Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 55 FRÉTTIR raESSsp. Pló, > : ''Tl iKsalcfeísíífelSiííiSfeS iTÍÉÍi SIGRÚN Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands (3. f.v.), veitir ásamt Konráði Krisljáns- syni, forstöðumanni Ungmennahreyfingar RKI i Reykjavík, Eggerti Sigurðssyni, formanni Alnæm- issamtakanna og Jóni Brynjari Birgissyni, fulltrúa í stjórn URKÍ, 30.000 póstkortum með ýmsum skilaboðum um alnæmi viðtöku úr hendi Olafs Stolzenwald frá prentsmiðju Guðjóns O. og Jóns Árnasonar frá Auglýsingastofunni Góðu fólki. Alþjóðadagur alnæmis Þrjátíu þúsund borðum og bæklingum dreift í TILEFNI af Alþjóða alnæmisdeg- inum 1. desember hafa Ainæmis- samtökin, Landlæknisembættið, Ungmennahreyfing Rauða kross íslands og Alþjóðleg ungmenna- skipti (AUS) efnt til átaks til að minna á alnæmisvandann, undir kjörorðinu „Ein veröld - ein von“. Felst átakið í dreifingu 30.000 rauðra borða, en Rauði borðinn er alþjóðlegt merki alnæmis, 30.000 bæklinga sem Landlæknisembættið hefur gefíð út um alnæmi og 30.000 póstkorta með ýmsum skilaboðum um alnæmi. Stuðningsaðilar verkefnisins eru Auglýsingastofan Gott fólk, sem gaf hönnun á póstkortunum, Frent- smiðjan Hjá GuðjónÓ, Prentmynda- stofan og Skyggna myndverk. Auk þess hafa Kvennadeild RKÍ og Rauði kross íslands stutt verkefnið. Á sunnudag var haldin messa í Fríkirkjunni í Reykjavík, sem sér- staklega var tileinkuð alnæmissjúk- um. Við messuna flutti kanadísk kona, Jo Going, tónlist eftir bróður sinn sem lézt úr alnæmi fyrir nokkr- um árum. Fjáröflunardansleikur um áramótin Á nýárskvöld munu „Eskimo Models“ standa fyrir fjáröflunar- dansleik til styrktar Alnæmissam- tökunum, þar sem m.a. verður hald- ið uppboð á listaverkum ýmissa listamanna sem gefa verk sín til styrktar málefninu. Alþjóðadag- ur fatlaðra SJÁLFSBJÖRG heldur upp á al- þjóðadag fatlaðra í Kringlunni í dag, þriðjudaginn 3. desember, kl. 16. Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, er stærstu samtök hreyfíhaml- aðra á íslandi og eru félagsdeildir sambandsins 17 talsins um land allt. Sjálfsbjörg stendur fyrir samkomu í dag og leggur þar áherslu á ferlis- mál, auk þess sem margir skemmti- kraftar koma fram. Dagskrá samkomunnar er í aðal- atriðum þessi: Guðríður Ólafsdóttir, formaður Sjálfsbjargar, flytur ávarp, Hörður Torfason syngur nokkur lög, Guðmundur Magnússon, leikari og formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar, afhendir nokkrum fyrirtækjum við- urkenningu fyrir gott aðgengi hreyfi- hamlaðra, Magnús Ólafsson og Val- geir Skagfjörð flytja atriði úr Delerí- um Búbónis, Aðalsteinn Ásberg Sig- urðsson og Anna Pálína Árnadóttir flytja nokkur lög og Hala-leikhópur- inn flytur atriði úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Inni á milli atriða mun Magnús Ólafsson fara með gamanmál. Fyrirlestur um gagnagrunn fyrir íslenskar hjúkrunarrann- sóknir RAGNHEIÐUR Kjærnested, bóka- safnsfræðingur við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri, flytur almennan fyrirlestur um gagnagrunn fyrir ís- lenskar hjúkrunarrannsóknir fimmtudaginn 5. desember kl. 15.30 í fundarsal Norræna hússins. Ragnheiður lauk meistaraprófi í bókasafns- og upplýsingafræðum frá háskólanum í Áberystwyth árið 1995 og var hönnun gagnagrunnsins lokaverkefni hennar þar. Fyrirlesturinn er annar í röð nokk- urra fyrirlestra um rannsóknir og þróun í bókasafns- og upplýsingamál- um sem haldnir eru í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að kennsla hófst í greininni við Háskóla íslands. Jafnrétti kynja STEFANÍA Traustadóttir og Ingólf- ur V. Gíslason hefja umræður um hvernig félagsfræðin geti stuðlað að jafnrétti kynjanna