Morgunblaðið - 22.01.1997, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 22.01.1997, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR í tilefni 90 ára afmælis KRFÍ UM LEIÐ og minnst er 90 ára afmælis Kvenréttindafélags Is- lands standa kjara- samningar yfir. Því er ekki úr vegi að velta fyrir sér hvernig megi draga úr launamun kvenna og karla hér á landi með aðgerðum aðila vinnumarkaðar- ins. Um 90% allra kvenna á aldrinum 16-74 ára hafa at- vinnutekjur. Meirihluti þeirra er þó í hluta- starfi. Þegar litið er til tekna fullvinnandi karla og kvenna eru tekjur kvenna rúmlega 60% af tekjum karla og hefur hlutfallið lítið breyst síðasta áratuginn. Kannanir hafa leitt í ljós að um 10-20% af þessum mun sé ekki hægt að útskýra með öðru en kynferði. Nokkrir augljósir þættir hafa áhrif á launamun kynja aðrir en lengd vinnutíma. Má þar fyrst nefna kynskiptingu starfa, þá staðreynd að konur bera enn meginábyrgð á heimili og uppeldi barna og ófull- nægjandi úrræði í dagvistar- og skóiamálum bitna á konum. Jafn- framt er það staðreynd að launa- kerfi kjarasamninga kunna að auka á launamun kynja. Þótt kjarasamn- ingar séu ókynbundnir viðhalda þeir því ástandi sem er. Dagvinnukaup er lágt, yfirvinnukaup víðast með 80% álagi á dagvinnukaup. Karlar hafa bætt sér upp lágt dagvinnu- kaup með yfirvinnu. Konur hafa ekki átt þess kost. Ef vægi dag- vinnulauna yrði aukið myndi það stuðla að launajafnrétti. Einnig bæta karlar fremur en konur sér upp lág dagvinnulaun með vakta- skipulagi og aukavinnu sem betur er borguð en dagvinnan. Hvaða Ieiðir má fara í kjarasamn- ingum til að jafna launamun og hver getur hlutur stéttarfélaga verið í því sambandi? Það sem gerir kjara- samninga á almennum vinnumark- aði erfitt tæki til að ná fram launa- jöfnuði kynja er sú staðreynd að þeir kveða á um lágmarkskjör. Öll- um er heimilt í ráðningarsamningi að semja um hærra kaup og betri kjör en kjarasamningar kveða á um. Það sem þó er hægt að gera í kjara- samningi er þó aðallega þrennt: 1. Semja um leiðir fyrir aðila, einstaklinga og hópa, til að bera saman mismunandi störf og kjör og fá leiðréttingar, svo sem með starfsmati eða j afnréttissamningum. 2. Breyta þeim inn- byggðu atriðum kjara- samninga sem auka á launamisrétti, svo sem breytingu á vægi dag- vinnu og yfirvinnu. 3. Bæta félagslegar aðstæður kvenna svo þær geti sinnt störfum sínum á jafnréttis- grundvelli. Starfsmat Samningar um sam- anburð á störfum og kjörum og leiðrétting- ar eru samningar um viðspyrnu. Hægt er með faglegum hætti að bera saman tvö ólík störf. Þessi leið hefur verið farin hér á landi með góðum árangri hjá starfs- mönnum sveitarfélaga og þótt til- gangur þess hafi ekki endilega ver- ið sá að ieiðrétta launamun kynja hefur starfsmatið verið hagstætt konum. Þótt smæð fyrirtækja, lágt taxtakaup og frelsi atvinnurekenda til yfirborgana hafi aðallega komið í veg fyrir starfsmat í einkageiran- um til þessa skora ég á samnings- aðila að íhuga alvarlega þennan kost. Erlendis, t.d. í Kanada og víðar, hafa aðilar vinnumarkaðarins sam- ið sín á milli um starfsmat beinlín- is í þeim tilgangi að bera saman launakjör karla og kvenna og leið- rétta. Sú leið hefur verið farin að í kjarasamningi er samkomulag um að framkvæma starfsmat. Sam- komulagið nær þó ekki til þess að atvinnurekandi skuldbindi sig til að leiðrétta laun á grundvelli mats- ins, heldur þarf að sækja það mál sérstaklega. Nefndir fulltrúa launa- manna og