Morgunblaðið - 22.01.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 35
IGL ÝSINC ^AR
Kvenfataverslun
Snyrtilegur og vanur starfskraftur óskast í
kvenfataverslun. Æskilegur aldur 25-40 ára.
Vinnutími frá kl. 12-18.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
27. janúar, merktar: „Reynsla - 900“.
Öldrunarlæknir
Staða öldrunarlæknis við Sólvang í Hafnar-
firði er laus til umsóknar.
Um er að ræða 50% starf.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu, sendist forstjóra Sólvangs
fyrir 8. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veita Bragi Guðmunds-
son, yfirlæknir, og Sveinn Guðbjartsson,
forstjóri, í síma 555 0281.
Vegna stóraukinna umsvifa hjá Tækni- &
tölvudeild Heimilistækja hf. leitum við að
drífandi og framsæknum starfsmönnum,
sem tilbúnir eru að takast á við spennandi
störf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Tölvubúnaður - söluráðgjafi
Óskum eftir að ráða söluráðgjafa með mikla
reynslu til að selja tölvur og netbúnað til
fyrirtækja og stofnana.
Viðkomandi þarf að hafa yfirgripsmikla þekk-
ingu og reynslu á þessu sviði og vera hæfur
til að aðstoða viðskiptavini við tölvuvæðingu
fyrirtækja.
í dag starfa þrír starfsmenn við sölu tölvu-
búnaðar frá m.a. Laser, Acer, Philips, HP,
Multitec, Microsoft og Garrett.
Hugbúnaðarsérfræðingur
- Fjölnir/Navision Financials
Vegna fjölda verkefna á þessu sviði óskum
við eftir að bæta við okkur fleiri hugbúnaðar-
mönnum með mikla reynslu á sviði hugbún-
aðar. Áhersla er lögð á skipulögð og sjálf-
stæð vinnubrögð, þjónustulipurð og þægi-
lega framkomu.
Sfmstöðvar - söluráðgjafi
Óskum eftir að ráða söluráðgjafa til þess að
selja símkerfi, símstöðvar og annan síma-
búnað til fyrirtækja og stofnana.
Reynsla af uppsetningu og þjónustu sím-
stöðva og þekking á ISDN umhverfi er mik-
ill kostur. Sölustarfið fer fram með tilboða-
gerð og heimsóknum til væntanlegra við-
skiptavina.
í dag starfa 3 starfsmenn við sölu símabún-
aðar hjá Heimilistækjum. Fyrirtækið selur
lausnir á þessu sviði frá Philips, Ascom og
Hybrex.
Ljósritunarvélar - söluráðgjafi
Óskum eftir að ráða söluráðgjafa til að selja
Infotec Ijósritunarvélar og faxtæki til fyrir-
tækja og stofnana.
Um er að ræða sölustarf, sem að mestu fer
fram með heimsóknum til væntanlegra við-
skiptavina. Reynsla í sölu Ijósritunarvéla er
nauðsynleg.
Upplýsingar gefa Gunnar Halldórsson, deild-
arstjóri tækni- og tölvudeildar, og Einar Örn
Birgisson, sölustjóri símabúnaðar.
Áhugasamir vinsamlegast sendi skriflegar
umsóknir, merktar viðkomandi starfi, til
Heimilistækja hf., Sætúni 8, 105 Reykjavík.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
(Nl
Heimilistæki hf
T/EKNI-OC TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 SlMI 5691500
Gluggatjaldaverslun
Sníða- og saumastarf
Verslunin Áklæði og gluggatjöld óskar eftir
að ráða starfsfólk til sníða- og saumastarfa.
Um er að ræða hlutastarf á saumastofu frá
kl. 9-13 eða eftir nánara samkomulagi.
Aukavinna á álagstímum.
Upplýsingar á staðnum.
Áklæði og gluggatjöld,
Skiphotli 17a,
Reykjavík.
Starfsmaður
Neytendasamtökin óska eftir að ráða starfs-
mann ti1 að sinna verkefnum á sviði sam-
keppnismála og kannanna.
Óskað er eftir manni með menntun á háskóla-
stigi, t.d. rekstrar-, viðskipta- eða hag-
fræðingi.
í umsókn skulu m.a. koma fram upplýsingar
um menntun og fyrri störf og skal þeim skil-
að eigi síðar en 31. janúar nk. á skrifstofu
Neytendasamtakanna, Skúlagötu 26, Reykjavík,
eða senda í pósthólf samtakanna nr. 1096,
121 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri,
í síma 562 5000.
Neytendasamtökin.
Heilsugæslustöð
Norður-Þingeyjarsýslu
Staða heilsugæslulæknis með aðsetur á
Raufarhöfn er laus til umsóknar frá 1. apríl
1997 eða síðar eftir samkomulagi.
Staðan telst H1 staða, en í gildi er samstarfs-
samningur við nágrannastaðina Þórshöfn og
Kópasker um vinnu- og vaktafyrirkomulag,
þannig að möguleikar á lengri fríum eru góðir.
Þetta er því kjörið starf fyrir lækni, sem vill
vinna mikið en eiga góð frí á milli.