miðvikudaginn 4. desember. Er munur á karla- og kvennarann- sóknum? Er jafnrétti kynja eðlilegt verkefni ríkisvaldsins? Hvernig mið- ar og hverjir eru helstu þröskuldarn- ir? Fundurinn verður haldinn kl. 20.30 í stofu 201 í Odda, segir í fréttatilkynningu frá Félagsfræð- ingafélagi íslands. LEIÐRÉTT 3 til 4 milljónir í FRÉTT af sparnaði hjá Hveragerð- isbæ í framhaldi skipulagsbreytinga var haft eftir Gísla Pálssyni forseta bæjarstjórnar að sparnaðurinn yrði 34 milljónir en það er ekki rétt, hann verður 3 til 4 milljónir. Er beðist velvirðingar á þessum mis- skilningi. Myndavíxl MYNDIR víxluðust milli bókafrétta á bls. 18 í sunnudagsblaðinu. Mynd af Halldóri Guðmundssyni ritstjóra íslenskrar bókmenntasögu birtist með frétt um nýja bók eftir Peter Hoeg og mynd af Haeg birtist með frétt um þriðja bindi bókmenntasög- unnar. Beðist er afsökunar á þessum mistökum. Arkitektar í FRÉTT um nýja verslunar- og þjónustumiðstöð í Rimahverfi sl. laugardag var ranglega sagt að hönnuðirnir, arkitektarnir Gísli Sæ- mundsson og Ragnar Ólafsson, störfuðu hjá Arkitektum TT3, Tún- götu 3. Rétt er að þeir starfa á Arkitektastofunni T4 í Tjarnargötu 4. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Landsbókavörður í FRÉTT í laugardagsblaði sagði að nýr ráðherra skipulagsmála í Nor- egi, Bendik Rugaas, starfaði sem þjóðskjalavörður þar í landi. Þetta er ekki rétt. Rugaas var landsbóka- vörður Norðmanna áður en hann tók við embætti ráðherra af Teije Rod- Larsen. Beðist er velvirðingar á þessari ónákvæmni. Röngmynd í UPPSKRIFTUM að fiskihlað- borði, sem birtust í „Jólamatur, gjafir, föndur" á bls. 40, birtist röng mynd með texta um rækjurétt með grænmeti. Um var að ræða mynd af svokölluðu partípaté en uppskrift að því hafði verið felld út vegna plássleysis. Partípaté 1 dós Campell’s tómatsúpa 1 bolli rjómoostur 5 matarlímsblöð 1 bolli majones ___________Va tsk salt_________ Vá bolli smótt saxað sellerí 1 bolli smótt saxaður laukur 1 bolli smótt saxaóar rækjur Hitið súpuna í potti ásamt rjómaostinum. Mýkið matarlímið í köldu vatni og bætið því út í súp- una. Hrærið þar til allt er bráðnað. Takið pottinn af hellunni og látið kólna. Salti, majonesi, selleríi, lauk og rækjum blandað vel saman við. Hellt í skál eða form og látið standa í kæli yfir nótt. Borið fram kalt með kexi eða brauði. Ur dagbók lögreglu Sex líkamsárásir skráðar um helgina 29. nóv. - 2. des. ALLS voru færð til bókunar 346 mál þessa helgi hjá lögreglunni í Reykjavík. Á fjórða tug manna varð að vista í fangageymslum lögreglunnar vegna ölvunar- ástands. Skráðar voru sex lík- amsárásir þessa helgi, þar af tvær á miðborgarsvæðinu. Umferðarmál 10 aðilar voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Rétt er að minna ökumenn á það að nú þeg- ar tími sérstakra jóladrykkja fer í hönd er nauðsynlegt að gera ráð- stafanir í þá veru að neyslu slíkra veiga fylgi ekki akstur ökutækja. Umferðaróhöpp voru 31 sem kunn voru lögreglu en ekki vitað um nema minniháttar meiðsli á fólki. í einu slíkra mála var aðili sem hafði fengið „lánaðar" núm- eraplötur af öðrum bíl og lent í árekstri. Ekki hefur það heldur bætt stöðu hans að hann er einn- ig grunaður um að hafa ekið und- ir áhrifum áfengis. Þá var ökutæki ekið á tvo staura í Mosfellsdal að morgni laugardags. Ökumaðurinn sem grunaður er um ölvun við akstur er aðeins 16 ára og hefur því ekki hlotið tilskilin leyfi til akst- urs, en hafði fengið bíl foreldra sinna að „láni“. Aðilar teknir við innbrotstilraunir Árvökull borgari tilkynnti lög- reglu um grunsamlegar manna- ferðir við hús í Breiðholti um helg- ina. Voru þjófarnir fjórir saman og höfðu tekið sjónvarp og mynd- bandstæki úr húsi