Morgunblaðið - 22.01.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 15
VIÐSKIPTI
Tölvusamskipti hf. flytja hluta starfseminnar til Bandaríkjanna
Ætlað að styrkia mark-
HUGBUNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Tölvusamskipti hf. mun á næstunni
flytja hluta starfsemi sinnar til
Flórída í Bandaríkjunum þar sem
þau hafa stofnað dótturfyrirtækið
Traffic Software USA Inc. Tilgang-
urinn með flutningnum er að færa
þróunarstarfið nær markaðnum,
m.a. í því skyni að örva söluna á
nýjustu afurð fyrirtækisins, skjá-
faxforritinu Object-Fax NT.
Tölvusamskipti hf. voru stofnuð
fyrir tíu árum. Helsta framleiðslu-
vara fyrirtækisins er forritið Skjá-
fax en með því er hægt að senda
skjöl á tölvutæku formi til faxvið-
takanda. Velta fyrirtækisins nam
80-90 milljónum króna á síðasta
ári og um 95% hennar er vegna
útflutnings.
Níu manns vinna hjá Tölvusam-
skiptum og er ætlunin að 3-5 þeirra
fari til starfa á Flórída, þar á með-
al Hallgrímur T. Ragnarsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Segir hann að ásamt honum muni
2-4 forritarar starfa í Bandaríkjun-
um.
Nær markaðnum
„Fyrir er rekin sjálfstæð sölu-
skrifstofa í borginni Boca Raton á
Flórída og nú munum við einnig
flytja hluta þróunardeildar Tölvu-
samskipta þangað. Með því erum
við að flytja þróunarvinnuna nær
hinum risavaxna bandaríska mark-
aði en þar eru helstu sóknarfærin.
Nær öll sala fyrirtækisins er til er-
lendra aðila og því er á margan
hátt nauðsynlegt að staðsetja hluta
starfseminnar erlendis."
Gífurleg samkeppni ríkir á því
sviði sem Tölvusamskipti hafa hasl-
að sér völl á. Segir Hallgrímur að
a.m.k. 100 fyrirtæki vinni nú að
því að þróa skjáfaxforrit en eftir
því sem internetið verði vinsælla
verði samkeppnin óljósari. Hingað
til hefur rúmlega helmingur af sölu
fyrirtækisins verið í Evrópu en stað-
setning dótturfyrirtækisins er valin
með nýjustu útgáfu Skjáfaxins í
huga; Object-Fax NT.
Notfæra sér kosti alnetsins
„Þessi nýjasta afurð okkar not-
færir sér kosti internetsins en það
hefur náð miklu meiri útbreiðslu í
Bandaríkjunum en Evrópu. Forritið
hefur einnig vakið athygli í Asíu
og höfum við m.a. selt það til Kóreu,
Japans, Singapors og Malasíu."
Engar breytingar eru fyrirhugað-
ar á eignarhaldi Tölvusamskipta hf.
en hluthafar eru um 100 og allir
íslenskir.
Áfram með starfsemi á íslandi
Hallgrímur segir að fyrirtækið
verði áfram með starfsemi á íslandi
en töluverðar mannabreytingar
verði hjá því á næstunni, einhveijir
muni hætta en aðrir ráðnir í staðinn
í aukin verkefni. „Enn er margt
óljóst í þessu en í kjölfar flutning-
anna stefnum við að því að auka
þróunarvinnuna og fjölga starfs-
mönnum. Samvinna við stór og lítil
hugbúnaðarfyrirtæki úti í heimi
hefur vissulega oft komið til tals
en við leitum ekki eftir slíku af
fyrra bragði. Við erum þó opnir
fyrir öllum möguleikum.“
NICOLA Horlick, sjóðssljóri.
Horlick berst enn
fyrir máli sínu
Umtöluð afsögn
„ofurkonu“ hjá
Morgan Grenfell
London. Reuter. ^
LÍFEYRISSJÓÐIR, sem skipta við
Morgan Grenfell Asset Manage-
ment, segjast uggandi um áreiðan-
leika MGAM vegna þess að sjóðs-
stjóri lét af störfum hjá fyrirtækinu
fyrir helgi - en segjast ekki munu
grípa til harkalegra gagnráðstaf-
ana.
Afsögn sjóðsstjórans, Nicola
Horlick, hefur vakið mikla athygli,
enda hafði starfslið hennar umsjón
með um 18 milljarða punda lífeyris-
sjóðum í Bretlandi. Þegar hún sagði
af sér hafði fyrirtækið enn ekki náð
sér að fullu eftir brottvikningu ann-
ars sjóðsstjóra, Peters Youngs,
vegna fjármálaóreiðu í fyrra.
Monsoon
flytur á Lauga-
veginum
EIGENDUR verslunarinnar Mon-
soon hafa keypt helminginn af jarð-
hæð húsnæðisins að Laugavegi 66.