atvinnurekenda í ein- stökum verkalýðsfélögum hafa umsjón með starfsmatinu. Samið er fyrirfram um það hve einstakir þættir í störfum eigi að vega þungt og síðan mæla sérfræðingar störfin á þessari mælistiku með þar til gerðum spurningalistum. Á vegum félagsmálaráðuneytis hefur um nokkurt skeið verið starf- andi nefnd um starfsmat og er for- maður hennar Siv Friðleifsdóttir þingmaður. Þar má eflaust fá góð ráð um frekari útfærslur. J afnréttissamningar í Danmörku hafa aðilar vinnu- markaðarins gert sérstaka jafn- Lára V. Júlíusdóttir Kjaraákvæði í þessa átt, segir Lára V. Júlíus- dóttir, yrðu góð afmæl- isgjöf til hins aldna en síunga Kvenréttinda- félags íslands. réttissamninga. Þar er markmið- um samninganna lýst almennum orðum, s.s. að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði, skipta störfum milli karla og kvenna og starfsmanna- stefna fyrirtækja taki tillit til sam- eiginlegrar foreldraábyrgar. Sam- starfsnefndum fyrirtækjanna sem fjalla um vandamál sem upp koma milli starfsmanna og atvinnurek- enda er falið að fást við vandamál sem tengjast kynjamisrétti sem og önnur vandamál. Í Noregi gera heildarkjarasamningar ráð fyrir að hægt sé í einstökum fyrirtækj- um að semja um jafnréttisáætlan- ir, að fyrirtækin setji sér markmið sem þau skuldbinda sig til að ná innan ákveðins tíma. Afnám innbyggðrar mismununar í kjarasamningum Svo sem að framan er greint eru ýmis atriði kjarasamninga ekki fallin til að auka á jafnrétti milli karla og kvenna á vinnumarkaði. Dæmi um þetta er lágt kaup í dagvinnu, en hátt í yfirvinnu og ósveigjanlegur vinnutími sem tek- ur fyrst og fremst mið af þörfum vinnustaðarins. Hægt er í kjara- samningum að eyða þessum áhrif- um með ýmsu móti, t.d. auka vægi dagvinnulauna. Til að hægt sé að fara þessar leiðir þarf samkomulag innan verkalýðshreyfingarinnar. Ákveðnir hópar hafa hingað til talið að sér vegið með breytingum í þessa átt, jafnvel hafa konur í fiskvinnslu talið að hátt yfirvinnu- kaup sé liður í vinnuvernd þeirra, ella væru þær beðnar um að vinna óheyrilega langan vinnudag. Nýr Prófvarsla í molum í Háskólanum UNDANFARIÐ hefur mikið verið rætt um samkeppnispróf í efnafræði, sem lækna- nemar á fyrsta ári þreyttu í desember síð- astliðnum. Að þessu sinni áttu sér stað margháttuð mistök við prófvörslu og fram- kvæmd prófsins og er málið allt saman Há- skóla íslands til vansa. Meðal þess sem úr- skeiðis fór var að nem- endur í einni af stofun- um, sem próf fóru fram í, fengu lengri tíma til að leysa próf- verkefnin. Nokkrir nemendur hafa nú kært þetta mál til Háskólaráðs og gæti jafnvel farið svo að málið komi til kasta dómstólanna. Þetta mál beinir kastljósinu að fram- kvæmd prófa i Háskóla íslands og er það skoðun undirritaðs að hún sé að miklu leyti í molum. Til hvers er prófað? Próf þjóna ekki til- gangi nema þau upp- fylli ákveðin skilyrði. Þar má meðal annars nefna að nemendur njóti jafnræðis við próftökuna hvað varð- ar tíma og hjálpar- gögn. Þetta er auðvit- að algert lykilatriði þegar um ræðir sam- keppnispróf í líkingu við haustmisserispróf í læknadeild. Lækna- nemar nutu ekki jafn- ræðis í umræddu efna- fræðiprófi og það eitt segir okkur að taka verður niður- stöðu þess með fyrirvara. Háskólinn taki sig á Læknadeildarmálið leiðir hugann að því hvernig framkvæmd prófa er almennt háttað í Háskólanum. Leyfi ég mér að fullyrða að fiestir Tryggva Björn Davíðsson samningur um hámark vinnutíma ætti að draga úr þeirri