Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 51 ÞORDIS HALLDÓRSDÓTTIR + Þórdís Halldórs- dóttir fæddist 23. október 1909. Hún lést 22. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldór Hall- dórsson bóndi í Sauðholti, f. 26. október 1868, og kona hans Þórdís Jósepsdóttir, f. 17. júní 1870 á Asmund- arstöðum í Holtum. Þórdís var ein af 12 systkinum sem öll eru látin nema ein systir Ingibjörg, f. 28. apríl 1903. Þórdís ólst upp í Sauðholti en fór um fermingu á Asmund- arstaði í Holtum til bróður síns Halldórs og var þar í fjögur ár. Eftir það hélt hún til Reykjavík- ur og réð sig í vist og vann á ýmsum heimilum. Hinn 6. apríl 1933 giftist Þórdís Guðmundi Guðmundssyni, f. 6.4. 1905, kaupmanni í Hafn- arfirði, sem kenndur var við Olduna. Þau skiidu árið 1944. Þau eignuðust einn son, Guðmund E. Guð- mundsson (Mugg), f. 8.3. 1934, d. 17.3. 1989. Hann giftist Ýrr Bertelsdóttur, f. 21.3. 1934, en þau skildu. Þórdis giftist Asmundi Steinssyni frá Vestmannaeyjum árið 1946 og bjó þar tii 1952 er þau skildu. Fluttist hún þá aftur til Reykja- víkur og vann ýmis verslunar- störf þar til hún hóf störf í Kjöt- búðinni Borg og starfaði þar í um 30 ár. Síðustu árin bjó hún í Norðurbrún 1. Þórdís eignaðist tvö barnabörn og barnabarna- börnin eru tvö. Utför Þórdísar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú hefur kvatt þessa jarðvist móðursystir mín Þórdís Halldórsdótt- ir. Minningarnar hrannast upp og af mörgu að taka. Fyrstu minningar af þessari uppáhaldsfrænku minni voru hve hún var björt og glæsileg. Hún var svo flott og fín, já, rétt eins og kvikmyndastjama, enda tekið eft- ir henni hvar sem hún fór. Ég var svo lánsamur að fá að vera hjá henni nokkur sumur er ég var á barns- aldri, níu ára. Þetta var á árunum 1949-51 enþá bjó hún í Vestmanna- eyjum, gift Asmundi Steinssyni járn- smið og kunnum markmanni í Eyjum á árum áður. Einnig var sonur henn- ar Muggur á heimilinu. Mér var afar vel tekið í Eyjum og ekki lét Asmund- ur sitt eftir liggja og var auðfundið að hann hafði gaman að þessum nýja Eyjapeyja, enda mjög barngóður maður. Eins og gefur að skilja var margt sem glapti fyrir borgarbarn- inu. Þetta var allt annar heimur og svo margt við að vera, þannig að ekki var alltaf mætt á réttum tíma í mat. Því þurfti stundum að tala við strák en allt á bestu nótum, enda svona aðhald nauðsynlegt. Hitt var svo annað mál að svengd var ekki til að dreifa hjá okkur strákunum því að sjálfsögðu voru þarna garðar með rófum, gulrótum og radísum en það var okkar leyndarmál. Ef eitt- hvað kom fyrir strákinn beið hans frænkan með faðminn sinn hlýja og var hún lagin við að kyssa burt tárin og hugga svo allt varð gott aftur. Vinnusemi frænku var mjög mikil og var eldhúsið hennar í raun bakarí því hún bakaði seydd rúgbrauð og mallaði í pottum allar nætur. Einnig gerði hún þær bestu ijómapönnukök- ur sem til eru. Minn starfi var að fara með framleiðsluna í búðir sem seldu fyrir frænku og var ekki laust við að ég væri öfundaður af því að vera alltaf í þessum kræsingum. A þjóðhátíð fór allt á hvolf í bókstafleg- um skilningi því pönnsurnar voru framleiddar allan sólarhringinn og allar seldust jafnharðan. Er hausta tók og búist var til heimferðar fannst mér nauðsynlegt að fara heim með nokkrar lundapysjur til að sýna í götunni heima. Kvöldið fyrir heim- ferð voru nokkrar fangaðar og var ætlunin að fara með þær heim til Reykjavíkur í skókössum. Vandamál- ið var hvar ætti að geyma þær yfir nóttina og varð úr að geytna þær í stórum opnum kassa á eldhúsgólfinu. Um nóttina höfðu þær komist upp úr kassanum og farið um allt eldhús- ið og skitið út um allt. Frænka tók þessu með jafnaðargeði og sagði þetta allt í lagi en hafa ber í huga að hreinlæti var hennar aðalsmerki og eldhúsið hennar musteri. Það hlýt- ur þvt að hafa verið mikið áfall fyrir hana. Hún minntist aldrei á þetta við mig og hún var ekkert að erfa þetta við strákinn sinn. Árin líða og hún skilur við Ás- mund og flytur suður eins og sagt var, vinnur ýmis verslunarstörf og fer að vinna í Kjötbúðinni Borg og vann þar á meðan kraftar entust, enda vel liðin af vinnuveitanda sínum og viðskiptamönnum. Hún bjó á ýmsum stöðum í borginni, ýmist með systrum sínum Settu og Kötu eða syni sínum Mugg. Á þessum árum var ég hennar yfirsmiður og flutn- ingsstjóri og alltaf var það þannig að hún borgaði margfalt hvert hand- tak og engu tauti við hana kom- andi. Sonur hennar stofnar heimili og eignast dóttur sem ber nafn ömmu sinnar. Má segja að þar hafi komið sólargeisli inn í líf hennar og farveg- ur fyrir ást hennar og umhyggju og eins er fram liðu stundir er langömmuböm komu í þennan heim. Ömmuhlutverkið fór henni vel og í raun fannst mér hún aldrei breytast neitt, það var moli hér og moli þar, alltaf að gefa og hafði gaman af enda fylgdi hugur máli. Líf hennar var enginn dans á rósum og má segja að hún hafi fengið sinn skammt af mótlæti og ríflega það. Þrátt fyrir andstreymi hélt hún sínu striki og bar höfuðið hátt. Aldrei heyrði ég hana kvarta né öfunda neinn en hún