Morgunblaðið - 12.01.1997, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga gamanmyndina The First Wives Club,
Sá hlær best sem síðast hlær, með Bette Midler, Goldie Hawn og Diane Keaton í aðalhlut-
verkum. Þessi svefnherbergisfarsi var ein vinsælasta gamanmynd síðasta árs vestanhafs
Hefndin
er sæt
BRENDA (Bette Midler),
Elise (Goldie Hawn) og
Annie Paradise (Diane
Keaton) eiga misheppnuð
hjónabönd að baki. Þær voru vin-
konur í skóla en fóru síðan hver í
sína áttina. Brenda giftist milljóna-
mæringi sem á rafeindafyrirtæki,
Elise varð kvikmyndastjama en
Annie varð húsmóðir í snobbhverfí.
Allar hjálpuðu þær eiginmönnum
sínum að koma undir sig fótunum
og ná efnahagslegri velgengni.
En örlögin haga því svo að vin-
konurnar ná saman á ný eftir að
eiginmenn þeirra allra skilja við
þær á sama tíma til þess að „yngja
upp“. Brenda, Elise og Annie
ákveða að losna undan sársaukan-
um og biturðinni sem höfnunin
veldur þeim með því að úthugsa í
sameiningu ótrúlega djarfa áætlun
um hvemig þær geti hefnt sín á
köllunum.
Þær stofna með sér klúbb, The
First Wives Club, tii þess að hrinda
áætluninni í framkvæmd og lýsa
yfir stríði sem verður háð í mörgum
fínustu fundarsölum og svefnher-
bergjum Manhattan.
Myndin er byggð á fyrstu skáld-
sögu rithöfundarins Olivia Gold-
smith sem sló í gegn og varð met-
sölubók í Bandaríkjunum. Robert
Harling skrifaði kvikmyndahandrit-
ið.
„Hefnd er stór hluti af fléttunni
í þessari mynd,“ segir Goldie
Hawn. „Hefnd er skemmtileg í
gamanmynd en þessar þrjár konur
nota hefndina á jákvæðan hátt til
þess að hjálpa öðrum konum.“
Bette Midler segir hins vegar
að myndin sé fyrst og fremst um
réttlæti. „Hún fjallar svolítið um
hefnd. Ég hugsa að þetta sé saga
sem fjölmörgum fínnst þeir kann-
ast við og telja sig geta tengt sig
við. En hún er fyndin. Það er svolít-
ill boðskapur hér en það er fyndinn
boðskapur, án predikunar.“
Diane Keaton segir að hún hafi
svo oft leikið í alvarlegum myndum
þar sem hún geri ekkert annað en
að tala að hún hafí tekið tveim
höndum þessu tækifæri til að leika
í farsakenndri gamanmynd eins og
þessari. „Maður fær sjaldan tæki-
færi til þess að leika um hefnd.
Það er skemmtilegt."
First Wives Club gerist í New
York og er tekin þar í borg síðastlið-
Meðal aukaleikara í The First Wives Club eru Dan Hedaya,
Bronson Pinchot og Sarah Jessica Parker.
BRENDA (Bette Midler), Elise (Goldie Hawn) og Annie Para-
dise (Diane Keaton) ákveða að ná sér niðri á eiginmönnunum
sem höfnuðu þeim fyrir yngri konur.
inn vetur enda teija kvikmyndagerð-
armennimir, Hugh Wilson, leikstjóri
(Guarding Tess), og Scott Rudin,
framleiðandi (Sabrina, Nobody’s
Fool), að útilokað hefði verið að
gera myndina annars staðar.
Goldie Hawn, Bette Midler og
Diane Keaton urðu góðar vinkonur
við gerð myndarinnar, slúðurblöð-
um New York borgar til sárra von-
brigða. Þegar gerð myndarinnar
var lokið sagði Bette Midler að ef
myndin slægi í gegn þá væri það
gott og blessað en hvemig sem það
yrði, yrði alltaf bjart yfír minning-
unni um samstarfið við þær Goldie
Hawn og Diane Keaton.
