrsta sunnudegi í að-
ventu. Kyrrðar- og bæna-
stund í Svalbarðskirkju á
sunnudagskvöld kl. 21.
Opið hús og diskótek
Af tilefni alþjóðadags fatlaðra, 3. desember verður opið hús
og diskótek í félagsmiðstöð Lundaskóla laugardagskvöldið
30. nóvember kl. 19—24.
Undirbúningsnefnd félaganna.
1
)
>
i
í
\
»
»
Í
»
I
i
I
I
i
i
(
0
i
+