Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 41
AÐSENDAR GREINAR
Barnið þitt
og sjónvarpið
OFBELDI í sjónvarpi
var yfirskriftin á ráð-
stefnu sem haldin var á
vegum útvarpsréttar-
nefndar á Hótel Sögu
19. október sl. Þar voru
mættir fulltrúar hinna
ýmsu samtaka, m.a.
umboðsmaður barna
sem kynnti nýja úttekt
á framboði ofbeldisefn-
is í íslensku sjónvarpi
dagana 2.-15. septem-
ber 1996 sem sýndi að
82% af útsendu efni
Sýnar er bannað börn-
um og inniheldur mikið
ofbeldi. Einnig kynnti
Hjördís Þorgeirsdóttir, formaður
skólamálanefndar HÍK, könnun
sem leiddi í ljós að meira en 90%
ungmenna fá reynslu af ofbeldi
sem gerendur eða þolendur.
Skýrsla umboðsmanns barna
sýnir niðurstöður úr nokkrum
rannsóknum sem unnar hafa verið
m.a. í Bandaríkjunum. Þar kemur
í lós að heimilis- og uppeldisað-
stæður geta átt mikinn þátt í því
hve miklum skaða börn verða fyrir
af sjónvarpsefni. Þrátt fyrir að
mikið sé deilt um hve miklum
skaða ofbeldi í sjónvarpi valdi
börnum og unglinga, eru flestir
sammála um það að vandamálið
er til staðar.
Eins og víða erlendis þar sem
þessi mál hafa verið rædd eða
könnuð áttu fjölmiðlar, í þessu til-
felli íslenska útvarpsfélagið,
nokkra dygga starfsmenn á ráð-
stefnunni sem reyndu að megni
að veija ofbeldisumboð sín. Al-
menningur ætti að varast að taka
of mikið mark á röksemdarfærslu
slíkra aðila eins og Agnesar Jo-
hansen frá Stöð 2. Meðan hún
hélt þvi fram í öðru orðinu að sjón-
varp mótaði mikið þjóðlíf okkar og
menningu, dró hún fram gamlan
og úreltan kommúnistaáróður þeg-
ar hún var að lýsa því að engar
hömlur mættu gilda um hvaða
sjónvarpsefni ætti að framleiða eða
senda inn á heimili okkar. Agnes
er innkaupastjóri barnaefnis hjá
Stöð 2! Ef þessi unga kona er á
þeirri skoðun að sjónvarp móti
þjóðlífið hlýtur hún að vera sam-
mála um það að ofbeldi í sjónvarpi
mótar ofbeldi þjóðlífsins.
Friðrik H. Jónsson, dósent við
Háskóla íslands, sýndi fádæma
ábyrgðarleysi þegar hann fullyrti
í frétt af ráðstefnunni í sjónvarpi,
að sáralítil tengsl væru milli of-
beldis í þjóðfélaginu og ofbeldis í
sjónvarpi. Þessi yfirlýsing gengur
á skjön við skoðun fjölda sérfræð-
inga sem hafa unnið að því að
rannsaka þessi mál. Við vitum
ekki hvort Friðrik starfar hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu en mál-
flutningur hans virðist einkennast
af einhverri hagsmunapólitík sjón-
varpsstöðva. Þó viðurkenndi Frið-
rik að um vandamál væri að ræða
því það kom fram hjá honum að
hægt væri að draga úr skaðlegum
áhrifum á börn af völdum ofbeldis
í sjónvarpi með því að sýna þeim
fram á að aðeins væri um leik að
ræða en ekki alvöru.
Umboðsmaður barna lagði fram
Ástþór Magnússon
nokkrar ágætistil-
lögur til foreldra sem
rétt er að vekja frek-
ari athygli á:
1. Foreldrar eiga
að fylgjast náið með
sjónvarpsnotkun
barna sinna. T.a.m.
eiga foreldrar að
gefa sér tíma til að
horfa a.m.k. á einn
sjónvarpsþátt sem
börnin hafa gaman
af. Með þessu móti
geta foreldrarnir öðl-
ast innsýn í hugar-
heim bamanna og
þar með átt hlutdeild
í „sjónvarpsveruleika“ þeirra.
2. Þegar börnin og foreldrarnir
horfa saman á sjónvarpsþátt sem
hefur að geyma ofbeldisatriði, eiga
foreldrarnir að ræða við börnin um
atriðið, m.a. út frá því sjónarmiði
hvers vegna viðkomandi kaus að
beita ofbeldi. Foreldrarnir eiga áð
benda á hvers vegna ofbeldi má
Ofbeldi í sjónvarpi mót-
ar, segir Astþór Magn-
ússon, ofbeldi í þjóðlífi.
aldrei vera lausn á deilum manna
á milli. Foreldrarnir eiga einnig
að benda börnunum á aðra mögu-
leika sem viðkomandi persóna í
sjónvarpinu gæti gripið til í þeim
tilgangi að leysa deilumál sín.
3. Þegar persóna í sjónvarpinu
verður fyrir barðinu á ofbeldi eiga
foreldrarnir að benda börnunum á
að um „leik“ hafi verið að ræða.
Fórnarlambið er ekki raunverulega
meitt, heldur eru þetta Ieikarar
sem eru að sviðsetja ofbeldisatriði.