hættu. Bættar félagslegar aðstæður kvenna Hægt er enn frekar en orðið er að bæta félagslegar aðstæður með gerð kjarasamninga og í tengslum við þá. Atriði eins og lengdur réttur vegna veikinda bama snýr fyrst og fremst að konum. Vemd gegn upp- sögnum sem stafa af fjölskylduástæð- um kvenna hefur ekki verið komið á hér á landi hvorki í kjarasamningum né lögum ef frá em talin lög um fæðingarorlof. Með kvennasamningi Sameinuðu þjóðanna hefur Island skuldbundið sig til að sjá til þess að banna, að viðlögðum viðurlögum, brottvísun úr starfi vegna þungunar eða fjarveru vegna bamsburðar, svo og misrétti varðandi brottvísun úr starfi vegna hjúskaparstöðu. Hér að ofan hefur verið bent á nokkur atriði sem þeir sem nú sitja að samningaborði ættu að taka til umfjöliunar. Kjarasamningsákvæði í þessa átt væra ákjósanleg afmælis- gjöf til hins aldna en síunga Kvenrétt- indafélags íslands. Höfundur er lögmaður og fyrrverandi formaður KRFÍ og framkvæmdastjóri ASI. háskólanemar hafi lent í eða orðið vitni að einhvers konar mistökum, t.d. að prófbækur vanti, misskiln- ingur skapist um próftímann, nem- endum sé átölulaust leyft að sitja lengur o.s.frv. Framkvæmd prófa í Háskólanum verður að taka til gagngerrar endurskoðunar. Af þeim sökum var lögð fram tillaga í Háskólaráði, að frumkvæði Vöku- manna í ráðinu, um að gerð yrði „Háskólinn getur ekki sætt sig við skipulags- leysið, segir Tryggvi Björn Davíðsson, sem birtist í desemberpróf- um í læknadeild. gangskör að endurbótum. Þessi til- laga var einróma samþykkt enda hlýtur það að vera metnaðarmál æðstu menntastofnunar landsins að hafa þessi mál í góðu lagi. Háskóli íslands getur ekki sætt sig við skipulagsleysið sem birtist í efna- fræðiprófinu í desember. Höfundur er í Vöku og er fulltrúi stúdenta í Háskólaráði. Sendiráð í Finnlandi Meðal annarra orða Auðvitað eru fleiri rök fyrir því að setja á stofn íslenskt sendiráð í Helsinki en gagnkvæmnin ein. Njörður P. Njarðvík telur að næsta íslenskt sendiráð ætti að setja á stofn í Helsinki, ÞAÐ vakti athygli margra, þegar Davíð Oddsson forsætisráðherra ræddi á dögunum um stofnun nýrra sendiráða og nauðsyn þess að auka fyrirgreiðslu við íslensk fyrirtæki vegna útflutnings. Nefndi hann sérstaklega Japan í þessu sambandi, enda mikilsvert við- skiptaland okkar, og sagði að búast mætti við gagnkvæmni í þessum efnum. Með öðrum orðum að þess mætti þá vænta, að japanskt sendiráð yrði fljótlega sett á stofn í Reykja- vík. í þessum umræðum var einnig vikið að þeim möguleika að fjölga íslenskum sendiráð- um enn frekar, og vora nefnd lönd eins og Ítalía og Kanada og heimshlutar eins og Suður-Ameríka og Austur-Evrópa. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra nefndi einnig Finnland, og er full ástæða til að huga nán- ar að þvi. Nú era liðin 15 ár frá því að Finnar opn- uðu sendiráð í Reykjavík 1982, og enn hefur ekki bólað á þeirri gagnkvæmni, er Davíð Oddsson gerir ráð fyrir í samskiptum við Jap- an. Auðvitað áttu Finnar von á því, er þeir ákváðu að stofna sendiráð í Reykjavík til að efla samskipti þjóðanna, að íslendingar myndu fljótlega opna íslenskt sendiráð í Finnlandi. Af því hefur þó ekki enn orðið, en stofnað hefur verið nýtt sendiráð í Kína, sem hefur væntanlega vakið nokkra undrun hjá Finnum. Ekki hafa þeir þó kvartað, að minnsta kosti ekki opinberlega. Eigi hins vegar að stofna fleiri sendiráð án þess að huga að gagn- kvæmni í diplómatískum samskiptum við vina- þjóð okkar í