Morgunblaðið - 12.01.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1997 31
-I
í
<
\
(
I
<
I
I
I
Arlington-kirkjugarðinum í Wash-
ington D.C.
Ég er forsjóninni þakklátur fyrir
að hafa átt þess kost að fylgja
þessari indælu frænku minni síð-
asta spölinn og að fá að vera við
hlið þeirra Goldie, Roberts og Ther-
esu á þessari erfiðu stund. Þá hafa
systurnar tvær og fjölskyldur
þeirra á Íslandi misst mikið, en
samband þeirra við Unnu var ætíð
náið. Minningin um góða eigin-
konu, móður og systur mun hjálpa
þeim við að yfirvinna tómleikann,
sem hlýtur að skapast við nýjar
aðstæður. Megi góður Guð hjálpa
þeim í þeirra baráttu.
Guð blessi minningu Guðrúnar
Kristínar Sigurðardóttur.
Guðmundur Jóelsson.
Við Unna vorum systkinabörn.
A þessum tímamótum rifjast upp
margar góðar og skemmtilegar
minningar. Þegar hugurinn reikar
til baka í Sörlaskjólið, ég að passa
systur mína, Margréti, og Unna
að passa systur sína, Jórunni. Unna
flutti síðar í Granaskjól og þá var
ekki lengi verið að hlaupa þangað
eða fyrir Unnu að hlaupa niður í
Sörlaskjól.
Ég átti því láni að fagna að
Unna gat komið í heimsókn tii mín
til Orlando í maí á síðasta ári.
Móðir mín, Kristín, var hér og gát-
um við þijár endalaust spjallað um
gamla og góða tíma.
Sár er söknuður eftir góða vin-
konu.
Guð blessi þig og þína nánustu,
hvíl í friði elsku, Unna mín.
Þín frænka,
Ragnheiður í Orlando,
Flórida.
Orðin úr Rómveijabréfinu (Róm
12.12.) Verið glaðir í voninni, þolin-
móðir í þjáningunni og staðfastir í
trúnni, eru orð sem koma upp í
hugann þegar við minnumst kærrar
vinkonu, Kristínar Golden, konunn-
ar sem hafði mætt veikindum sín-
um af slíku æðruleysi og kjarki að
eftir var tekið. Hún var þolinmóð
og vongóð í þjáningum sínum þrátt
fyrir allt. Það var fyrir einu og
hálfu ári að vart varð þess sjúk-
dóms sem nú hefur lagt hana að
velli langt fyrir aldur fram. Þegar
við heyrðum um andlát hennar urð-
um við harmi slegnar þar sem við
höfðum misst úr hópi íslenskra
kvenna í Virginíu einstaka mann-
eskju sem við sjáum nú á bak. Við
munum minnast hennar sem góðrar
vinkonu sem átti svo mikla hjarta-
hlýju og alltaf var boðin og búin
að rétta hjálparhönd, s.s. að útbúa
veitingar fyrir veislur eins og hún
gerði svo oft af miklum myndar-
skap, bæði allskyns íslenskan mat
og annað, því allt lék í höndunum
á Kristínu sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún hafði búið fjölskyldu
sinni fallegt heimili þar sem yndi
hennar af blómum og öllum fögrum
hlutum kom í ljós. Þau hjónin voru
einstaklega gestrisin og var þá
glatt á hjalla og nutum við þessar-
ar gestrisni þeirra hjóna og munum
við, vinkonur hennar, sakna hennar
úr hópi okkar íslensku kvennanna
sem búum í Hamton, Newport
News og Norfolk, Va.
Systkinum hennar og öðrum
ættingjum á íslandi og í Banda-
ríkjunum sendum við innilegar
samúðarkveðjur þó er mestur miss-
ir hjá eiginmanni og börnum sem
nú sjá á bak yndisiegri eiginkonu
og góðri móður.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og ailt
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ransy Morr, Hampton, Va,
Bryndís McCrainey, Ham-
ton, Va,
Sigga Miolla, Newport
News, Va,
Ninna Snead, Newport
News, Va.
ELIN
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Elín Guðmunds-
dóttir fæddist á
Fossi við Arnar-
fjörð 30. nóvember
1894. Hún lést í
Reykjavík 1. janúar
síðastliðinn. Faðir
Elínar var Guð-
mundur Einarsson
frá Fremri-Gufu-
dal, f. 7. mars 1870,
d. 11. febrúar 1949.
Hann var hrepp-
sfjóri í Suðurfjörð-
um og á Bíldudal
og verslunarstjóri
og kaupmaður á
ísafirði og í Bolungarvík. Ein-
ar Einarsson faðir hans var
hreppstjóri og óðalsbóndi í
Fremri-Gufudal í Barða-
strandarsýslu og síðar á Fossi
í Suðurfjörðum í Arnarfirði,
bróðursonur síra Guðmundar
Einarssonar á Kvennabrekku.
