Morgunblaðið - 12.01.1997, Side 12
12 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Yafasamur
athafna-
niaður í
ínnsta hring
Borís Berezovskí er einn valdamesti athafna-
maður Rússlands og seilist nú til pólitískra
áhrifa. Uppgangur hans hefur verið samfara
aukinni glæpastarfsemi í Rússlandi og er
því haldið fram að tengslin þar á milli séu
veruleg.
HANN er einn valdamesti
maður Rússlands og
hann er ekki með
lungnabólgu. Boris
Berezovskí hefur verið umdeildur
frá því að hann fyrst komst í sviðs-
ljósið um 1989. Hann hóf ferilinn
sem bílasali, en er nú orðinn innan-
búðarmaður í Kreml. Hann situr í
öryggisráði Borís Jeltsíns forseta
og var nýlega gerður aðalsamn-
ingamaður Rússlandsstjórnar í við-
ræðum við Tsjetsjena, tók við af
Alexander Lebed eftir að hann var
rekinn á dyr í Kreml.
Berezovskí er fyrirlitinn af jafnt
kommúnistum sem keppinautum
hans í viðskiptum. Auður hans varð
til í umróti efnahagsumbóta í Rúss-
landi. Berezovskí neitar því að eig-
inhagsmunir ráði afskiptum hans
af pólitík. Hann segist vera ný
manngerð í Rússlandi, kaupsýslu-
maðurinn, sem fer út í stjórnmál.
Hlutverk hans sé að breiða út fagn-
aðarerindi umbóta í átt til markaðs-
búskapar og tryggja að þeim verði
haldið áfram.
Berezovskí er sagður vera einn
forkólfa skipulagðar glæpastarf-
semi í Rússlandi og í einu alræmd-
asta glæpamáli landsins beinist
grunurinn helst að öryggisráðgjafa
forsetans.
Það að hann skyldi eiga innan-
gengt í innsta valdahring í Kreml
skýrir að miklu leyti ástandið í
Rússlandi um þessar mundir.
Glæpamenn vaða uppi. Árið 1995
voru 40 þúsund manns myrtir í
Rússlandi og 70 þúsund hurfu
sporlaust. Tíðni morða er þrisvar
til fjórum sinnum meiri en í New
York.
Launmorð og viðskipti
Launmorð eru daglegt brauð í í
rússneskum viðskiptum. Tugir
kaupsýslumanna og fjölmiðlafólks
hafa látið lífið fyrir morðingja-
hendi. ívan Kívelídí, bankamaður
og stofnandi samtaka rússneskra
fyrirtækja, var myrtur árið 1995.
Eitur var borið á kaffibolla hans.
Málið er óleyst eins og önnur þekkt-
ustu launmorðin í Rússlandi.
Boris Berezovskí fer ekki fram
hjá neinum í þessum skuggaheimi.
Hann hélt því fram að ásamt sex
öðrum voldugum kaupsýslumönn-
um stjórnaði hann 50% rússnesks
efnahagslífs.
Grunnurinn að veldi Berezovskís
er Logovaz, stærsta bílasala Rúss-
lands, en það fyrirtæki er aðeins
toppurinn á ísjakanum. Hann stofn-
aði Logovaz í bænum Togliatti við
Volgu fyrir átta árum. Þar er
stærsta bifreiðaverksmiðja Rúss-
lands, Avtovaz. Berezovskí gekk til
samstarfs við Avtovaz og kom á fót
flóknu viðskiptasambandi.
Auk bílasölunnar stjórnar
Berezovskí stærstu sjónvarpsstöð
Rússlands. Yfirráð hans yfir henni
styrktust til muna þegar formaður
sjónvarpsstöðvarinnar var myrtur
að hætti mafíunnar fyrir tveimur
árum. Grunur lögreglu beindist
þegar að Berezovskí, en málið telst
enn óleyst.
í úttekt bandaríska tímaritsins
Forbes á Berezovskí fyrir skömmu
er gefið í skyn að lögreglan hafí
BEREZOVSKÍ hefur verið spyrtur við tsjetsjensku mafíuna. Nú á hann að
tryggja frið í Tsjetsjníju. Hér sést flóttamaður ganga inn í Grozní.
ekki fylgt málinu eftir af ótta við
það hvert slóðin mundi leiða ef
grannt yrði skoðað því að í Rúss-
landi geti glæpamenn áhyggjulausir
gefið laganna vörðum langt nef.
Þeir njóti verndar æðstu ráðamanna
í viðskiptum.
En glæpamennirnir geta einnig
verið forkólfunum nauðsynlegir. I
viðskiptum eins og þau gerast í
Rússlandi á okkar dögum kemur
sér iðulega vel að hafa yfir að ráða
her morðingja og glæpamanna til
að halda frumkvæðinu í spilling-
unni, hvort sem þar er átt við vændi
eða verndarstarfsemi.
Berezovskí segist þó ekki viðriðin
glæpastarfsemi af nokkru tagi.
