Morgunblaðið - 12.01.1997, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Furstadæm-
in hvelja til
sátta við Irak
Forseti Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna hvetur til að samskiptum við
*
Irak verði komið í eðlilegt horf á ný,
skrifar Jóhanna Kristjónsdóttir. Þetta
hefur ekki fengið hljómgrunn hjá
Kúveitum enn þó að Flóaráðsríkin geri
*
sér grein fyrir að mótvægi við Iran sé
nauðsynlegt í þessum heimshluta.
«^baksvið
FORSVARSMENN Sam-
einuðu arabísku fursta-
dæmanna (SAF) hafa
upp á síðkastið hvatt
umbúðalaust til þess að Arabarík-
in við Flóann snúi sér að því að
koma á eðlilegum samskiptum við
stjórnvöld í Bagdad. Þetta hefur
orðið til að skerpa andstæðurnar
milli Furstadæmanna og Kúveit
en það síðarnefnda harðneitar öllu
í þessa átt.
Iranir gætu fyllt upp í
valdatómið ef Irakar eru
endanlega vængstýfðir
Zayed forseti furstadæmanna
stendur þó fast á skoðun sinni,
minnir á að arabar séu bræður
og þetta verði að vinna í samein-
ingu og sýna fulla samstöðu.
Ástæðan fyrir því að orð Zayeds
hafa vakið athygli og menn leggja
við eyru er án efa að forsetinn
hefur getið sér orð á alþjóðavett-
vangi fyrir hófsemd og friðarvilja
og beitt sér ásamt Qaboos soldán
í Óman fyrir því að vekja athygli
á þeirri hættu sem þessum heims-
hluta geti stafað af því ef írakar
eru of veikir hernaðarlega og póli-
tískt séð.
Þó svo að forseti SAF hafi talað
um í hvatningu sinni að það sé
ótækt að íraska þjóðin líði slíkar
þjáningar sem hún hefur gert síð-
ustu árin, draga fáir í efa að
þyngra vegi að Flóaarabar séu
kvíðnir um að veik staða íraks
verði vatn á myllu írana sem stöð-
ugt láti meira að sér kveða og
gætu gripið tækifærið og aukið
mátt sinn á ýmsum sviðum. Jafn-
vel endað með því að ná að fylla
up í valdatómið sem hefur mynd-
ast. Og það vilja Flóaríkin og sjálf-
sagt önnur ríki Araba forðast í
lengstu lög.
íraska þjóðin er
ekki Saddam
Þeim stendur stuggur af írön-
um af ýmsum ástæðum, ekki hvað
síst óttast þeir að þeir styðji í
auknum mæli öfgatrúarsamtök
múslima í öðrum Arabaríkjum. Sá
stuðningur hefur þegar leitt af sér
margvísleg vandkvæði innan Ar-
Morgunblaðið/Jóhanna Kristjónsdóttir.
IRASKA þjóðin er ekki Saddam Hussein. Skólastúlkur í Bagdad.
abaríkjanna og þarf varla að fara
um það mörgum orðum.
Frá því forseti furstadæmanna
setti fram þessa áskorun fyrir
nokkru hefur sambúð þeirra við
Kúveit kólnað verulega. Forystu-
menn þar hafa neitað að hitta
háttsetta sendimenn stjórnarinnar
í Abu Dhabi sem Zayed hefur sent
til Kúveit vegna þessa og segja
að ekki komi sættir við íraka til
mála meðan Saddam Hussein sé
við völd.
Zayed forseti hefur bent á að
það sé rangt að setja samasem-
merid á milli Saddam Hussein for-
seta íraks og írösku þjóðarinnar.
Hún sé saklaus bæði af innrásinni
og síðan efnahagsþvingunum sem
settar voru á írak. Einnig hefur
verið bent á af hálfu stjórnar fur-
stadæmanna að ástandið í írak
sé svo hörmulegt að það sé frá-
leitt að aðrar Arabaþjóðir geti
heiðurs síns vegna horft upp á
ungbörn deyja svo þúsundum
skiptir vegna þess að matur og lyf
hafi ekki verið flutt inn nema í
litlum mæli, sl. ár.
