Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 33 BÓKMENNTIR Sögur og kvæöi SÖGUR OG KVÆÐI úr öllum heimshornum. Efnisval og þýðing: Ami Araason. Þýðing ljóða: Hjörtur Hjartarson. Teikningar: Anna Cynthia Leplar. Umbrot: Edda Harðardóttir. Filmu- og mynd- vinnsla: Prenthönnun ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Bókband: Fiatey hf. Útgefandi: Barnabókaút- gáfan 1996 104 síður. ÞAÐ FULLYRTU gamlir að heimskt væri heimaalið barn, áttu við að öllum væri nauðsyn að kynn- ast bjástri annarra, verklagi og mennt, við að sýnast menn. Slíkt víkki sjónhring, lyfti fólki hærra í þroskans fjall. Þegar grannt er Við sagnalindir skoðað mun fólk kom- ast fljótt að því að á heimahlaði og utan þess er mannskepnan að glíma við sömu gátuhnúta, sömu girndir, sömu þrár, það eru lausnirnar sem breytilegar eru og því hægt að draga af þeim lærdóm. Þegar öllu er á botninn hvolft er það baráttan við að vera manneskja sem öllu varðar, - allt hitt eru hækjur við þetta eitt. Þetta vita skáld og Árni Árnason takist þeim að segja sögu, svo hjörtu á heimahlaði bjóði sig fram sem „bókfell" er víst að sagan á erindi við heim allan. Oftast eru þessar sagnir leift- ur, örstuttar, lýsa upp kjarnann og hann ein- an. Við köllum slíkar sögur dæmisögur því þær eru ekki sögur um einhvern eða eitthvað, heldur sagan um mig og >ig- Árni skilur þetta og fer vítt um lönd í leit gersema sem okkur er hollt að kynnast. Það er fljót sagt: Honum hefír tekizt valið mjög vel og birtir hér fjórtán sögur og tvö ljóð. Bók- inni er skipt þannig að fyrst eru sex sagnir af mönnum, tíu af dýr- um. Allar benda þær óvægnar á okkur og spyija: „Ertu samur i ósk þinni og dáð? Ertu herra þíns lífs eða hégómans þræll?“ eins og Jóhannes úr Kötlum spurði eitt sinn. Bókin flytur þér dæmi um aula- háttinn í bráðsnjallri sögu: Múllinn og asninn; rætt er um afbrýðisemi; þrána til umhyggju; hugleysingj- ann; græðgina; hinn vinnandi lýð og þann sem arðinn hirðir; hina deilugjörnu; grobbið og margt, - margt fleira. Ur mörgu er að velja, - mörgu að draga lærdóm af. Því fagna eg bókinni. Þýðingar eru mjög góðar, á vönd- uðu máli. Próförk er ekki nógu vel lesin. Eg kann ekkert í grænlenzku, en annað hvort heitir hrottamennið Eqquorsuaq eða Eqqorsusq en læð- ist fram undir nöfnunum báðum á síðu 29 og 30. Hitt veit eg, að í tvígang er himinninn skráður í nefnifalli á síðu 79 en á að vera í þolfalli, það er himininn. Myndir eru bráðvel gerðar enda ekki við öðru að búast af listakonu sem Önnu. Prentverk allt er vel unnið. Sig. Haukur. „Loksins bregð- ur ljósi á“ BÓKMENNTIR Itarnasaga SKÓRNIR í GLUGGANUM er gleðileg jólasaga. Höfundur: Lisa Streeter Wenner. Myndir: Maribel Gonzalez Sigurjóns. Þýðing: VUborg Dagbjartsdóttir. Prentun og filmu- vinna: Nörhaven A/S, Danmörk. Út- gefandi: Mál og menning 1996.23 síður. HÉR SEGIR frá því er sankti Kláus tekur hrekkjalómana, ís- lenzku jólasveinana, í læri, kennir þeim góða siðu. Þeir hírast í helli í Bláfjöllum, eiga þar illa vist því kerlingin móð- ir þeirra, Grýla, ver fyrir þeim pott sinn, - krásirnar skal karl hennar, Leppalúði, einn fá, ilmurinn verður að nægja strákunum hennar þrett- án og jólakettinum, sem söguna segir. Aðeins einu sinni á ári eru þeim opnaðar dyr að mannheimi, og