Meðal aukaleikara í First Wives
Club eru Maggie Smith, Sarah
Jessica Parker, Dan Hedaya, Bron-
son Pinchot, Stockard Channing
og Elizabeth Berkley.
Gamanleikur er
hennar fag
Leikur, syngxur,
skrifar bækur
VINSÆLAR gamanmyndir á borð við „Housesitter", „Foul
Play" og „Private Benjamin" hafa tryggt Goldie Hawn
sess sem einni vinsælustu gamanmyndaieikkonu í Banda-
ríkjunum. Næsta mynd hennar verður nýjasta mynd Woody
Allens, „Everyone Says I Love You“. Þar með slæst hún
í hóp stallsystra sinna í „First Wives Club“, Bette Midler
og Diane Keaton, sem báðar hafa leikið aðalhiutverk á
móti Woody Allen.
Goldie er fædd í
Maryland og fór að æfa
dans þriggja ára gömul.
Fljótlega fór hún að
koma fram og sautján
ára gömul rak hún eigin
ballettskóla í heima-
bænum Takoma Park.
Hún var enn í fram-
haldsskóla þegar hún
kom fram með atvinnuleikhópi í fyrsta skipti en þá lék hún
Júlíu á móti Rómeó fyrir leikfélag Williamsburg í Virginíu.
Goldie Hawn lærði ieiklist við háskóla og flutti síðan til
New York þar sem hún sló í gegn, fyrst sem dansari og
síðan sem leikari á Broadway. Þaðan hélt hún í sjónvarp
og svo í kvikmyndimar.
Hún sló í gegn þegar hún lék á móti Walter Matthau
og Ingrid Bergman í „Cactus Flower“ en fyrir það hlut-
verk fékk hún Óskarsverðlaun sem besta ieikkona í auka-
hlutverki. Áður hafði hún aðeins leikið í einni kvikmynd,
sú þótti ekki ýkja merkileg og hét „The One and Only,
Genuine, Original Family Band.“
Næstu kvikmyndir hennar voru „Butterflies Are Free“
og „Sugarland Express", fyrsta kvikmynd Stevens Spiel-
bergs í fullri lengd.
Næstu ár iék hún m.a. í „There’s a Girl in My Soup“
og „Shampoo“ á móti Warren Beatty (1975) en tók síðan
tveggja ára hlé frá kvikmyndagerð en sneri aftur tvíefld
þegar hún lék á móti Chevy Chase í hinum ógleymanlega
farsa „Foul Play“. Hún var öðru sinni tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir leik sinn í „Private Benjamin" árið 1980,
en þá mynd framleiddi hún jafnframt.
Næstu ár lék hún m.a. í „Seems Like Old Tirnes", „Best
Friends", „Swing Shift“ og „Protocol". Hún hefur undanfar-
in ár auk leiksins komið talsvert við sögu sem kvikmynda-
framleiðandi, m.a. í myndunum „Wildcats", „Overboard"
og „Criss Cross“. Nýjustu myndir hennar sem leikkonu eru
„Bird on a Wire“ með Mel Gibson og „Deceived".
Goldie Hawn á að baki langt hjónaband með kvikmynda-
stjömunni Kurt Russel.
BETTE Midler er Q'ölhæf og athafnasöm stórstjama sem
hefur hlotið tvær óskarsverðlaunatilnefningar, tvenn
Emmy-verðlaun fyrir sjónvarpsleik, fem Grammy-verðlaun
fyrir tónlist, Tony-verðlaun fyrir leik á sviði og tvenn Gold-
en Globe-verðlaun fyrir kvikmyndaleik.
Midler er fædd og uppalin í Honolulu á Hawaii og ákvað
ung að ámm að eyða ævinni uppi á sviði. Hún fór í leik-
listamám við Hawaii-háskóla og var þar þegar hún fékk
sitt fyrsta kvikmyndahlutverk í mynd George Roy Hill,
Hawaii.