Hlutur hvers írasks borgara
um 230 kr. á mánuði
Kúveitar hafa á móti bent á að
nú þegar írökum hafi verið leyft
að selja olíu á ný, undir eftirliti
að vísu, fyrir 600 milljónir dollara
á sex mánaða fresti, geti írakar
hætt kveinstöfunum og það muni
sýna sig að þeir rétti fljótlega úr
kútnum og geti jafnvel orðið ógn-
un við nágrannaríkin áður en við
sé litið.
En menn þurfa ekki að vera
sérfræðingar í tölum til að reikna
út hvað kemur á endanum í hlut
írösku þjóðarinnar, jafnvel þótt
þess sé gætt í hvívetna með eftir-
liti starfsmanna Sameinuðu þjóð-
anna að allt lendi á réttum stað.
Af þessum 600 milljónum dollara
eru teknar 150 millj. dollara í
stríðsskaðabætur til Kúveits og
aðrar 150 milljónir til Kúrda í
norður írak. Þá eru eftir 300 millj-
ónir handa 15 milljón írökum. Það
er einfalt reikningsdæmi að í hlut
hvers íraka kæmu þá sem svarar
20 dollarar í sex mánuði (eða sem
svarar um 1400 ÍKR eða um 234
kr. á mánuði).
Því liggur í augum uppi að það
mun líða æði langur tími uns írak-
ar gætu orðið ógnarafl í þessum
hluta heimsins. Að því ógleymdu
að hætt er við að ein kynslóð Ir-
aka og ef til vill meira hefur upp
undir það verið þurrkuð út á þess-
um árum sem liðin eru síðan efna-
hagsþvinganirnar tóku gildi.
Stuðningur Zayeds er samt
vatn á myllu Iraka
Þó ekki sé líklegt að hvatning-
arorð Zayeds forseta muni hafa
skjót áhrif í sáttaátt ber flestum
saman um að þau séu móralskur
styrkur við íraka. Það sé augljós
vottur um vilja Flóaríkjanna og
bent á að smáríkið Qatar og Óman
hafi bæði tekið vel í orð hans og
Bahrein ekki fjarri. Þá séu eftir
að löndum Flóaráðsins Kúveit og
Sádi Arabía og það hefur komið
fram að Sádar eru ekki frábitnir
einhvers konar sáttum þó þeir séu
tregari í taumi. Þar með séu Kú-
veitar einir á báti og spurning
hversu lengi þeir geti streist á
móti þróun sem óhjákvæmileg
virðist vera og er þegar hafin.
Utanríkisráðherra SAF Rashid
Abdullah sem er hæstráðandi í
Dubai, næst stærsta furstadæm-
inu hefur einnig látið þau orð falla
að það sé nauðsynlegt að Bagdad
verði á ný öflugt mótvægi við
klerkastjórnina í Teheran „með
eða án Saddams Husseins". Hann
benti á að Iranir hefðu þegar í
frammi tilburði sem væru ógnun
við Flóaríkin en Iran hefur komið
árásarvopnum fyrir á þremur eyj-
um í Flóanum en furstadæmin og
Iran deila um yfirráð yfir þessum
eyjum.
Þá hafa blöð í furstadæmunum
látið til sín taka í þessum umræð-
um, án efa eftir blessun frá stjórn-
völdum og m.a. gagnrýnt Rolf
Ekeus sem hefur haft umsjón með
því að írakar eyðileggi öll árásar-
vopn. Um hann segja þau að hann
virðist fyrir löngu hafa misst alla
dómgreind og fjandskapur hans í
garð íraka gefi til kynna að hann
sé ekki annað en strengjabrúða
Bandaríkjamanna.
Framleiðendur
mjólkurdufts
gagnrýndir
London. Reuter.
HELSTU framleiðendur mjólkur-
dufts fyrir ungabörn eru vændir um
að bijóta reglur, sem Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin (WHO) setti til að
vernda börnin, samkvæmt nýrri
skýrslu frá samtökum um eftirlit
með bijóstagjöf og bera skamm-
stöfunina IGBM.
