Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Aðventuljós-
in tendrað
ASI og BSRB hafa rætt um sameiningu
Stefnt að frek-
ari viðræðum
AÐVENTAN gekk í garð síðast-
liðinn sunnudag og var þá efnt
til hátíðar í flestum kirkjum
landsins. Á myndinni sést Vig-
fús Þór Árnason, sóknarprestur
í Grafarvogskirkju, njóta að-
stoðar nokkurra ungra sóknar-
barna sinna við að tendra fyrsta
ljósið á aðventukransinum í
Grafarvogskirkju.
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður
BSRB, telur mikilvægt að öll sam-
tök launamanna á íslandi sameinist
í ný heildarsamtök launafólks.
Hann segir að umræður hafi farið
fram milli ASÍ og BSRB um sam-
einingu, en viðræðurnar séu ekki
enn komnar inn í markvissan far-
veg.
Bæði Ögmundur og Benedikt
Davíðsson, fyrrverandi forseti ASÍ,
hvöttu til aukins samstarfs laun-
þegahreyfinganna í ræðum sem
þeir fluttu á þingi ASÍ sl. vor. Ög-
mundur sagði að umræður milli
sambandanna hefðu haldið áfram
síðan.
Fleiri samtök komi að málinu
„Það er fullur vilji til þess að
taka upp viðræður verkalýðshreyf-
ingarinnar í heild sinni. Ég tel mjög
brýnt að það verði gert. Því fyrr
sem sú vinna verður markviss og
skipulögð því betra. Það hafa orðið
miklar breytingar á okkar réttinda-
umhverfi. Þau skil sem hafa verið
á milli opinberra starfsmanna ann-
ars vegar og almenna markaðarins
hins vegar hafa verið að minnka.
Mörgum stofnunum ríkisins hefur
verið breytt í hlutafélög. Þetta og
fleira kallar á að verkalýðshreyfing-
in í heild sinni endurskoði skipu-
lagsform sín.
Ég tel mikilvægt að öll helstu
samtök launafólks á vinnumarkaði
komi að þessu, BHMR, Kennara-
samband íslands og Samband ís-
lenskra bankamanna."
Ögmundur sagðist ekki telja að
viðræður um sameiningu þyrftu að
taka mjög iangan tíma. Það væri
hins vegar ljóst að menn tækju
engar endanlegar ákvarðanir fyrr
en að undangengnum rækilegum
umræðum um alla þætti málsins
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Kynferðisbrotamálið á Akureyri
Fjöldi myndbanda
og yfir 1.000 disk-
lingar í rannsókn
VIÐ húsleit hjá manni á sextugs-
aldri á Akureyri, sem játað hefur
kynferðisbrot gagnvart þremur
stúlkum á aldrinum 7, 8 og 9 ára
á Akureyri, fannst verulegur fjöldi
af myndbandsspólum og yfir 1.000
tölvudisklingar, m.a. með klám-
myndum og þar á meðal barna-
klámi. Þá fann lögreglan myndband
þar sem maðurinn hefur kynferð-
ismök við stúlkubörn.
Hann hefur við yfirheyrslur hjá
rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri einnig viðurkennt að hafa
miðlað klámefni til annarra á alnet-
inu. Björn Jósef Arnviðarson sýslu-
maður á Akureyri segir ekki ljóst
hvort maðurinn hafi dreift efni af
myndbandinu sem hann tók af sjálf-
um sér og stúlkunum á alnetið.
Maðurinn var úrskurðaður í 10
daga gæsluvarðhald 21. nóvember
sl. og var gæsluvarðhaldsúrskurð-
urinn síðan framlengdur um 45
daga, eða til 13. janúar nk.
Björn Jósef segir að yfirheyrslur
standi yfir og eins séu í undirbún-
ingi yfirheyrslur yfir börnum. Auk
þess er verið að skoða allt það efni
sem fannst við húsleit hjá mannin-
um, myndbönd og tölvudisklinga.
„Við vitum ekki hvort á öllum þess-
um disklingum og spólum sé ein-
göngu um klámefni að ræða og því
er ómögulegt að segja til um hvað
þessi skoðun á eftir að leiða í ljós,“
sagði Björn Jósef.