„Vestrænir fjölmiðlar eru ósann-
gjarnir í lýsingum á Rússlandi,"
sagði hann í viðtali við Forbes.
„Rússneskt viðskiptalíf er ekki sam-
nefnari fyrir mafíuna.“
Tryggði Jeltsín drjúgt fé
Athafnamaðurinn Berezovskí
átti stóran þátt í að tryggja Jeltsín
endurkjör í forsetakosningunum á
liðnu ári. Hann skipulagði stuðning
valdamestu bankastjóra Rússlands
við kosingabaráttu Jeltsíns.
„Það er ekkert leyndarmál að
rússneskir kaupsýslumenn léku lyk-
ilhlutverki í sigri Jeltsíns forseta,“
sagði hann. „Þetta var barátta fyr-
ir tilveru okkar.“
Berezovskí og vinir hans lögðu
allt kapp á að koma í veg fyrir að
kommúnistar sigruðu. Nú er talað
um stórkostlegt misferli í kosninga-
baráttu Jeltsíns og að verið geti að
lagðar verði fram ákærur. Sam-
kvæmt lögum mátti hver flokkur
aðeins veija um 200 milljónum
króna til kosningabaráttunnar. Tal-
ið er að rúmum níu milljörðum hafi
verið varið til kosningabaráttu
Jeltsíns.
Þeir sem leggja háar upphæðir í
kosningasjóði stjórnmálamanna
vænta þess vitaskuld að fá götu
sína greidda. í Rússlandi er lítið
reynt að fela það þegar stuðningur
af þessu tagi er endurgoldinn.
Berezovskí var gerður að aðstoðar-
framkæmdastjóra öryggisráðs
Rússlands, sem hefur með höndum
að samræma stefnuna í hernaðar-
og löggæslumálum.
Með doktorspróf í stærðfræði
Berezovskí ber stöðu sína ekki
með sér. Hann er með doktorspróf
í hagnýtri stærðfræði og kveðst
hafa varið 25 árum í rannsókn
kenninga um ákvarðanatöku við
rússnesku vísindaakademíuna.
Hann virðist óöruggur þegar hann
talar, en er mælskur og patar hönd-
um. Önnur hönd hans ber enn ör
eftir launmorðstilraun fyrir tveimur
árum.
Þegar Avtovaz var stofnað var
ætlunin upphaflega að sjá um hug-
búnaðarkerfi. Berezovskí sneri sér
hins vegar fljótlega að bílasölu og
fjórum árum síðar var hann orðinn
atkvæðamesti sölumaður bílafram-
leiðandans Avtovaz, seldi 10%
framleiðslunnar.
Þótt Berezovskí hafi auðgast er
ástandið bágt hjá Avtovaz. Astæð-
an er meðal annars sú að oft er
bílum stolið í heilu lagi í verksmiðj-
unni og seldir skömmu síðar í bíla-
sölum, sem glæpasamtök reka.
Stolnu bílarnir eru yfirleitt í góðu
ásigkomulagi. Öðru máli gegnir um
bíla, sem pantaðir eru beint frá
Avtovaz eða óháðum bílasölum.
Þeir berast oft með brotnar rúður,
klippta víra og sundurskorna hjól-
barða.
Vafasöm bílaviðskipti
Verðlagningin er þannig að gróð-
inn rennur í vasa bílasalans, ekki
framleiðandans. Avtovaz selur bíla-
sölu dæmigerðan Lödu-fólksbíl á
um 320 þúsund krónur. Bílasalinn
selur hann neytandanum á um 500
þúsund krónur.
Og það er ekki nóg með að bíla-
salinn fá bróðurhlutann af gróðan-
um, hann fær í raun fjárstuðning
framleiðandans. Viðskiptin ganga
þanng fyrir sig að neytandinn þarf
að staðgreiða bílinn, en bílasalinn
þarf ekki að greiða framleiðandan-
um fyrr en eftir á og oft löngu síð-
ar. Þannig hafa bílasalarnir miklar
fjárhæðir annars fólks undir hönd-
um og þegar verðbólga var hvað
mest í Rússlandi gátu þeir grætt á
tá og fingri með því að ávaxta féð.
Á tímabilinu 1992 til 1994 náði
verðbólga oft og tíðum 20% á mán-
uði. Með því að fresta greiðslunni
til Avtovaz um þijá mánuði gat
bílasali fengið bílinn frá Avtovaz á
hálfvirði.
Útistandandi skuldir bílasala við
Avtovaz eru nú tæpir 80 milljarðar
króna, eða um þriðjungur bílasölu
verksmiðjunnar.
Menn kynnu að spyija hvers
vegna Avtovaz reyni ekki að snið-
ganga svikamyllu glæpamanna.
Hún er einföld: forstjóramir fá
umslag fullt af seðlum ef þeir spila
með, en byssukúlu í höfuðið ætli
þeir að draga sig í hlé.
Atkvæðamesti bílasalinn og lykil-
maðurinn í Avtovaz gegnum fyrir-
tæki sitt er Berezovskí.
Útsalan hefst á morgun • Útsalan hefst á morgi