Morgunblaðið - 12.01.1997, Side 22
22 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ÞEIR hlutu Frétta-pýramídana fyrir árið 1996. Frá vinstri: Sig-
urgeir Scheving, Sighvatur Bjarnason, Sigurður Finarsson
og Jón Bragi Arnarsson.
Frétta-pýramídar
afhentir í Eyjum
Stiftamtmannsfrúin, sem vökn-
aði við sjóbaðið á Bessastöðum var
systir Bardenfleths, sem var full-
trúi konungs við endurreisn Al-
þingis árið 1845. Faðir þeirra
Bardenflethssystkina var flotafor-
ingi, háttsettur og handgenginn
við hirð Danakonunga. „Náðug
frúin“ leit mjög stórt á sig.“ Eru
um það margar sögur.
Ludvig Moltke stiftamtmaður
og kona hans eignuðust dóttur
meðan þau dvöldust hér. Dóttir
stiftamtmannshjónanna var vatni
ausin að viðstöddu hefðarfólki ís-
lenskrar embættistignar. Guð-
feðgin telpunnar voru Magnús
Stephensen konferensráð, Isleifur
Einarsson etasráð, Sigurður Thor-
grímssen landfógeti, Ólafur Fins-
en sýslumaður og eiginkonur
þeirra síðat nefndu, Mad. Thor-
grimsen og Mad. Finsen.
Athöfnin fór fram í september
1820. Stúlkan hlaut þrjú nöfn.
Hún var skírð Augusta, Vilhelm-
ine, Thorveiga.
Þess má geta að Grímur Thoms-
en var fæddur sama ár.
„Ágústa Vilhelmína Þórveig
var leikfélagi Ludvigs Knudsens,
afa Óslvalds Knudsens. Til er bréf
um saltfiskkaup Moltkes eftir að
hann fluttist af landi brott. Þar
fara kærar kveðjur milli „liile
Ludvig" og Ágústu Vilhelminu
Þórveigar.
Þegar L.E.C. Moltke er skipað-
ur stiftamtmaður hér á árið 1819
hafði Grímur Jónsson, móður-
bróðir Gríms Thomsens gert sér
vonir um embættið. Það var hveij-
um manni augljóst að vonlaust
var að keppa við umsækjanda svo
göfugrar ættar, auk þess sem
hann naut stuðnings vegna mág-
semdar við ætt handgengna hirð-
inni.
Moltke stiftamtmaður hófst
þegar handa við komuna til ís-
lands. Honum þótti ekki sæmandi
að kúldrast í húsakynnum fyrir-
MOLTKE stiftamtmaður lét í
tið sinni á Bessastöðum
skreyta kirkjuna með skjald-
armerki ættar sinnar. Var þvi
valinn staður yfir kirkjudyr-
unum. Benedikt Gröndal kall-
aði það að taka sér
„bessa“-leyfi.
rennara sinna í embætti. (Þar sem
verslun Haraldar Árnasonar var
síðar). Fékkst samþykki konungs
og stjórnvalda til þess að innrétta
tugthúsið á Amarhóli og breyta
því í Konungsgarð. Eru um það
margar frásagnir samtíðarmanna
hve ötullega stiftamtmaðurinn
ungi, með sinni „náðugu frú“ gekk
fram í innréttingum og fram-
kvæmdum.
í fórum Landsbókasafns og
Þjóðarbókhlöðu eru málverk, sem
greifinn málaði sjálfur og sýna
embættisbústaðinn, lækinn og
næsta umhverfi.
Meðal starfsmanna Moltkes
greifa meðan hann dvaldist hér
var Björn Auðunsson Blöndal, síð-
ar sýslumaður. Hann var skrifari
í Konungsgarði um hríð. Um emb-
ættistíð Moltkes mætti rita langt
mál, en hann hvarf héðan til emb-
ættisstarfa í Danmörku. Stefán
Gunnlaugsson landfógeti var þá
starfsmaður hans um skeið.
Jón Sigurðsson forseti lauk
miklu lofsorði á Moltke fyrir góð-
viljaða fyrirgreiðslu. Greifinn var
þá orðinn sendiherra í Stokk-
hólmi. Þangað fór Jón ásamt Ól-
afi Pálssyni, síðar dómkirkju-
presti, að kanna handrit í eigu
Svía. Moltke hlutaðist til um að
Jón fengi starfsaðstöðu í konungs-
höllinni, og fengi þar gott næði
til starfa. Auk þess hélt hann þeim
félögum dýrlega veislu þar sem
fram voru bornir 12 réttir. Meðan
Jón dvaldist í Svíþjóð gafst honum
kostur á að hlýða á söngkonuna
frægu, Jenny Lind.
