Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 16

Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Lögfræðiálit vegna forkaupsréttar að hlut Þróunarsjóðs í Búlandstindi og Meitlinum Stjómarmenn eiga ekki forkaupsrétt að hlutnum STJÓRNARMENN í fyrirtækjum sem Þróunar- sjóður sjávarútvegsins á eignarhlut í teljast ekki til starfsmanna fyrirtækjanna og eiga þar af leiðandi ekki forkaupsrétt að eignarhlut í félög- unum, samkvæmt niðurstöðu lögfræðiálits sem sjóðurinn óskaði eftir. Þremur stjómarmönnum í Búlandstindi á Djúpavogi og einum stjómar- manni í Meitlinum í Þorlákshöfn, sem sendu inn kauptilboð í fyrirtækin eftir að þeim hafði verið boðinn forkaupsréttur eftir fyrirspurn þar að lútandi, verður í framhaldinu skýrt frá því að þeim standi þessi forkaupsréttur ekki til boða. Hinrik Greipsson, framkvæmdastjóri Þró- unarsjóðs, sagði að niðurstaða lögfræðiálitsins væri sú að stjórnarmenn teldust ekki til starfs- manna í skilningi laga um Þróunarsjóð og ættu þar af leiðandi ekki forkaupsrétt að eignarhlut í félögunum, eins og starfsmenn og hluthafar eiga eftir að stjórn sjóðsins hefur samþykkt tilboð í eignarhluti sjóðsins í fyrirtækjum. í framhaldinu myndi hann skrifa þessum aðilum og tilkynna þeim þessa niðurstöðu. Þróunarsjóður hefur selt eignarhluti sína í níu fyrirtækjum á undanförnu tveimur og hálfu ári. Farið hefur verið eftir lista frá fyrirtækjun- um yfir starfsmenn og hluthafa þegar leitað hefur verið eftir því hvort þessir aðilar vildu nýta sér forkaupsréttinn. í tilviki Búlandstinds og Meitilsins var spurst sérstaklega fyrir um það hvort stjórnarmenn teldust til starfsmanna og ættu einnig forkaupsrétt. Að höfðu samráði við lögfræðing var þeirri fyrirspum svarað ját- andi án þess að stjórn sjóðsins væri höfð með í ráðum og var stjórnarmönnum því ásamt starfsmönnum og hluthöfum sent bréf þar sem þeim var boðinn forkaupsréttur að bréfunum. Þrír af fimm stjórnarmönnum í Búlandstindi, þeir Ámi Benediktsson, formaður Vinnumála- sambands samvinnufélaganna, Einar Kristinn Jónsson hagfræðingur og Gunnar Birgisson hagfræðingur nýttu sér forkaupsréttinn og einn stjórnarmaður í Meitlinum, Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf. í framhaldinu komu upp efasemdir um það í stjórn Þróunarsjóðs að þessum aðilum bæri forkaupsréttur og var þá ákveðið að kalla eftir lögfræðiáliti þar að lútandi. 38 í 35 og 5 í 4 Niðurstaða lögfræðiálitsins þýðir að þeim aðilum sem Þróunarsjóður viðurkennir að eigi forkaupsrétt að eignarhlutnum í Búlandstindi fækkar úr 38 í 35 og í Meitlinum úr fimm í fjóra. Um er að ræða 70 milljóna króna eignar- hlut í Búlandstindi á genginu 1,15 og 119,3 milljóna króna eignarhlut í Meitlinum á nafn- verði. í fyrra tilvikinu koma því hlutabréf að nafnvirði tvær milljónir króna í hlut hvers og eins sem nýtti sér forkaupsréttinn, að því til- skildu að forkaupsréttarhöfum fjölgi ekki, en Mata hf. og 22 tengdir aðilar hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess er krafist að forkaupsréttur verði viðurkenndur. í síðara tilvikinu koma hlutabréf að nafnvirði 29,8 milljónir króna í Meitlinum í hiut hvers og eins. Hlutafjárútboði Flugleiða hf. lokið Allt seldist til for- kaupsréttarhafa ALLT nýtt hlutafé í hlutafjárútboði Flugleiða seldist upp til forkaups- réttarhafa, en um er að ræða 250 milljónir króna að nafnvirði á geng- inu 2,80. Eiginfjárstaða félagsins styrkist því um sem nemur 700 milljónum króna, en um síðustu áramót var eigið fé Flugleiða 5,3 milljarðar króna. Tímabili hluthafa til að nýta sér forkaupsrétt að hlutabréfum í fé- laginu lauk á þriðjudag. Hefðu for- kaupsréttarhafar ekki nýtt sér for- kaupsréttinn hefði það verið selt á almennum hlutafjármarkaði á genginu 3,10. Þota seld fyrir áramót í frétt frá Flugleiðum af þessu tilefni kemur fram að samningar við tilboðsgjafa vegna sölu og endur- leigu á einni af Boeing 757-200 þotum félagsins gangi vel. Stefnt er að því að frá málinu verði gengið fyrir árslok. Talið er að hagnaður af sölu vélarinnar muni nema 400 milljónum króna og eiginfjárstaða félagsins muni batna sem því nemur. Verðbréfastofan hf. tekur til starfa NÝTT verðbréfafyrirtæki, Verð- bréfastofan hf., hefur tekið til starfa á Suðurlandsbraut 20. Fyrirtækið mun bjóða upp á al- menna verðbréfaþjónustu, þ.