Áður grunaður um kyn-
ferðisafbrot gagnvart bcirni
Maðurinn hefur áður verið grun-
aður um kynferðisbrot gagnvart
barni. Hann flutti til Akureyrar frá
Stykkishólmi árið 1992 og hefur
búið þar síðan. Ólafur K. Ólafsson,
sýslumaður í Stykkishólmi, segir
að embættinu hafi borist kæra á
manninn fyrir kynferðisbrot 6. maí
1992 og hafi hún komið frá félags-
málayfirvöldum í Grindavík. Málið
var sent Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins 21. maí það sama ár, sem sendi
málið til ríkissaksóknara, að lokinni
rannsókn. Af hálfu embættisins var
ekki talið tilefni til frekari aðgerða
og ekki var ákært í málinu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru barnaverndaryfirvöld
á Akureyri látin vita af því að
maðurinn hefði verið kærður fyrir
kynferðisbrot til sýslumannsemb-
ættisins í Stykkishólmi, er hann
flutti til bæjarins. Félagsmálayfir-
völd á Akureyri hafa hins vegar
ekki viljað staðfesta það, eða tjá
sig um þetta mál við fjölmiðla.
■ Fjallað um frumvarp/10
Morgunblaðið/Kristinn
Eftirlits-
myndavélar í
Landsbanka
VERIÐ er að setja upp mynda-
tökuvélar í útibúi Landsbankans
við Suðurlandsbraut 18. Alls verð
ur komið fyrir vélum í sjö útibúum
bankans á þessu ári. Friðrik
Weisshappel, forstöðumaður ör-
yggismála Landsbankans, segir
að eftirlitsmyndavélum hafi smám
saman farið fjölgandi í útibúum
bankans frá árinu 1975, en þá var
þeim fyrstu komið fyrir í Banka-
stræti.
Ríkisstj órnin mótar
stefnu í fíkniefnamálum
Höfum margoft bent á nauðsyn eftir-
lits með biðfarþegum, segir yfirmað-
ur fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík
RÍKISSTJÓRNIN tekur líklega
ákvörðun í dag um stefnumörkun og
aðgerðir í ávana- og fíkniefnamálum,
í samræmi við tillögur samstarfs-
nefndar ráðuneytanna. Þorsteinn
Pálsson, dómsmálaráðherra, segir að
með stefnumörkuninni verði tekið á
aðgerðum á vegum tollgæslu og
styrkingu löggæslu.
Þorsteinn sagði aðspurður að ugg-
laust væri það rétt mat hjá Christer
Brannerud, lögregluforingja hjá Int-
erpol, sem ræddi m.a. við íslensk
tollgæslu- og lögregluyfirvöld í síð-
ustu viku, að huga þyrfti að ýmsum
þáttum í toilgæslu og löggæslu.
„Ríkisstjórnin hefur flallað um þessi
mál að undanförnu og ég vænti þess
að lokaafgreiðslunnar sé ekki langt
að bíða,“ sagði dómsmálaráðherra.
Oft bent á nauðsyn eftirlits
Björn Halldórsson, yfirmaður
fíkniefnalögreglunnar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að hann
væri sammála því áliti Christers
Branneruds að hafa þyrfti afskipti
af biðfarþegum á Keflavíkurflug-
velli. „Við höfum margoft bent á
nauðsyn slíks eftirlits, enda eru sann-
anir fyrir því að fíkniefni hafa verið
flutt milli landa með viðkomu á ís-
landi. Elstu dæmi um slíkt eru nokk-
urra ára gömul."
Björn sagði einnig nauðsynlegt að
fylgjast betur með svokölluðu feiju-
flugi, en fjöldi lítilla flugvéla kemur
hér við á flugi yfir hafið. „Það vant-
ar töluvert upp á eftirlit með feiju-
fluginu nú,“ sagði Björn.
Hönnun í samráði
við sérfræðinga
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri, sagði að við hönnun Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar hefði verið leitað
til bandarískra sérfræðinga í örygg-
ismálum og haft fullt samráð við þá.
„Við fáum heimsóknir af og til frá
mönnum, sem starfa á sama sviði
og lögregluforinginn frá Interpol,
sem ég hitti að vísu ekki, og við
höfum aldrei fengið athugasemdir
af því tagi, sem hann setti fram.“
Tveir
stofnar
inflúensu
INFLÚENSA hefur gert vart
við sig hérlendis en þijú tilfelli
voru nýlega greind á veiru-
rannsóknardeild Ríkisspítal-
anna. Tvö tilfelli greindust í
ungum börnum í Reykjavík og
það þriðja í unglingi á Hvols-
velli.
Að sögn Gunnars Gunnars-
sonar sérfræðings á veirurann-
sóknardeild er um að ræða tvo
stofna sem líklega hafa borist
hingað til lands frá Evrópu og
Kanada, „B-stofninn er mun
vægari en A-stofninn en sjúk-
dómseinkennin eru þó svipuð;
hár hiti, bein- og vöðvaverkir,
höfuðverkur og kvefeinkenni,"
sagði Gunnar.