Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 29.11.1996, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996 65- FRUMSYNING: HETJUDÁÐ DENZEL MEG WASHINGTON RYAN ★ ★ ★ Dagsljos ' Ó. H. T. Rás 2 C0URAGE UNDER RE HETJUDÁÐ Dramatísk, vönduö og spennandi stórmynd sem tekur á viðkvæmum málum sem snúast um réttlæti, sannleika og heiöur. Denzel Washington og Meg Ryan eru frábær í krefjandi hiutverkum sinum og má búast við Óskarstilnefningum næsta vor fyrir frammistöðu þeirra í þessari ógleymanlegu mynd. Aðalhlutverk: Denzel Washington, Meg Ryan og Lou Diamond Phillips. Leikstjóri: Edward Zwick (Glory, Legends of the Fall) 3 Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. b.í. i4ára. sími 551 9000 SAKLAUSFEGURÐ Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. £ (j'wyneth íVaCtrotv (P - /jí jtu/ mm Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. atafellan - . d e m i Moore Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. B. i. 14 ára. GENEHACKMAN HUGH GRANT Arnold Schwarzenegger Svana- |»rinsessau THEfSOWP OF DRfÉcftEAU Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. Með hjartað á réttum stað TONIIST tic4sladiskur MEÐSTUÐí HJARTA Geislaplata Rúnars Júlíussonar. Hljóðfæraleikarar: Rúnar Júlíusson bassi, söngur, útsetningar. Tryggvi Hubner gítar, h(jómborð, útsetning- ar. Þórir Baldursson pianó, Hamm- ondorgel, harmonikka. Matthias Hemstock trommur. Ásgeir Óskars- son slagverk, raddir. Daniel K. Cassidy fiðlur. Bubbi Morthens söng- ur í einu lagi. Sverrir Stormsker söngur, píanó og útsetning í einu lagi. Magnús Kjartansson píanó í einu lagi. Kristján Kristjánsson gít- ar, munnharpa og söngur í einu lagi. Pétur Stefánsson gítar í einu lagi. Jens Hansson saxófónn. Jóhann Helgason raddir. Upptökumenn: Jens Hansson, Freyr Guð., Rúnar Júlíusson. Hljóðblöndun: Jens Hans- son, Rúnar Júlíusson. Geimsteinn gefur út 49:02 min. RÚNAR Júlíusson lætur hjarta- aðgerð á fyrri hluta árs ekki aftra sér frá því að sinna köllun sinni í tónlistinni og sendir nú frá sér nýja geislaplötu, Með stuð í hjarta. Nafn- ið er ef til vill tilvísun í hjartakvilla Rúnars, en hitt er víst að veikindi hans hafa ekki breytt því að rokk- hjartað slær enn á sínum stað. Rúnar fer troðnar slóðir á þessari plötu og eflaust þykir einhverjum yngri spámönnum ekki mikið í tón- hstina varið. Þetta er vissulega eng- in unglingatónlist og kannski þarf maður að þekkja til Rúnars og fer- ils hans til að skilja hvað hér er á ferðinni og hafa gaman af. Ég held þó að óhætt sé að fullyrða að tón- listin, sem þarna heyrist, kemur frá hjartanu. A plötunni eru þrettán lög, mis- jöfn að gæðum eins og gengur, og af þeim á Rúnar sjálfur þátt laga- RÚNAR Júlíusson: Rokkhjart- að slær enn á sínum stað. smíð og/eða textagerð í tíu þeirra. Bubbi Morthens semur og syngur til að mynda eitt laganna með Rún- ari, Fæstirfá þaðfrítt, skemmtilega grípandi lag með ábendingum um að fyrr eða síðar þurfi menn að „kvitta fyrir lífsstílinn", eins og það er orðað. Fleiri koma við sögu á plötunni í tónsmíðum og söng, svo sem Sverrir Stormsker í laginu Með eríendum hreim og Kristján Krist- jánsson í I viðjum vanans. Magnús Kjartansson leikur á píanó i lagi sem hann semur með Rúnari, Mað- urínn og hafið, Pétur Stefánsson á gítar í lagi sínu Aðeins nær, og fleiri mætti nefna sem leggja lóð sitt á vogarskálamar. Agætt lið traustra hljómlistar- manna tekur þátt í undirleiknum og þar fínnst mér skilja mest eftir framlag Tryggva Hubner á gítar og hljómborðsleikur Þóris Baldurs- •sonar, einkum þar sem hann fer höndum um Hammondorgelið. Plat- an er í heildina vel unnin og áheyri- leg, þótt í sumum laganna hefði mátt hljóðblanda rödd Rúnars að- eins framar. Hann hefur ekki sterka söngrödd, en hún hefur sinn sjarma og það er kannski það sem skiptir mestu máli, þau hughrif sem Rúnar sjálfur, með sínum „karakter", nær að kalla fram. Mér hefur oftast fundist Rúnari takast best upp þeg- ar hann er í einföldu, hráu rokki og fyrir minn smekk hefði platan mátt vera ögn rokkaðri. En Rúnar fer einnig ágætlega með rólegri lögin eins og írafár, sem er um margt athyglisvert lag og vinnur á. Eins þykir mér ánægjulegt að heyra þarna gamla „lónlí blú bojs- lagið“ Syngjum saman lag eftir þá Rúnar og Gunnar Þórðarson, sem mig minnir að Jensen hafí sungið hér um árið, en það hljómar ekki síður vel úr barka Rúnars. Umslag plötunnar, með textum og skýringum, er fremur erfítt af- lestrar og runglingslegt í leturgerð og það fór dálítið í taugamar á mér að textarnir voru ekki í réttri röð miðað við uppröðunina á plöt- unni. Ég held að það sé góð regla að forðast eftir mætti að storka hlustendum með því að gera þeim erfíðara fyrir að njóta innihaldsins. Þetta eyðilagði þó ekki ánægju mína af því að hlusta á plötuna „Með stuð í hjarta“ því hún er hrein og bein, eins og Rúnar sjálfur, og það sem mestu skiptir: hún kemur frá hjartanu. Slein„ Gnðj6n,son Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson DÚETTINN Tromp á sviðinu á Selinu. * Utgáfutónleikar Tromps ► DÚETTINN Tromp, sem skipaður er þeim Ragnari Karli Inga- syni og Hörpu Þorvaldsdóttur, hélt útgáfutónleika á Selinu á Hvammstanga í síðustu viku i tilefni af útkomu nýs geisladisks dú- ettsins, Minningar. Á diskinum eru flest lög og textar eftir Ragnar Karl en hann hefur leikið í ýmsum hljómsveitum í gegnum árin. Harpa hefur komið fram og sungið við ýmis tækifæri í sinni heima- sveit en hún hefur einnig stundað nám í pianóleik á Hvammstanga. Húsfyllir var á tónleikunum og undirtektir áhorfenda góðar. Nýr geisladiskur Jóga með Kristbjörgu - Jóga fyrir alla Jógastöður - Hugleiðsla - Slökun Tónlist samin og flutt af Guðna Franzsyni Útgárukynning: Jógatími með Kristbjörgu (á morgun) 30. nóvember, kl. 16:00, í sýningarsal Sólon islandus Guðni leikur undir. Komið í þœgilegum fötum með tfppi. Allir velkomnir ifjéðir ö R10 ÚtgcfandS Móðir Jörð, Vallanesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.