á m. verðbréfamiðlun, sölu á erlend- um verðbréfasjóðum og fjár- vörslu. Fram kemur i frétt að Verð- bréfastofan sé sjálfstætt og óháð fyrirtæki sem hvorki tengist banka né muni starfrækja eigin hlutabréfa- eða verðbréfasjóði. Þetta tryggi viðskiptamönnum óháða ráðgjöf, en með samningi við önnur verðbréfafyrirtæki geti Verðbréfastofan boðið til sölu hluti í verðbréfasjóðum og hluta- bréfasjóðum. Fyrirtækið er í eigu 30 ein- staklinga og fyrirtækja, en inn- borgað hlutafé er 86 milljónir króna. Framkvæmdastjóri Verð- bréfastofunnar er Jafet S. Ólafs- son, en starfsmenn eru fjórir í byijun. Milljarður seldist í útboði spariskírteina Avöxtun langtíma- verðbréfa lækkar MIKIL eftirspurn var eftir spariskír- teinum í útboði Lánasýslu ríkisins á miðvikudag. Alls bárust 48 tilboð að íjárhæð tæplega 1,8 milljarður króna, en tekið var tilboðum að fjárhæð 990 milljónir. Langmest eftirspum var eftir skírteinum til 20 ára og seldust slík skírteini fyrir um 947 milljónir, en til samanburðar nam sala þeirra 371 milljón í útboðinu í október og einungis 86 milljón í september. í útboðinu kom fram lækkun á ávöxtunarkröfu spariskírteina í sam- ræmi við þá þróun sem verið hefur á Verðbréfaþingi undanfarið. Nam meðalávöxtun spariskírteina til 20 ára 5,49% samanborið við 5,54% í útboðinu í lok október. Þá voru skír- teini til 10 ára seld með 5,74% með- alávöxtun borið saman við 5,8% í október. Pétur Kristinsson, hjá Lánasýslu ríkisins, sagði í samtali við Morgun- blaðið að nú virtist það vera að ræt- ast sem sagt hefði verið í sumar eftir stóra innköllun á spariskírteina- flokkum frá 1986. „Hluti af þeim 5 milljörðum sem þá skiluðu sér ekki á ný í spariskírteini virðist vera að koma til baka. Ég held að fjárfestar séu að átta sig betur og betur á því hversu hagstætt það sé að kaupa verðtryggð bréf til svo langs tíma með jafnháum vöxtum," sagði hann. Ávöxtun húsbréfa lækkar Ávöxtunarkrafa húsbréfa hefur einnig lækkað að undanfömu. Hún var 5,78% í lok október en var í gær 5,69% hjá Landsbréfum. Þetta jafn- gildir tæplega 1% hækkun á verði bréfanna. Gullverð ekki lægra frá 1994 London. Reuter. GULL heldur áfram að lækka í verði og seldist únsan á 372,20 dollara á fimmtudag, lægsta verði síðan 15. apríl 1994. Spáð er meiri verð- lækkunum. „Gullið réttir ekki úr kútn- um nema veruleg lækkun verði á Dow-vísitölunni eða dollarinn lendi í erfiðleikum," sagði sérfræðingur í London. Traust manna á gulli hefur beðið hnekki að undanförnu af ýmsum ástæðum. Ein ástæðan er orðrómur um að evrópskir seðlabankar kunni að selja gull úr varasjóðum til að fullnægja skilyrðum fyrir aðild að evrópsku mynt- bandalagi. Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn, IMF, hyggst selja fímm milljónir únsa, ef ekki tekst að afla fjár með öðru móti til stuðnings fátækustu ríkj- um heims. Svisslendingar minnki gullbirgðir Fulltrúi í stjóm svissneska landsbankans telur að Sviss- lendingar eigi að minnka um 40% gullbirgðir sem eru notaðar til að styrkja sviss- neska frankann. Þar með eru taldar auknar líkur á því að óhreyfðar gullbirgðir verði seldar eða lánaðar. Sérfræðingar telja að seðlabankar og aðrar fjár- málastofnanir eigi yfir 35.000 tonna af gulli í vara- sjóðum og er megnið af því óvirkt. Obreyttur framleiðslu- kvóti OPEC Vín. Reuter. OLÍURÁÐHERRAR OPEC- ríkjanna hafa náð samkomu- lagi um nýjan og óbreyttan framleiðslukvóta næstu sex mánuði í von úm að verð haldist hátt þótt írakar fái líklega að hefja aftur útflutn- ing. Samkomulag um að há- marksframleiðsla verði áfram 25.03 milljónir tunna á dag til júníloka var kunngert í lok fundar Samtaka olíusöluríkja (OPEC) í Vín. Olíuverð hélzt óbreytt eftir tilkynninguna eða tæplega 22,90 dollarar tunnan. Úrslitaþýðingu hefur að framleiðsla helzta olíuútflytj- enda heims, Saudi-Araba, verður eftir sem áður 8,0 milljón tunnur á dag. fróðleikur f östudbgum sveröar kynningar alla föstudaga JNýherji býður nú viðskiptavinum sinum til sérstakra fræðslustunda alla föstudaga frá kl. 13:00-18:00. Á hverjum föstudegi verður tekið fyrir ákveðið svið í tengslum við tölvu- og skrifstofubúnað. Gestum gefst tækifæri til að kynnast helstu nýjungum og ræða við sórfræðinga Nýherja á víðkomandí sviði. PowerShot 600 stalrana myndavélin Canon í dag kynnum við PnwerShot 600, staírænu myndavélina írá Canon sem býður meiri myndgæfli en sambærilegar vélar. Kynningin fer íram í verslun Nýherja að Skaftahlíð 24 cg stendur frá kl. 13:00- 18:00 ng eru allir velkumnir. PDwerShot 600 tengist hvaða PC tölvu sem er. Vélin notar enga filmu heldur vistar allt að 900 myn'dir á sérstakan disk. Engin filmu-né framköllunar- Skaftahlíð 24 - Sími 569 7700 NÝHERJI kostnaður. http://www.nyherji.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.