Verslunin Monsoon hefur verið til
húsa að Laugavegi 97 en mun flytja
að Laugavegi 66 um mánaðamótin
mars - apríl aðsögn Sigurðar Jens-
sonár hjá Monsoon.
Sigurður segir að verslunarrými
Monsoon á Laugaveginum muni
stækka um helming við flut'ningana
en Monsoon rekur auk þess tvær
verslanir í Kringlunni.
MGAM rak Horlick fyrir samn-
ingsbrot nokkrum dögum eftir að
Robert Smith forstjóri skipaði hana
sjóðsstjóra.
Horlick hefur verið kölluð „ofur-
konan“ í brezkum blöðum og er
35 ára fimm barna móðir. Hún
vill komast að vinsamlegu sam-
komulagi við MGAM að sögn lög-
fræðings hennar, en er reiðubúin
að fara í mál ef samningar nást
ekki.
MGAM er í eigu Deutsche Morg-
an Grenfell, fjárfestingararms De-
utsche Bank í Þýzkalandi. Alls eru
sjóðir þeir sem fyrirtækið hefur
umsjón með urn 70 milljarða punda
virði.
Tilraun til yfirtöku
Lögfræðingar Horlicks og De-
utsche Morgan Grenfell virðast
hafa ræðzt við, en bankinn vill
ekki breyta ákvörðun sinni. Bank-
inn segir að Horlick hafi verið sagt
upp fyrir að reyna stjórna tilraun
hollenzka bankans ABN AMRO til
að taka í raun og veru við rekstri
lífeyrissjóðs MGAM og Horlick
hafi síðan sagt af sér.
DMG neitar að skipa Horlick aft-
ur í stöðu sína eða greiða henni
skaðabætur, því að hún hafí sagt af
sér.
Deutsche Bank kveðst ekki bú-
ast við málaferlum við Horlick.
„Staðreyndir málsins eru ljósar,“
sagðí Rolf Bruer úr stjórn Deutsc-
he sém á að taka við stjórn De-
utsche í maí af Hilmar Kopper.
„Frú Horlick olli bankanum tjóni
með tilraun til að hnupla starfs-
fólki og sagði síðan af sér.
Tietmeyer spáir
2-2,5% vexti 97
París. Reuter.
HANS TIETMEYER seðlabanka-
stjóri segir að mörg Evrópulönd hafí
misst móðinn í efnahagsmálum og
eigi ekki að að bíða eftir sameiginleg-
um gjaldmiðli Evrópu áður en þau
komi efnahagsmálum sínum í lag.
Þessi lönd, þar á meðal Þýzka-
land, hafa verið of sein að gera sér
grein fyrir þörfinni á umbótum til
að jafnast á við vaxandi veldi Asíu,
aukna framleiðslu Austur-Evrópu
og þróttmikla endurnýjun Banda-
ríkjanna, sagði Tietmeyer í viðtali
við International Herald Tribune.
Seðlabankastjórinn sá fyrir sér
2-2,5% hagvöxt í Þýzkalandi, en
bætti því við að kaldur vetur í Evr-
ópu kynni að draga úr batanum á
fyrsta ársfjórðungi.
„Ég held að við séum á bata-
vegi, en við höfum ekki nógu mik-
ið af óstuddum efnahagsbata enn
sem komið er,“ sagði Tietmeyer.
Hann sagði að ríkisstjómir ættu
ekki að tengja þessar bráðnauðsyn-
legu umbætur sameiginlegum evr-
ópskum gjaldmiðli, heldur líta á þær
sem þýðingarmikil skref sem Evrópa
þyrfti að stíga til að verða samkeppn-
ishæfari í heimsbúskapnum.
Sameiginlegur gjaldmiðill getur
leitt til þess að sambandið við doll-
arann og jenið verði í meira jafn-
vægi, ef myntbandalagi fylgja skipu-
lagsbreytingar, sagði Tietmeyer.
Hann sagði að Evrópa yrði að
hrinda í framkvæmd skipulagsbreyt-
ingum á vinnumarkaði til að draga
úr atvinnuleysi, sem hann kvað
„þýðingarmikið mál fyrir framtíð
Evrópu."
Tietmeyer sagði líka að nauðsyn-
legt væri að skýra hlutverk væntan-
legs seðlabanka Evrópu (ECB).
Aukin
umsvif
Marels inn
anlands
MAREL hf. jók enn stórlega hlut-
deild sína á innanlandsmarkaði árið
1996, eða nánast um helming frá
fyrra ári, að því er fram kemur í
frétt frá fyrirtækinu. Fyrirtækið
hefur því ráðið tvo starfsmenn til
að sinna sérstaklega heimamarkaði.
í frétt fyrirtækisins segir að af-
hending heildarkerfa í fiskvinnslur
og vinnsludekk um borð í skip
ásamt flokkarakerfum eigi veruleg-
an hlut í þeirri aukningu sem orðið
hafi á heimamarkaði og á árinu
1997 sé enn gert ráð fyrir veru-
legri aukningu.
