Morgunblaðið - 29.11.1996, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
í GAMLA frystihúsi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, Vesturgötu 11 til 13, er nú unnið hörðum hönd-
um að þvi að útbúa fullkomnustu kæligeymslur fyrir filmur sem völ er á.
Kvikmyndasafnið til Hafnarfjarðar
Skref inn í 21. öldina
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra og Ingvar Viktorsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, undirrituðu í
gær samning um flutning Kvik-
myndasafns Islands til Hafnarfjarð-
ar. Til þessa hafa skrifstofur og
skjaiasafn Kvikmyndasafnsins verið
inni á gafli hjá Kvikmyndasjóði ís-
lands og filmugeymslur verið í Þjóð-
skjalasafni íslands. Með flutningun-
um verða allar filmugeymslur,
skjalavarsla og skrifstofur Kvik-
myndasafnsins á sama stað - í
gamla frystihúsi Bæjarútgerðarinn-
ar, Vesturgötu 11 til 13, en þar er
nú unnið hörðum höndum að því
að útbúa fullkomnustu kæligeymsl-
ur fyrir filmur sem völ er á. Auk
þess tekur Kvikmyndasafnið við
umsjón og rekstri Bæjarbíós við
Strandgötu og skapast þannig
möguleiki á að sýna klassísk meist-
araverk úr kvikmyndasögunni.
Samningurinn er til fimmtán ára.
Við undirritun samningsins sagði
Björn Bjarnason að með undirritun
þessa samnings hefði kvikmynda-
safninu verið búið hæfilegt starfs-
umhverfi. „Það er von mín að þessi
samningur verði íslenskri kvik-
myndalist til framdráttar."
Ingvar Viktorsson tók undir orð
Björns og sagði að það væri Hafnar-
fjarðarbæ mikil ánægja að taka á
móti safninu. „Kvikmyndagerð hef-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BJORN Bjarnason menntamálaráðherra og Ingvar Viktorsson,
bæjarsljóri Hafnarfjarðar, undirrita samninginn.
ur ávallt verið í hávegum höfð í
Hafnarfirði."
Böðvar Bjarki Pétursson, safn-
vörður Kvikmyndasafnsins, sagði að
undirbúningstími fyrir þennan flutn-
ing safnsins hefði verið styttri en
búast hefði mátt við þó að stundum
hafí honum þótt hlutimir ganga
hægt. „Eriendur Sveinsson, fyrrver-
andi safnstjóri Kvikmyndasafnsins,
vann reyndar að því að fá safnið flutt
í Hafnarfjörð á miðjum síðasta ára-
tug en fékk ekki mikinn hljómgrunn
á meðal ráðamanna. Undirbúningur
okkar sem höfum leitt málið til lykta
nú hófst fyrir þremur árum og hefur
samstarfíð í alla staði gengið hratt
og vel. Með flutningi Kvikmynda-
safnsins í hið nýja húsnæði verður
stigið stærra skref en nokkm sinni
áður í varðveislu kvikmynda og kvik-
myndasögulegra muna og má segja
að Kvikmyndasafnið stígi nú skref
inn í 21. öldina.“
ERTU AÐ FARA TIL UTLANDA?
Ný glæsileg landkynningarbók til vina og viðskiptamanna
80 Ijósmyndir - 5 tungumál - verðiö kemur á óvart!
Útsölustaðir um land allt
almanaksútgáfa & náttúruljósmyndun
Höfðabakka 3-112 Reykjavík - Sími 567 3350 - Fax 567 6671
Þingvellir - Þingvailavatn - Hornstrandir - Mývatn - Kverkfjöll
Jökulsá á Breiðamerkursandi - Skaftafell
Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 1997
Hjartastaður
og Kyrjálaeiði
Steinunn Hannes
Sigurðardóttir Sigfússon
SKALDSAGAN
Hjartastaður eftir
Steinunni Sigurðar-
dóttur og ljóðabókin
Kyrjálaeiði eftir Hann-
es Sigfússon eru til-
nefndar til bókmennta-
verðlauna Norður-
landaráðs 1997.