Finnlandi, þá hlýtur það að vekja nokkra athygli, ekki aðeins þar, heldur einnig hjá öðrum þjóðum, sem hafa opinber sam- skipti við okkur íslendinga. Engin upplýsingamiðlun Auðvitað era fleiri rök fyrir því að setja á stofn íslenskt sendiráð í Helsinki en gagn- kvæmnin ein. Þótt það kosti nokkurt fé að opna sendiráð í Finnlandi, þá getur það líka kostað sitt að hafa þar enga fulltrúa og enga upplýsingamiðlun. Samskipti þjóðanna hafa aukist umtalsvert frá árinu 1982. Þórður Einarsson, fyrrverandi sendiherra, í Stokk- hólmi hefur margoft sagt mér, að sendiráðið þar réð ekki vel við að sinna málefnum Finn- lands. Og aðalræðismaður íslands í Helsinki segir, að kjörræðismaður ráði engan veginn við nauðsynleg samskipti enda eru það ólaun- uð hjáverk. Innflutningur frá Finnlandi hefur aukist jafnt og þétt og þar skipti fínnska sendiráðið hér án efa miklu. Aftur á móti er ekki sömu sögu að segja um útflutning okkar til Finn- lands og ferðir Finna til íslands. Það er raun- ar skiljanlegt. Hvert eiga þeir Finnar að snúa sér, sem vilja kaupa vörur frá íslandi, ferð- ast til íslands eða kynnast íslenskum menn- ingarmálum? En þrátt fyrir þennan tilfinnan- lega skort á upplýsingum, hafa Finnar sýnt islenskum málefnum mikinn áhuga. Haldnir hafa verið íslenskir menningardagar í Finn- landi, og miklu fleiri íslenskar bækur eru þýddar á finnsku, en finnskar bækur á ís- lensku. Má þar t.d. nefna útgáfu Otava á íslendinga sögum í þýðingu Antti Tuuris, sem er hreint brautryðjendastarf. Hann hefur nú þegar þýtt Egils sögu og Njáls sögu, og er tekinn til við að þýða Grettis sögu. Einlæg vinaþjóð Finnar eru mjög einlæg vinaþjóð okkar íslendinga og í raun sú eina af sjálfstæðum þjóðum á Norðurlöndum, sem er eðlilegt að líta á okkur sem jafningja. Hinar þijár eiga í sannleika sagt fremur erfitt með það í reynd. Þegar til kastanna kemur, hættir þeim tala til okkar eins og krakka vegna þess sem þær kalla smæð en við fámenni. Á því örlar aldr- ei hjá Finnum. Eðlislæg vinátta þeirra veldur því, að allt sem íslenskt er, hefur sérstakan meðbyr. Við höfum hins vegar ekki nýtt okkur þann meðbyr á meðvitaðan hátt. Og á því þarf að verða breyting. Allir vita að menningartengsl eru ákaflega þýðingarmikil í samskiptum þjóða og leiða af sér annars konar tengsl og þar á meðal verslunartengsl. Upplýsingamiðlun vekur for- vitni og svarar forvitni, og þrátt fyrir alla nútíma tækni í fjarskiptum koma þau aldrei i staðinn fyrir mannleg samskipti, þar sem menn horfast í augu. Það eru lifandi sam- skipti sem eru miklu áhrifameiri en nokkur tækni. Því er brýnt nú, þegar hugað er að því að efla utanríkisþjónustu okkar, sem vissulega er nauðsyn, að gleyma ekki gagn- kvæmnisskyldu okkar við vini okkar í Finn- landi. Og svo má bæta því við sem mikilsverðum rökum, að frá Helsinki er auðveldara að sinna málefnum Eystrasaltsríkjanna þriggja, held- ur en að skipta þeim á milli tveggja sendi- ráða í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Við höfum sýnt sjálfstæðisbaráttu þeirra mikinn áhuga, stutt þær með viðurkenningu á rétti þeirra til frelsis og haldið áfram að reyna að fylgjast með þróun þeirra. í Helsinki er hægur vandi að fylgjast með málum í þessum ríkjum, þar sem finnskir íjölmiðlar sinna þeim mikið, og styttra og auðveldara að fara þangað. Það hníga því öll rök að því, að næsta íslenskt sendiráð ætti að setja á stofn í Hels- inki. Höfundur er prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.