Samkvæmt staðarsamningi á svæðinu er
einnig um launaáiag o.fl. sérkjör að ræða,
s.s. bíl til afnota í vitjanir og á vöktum.
Nánari upplýsingar veita Sigurður Halldórs-
son, læknir, í símum 465 2109 eða 465 2166
og Birna Björnsdóttir, stjórnarformaður,
í síma 465 1163.
ISAL
Ertu drffandi
og viltu breyta til?
íslenska álfélagið hf.
óskar eftir að ráða í ný störf
Við leitum að duglegum og röskum konum
og körlum til að sinna sérhæfðum störfum
í steypuskála og kerskálum.
Áhersla er lögð á reglusemi, stundvísi, góða
samstarfshæfni og árvekni. Kostur er ef
nokkur tækni- og tölvukunnátta eða reynsla
er fyrir hendi, svo og reynsla af störfum við
annan iðnað eða í landbúnaði.
Störfin eru aðallega unnin á þrískiptum 8
klst. vöktum allan sólarhringinn alla daga
ársins, með ákveðnu vaktafríi á milli.
Nýir starfsmenn hljóta þjálfun í upphafi
starfstíma.
Umsóknir óskast sendar til ÍSAL, pósthólf
244, 222 Hafnarfjörður, eigi síðar en
10. febrúar nk.
Þau, sem eiga eldri umsóknir hjá ÍSAL, eru
vinsamlegst beðin um að endurnýja þær.
Umsóknareyðublöð fást hjá íslenska álfélag-
inu hf., Straumsvík, eða bókaverslunum
Eymundssonar hf., Austurstræti, Mjódd og
Kringlunni, Reykjavík, og Pennanum sf.,
Hafnarfirði.
íslenska álfélagið hf.
Leikskólinn Sælukot
óskar eftir leikskólakennara eða vönum
starfskrafti í fullt starf.
Upplýsingar í síma 552 7050.
Kirkjubæjarklaustur
Til sölu er járnklædd bogaskemma á Kirkju-
bæjarklaustri, ásamt þeim lóðarleiguréttind-
um sem henni fylgja. Skemman stendur við
þjóðveg 1 á bökkum Skaftár. Hún er 219 fm
að grunnflatarmáli og skiptist í skrifstofuhús-
næði með rúmgóðu geymslulofti og verk-
stæðisrými.
Allar frekari upplýsingar gefur Örlygur Jónas-
son, umdæmisstjóri RARIK á Suðurlandi, í
síma 487 8232 eða á umdæmisskrifstofu
RARIK á Hvolsvelli.
^ RAFMAGNSVEITUR
KN RÍKISINS i
LAUGAVEGI 118 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91-605500 • BRÉFSÍMI 91-17891
Vélbúnaður
til matvælavinnslu
Til sölu eru vélar og tæki til matvælavinnslu.
Má þar nefna flæðilínu, Hajek TA-20 L pökk-
unarvél fyrir lofttæmdar umbúðir, ásamt
áföstum borðum, Baader roðrífa, vigtar,
áleggshnífa og pökkunarborð.
Tækin henta mjög vel til matvælavinnslu og
voru síðust notuð við sjólaxvinnslu í Vest-
mannaeyjum.
Nánari upplýsingar um verð og greiðsluskil-
mála veitir Benedikt Ragnarsson, sparisjóðs-
stjóri.
Sparisjóður Vestmannaeyja,
sími 481 2100.
Aðalfundur
Aðalfundur í íslenska hótelfélaginu hf. fyrir
árið 1995 verður haldinn á Hótel Sögu þriðju-
daginn 4. febrúar 1997 í Þingstofu A, 2. hæð,
og hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Þorrablót
Þorrablót brottfluttra Patreksfirðinga og
Rauðsendinga verður haldið í Húsi iðnaðar-
ins, Hallveigarstíg 1, Gullhömrum, föstudag-
inn 31. janúar kl. 20.00. Miðar seldir á sama
stað fimmtudaginn 23. janúar frá kl. 17-19
og laugardaginn 25. janúar frá kl. 11-14.
Allir Patreksfirðingar, Rauðsendingar og
aðrir Barðstrendingar velkomnir.
Fjölmennum og styrkjum átthagaböndin.
Kiddi, sími 5667184, Nana, sími 557 8669
og Gotti, sími 554 5475.
Hafnarfjörður - þorrabót
Sjálfstæðisflokkur-
inn í Hafnarfiröi efnir
til þorrablóts í Sjálf-
stæðishúsinu við
Strandgötu næst-
komandi laugar-
dagseftirmiðdag,
25.janúar, kl. 16.30.
Heiðursgestir:
Þorsteinn Pálsson,
ráðherra og eigin-
kona hans, Ingibjörg Þ. Rafnar.
Meðal skemmtiatriða er söngur Öldu Ingibergs viö undirleik Jónasar
Þóris. Veislustjóri Valgerður Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi.
Miðapantanir hjá Berg Ólafssyni í símum 555 0867 og 588 1511
og Geir Jónssyni í síma 555 4703 og 569 1600.
Allt stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins velkomið.