Móðir Elínar var Ingibjörg
Jónatansdóttir, f. 24. mai 1858
í Tungusveit í Strandasýslu,
d. 12. febrúar 1933. Dóttir Jón-
atans Eiríkssonar bónda á
Bálkastöðum í Skarðshreppi
og konu hans Elínar Sakarías-
dóttur Ijósmóður. Ingibjörg
ólst uppi í Þorpum i Stranda-
sýslu lyá móðurbróður sínum
Guðmundi, síðar um tíu ára
skeið hjá Guðlaugu og Torfa
skólastjóra í Ólafsdal.
Elin kynntist eiginmanni
sínum Jens E. Níelssyni í Bol-
ungarvík. Hann var fæddur á
Flateyri við Önundarfjörð 7.
apríl 1888, d. 26. maí 1960.
Foreldrar hans voru hjónin
Elísabet Bjarnadóttir og Níels
Níelsson sjómaður sem lengst
af bjuggu í Bolungarvík. Elín
og Jens giftu sig 2. september
1916.
Elín og Jens eignuðust þijá
syni: 1) Guðmundur, rafvéla-
virkjam., f.v. Iðnskólakennara,
f. 3. júlí 1917, maki Sigríður
Þorkelsdóttir, f. 6. júní 1915,
snyrtifræðingur, Þorkelsson-
ar, f.v. veðurstofuslj. Þau eiga
tvær dætur.
Brypja Rannveig, f. 3. mars
1947, meinatæknir og deild-
arstj. við Tækniskóla íslands,
maki Hafsteinn Skúlason,
læknir, f. 11. mars 1947, þeirra
börn eru fjögur: Jens Páll,
verkfræðingur, f. 18. desem-
ber 1969, maki Hrefna Guð-
mundsdóttir, stjórnmálafræð-
ingur, f. 13. maí 1964, eiga þau
Qögur börn: Sólbjört, f. 29.
júnl 1987 ly'ördóttir, Sigríður
Bryrya, f. 14. júní 1992, Hulda
María, f. 15. apríl
1994 og Ástrós, f.
13. mars 1996. Ás-
laug Sigríður, f. 5.
ágúst 1971, verk-
fræðingur, Hall-
grímur Skúli, f. 22.
júní 1973, og Guð-
mundur, f. 29. ág-
úst 1975.
Elín, semballeik-
ari og píanókenn-
ari, f. 25. apríl 1949,
maki Magnús Jó-
hannsson, prófess-
or við HÍ, f. 8. maí
1942, þau eiga tvær
dætur: Rannveig, f. 14. febrúar
1977, og Helga Kolbrún, f. 6.
febrúar 1980.
Áður átti Guðmundur dóttur:
Sigrún, myndlistarmaður, f. 23.
september 1942, maki Böðvar
Magnússon, bankaútibússtjóri,
f. 9. mars 1940, þeirra börn eru
tvö: Magnús, f. 17. október
1975, og Ingibjörg, f. 12. maí
1977.
2) Skúli, lögræðingur, f. 13.
janúar 1920.
3) Ólafur, verkfræðingur, f.
17. ágúst 1922, maki Margrét
Ólafsdóttir, f. 19. október
1920, H. Sveinssonar, f.v. sölu-
stjóra þjá ÁTVR. Þeirra börn:
Hildur, f. 3. apríl 1949, d. 24.
janúar 1963. Ari eðlisfræðing-
ur, starfar þjá Raunvísinda-
stofnun HÍ, f. 9. ágúst 1950,
maki Karitas Olafsdóttir
sjúkraþjálfari, f. 18. júlí 1955,
þau eiga tvö börn: Margrét, f.
28. júní 1987, Ólafur, f. 13. febr-
úar 1989. Ari átti áður tvö börn
með Hallfríði Maríu Höskulds-
dóttur, f. 2. apríl 1949, Hös-
kuldur Þór, f. 8. október 1971,
og Hildur Björg, f. 5. október
1973. Björg, f. 14. febrúar 1952,
búsett í Bandaríkjunum, maki
Nate Smith, þau skildu. Börn
þeirra fjögur: Nína Nicole, f.
21. ágúst 1984, Lísa, f. 5. nóv-
ember 1985, Trevor Burr, f.
14. desember 1987, og Maía
Michelle, f. 28. júní 1990.
Elin tók mikinn þátt í félags-
lífi f Bolungarvík, bæði í Kven-
félaginu Brautinni og stúkun-
um, sem héldu uppi félagslífi
og skemmtunum á staðnum.
Eftir komuna til Reykjavíkur
starfaði hún m.a. í Góðtempl-
arareglunni og Kvenfélagi
Háteigssóknar og Kvenfélagi
Hallgrírassóknar.