Fundur dómnefndar
Norðurlandaráðs verð-
ur að þessu sinni hald-
inn í Reykjavík og
verður tilkynnt að hon-
um loknum 27. janúar
nk. hver hlýtur verð-
launin. íslensku dóm-
nefndarmennirnir eru
rithöfundarnir Sigurð-
ur A. Magnússon og Jóhann Hjálm-
arsson. Verðlaunin sem eru 350.000
danskar kr. verða afhent 3. mars í
Ráðhúsinu í Osló.
Fimm íslenskir
verðlaunahafar
íslenskir rithöfundar sem fengið
hafa Norðurlandaráðsverðlaun eru:
Ólafur Jóhann Sigurðsson fyrir
ljóðasafnið Að brunnum (1976),
Snorri Hjartarson fyrir ljóðabókina
Haustmyrkrið yfir mér (1981), Thor
Vilhjálmsson fyrir skáldsöguna
Grámosinn glóir (1988), Fríða Á.
Sigurðardóttir fyrir skáldsöguna
Meðan nóttin líður (1992) og Einar
Már Guðmundsson fyrir skáldsög-
una Englar alheimsins (1995).
Bókmenntaverðlaunum Norður-
landaráðs hefur verið úthlutað frá
1962 og var sænski rithöfundurinn
Eyvind Johnson fyrstur til að hljóta
þau fyrir skáldsöguna Tími hans
náðar.
Bók eftir Steinunni Sigurðardótt-
ur hefur áður verið tilnefnd tii Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs,
skáldsagan Tímaþjófurinn (1988).
Þetta er í fyrsta sinn sem bók eftir
Hannes Sigfússon er lögð fram til
verðlauna.
Bókaútgáfan
Brandur stofnuð
STOFNUÐ hefur verið
í Reykjavík Bókaútgáf-
an Brandur. „Bókaút-
gáfan Brandur mun
fyrst og fremst beita
sér fyrir því að úr-
valsbækur frá öðrum
málsvæðum en engil-
saxneskum, jafnt bók-
menntaverk sem al-
mennur fróðleikur,
komi út á íslensku“,
segir í kynningu for-
lagsins.
Þýsk metsölubók
Fýrsta bókin sem
Brandur gefur út er
þýska metsölubókin
Góðar stelpur komast til himna, en sögn Guðbrands Gíslasonar eiganda
slæmar hvert sem er eftir Ute og framkvæmdastjóra Brands.
Ute
Ehrhardt
Ehrhardt í þýðingu Jónu
Lísu Þorsteinsdóttur.
Góðar stelpur komast til
himna . . . hefur verið
gefin út á fjórtán öðrum
tungumálum og hvar-
vetna vakið athygli og
umræður.
í bók Ute Ehrhardt
sem er þýskur sálfræð-
ingur er fjallað á fijáls-
legan og ögrandi hátt
um stöðu kvenna í sam-
félaginu og þá ábyrgð
sem konum ber sjálfum
að axla til þess að
tryggja að þær njóti sín
sem best sem sjálf-
stæðir einstaklingar, að
Nýjar hljómplötur
• FYRSTA geislaplata Karlakórs
Reykjavíkur er komin út og heitir
íslandslag. Á henni syngur kórinn
11 þekkt íslensk lög og fimm er-
lend. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran
og Kristinn Sigmundsson barítón
syngja einsöng með kórnum auk
þess sem ungur kórfélagi, Sigurður
Haukur Gíslason þreytir frumraun
sína í einu lagi. Undirleik annast þau
Anna Guðný Guðmundsdóttir og
Jónas Ingimundarson. Fyrirhugað
var að Kristján Jóhannsson syngi
einnig á plötunni, en ekki vannst
tími til að ganga endanlega frá hans
hluta fyrir útgáfuna.
Karlakór Reykjavíkur var stofn-
aður 3. janúar 1926 og fagnaði því
70 ára afmæli á þessu ári. Aðal-
hvatamaður að stofnun kórsins var
Sigurður Þórðarson tónskáld sem
stjórnaði kórnum í 36 ár og hóf
hann til vegs og virðingar. Aðrir
helstu stjórnendur kórsins hafa verið
þeir PáÚ P. Pálsson sém stjórnaði
í 26 ár og núverandi stjórnandi Frið-
rik S. Kristinsson. Karlakór
Reykjavíkur hefur haldið tónleika í
25 þjóðlöndum og í 4 heimsálfum.
Auk þess hefur hann sungið inn á
fjölmargar hljómplötur.
Útgefandi erJapis. Verð 1.999 kr.