Frú Moltke var góður vinur
franska fjölfræðingsins Xavier
Marmier, sem hingað kom árið
1836. Danska skáldið H.C. And-
ersen átti þar einnig alúð og vin-
áttu að fagna.
Að lokinni dvöl í Stokkhólmi var
Moltke skipaður sendiherra í Par-
ís. Um embættisstörf hans þar,
dvöl Gríms Thomsens í þjónustu
Moltkes, velgengni og vonbrigði,
leynimakk og milliríkjadeilur er
mikil saga og áhugaverð.
Höfundur er fyrrverandi
útvarpsþulur
Vestmannaeyjum - Vikublaðið
Fréttir í Vestmannaeyjum afhenti
Frétta-pýramídana svokölluðu í hófi
sem blaðið hélt fyrir skömmu. Blaðið
hefur undanfarin ár afhent aðilum
sem skarað hafa fram úr á ýmsum
sviðum, að mati ritstjórnar þess,
þessa viðurkenningu. Pýramídarnir,
sem nú voru afhentir í sjötta sinn,
voru hannaðir og smíðaðir af lista-
manninum Grími Marinó Steindórs-
syni, en hann hefur smíðað alla
Frétta-pýramídana.
Fjórir aðilar hlutu viðurkenningu
að þessu sinni. Sigurgeir Scheving
fékk pýramídann fyrir framlag sitt
til menningar og lista, en Sigurgeir
hefur verið ein aðal driffjöður Leik-
félags Vestmannaeyja gegnum tíð-
ina.
Jón Bragi Arnarsson knattspymu-
og handknattleiksmaður hlaut pýr-
amídann fyrir framlag sitt til íþrótta-
hreyfingarinnar í Vestmannaeyjum,
en Jón Bragi, sem tilkynnti á liðnu
hausti að hann hefði lagt skóna á
hilluna, á að baki glæsilegan íþrótta-
feril í 20 ár.
Sighvatur Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar,
og Sigurður Einarsson framkvæmda-
stjóri Isfélagsins, hlutu pýramída fyr-
ir framlag sitt til atvinnumála. Þeir
hafa á undanfómum fímm árum
styrkt stoðir fyrirtækja sinna, unnið
að því að snúa vörn í sókn og komið
þeim á bekk meðal öflugustu sjávar-
útvegsfyrirtækja landsins.
Arnar Sigurmundsson stjómar-
formaður Frétta stjórnaði athöfninni,
Ómar Garðarsson ritstjóri lýsti for-
sendum fyrir veitingu viðurkenning-
anna og Gísli Valtýsson fram-
kvæmdastjóri afhenti pýramídana. í
hófinu léku tveir ungir trompetleikar-
ar úr Tónlistarskóla Vestmannaeyja
ásamt gítarleikara nokkur lög og
Kristján Egilsson safnvörður Nátt-
úrugripasafnsins flutti æskuminning-
ar sínar.
Að lokinni afhendingu viðurkenn-
inganna þakkaði Sigurgeir Scheving
þann heiður sem honum hefði verið
sýndur en einnig tóku til máls Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri og Lúðvík
Bergvinsson alþingismaður.
Heimsborgin þar sem bíða þín
veitingastaðir, notaiegirpöbbar,
leiWiús, skemmtistaðir, söfti og
ysmildar verslunargötur.
Vcró frá
27.000kr.
á mann i tvlbýli í 3 daga
Gleðiborgin þar sem þú upplifir
skoska rómantik, ösvikna
kráarstemningu og eftirminnilega
skemmíun.
Vcró írá
21.000kr.
á imum í tvibýli í 2 daga
á Fortc Post House.
á Rlakemorc Hotd
NYJUNG:
Greiða má alla upphæðina með raðgreiðslu.
Raðgreiðslur EURO og VISA til 24 mán.
Ilvcr greiðsla þó að lágmarki 2.500 kr.
Haföu samband við söluskrifstofur okkar, ferðaskrifstofumar eða símsöludeild Flugleiða í síma 50 50100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16).
'Innifalið: flug, gisting mcð moijuvcrði og flugvallarskatlar.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi