Morgunblaðið - 29.11.1996, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 61
FÓLK í
Maður rotar
hund...
Hundleið
á hárinu
► TÍMARITIÐ People Weekly gerði nýlega úttekt á
yngstu stjörnunum í Hollywood, nýrri kynslóð Holly-
woodleikara sem láta sér fátt fyrir bijósti brenna,
leika jafnt í sjónvarpi og kvikmyndum en á árum áður
þótti það ekki viðeigandi að skipta tíma sínum milli
sjónvarpsþáttaleiks og kvikmyndaleiks. Jennifer Anist
on er í þessum hópi en hún er þekktust fyrir leik sinn
í sjónvarpsþáttunum Friends og þykir bera af í kyn-
þokka og glæsileik enda hafa ófáar konurnar rat-
að inn á hárgreiðslustofur með mynd af Anist-
on og beðið um samskonar hárgreiðslu og
hún skartar. „Ég er orðinn hundleið á hár-
inu á mér,“ segir hún hinsvegar í nýlegu
viðtali og leikstjórinn Scott Winant bætir
við að þegar allt kemur til alls verður
sjónum frekar beint að leikhæfileikum
hennar en hárgreiðslu. Hún hefur þeg-
ar leikið í tveimur kvikmyndum; róma-
tísku gamanmyndinni „Til There Was
You“ og nýjasta mynd hennar er
„She’s the One“. Að sögn meðleikara
hennar Marlo Thomas, sem leikur
móður hennar í „Friends" hefur
velgengnin ekki stigið henni til
höfuðs. „Hún er yndisleg," segir
hún. Aniston hefur kynnst
skemmtanaiðnaðinum frá því
hún var barn að aldri því faðir
hennar er leikari í þáttunum
„Days of Our Lives“ og móðir
hennar Nancy er fyrrverandi
fyrirsæta auk þess sem leikar-
inn sköllótti Telly Savalas, sem
lék lögreglumanninn Kojak
við góðan orðstír hér á árum
áður, er guðfaðir hennar.
FRÆGT fólk er flestu vant, hótun-
arbéfum, gargandi stúlkum og ást-
sjúkum körlum. Leikarinn Brad Pitt
vissi hins vegar ekki hvaðan á hann
stóð veðrið þegar hann var að
ganga á ströndinni í Malibu einn
góðan veðurdag og aðdáandi ákvað
að grípa til sinna ráða til að ná
athygli hans.
Viðkomandi þóttist hafa gripið
til mikils kænskubragðs þegar hann
ákvað að komast í tæri við Pitt
gegnum hundinn, sem var með hon-
um á göngunni. Maðurinn henti
spýtu í átt að hundinum í þeirri von
að hann mundi sækja hana. Kastið
heppnaðist hins vegar ekki betur
en svo að spýtan fór í haus hunds-
ins, sem féll í öngvit.
„Þú hefur drepið hundinn minn,“
hrópaði leikarinn örvinglaður.
... og blæs í hann lífi
Aðdáandinn fylltist skömm,
kraup á kné við hundinn og ákvað
enn að taka af skarið. Lagði hann
varir sínar að vitum hundsins og
beitti munn við munn aðferðinni.
Eftir nokkurn innblástur vaknaði
hundurinn til lífsins á ný.
vandamál?
Silicol oi' n;ittunilor)l b.ottotni
sem vinnui gecin óþægindum i
mngn og styrkir bnndveti
liknmnns og bein.
Silicol verknr gegn brjotsvíðn,
nnbit, vnigiim mngns.eriiHtum,
vindgnngi. uppÞembu
og bæði niðurgangi og harðlífi.
Silicol hentar öllum!
Silicol hjálpar
Vinsæiasta heilsuefnið i Þýskolandi, Sviþjóð
og Bretlandi!
Silico! er hrein nóttúruafurð ón hliðarverkona.
Fæst í apótekum.
Sértilboð á gistingu og skemmtun fyrir Norðlendinga, upplögð helgarferð
með fyrirtækið og starfsfólkið og sjá svo Bítlaárin á laugardeginum!
Sala aðgöngumiða er á Hótel íslandi kl. 13-17 daglega. - Nánar auglýst síðar.
Skagfirðingar & Húnvetningar Ijölmenna
í Hótel ísland föstudaginn 29. nóvember nk. kl. 21:00
Stérkostieg skemmtiatriði
MoU.s ///.»I
DPERUKJALLARINN
iillui luli/tii
Hverfisgata 8-!D ■ Sími:5H2 B81II
verða með magnaðan
mambódansleik í Súlnasal á föstudagskvöld.
Snillingurinn Raggi Bjarna verður ekki langt undan
og noíar því tækifærið til að heilsa upp á gesti og taka lagið.
Grípið tækifærið og skemmtið ykkur
í svífandi suðrænni sveiflu í Súlnasal.
Raggi Bjarna og Stefán Jökulsson í góðu
formi á Mímisbar.
-þín sagal