bregður það ljósi á hversu dólgs- lega þeir fara um héruð, hrekkj- andi, - ruplandi. Þeir eru hreinlega að farast úr hungri, - beijast fyrir eigin lífi, skinnin! Sá er munur á þessari sögu og þeirri er eg þóttist kunna, að höf- undur lætur þá bræður, og köttinn líka, ferðast í einum hópi. Það er sjálfsagt gert til þess að sankti Kláus geti náð til þeirra allra í einu. Skáldi er jú allt leyfilegt. „Skóla- stofan" er leið frá Bláfjöllum í mannheim; veður eins og verst get- ur orðið á ijöllum, meira að segja hreindýrum sankti Kláusar fatast á braut um himinhvolfið, steypast til jarðar, og ekill og gjafir hans hljóta slæma byltu. Þannig ber fundi kennara og nema saman. Kennslu- efnið er: Hamingja og góðvild. Slíku SKREYTING Maribel Gonz- alez Sigurjóns. taki nær sankti Kláus á þeim kauð- um, að þeir verða allir aðrir eftir: VINIR BARNA OG BERA ÞEIM GJAFIR í SKÓ! í bókarlok eru rakin sérkenni ís- lenzkra jólasveina, sagt að þrátt fyrir bætta siðu, þá „ ... haldi þeir sérkennum sínum og áhuga- málum.“ Það þótti mér góð frétt, því slíkur er þjóðrembingur minn að mér eru þeir kærari en búðar- þjónninn erlendi. Þýðing Vilborgar er mjög góð enda kunna fáir betur að segja barni sögu en hún. Á blaðsíðu 15 segir meðal ann- ars: „Pottaskefill greip í dindilinn á einu hreindýrinu, ... “, hér hefði mér þótt fleirtala fara betur. Það er heldur ekki samræmi í ritun orðs- ins sankti/santi, og valdi eg það er oftar sást. Kannski er þarna prentvillupúkinn að stríða? Myndir eru hreint frábærar, ekki aðeins litadýrð, heldur glettni einkenna þær, og þarf list til, að eg sætti mig við aðrar myndir af þeim köpp- um en myndir Tryggva Magnússon- ar við ljóðsögu Jóhannesar úr Kötl- um. Prentverk allt vel unnið. Sig. Haukur. HEIMSFRIÐARSAMBAND FJÖLSKYLDNA I júli sl. var haldinn stofnfundur Heimsfriðarsambands fjölskyldna i Washington D.C., USA. Pátttakendur komu viða að eða frá 148 löndum og kom fram mikill stuðningur við stofnun slíkra samtaka og mikil hvatning kom frá gestum, eins og Georgs Bush og Gerald Ford, fyrrverandi forsetum Bandarikjanna, mrs. Maureen Reagan og mrs. King (ekkju dr. Martins Luther King) ásamt mörgum fyrrverandi þjóðarleiðtogum og öðrum, sem hafa látið til sín taka á alþjóðavettvangi. Nú stendur til að stofna Islands deild þessarar hreyfingar og verður fyrirhugaður stofn- fundur haldinn á Hótel Sögu laugardaginn 30. nóvember nk. og hefst kl. 14.00. Fundurinn er öllum opinn og er yður hér með boöið. Þátttökugjald verður 500 kr. og eru léttar veitingar (kaffi og meðlæti) innifaldar. Tilhögun fundarins verður i stórum dráttum þannig að sýnt verður myndband frá stofn- fundinum i Washington og siðan verða lesnar tvær ræður stofnenda. itadun-fenæland tærðu goða jolagjol tynr þig og aðra. lJunlux spnngdynurumin tra adún-Snæland eru með mjög vönduðu tvöföldu gormakerfi og Jjykkum svampi eða latexi á svefnflötum. Við kjóðum margar gerðir og stærðir. Verð við allra kæfi. -j - Bamaleikföng karnakúsgögn og kin sívinsælu „krúgöld'" með litríku áklæði. Mýbja dýnuna og gæla við [)ig, |)ó að enginn annar geri })að. Lýnum kreinasta keilsulind f; })reytt kak. Skútuvogi 11 • Sími 568 5588 og 581 4655 Opið: Virlea daga 9-18, laugardag 10-14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.