Fram kemur að starfsemin hafi
á undanförnum árum þróast úr
framleiðslu voga eða stakra tækja
til fiskvinnslu yfir í að hanna og
framleiða heildstæð tölvustýrð
vinnslukerfi fyrir matvælaiðnað.
Þessi vinnslukerfi spanni allt fram-
leiðsluferlið frá löndun aflans að
pökkun fullunninna afurða.
Þessir tveir starfsmenn hafa ver-
ið ráðnir sérstaklega til þess að
sinna heimamarkaðnum:
• ÓSKAR Óskarsson mun sinna
Suður- og Vesturlandi, Óskar, sem
er rúmlega fer-
tugur að aldri,
hefur starfað hjá
Marel síðastliðið
ár í framleiðslu en
færist nú yfir í
sölu- og markaðs-
deild til að sjá um
sölu á Marelbún-
aði á svæði sem
miðast við Suður- og Vesturland.
Óskar er rafvirki að mennt og hef-
ur margra ára reynslu við verk-
stjórn í fiskvinnslu.
• GUÐJÓN Stefánsson mun
sinna Norður- og Austurlandi. Guð-
jón, hóf störf um
áramót og er með
aðsetur að Hjalt-
eyrargötu 20 í
sama húsnæði og
Slippstöðin á Ak-
ureyri. Hann er
fisktæknir að
mennt og hefur
starfað við verk-
og framleiðslustjórn á Akureyri,
Hornafirði og í Olafsfirði.
Viðhaldsstöð Flugleiða í Keflavík leitar nýrra verkefna erlendis
SAS segir upp
viðhaldssanmingi
SAS hefur sagt upp samningi sínum
við viðhaldsstöð Flugleiða á Kefla-
víkurflugvelli um stórskoðanir á
Fokker 50-vélum. Viðhaidsstöðin
hefur annast sex stórskoðanir á
þessari tegund flugvéla fyrir SAS á
undanförnum tveimur árum og
gerðu samningar ráð fyrir allt að
20 skoðunum.
Guðmundur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri framleiðslusviðs Flug-
leiða sagði í samtali við Morgunblað-
ið að SAS hefði fengið tilboð um
betri heildarlausn í allar skoðanir á
Fokker-vélum félagsins. „SAS var í
ákveðnum vandræðum með minni
skoðanir því það var engan veginn
hagkvæmt að ferja vélamar hingað
tH lands vegna þeirra. Félagið .ákvað
að ganga til saminga við Fokker
Aircraft Services í Hollandi sem var
stofnað á rústum Fokker-verksmiðj-
anna. Þétta fyrirtæki geifíi greinllega
mjög gott tilboð sem SAS taldi sig
ekki geta litið framhjá. Hins vegar
hefur verið mikil ánægja hjá SAS
með þjónustu okkar sem m.a hefur
komið fram í því að við höfum í þrí-
gang sent hóp viðgerðarmanna til
Danmerkur til að gera við vélar og
framkvæma ákveðnar breytingar."
Annast skoðun fyrir Transavia
Viðhaldsstöðin hefur á síðustu
misserum ráðið allmarga flugvirkja
til starfa og segir Guðmundur að
nokkrar ástæður liggi þar að baki.
„Ein höfuðástæðan var sú að við
vildum hraða okkar eigin skoðunum
þannig að ekki þyrfti að leigja vélar
í langan tíma. Flugvirkjar hafa síðan
unnið verulega mikla yfirvinnu tölu-
. Verðan hluta. ársins en hin nýja
vinnutímátilskipun Evrópusam-
bandsins setur þeim skorður. Hug-
myndin með samningnum við SAS
var sú að ná betri nýtingu á viðhalds-
stöðina, þannig að núna þurfum við
að fylla í þær eyður sem hafa mynd-
ast. Við erum því á fullri ferð við
að afla frekari verkefna og erum
þokkalega bjartsýnir á að það tak-
ist.“
Guðmundur segir nánast frágeng-
ið að Flugleiðir muni annast skoðun
á einni Boeing 757-vél hollenska
flugfélagsins Transavia í vor og
hafnar séu viðræður um skoðun á
757-vél sænska félagsins
Transwede. „Þá er framundan í
haust stærsta skoðun á tveimur elstu
737-vélum Flugleiða sem er mjög
tímafrek og umfangsmikil. Það hef-
ur ekki verið tekin ákvörðun um
hvört við framkvæmum þær skoðan-
ir sjálfir, eða; felum öðrum aðilum
að sjá um þær. í útboðsgögnum
okkar er gert ráð fyrir því að um
skiptivinnu'geti verið að ræða, þann-
ig a,ð við fengjum verkefni frá þeim
aðiTa sem tæki áð sér þessar skoðan-
ir fyrir okkur."