Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERIIMU
ERLENT
Árni Friðriksson er nú í árlegum síldarleiðangri
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson
SALTAÐ hefur verið í um 16 þúsund tunnur af síld, þar af um 6.500 tunnur af flökum.
Mladic lætur af
íslenski sfldarstofninn
er í mjög góðu ástandi
„ÞAÐ, sem við höfum í höndunum
nú, bendir til þess að síldarstofninn
sé í góðu ástandi, eins og reiknað
hafði reyndar verið með. Við gerð-
um ráð fyrir að stofninn væri ríf-
lega 500 þúsund tonn pg mér sýn-
ist að það geti alveg staðist nokkuð
vel. Þetta er mjög í takt við það,
sem við máttum búast við og ekk-
ert bendir til þess að síldarstofninn
sé ofveiddur hér við land,“ sagði
Páll Reynisson, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, í samtali við
Verið í gær þar sem hann var stadd-
ur um borð í rannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni inni á Skjálfanda í ár-
legum síldarleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar.
Skip Hafrannsóknastofnunar
lagði í síldarleiðangurinn í beinu
framhaldi loðnuleiðangurs þann 18.
nóvember sl. frá Reyðarfirði og
gerði Páll ráð fyrir því að vika til
tíu dagar væru eftir. Framhaldið
færi m.a. eftir veðri og öðrum að-
stæðum. Aðalverkefnið er að mæla
stofnstærð hrygningarstofns síldar-
innar og síðan að kanna smásíld-
ina, sem kemur inn í hinn eiginlega
veiðistofn seinna meir. „Búið er að
mæla stórsíldina fyrir austan land
og það lítur mjög vel út með hana
þó endanlega sé ekki búið að vinna
úr niðurstöðunum. Nú erum við að
Talið er að stofn-
inn sé ríf'lega 500
þúsund lestir
bytja á því að kanna smásíldina
inni á fjörðum og flóum norðan-
og vestanlands.“
Síldin er norðar
en venjulega
Nákvæmlega sömu aðferð er
beitt við stofnstærð síldar og loðnu,
svokölluðum bergmálsmælingum.
„Við byggjum talsvert á þeim upp-
lýsingum, sem við höfum í höndun-
um, um hvaða svæði talin eru líkleg-
ust og síðan er farið á staðinn og
síldin mæld með bergmálstækni,
eins og loðnan. Við höfum því verið
að mæla á sömu stöðum og skipin
eru að veiða síldina á og að þessu
sinni hefur hún mest verið að fást
í Héraðsflóadjúpi, Norðfjarðardjúpi
og Seyðisfjarðardjúpi þó hún hafi
einnig verið talsvert á flökti því í
haust varð hennar fyrst nokkuð
vart í Berufjarðarál án þess að þar
hafi mikið veiðst. í fyrra hélt síldin
sig mikið í Litla-dýpi og í Hvalbaks-
hallanum. Við höfum einnig verið
að kanna kantinn suður með Aust-
fjörðunum, Hvalbakshallann og
fjörurnar frá Stokksnesi og vestur
að Ingólfshöfða, Hornafjarðardjúp-
ið og Breiðamerkurdjúpið, þar sem
var smásíld."
Elur allan sinn
aldur hér við land
Páll segir að ekki hafi orðið vart
stórsíldar inni á fjörðum undanfarin
ár, eins og var gjarnan hér áður
fyrr. Um það bil tíu ár eru liðin
síðan síldin fór að færa sig hægt
og rólega út úr fjörðunum og er
nú alfarið komin þaðan nú. „Það
er aldrei að vita hvað hún gerir
næst enda allt á huldu með af hveiju
hún færir sig svona á milli staða.
Hér fyrir nokkrum árum hélt hún
sig í djúpunum við Suðausturland,
á Breiðamerkur-, Hornafjarðar- og
Lónsdjúpi, en í seinni tíð hefur hún
verið að fikra sig norðar út af Aust-
fjörðum og er nú komin alla leið
norður í Héraðsflóa, eins norðarlega
og hún fer,“ segir Páll.