sagði ætíð: „Þetta blessast einhvern veginn." Einkasonurinn féll frá 1989 og urðu þá kaflaskil í lífi hennar. Matseld var hennar ástríða og eldaði hún af fíngmm fram ótal kræsingar og var aldrei sparað í efni. Oft hringdi hún og bað mig að koma og smakka það sem hún hafði búið til og útlistaði hvað hún hefði notað. Bara við að tala um matseld lyftist brúnin á henni. Jafnvel er hún nú lá á sjúkrahúsi sagði hún mér frá nýrri uppskrift sem ég þyrfti að prófa. Síðustu árin bjó hún í Norðurbrún 1 og þar hélt hún áfram að hræra í pottum en frænka hélt áfram með sama magnið svo að í staðinn fyrir að elda fyrir einn var skammturinn fyrir fimm til sex. Vinkonur hennar á hæðinni nutu góðs af og var þetta Erfidrykkjur HÓTEL REYKJAVÍK Sigtúni 38 Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550 góður félagsskapur fyrir hana. Sem ung stúlka nýkomin til borg- arinnar hafði hún verið í vist hjá heldra fólki og sagði ætíð að hún byggi að því alla tíð enda var hand- bragð hennar á öllum sviðum mjög til fyrirmyndar. Fætumir fóru að gefa sig, trúlega vegna langrar stöðu á köldu gólfi og einnig vegna mikilla reykinga sem aldrei var hægt að fá hana ofan af. Frænka var mörgum gáfum gædd og man ég sérstaklega eftir frá Eyjaárunum er hún stóð á stofugólfinu og söng fyrir gesti sína að þeirra áeggjan. Að sjá og heyra frænku var meir en lítið ævintýr því litla stofan breyttist höll og þar sátu kóngar og drottningar, hertogar og furstar og allir klöppuðu fyrir henni og mörg aukalög tekin. Ég hef oft hugsað um það síðan hvemig stofan hennar breyttist svona en ég hef ekki fundið neina skýringu á því. Þetta voru meðfæddir hæfileikar auk glæsileikans og hafði fólk á orði að hún hefði átt að fara til náms í söng. Af þeim lögum sem hún söng var henni hugleiknast lagið Dalakofinn enda textinn Dísulegur. Texti Davíðs Stefánssonar er hrein perla og þykir mér rétt að kveðja frænku með tveimur seinni erindunum Og meðan blómin anga og sorgir okkar sofa, er sælt að vera fátækur, elsku Dísa mín, og byggja sér í lyngholti lítinn dalakofa við lindina, sem minnir á bláu augun þín. Ég elska þig; ég elska þig og dalinn, Dísa, og dalurinn og §öllin og blómin elska þig. í norðri brenna stjörnur, sem veginn okkur vísa, og vorið kemur bráðum..., Dísa, kysstu mig. Hafðu þökk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. Magnús Þórðarson. Elsku Þórdís mín. Ég þakka þér fyrir samverustundimar, sem voru alltof fáar. Þú varst svo hreinskilin og heilsteypt. Ég sakna þín. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning þín. Sigríður Sigurðardóttir. Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, faUegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUCLEIÐIR ÍIÓTEL LUFTLEIÐI It t Ástkær móðir okkar, RAGNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Rauðafelli Austur-Eyjafjöllum, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, föstudaginn 29. nóvember. Börn hinnar látnu. t Ástkær eiginmaður, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KRISTINN SKÚLASON, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánudaginn 9. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á heimahlynningu, Skógarhlið 8. Anna Lísa Jóhannesdóttir, Heiðveig Björg Árnadóttir, Kristrún Sigurðardóttir, Jens Þorsteinsson, Elsabet Sigurðardóttir, Hörður Sævar Hauksson, Skúli Sigurðsson, Ragna Þorvaldsdóttir, Erla K. Sigurðardóttir, Bjarki Þ. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖSKULDURÁGÚSTSSON fyrrv. yfirvélstjóri, Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, sem lést sunnudaginn 24. nóvember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. desember, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Oddssjóð á Reykjalundi. Áslaug Ásgeirsdóttir, Ásgerður Höskuldsdóttir, Ólafur Haraldsson, Anna M. Höskuldsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Helga Höskuldsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Áslaug Höskuldsdóttir, Albína Thordarson, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir hlýhug og samúð vegna fráfalls ástkærrar móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, GUÐLAUGAR ÓSKAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sigurborg Þóra Jóhannesdóttir, Iftikar Qazi, Karvel Hólm Jóhannesson, Guðfinna D. Arnórsdóttir, Sturlaug Rebekka Rut Jóhannesdóttir, Godson Anuforo, Kjartan Guðmundsson og barnabörn. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRHALLS SIGURJÓNSSONAR, Hrauntungu 43, Kópavogi. Sigrfður Pétursdóttir og fjölskylda. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts VIKTORS G.A. GUÐMUNDSSONAR veggfóðrarameistara. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 1-A, Landakotsspítala fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Alma Guðmundsson og f jölskylda. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓNÍNU KRISTÍNAR GUNNARSDÓTTUR, Eskihh'ð 8, Reykjavík. Elsa Rúna Antonsdóttir, Eyjólfur Björgvinsson, Gunnar Halldór Antonsson, Anton Eyjólfsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.