og hugðust komast undan í tveimur hópum. Þetta varð þeim hins vegar ekki ferð til fjár því aliir voru þeir handteknir og gistu fangahús- næði lögreglu. Málið er nú rann- sókn hjá RLR. Gagnrýna hugmyndir Framsóknarflokksins MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun Sambands ungra sjálfstæðismanna um nýjar áherslur Framsóknarflokksins: „Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna furðar sig á þeim ummælum flokksformanns Fram- sóknarflokksins um að stofna beri sveiflujöfnunarsjóði í sjávarútvegi og að ríkið taki til sín aflaheimild- ir. Það vekur furðu að framsóknar- menn skuli vilja hverfa aftur til sjóðafyrirkomulags og aukinna rík- isafskipta sem m.a. komu fram í millifærslukerfi og sjóðasukki. Framsóknarflokkurinn hafði á síð- asta áratug forystu um að koma slíku fyrirkomulagi á sem kostaði þjóðina tugi milljarða og olli þar af leiðandi aukinni kreppu í íslensku efnahagslífi. Loksins nú þegar við erum að byija að njóta ávaxta skyn- samlegrar hagstjórnar leggur Framsóknarflokkurinn til að sögu- leg mistök verði endurtekin með því að beita handafli á markaðsöfl- in. í síðustu kosningum gaf Fram- sóknarflokkurinn kjósendum til kynna að þar færi nýr og betri flokkur sem hefði framsókn en ekki afturhald að leiðarljósi. Nú virðist sem hið gamla andlit Framsóknar- flokksins hafi birst aftur á síðasta flokksþingi hans. Markmið þessarar ríkisstjórnar á að vera að búa íslendingum far- sæla framtíð. Það verður ekki gert öðruvísi en með að auka sam- keppni, minnka ríkisafskipti með einkavæðingu og skattalækkunum og hætta áratuga skuldsetningu ungs fólks. Ungt sjálfstæðisfólk hvetur forystu Framsóknarflokks- ins til að kasta hugmyndum um aukin ríkisafskipti fyrir róða og láta þær ekki ganga í endurnýjun líf- daga.“ Yeglegt rit á 30 ára afmæli MH VEGNA 30 ára afmælis Mennta- skólans við Hamrahlíð hefur nem- endafélag skólans gefið út afmælis- blað. Er það tileinkað minningu Guðmundar Arnlaugssonar, fyrsta rektors skólans, sem er nýlátinn. „Blaðið er gefið út í fimm þúsund eintökum og er 132 síður. Er þar jöfnum höndum fjallað um sögu skólans og nemendafélagsins og núverandi stöðu þess. Viðtöl eru við þekkt fólk sem komið hefur að sögu skólans: Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi kennara, Jakob Frí- mann Magnússon, Benedikt Erl- ingsson og Halldóru Geirharðsdótt- ur, fyrrverandi nemendur. Einnig er talað við forsvarsmenn úr félags- lífinu og hugsanir, skoðanir og ljóð nemenda skólans fá að njóta síns, Eldvarnavika LSS LANDSSAMBAND slökkviðliðs- manna (LSS) hefur árlega efnt til brunavarnaátaks um jól og áramót allt frá árinu 1985. Brunavarna- átakið hófst í gær, Eldvarnadaginn, enda fátt betri spegill skólalífsins. Meðal efnis í blaðinu er könnun þar sem hegðan og háttalag nem- enda var skoðað. í henni kemur m.a. fram að um helmingur nem- enda hefur neytt kanabisefna. Að- eins færri vilja að „væg“ vímuefni verði lögleidd. Einnig vekur athygli — að um 18% nemenda skólans er ósáttur við veru nýbúa á íslandi. Um helmingur er á móti auknum innflutningi útlendinga. Líklegt má telja að ofangreindar niðurstöður verði mörgum áfall enda hefur baráttan gegn vímuefn- um verið ofarlega á blaði undanfar- ið. En ungt fólk hefur margar góð- ar hliðar og ber annað efni blaðsins því stolt vitni,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá MH. sem haldinn er fyrsta mánudag í desember ár hvert og stendur út vikuna undir yfirskriftinni Eld- varnavika. Slökkviliðsmenn munu heim- sækja alla grunnskóla landsins með eldvarnafræðslu. Um er að ræða samstarfsverkefni LSS og slökkviliðanna í landinu. »
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.