Hér er um að ræða alíslenskan
síldarstofn, svokallaða íslenska
sumargotssíld, sem er alls óskyld
norsk-íslenska síldarstofninum.
Þetta er síld, sem hrygnir við ís-
landsstrendur og elur allan sinn
aldur hér við land. Síldarvertíðin
stendur yfirleitt frá október og fram
í janúar.
Reuter
Biðja fyrir Móður Teresu
MÓÐIR Teresa, nunnan frá
Kalkútta, sem hlaut friðarverð-
laun Nóbels vegna starfa sinna
í þágu bágstaddra, berst fyrir
lífi sínu á sjúkrahúsi en hún á
við hjartakvilla. Indversk götu-
börn, skjólstæðingar nunnunnar
86 ára, báðu fyrir henni í gær.
Friðsamlegt þjóð
aratkvæði þrátt
fyrir hótanir
París. Reuter.
ALSÍRBÚAR gengu í gær til um-
deildrar þjóðaratkvæðagreiðslu um
uppkast að stjórnarskrá, sem mundi
meina heittrúuðum múslimum að
komast til vaida. Stjórnvöld í Alsír
sögðu að kosningaþátttaka hefði ver-
ið mikil og allt farið friðsamlega fram
þrátt fyrir áskoranir stjórnarand-
stöðunnar til almennings um að
hundsa atkvæðagreiðsluna.
Herskáasta skæruliðahreyfing
múslima í Alsír, GIA, skoraði á fólk
að fara ekki á kjörstað og hótaði að
skera hvern þann á háls, sem færi
út úr húsi á kjördag.
Þremur klukkustundum eftir að
kjörstaðir voru opnaðir höfðu 23%
kjósenda greitt atkvæði, að sögn inn-
anríkisráðuneytisins.
Heitir að virða niðurstöðu
Liamine Zeroual, forseti Alsírs,
kaus snemma og hét því að virða
niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.
„Alsírska þjóðin er fullvalda,"
sagði Zeroual brosandi. „Það ber að
lúta vilja hennar.“
Mikil öryggisgæsla er vegna kosn-
inganna. Kjörstaðir eru alls 35 þús-
und og eru flestir í skólum, sem
hefur verið lokað og nánast breytt í
virki.
Atkvæðagreiðslan snýst um það
hvort banna eigi heittrúuðum
múslimum að leita valda í hinu póli-
tíska kerfi. í stjórnarskrárdrögunum
er kveðið á um að stjórnmálamenn
megi ekki heyja kosningabaráttu á
forsendum trúar, tungu, mismunun-
ar kynja eða svæðisbundins mismun-
ar.
Segja jafngilda einræði
Stjórnarandstöðuflokkarnir segja
að verði stjórnarskrárbreytingarnar
samþykktar jafngildi það því að festa
einræði í sessi.
Yfirvöld í Alsír aflýstu kosning-
unum 1992 þegar ljóst virtist að
múslimar mundu bera sigur úr být-
um. Frá því að horfið var frá fyrir-
heitinu um að leggja niður eins flokks
kerfið og taka upp margra flokka
kerfi hafa 60 þúsund manns látið
lífið í átökum róttækra múslima og
stjórnarhersins.
Zeroual er fyrrverandi herforingi
og vonast til að kosningaþátttaka
nái 75% eins og í atkvæðagreiðslu á
síðasta ári þegar samþykkt var að
hann sæti áfram í embætti.
Sérfræðingar og stjórnarerindrek-
ar benda hins vegar á að þær vonir,
sem fólk gerði sér um breytingar á
síðasta ári, hafi að engu orðið þegar
ofbeldið hélt áfram og efnahags-
þrengingarnar jukust vegna krafna
erlendra lánardrottna um umbætur.