Útför Elínar fer fram frá
Háteigskirkju mánudaginn 13.
janúar og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Látin er Elín Guðmundsdóttir,
102 ára að aldri. Hún og maður
hennar Jens E. Níelsson bjuggu í
Bolungarvík fram til ársins 1938
en fluttu þá suður og voru meðal
stofnenda Bolvíkingafélagsins í
Reykjavík árið 1946. Var það
stofnað í þeim tilgangi m.a. að
halda sambandi við heimahérað
og varðveita sögulegar menjar og
merka atburði. Jens var formaður
þess til margra ára. Bæði voru þau
virk í starfi og unnu gott braut-
ryðjendastarf í þágu félagsins.
Meðal annars unnu þau að útgáfu
blaðsins „Heima er best“ sem kom
út um tíma og má fmna þar marg-
ar áhugaverðar heimildir um Bol-
ungarvík og íbúa staðarins. Marg-
ar ferðir voru farnar á vegum fé-
lagsins og sú fyrsta til Bolungar-
víkur árið 1948.
Elín var félagslynd kona, af-
skaplega tiygg og mikil persóna.
Henni var annt um fyrrverandi
byggðarlag sitt og fylgdist vel með
starfi Bolvíkingafélagsins eftir að
hún sjálf dró sig til hlés. Þannig
lét hún sig aldrei vanta á samkom-
ur á þess vegum, hvort heldur um
var að ræða árshátíðir eða kaffi-
fundi og sópaði þá af henni glæsi-
leikinn sem fyrr. Enda naut hún
virðingar allra sem til hennar
þekktu. Hún var gerð að heiðursfé-
laga Bolvíkingafélagsins árið 1987.
Þegar Elín varð 100 ára fórum
við nokkur úr stjórn Bolvíkingafé-
lagsins og heimsóttum hana. Við
hittum hana hressa og káta og
var hún spurð hver lykillinn að
svona háum aldri og góðri heilsu
væri. Hún svaraði af látleysi en
festu að rólegt geð og það að taka
því sem að höndum bæri væri
meðal þess sem fólk ætti að hafa
í huga. Þannig var viðhorf hennar
til lífsins.
Með þessum línum er Elínu
þakkað fyrir þá elju, áhuga og
tryggð sem hún sýndi Bolvíkinga-
félaginu á langri ævi sinni. Sonum
hennar og fjölskyldum þeirra eru
færðar samúðarkveðjur.
F.h. Bolvíkingafélagsins í
Reykjavík,
Sæbjörn Guðfinnsson,
formaður.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, iang-
amma og langalangamma,
AÐALBJÖRG SKÚLADÓTTIR,
Karfavogi 42,
Reykjavik,
sem lést fimmtudaginn 2. janúar sl.,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 14. janúar kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vilja minnast hennar, er bent á líkn-
arstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Einar Gunnarsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður Meðalholti 17,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
miðvikudaginn 1. janúar, verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju mánudaginn
13. janúar kl. 13.30.
Guðmundur Jensson, Sigriður Þorkelsdóttir,
Skúli Jensson,
Ólafur Jensson
Brynja Rannveig Guðmundsdóttir, Hafsteinn Skúiason,
Elfn Guðmundsdóttir, Magnús Jóhannsson,
Sigrún Guðmundsdóttir, Böðvar Magnússon,
Ari Ólafsson, Karitas Ólafsdóttir,
Björg Ólafsdóttir
og aðrir œttingjar.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HALLDÓR LÁRUSSON
frá Miklabæ,
Gullengi 29,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 14. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er
bent á líknarfélög.
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Guðrún Lára Halldórsdóttir, Óðinn Helgi Jónsson,
Hraf nhildur Halldórsdóttir, Óskar Sigþór Ingimundarson,
Guðmundur Örn Halldórsson, Regfna Jónsdóttir,
Guðlaug Halldórsdóttir, Páll Kristinsson,
Lárus Halldórsson, Gfgja Sveinsdóttir,
Kolbrún Birna Halldórsdóttir, Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓSAFAT HINRIKSSON,
Fornastekk 10,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 14. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast af-
þakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hins látna, er bent á Hjartavernd.
Ólöf Þóranna Hannesdóttir,
Hanna Sigrfður Jósafatsdóttir, Hannes Freyr Guðmundsson,
Atli Már Jósafatsson, Andrea Þormar,
Karl Hinrik Jósafatsson, Hrafnhildur L. Steinarsdóttir,
Birgir Þór Jósafatsson, Jóhanna Harðardóttir,
Smári Jósafatsson, Erna Jónsdóttir,
ívar Trausti Jósafatsson, Arna Kristjánsdóttir,
Friðrik Jósafatsson, Sigrún Blomsterberg,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við fráfall ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
STURLU ÓLAFSSONAR,
rafvirkjameistara,
Súgandafirði.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Sjúkrahúss ísafjarðar.
Guð blessi ykkur öll.
Pálína Pálsdóttir,
Snorri Sturluson, Erla Eðvarðsdóttir,
Sóley Sturludóttir, Jón Erlendsson,
Guðmundína Sturludóttir,
Sturla Póll Sturluson, Ragnheiöur Halldórsdóttir,
Ólafur Þór Sturluson, Marien Sturluson,
Reynir Sturluson, Þórhildur Þórhallsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.