Hún flutti til New
York árið 1965 og áður
en mánuður var liðinn
var hún komin með
hlutverk 5 söngleik.
Fljótlega varð hún stór-
stjarna á Broadway og
um 1970 var hún kom-
in með plötusamning
og hlaut Grammy-verð-
laun sem besti nýi listamaðurinn fyrir fyrstu hljómplötu
sína.
Bette Midler hélt áfram sviðsleik og naut einnig vin-
sælda í sjónvarpi en árið 1979 lét hún til sín taka í kvik-
myndaheiminum með stæl þegar hún hlaut óskarsverðlaun-
atilnefningar fyrir leik sinn í myndinni The Rose, sem var
byggð á ævi rokksöngkonunnar Janis Joplin.
Að því loknu sneri hún aftur til Broadway og lék næstu
ár í kvikmyndum sem ekki fóru ýkja hátt. 1984 hóf hún
hins vegar samstarf við Walt Disney fyrirtækið, sem gefíð
hefur af sér vinsælar gamanmyndir á borð við „Down and
Out in Beverly Hills“, „Ruthles People", „Outrageous Fort-
une“ og „Big Business".
1991 framleiddi Midler auk þess að leika aðalhlutverk
í myndinni „For The Boys“ og fyrir leik sinn þar hlaut
hún óskarsverðlaunatilnefningu öðru sinni auk þess að
vinna Golden Globe verðlaun.
Bette Midler á eigin kvikmyndafyrirtæki, All Girl
Productions, og þar hefur hún gert kvikmyndimar „Beac-
hes“ (þar sem vinsælasta lag hennar Wind Benaeath My
Wings var að fínna), „Stella" og einnig átti hún þátt í að
framleiða myndina „Scenes From The Mall“ þar sem hún
sjálf var í aðalhlutverki ásamt Woody Allen.
En Bette Midler lætur sér ekki nægja að leika, syngja
og framleiða kvikmyndir. Hún hefur skrifað tvær bækur,
„A View from a Broad“ og bamabókina „The Saga of
Baby Divine" en hana skrifaði hún fyrir unga dóttur sína
og eiginmanns síns, Martin Von Haselberg.
Hvað eiga
Woody Allen og-
don Corleone sam-
eiginlegt?
DIANE Keaton er þekktust fyrir langt og farsælt sam-
starf sitt við Woody Allen en á hans vegum hlaut hún
m.a. óskarsverðlaun fyrir leik í titilhlutverki „Annie Hall“.
Auk þess lék hún undir stjóm Allens, sem hún bjó með
um tíma, í myndunum Sleeper, Manhattan, Love and Death
, Play It Again, Sam, Interiors, Radio Days og Manhattan
Murder Mystery.
Að frátöldum myndum Allens er Diane Keaton tvímæla-
laust þekktust fyrir leik
sinn sem Kay Corleone,
eiginkona mafíufor-
ingjans Michaeis Cor-
leone, í myndunum
þremur um Guðföður-
inn.
Diane Keaton er
fædd í Los Angeles en
eins og stöllur hennar
Goldie Hawn og Bette
Midler fluttist hún til New York um tvítugt. Hún fór að
læra leiklist og var m.a. í þeim leikhópi sem fyrstur setti
upp söngleikinn fræga Hárið.
Undanfarin ár hefur Diane Keaton m.a. reynt fyrir sér
sem leikstjóri með eftirtektarverðum árangri. Hún gerði
t.d. myndina Unstrung Heroes, sem sýnd var á síðasta
ári, leikstýrði þáttum í sjónvarpsþáttaröð David Lynch,
Twin Peaks, og hefur gert heimildarmyndir sem vakið
hafa athygli.
Diane Keaton hefur m.a. leikið í myndunum Looking for
Mr. Goobar, Reds, Crimes of the Heart, Baby Boom og
Father of the Bride I og II.