í skýrslu samtakanna, sem í eru
kirkjur, vísindastofnanir, sérfræð-
ingar í bijóstagjöf og þróunarsam-
tök, sagði að ekki léki nokkur vafi
á að hinn alþjóðlegi staðall um
markaðssetningu staðgengla
bijóstamjólkur væri að engu hafður.
„Framleiðendur og dreifingarað-
iljar eru enn brotlegir við staðalinn
fimmtán árum eftir að hann var
tekinn í notkun,“ sagði í skýrslunni.
Þar eru ýmis fyrirtæki nefnd, þar
á meðal Gerber, sem er dótturfyrir-
tæki Sandoz í Sviss, Mead Johnson,
Nestle, Nutricia og Wyeth.
í yfírlýsingu frá Nestle sagði að
fyrirtækið teldi að allt hefði verið
gert til að starfa í anda og sam-
kvæmt bókstaf hins alþjóðlega stað-
als.
„Við höfum vitaskuld ekki haft
tíma til að bijóta ásakanirnar í
skýrslu IGBM til mergjar," sagði í
yfirlýsingu fyrirtækisins. „En við
munum skoða hveija einustu ásök-
un og gera úrbætur ef þarf.“
Skýrslan, sem var birt á mið-
vikudag, tekur til rannsóknar í
fjórum íöndum, Bangladesh, Pól-
landi, Suður-Afríku og Thailandi.
í öllum löndunum var brotið gegn
staðlinum, sem settur var árið
1981 til að tryggja hættulausa
næringu fyrir börn og ýta undir
bijóstagjöf.
„Konur í öllum fjórum löndum
höfðu fengið upplýsingar í nafni
framleiðanda þar sem mælt var
með gjöf [mjólkurdufts] án þess að
viðurkennt væri að bijóstagjöf væri
besta leiðin til að kornabörn fengju
næringu," sagði í skýrslunni.
Reuter
Olíuleki ógnar kjamakljúfum
Maizuru. Reuter.
STARFSMENN japanskra lyarn-
orkuvera lögðu á föstudag flot-
girðingar við vesturströnd Japans
til að afstýra hættu sem kjarna-
kljúfum stafaði af olíulekanum
frá rússneska olíuskipinu sem
brotnaði í tvennt 2. janúar.
Fimmtán kjarnakljúfar eru
svæðinu og nota sjó í kælingar-
kerfið til að koma í veg fyrir
bráðnun kjarnakleyfra efna í ofn-
unum sem gæti valdið því að
hættuleg geislun slyppi út. Nokkr-
ar olíubrákir stefndu að verunum
og haldi þær sömu stefnu gætu
þær borist þangað um helgina.
Olían myndi ekki hafa áhrif á
kjarnorkuverin ef hún verður
nálægft yfirborði sjávar þar sem
inntakspípurnar eru á fimm
metra dýpi.
Hreinsunarstarfið gengur erf-
iðlega vegna þess að olían dreifð-
ist á mjög stórt svæði. Talið er
að hreinsa þurfi um 450 km
strandlengju.
Suður-Kórea
Bjóða við-
ræður við
verkalýðs-
leiðtoga
Seoul. Reuter.
STJÓRNARFLOKKURINN í Suð-
ur-Kóreu bauðst í gær til að ganga
til viðræðna við leiðtoga verkalýðs-
samtaka um hina umdeildu vinnu-
löggjöf sem hefur leitt til víðtækra
verkfalla í landinu. Er þetta í fyrsta
sinn sem stjórnarflokkurinn sýnir
sáttaviðleitni frá því að verkföllin
hófust, 26. desember.
Talsmaður flokksins, sem ber
heitið Flokkur nýju Kóreu, kvaðst
telja að ósættið vegna vinnulöggjaf-
arinnar byggðist á misskilningi og
vildu flokksmenn eiga viðræður við
verkalýðsleiðtoga til að leiðrétta
hann.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa til
þessa þvertekið fyrir allar málam-
iðlanir í deilunni við verkalýðsleið-
togana og segja verkföllin ólögleg-
Hefur verið gefin út handtökuskip-
un á sjö verkalýðsleiðtoga en fé-
lagsmenn þeirra, vopnaðir jám-
stöngum og kylfum, komu í veg
fyrir handtöku þeirra í gær.