Borgey á Höfn á fullu í
síldarfry stingu og söltun
„VIÐ erum á fullu bæði í frystingu
og söltun og höfum alla tíð verið
mikið í hvoru tveggja. Við erum
að taka í gagnið nýja vinnslulinu
fyrir loðnu og síld sem gerir það
að verkum að við erum með heldur
minni vinnslugetu í frystingunni
það sem af er vertíðinni, á meðan
breytingarnar standa yfir. Hluti af
nýrri vinnslulínu eru þrír nýir síldar-
flokkarar, sem bæði eru afkasta-
meiri og nákvæmari en þeir sem
voru fyrir. Afköstin fara smám
saman að aukast úr þessu á ný og
verða smám saman að aukast fram
í janúar. Þrátt fyrir þetta umstang,
má gera ráð fyrir að við verðum
að vinna svipað magn á þessari síld-
arvertíð og undanfarin ár sem hefur
verið 18 til 20 þúsund tonn af hrá-
Áætla að vinna
18-20 þúsund
tonn af síld til
manneldis
efni upp úr sjó á ári,“ sagði Halldór
Ámason, framkvæmdastjóri Borg-
eyjar hf. á Höfn.
Af um 200 starfsmönnum hjá
Borgey hf. starfa nú 140 til 150
við síldarsöltun og síldarfrystingu.
„Síldin er mál málanna hjá okkur
í dag. Við höfum yfirleitt byijað
að vinna síld í septembermánuði,
en að þessu sinni byijuðum við
óvenju seint eða ekki fyrr en um
miðjan október og reiknum með að
verða í síldinni fram í janúar. Venju-
lega er unnið átta tíma á dag, en
flökunarvélar eru nýttar allan sólar-
hringinn. Við erum með tvö skip í
viðskiptum, Húnaröstina SF og
Grindvíking GK. Veiðin hefur geng-
ið þokkalega og það er bara bjart
yfir mönnum."
Halldór segir að öll síldarvinnsla
Borgeyjar byggist á manneldis-
vinnslu og hafi gert það til margra
ára. Bræðslan taki fyrst og fremst
við afskurði og því sem ekki væri
hægt að vinna til manneldis. Helstu
markaðir fyrir frysta síld frá Borg-
ey eru Pólland, Þýskaland, Frakk-
land, Bretland, Belgía, Nígería og
Japan. Saltað hefur verið í um 16
þúsund tunnur hjá Borgey, þar af
um 6.500 tunnur af flökum.
stjórn hersins
Pale, Reuter.
RATKO Mladic hershöfðingi lét í
gær af forystu hersveita Bosníu-
Serba. Lauk þar með harðvítugri
valdabaráttu, sem óttast var að
gæti leitt til nýs borgarastríðs í
Bosníu
Við starfi Mladics tekur Pero
Colic, sem pólitískir leiðtogar Bosn-
íu-Serba skipuðu yfirmann hersins
fyrr á árinu. Mladic og nánustu
samstarfsmenn hans sættu sig þá
ekki við að verða lækkaðir í tign,
neituðu að lúta stjórn hans og sett-
ust að í aðalstöðvum hersins í Han
Pijesak.
Mladic er eftirlýstur fyrir stríðs-
glæpi. Búist er við að hann reyni
að komast hjá handtöku og að þurfa
svara fyrir glæpi sína í Bosníustríð-
inu 1992-95 hjá srtíðsglæpadóm-
stólnum í Haag.
Mladic stýrði hersveitum Bosníu-
Serba í Bosníustríðinu 1992-95.
Með afsögn Mladics er að vissu leyti
sigur fyrir Radovan Karadzic, fyrr-
Ratko Mladic hefur loks látið
undan þrýstingi og látið af
stjórn hers Bosníu-Serba.
verandi pólitísks leiðtoga Bosníu-
Serba, sem reyndi að knésetja hann
í fyrra. Karadzic er sagður hafa
mikil áhrif á stjórn Biljana Plavsics, 1
forseta Bosníu-Serba, á bak við |
tjöldin.