Jafnframt eiga foreldrar að benda
börnunum á að ef slíkur atburður
gerist í veruleikanum, myndi fórn-
arlambið vera alvarlega slasað og
gæti jafnvel látið lífið.
4. Þegar atriði sem geta vakið
óhug barna birtast á sjónvarps-
skjánum eiga foreldrarnir hiklaust
að slökkva á sjónvarpinu eða skipta
um rás. Foreldrar geta hreinlega
bannað börnum sínum að horfa á
tiltekinn sjónvarpsþátt. Samhliða
þessu eiga foreldrarnir að útskýra
fyrir börnunum hvers vegna þeir
hafa tekið þessa ákvörðun. Einnig
eiga foreldrar að reyna að beina
sjónvarpsnotkun barna sinna inn á
tilteknar brautir, þ.e.a.s. hvetja
þau til að horfa á þætti sem falla
betur að þroskaferli þeirra, s.s.
heimildarmyndir, myndir sem hafa
visst uppeldisgildi, myndir sem
leggja áherslu á jákvæð samskipti,
hjálpsemi, góðmennsku o.s.frv.
5. Foreldrar eiga óhikað að hafa
samband við aðra foreldra og bera
saman bækur sínar og samhæfa
aðgerðir varðandi sjónvarpsnotkun
barnanna. Skólinn væri kjörinn
vettvangur þar sem slíkir samráðs-
fundir gætu farið fram. Jafnframt
er umhugsunarvert hvort skólinn
ætti ekki að hafa visst frumkvæði
í þessu sambandi.
6. Foreldrar eiga að skammta
börnunum aðgang að sjónvarpinu.
Samhliða þessu eiga foreldrar að
hvetja börnin að vera virkir þátt-
takendur í alls konar heilbrigðum
athöfnum sem fram fer utan
veggja heimilisins, s.s. i íþróttum,
leikjum með vinum, o.s.frv.
A alnetinu er heimasíða til sem
heitir „Screen to Screen". Þetta er
eins konar kvikmyndaeftirlit fyrir
foreldra þar sem hægt er að fá
upplýsingar um fjölda kvikmynda
sem eru á boðstólum hjá hinum
ýmsu sjónvarpsstöðvum, mynd-
bandaleigum og kvikmyndahúsum.
Sem hluta af stærra átaki gegn
vímu og ofbeldi, hefur Friður 2000
í hyggju að framleiða stuttar upp-
lýsingamyndir sem sýndar verði á
undan kvikmyndum er innihalda
ofbeldi. Þessum upplýsingamynd-
um er ætlað að draga úr þeim
skaðlegu áhrifum sem ofbeldis-
myndir geta haft á börn og ung-
menni. Þess er vænst að samstaða
náist um framleiðslu og dreifingu
slíkra upplýsinga og að sjónvarps-
stöðvar og dreifingaraðilar kvik-
mynda á íslandi birti slíkar upplýs-
ingamyndir á undan þeim kvik-
myndum sem innihala ofbeldi er
getur skaðað börnin okkar.
Höfundur er stofnandi Friðar2000.
Hva& er rétt klukka?
í síma 155 er að finna upplýsingar um hvað
rétt klukka er • Opið allan sólarhringinn.
PÓSTUR 06 SÍMI
fltagtsiiÞtafrtfr
- kjarni málsins!
eru komin á alla
útsölustaði
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
Afíi TANNIOGTÚPA
011 Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
fáícMaðÉmð Skúía Síanóen á S&éía&aí
lAl A U I A OD ODn Q L' i’i i a U a Mr rti m ATnr inci l ■ _ D I r I A crr i i/ c- í i n A D □ CTTl i av ki a iit a tii uc II nrvi/r. u I i ■ ■ « .1 n/rr apt a C _ \/ i n c I Á 11 M
JOLAHLAÐBORÐ SKULA HANSEN, MATREIÐSLU-
MEISTARA Á SKÓLABRÚ, ER LÖNGU ORÐIÐ
LANDSÞEKKT FYRIR GÆÐI OG GLÆSILEIKA, EN
HANN ER EINN AF FRUMKVÖÐLUM ÞEIRRA HÉR
Á LANDI. Á MEÐAL RÉTTA Á JÓLAHLAÐBORÐl
SKÚLA MÁ TELJA KALKÚN, SÆNSKA JÓLASKINKU,
RIFJASTEIK, SILDARRETTI, LAX, NAUTATUNGU, REYKTAN AL, HANGIKET, OSTA
OG ÁBÆTISRÉTTI, AUK FJÖLDA ANNARRA HEITRA OG KALDRA KRÁSA.
SKÚLI Hansen OG STARFSLIÐ HANS BJÓÐA YKKUR VELKOMIN Á Skólabrú
Á AÐVENTUNNI. ÞAÐ FER VEL UM EINSTAKLINGA OG HÓPA í ÞESSU
- V IÐ SJAUM
U M KJÖTIÐ
BiiTvmnam
KJÖTVINNSLA
GAMLA, GLÆSILEGA HUSI
í HJARTA BORGARINNAR.
SkólabriL
Veid :
3 hádcyinu fki. 1.95C
á Hv-öldin kx. 2.850
Borðapantan
SÍMA 5624455