Morgunblaðið - 22.01.1997, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Þingeyingar -
nær og fjær
Frá Níelsi Árna Lund:
UM ÞETTA leyti árs kveða átt-
hagafélög sér hljóðs. Spilakvöld eru
auglýst, bingó, kaffikvöld, árshátíð-
ir, söngskemmtanir og þorrablót
svo eitthvað sé nefnt. Þessi átthaga-
félög eiga það sammerkt að félags-
mennirnir rekja ættir sínar til þeirra
svæða sem átthagafélögin kenna
sig við og eru hinir sömu gjarnan
stoltir af - jafnvel gríðarlega
montnir.
Eitt af þessum átthagafélögum
er Þingeyingafélagið í Reykjavík
sem stofnað var 24. nóvember 1942.
Alla tíð síðan hefur það starfað -
með mismiklum krafti eins og geng-
ur - og alltaf átt sinn trausta kjarna
félagsmanna, sem hveijum félags-
skap er nauðsynlegur.
Arshátíðar félagsins voru áður
fyrr með glæsilegustu skemmtun-
um borgarinnar og ekkert hús rúm-
aði fjöldann nema Súlnasalur Hótel
Sögu. Var hann ávallt fullur út úr
dyrum og komust færri að en vildu.
Tímarnir breyttust og árshátíðir
félaga og fyrirtækja eru ekki í dag
eins mikil tilbreyting og áður, -
nú þegar sjálfsagt þykir að fara
út og skemmta sér um hveija helgi
eða svo. Auðvitað varð þetta líka
reynsla Þingeyingafélagsins hvað
árshátíðirnar varðaði og að lokum
var ákveðið að leggja þær af fyrir
nokkrum árum.
Nú, nú - Þingeyingafélagið var
nú samt ekki á þeim buxunum að
snúa tánum strax upp í loft og loka
fundargerðarbókum. Aldeilis ekki.
Var nú ákveðið að boða til þorra-
blóts að þingeyskum sið. Leigja
sal; - vera með þingeysk heimatil-
búin skemmtiatriði, sem kosta ekk-
ert en veita í það minnsta flytjanda
ómælda ánægju, koma með trogin
full að heiman - og umfram allt
stilla verðinu þannig í hóf að fjöl-
skyldur gætu komið saman og vina-
hópar mæst og endurnýjað kynni.
Og viti menn!! Þetta tókst með af-
brigðum vel og sifellt fjölgar þeim
sem koma, eta saman, drekka,
syngja og dansa - og takið nú eftir
- þá þurfa Þingeyingar sko pláss.
Því var ákveðið að taka á leigu
Félagsheimilið á Seltjarnarnesi sem
er „ekta félagsheimili", svona eins
og Skjólbrekka eða Skúlagarður þar
sem til staðar er sena og dansgólf,
sem ekki verður svo auðveldlega
afgreitt hornanna á milli með fjór-
um valssporum. Þar ætla Þingey-
ingar að blóta þorra að kvöldi föstu-
dagsins 24. janúar.
Þar sem ég óttast að einhveijir
hafi ekki séð fréttabréf félagsins,
hvar blótið er auglýst, vildi ég vekja
athygli á því á síðum Morgunblaðs-
ins sem hefur töluvert meiri út-
breiðslu og þó nokkuð stærri les-
endahóp.
Hér með hvet ég alla Þingeyinga
á „Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu“ að
mæta til leiks. í auknum mæli hafa
íbúar heima í Þingeyjarsýslu komið
á þorrablótin - „stílað ferðir sínar
í bæinn“ eins og slíkt er nefnt.
Þeir verða faðmaðir og kysstir og
spurðir frétta úr héraði. Sömuleiðis
hafa nágrannar okkar, til að mynda
suður með sjó, gengið í salinn með
bros á vör og tilheyrandi gleðilátum
og boðnir velkomnir. Slíkt verður
gert áfram.
Að lokum vil ég vekja athygli á
því, að eftir borðhald verður húsið
opnað fyrir almennan dansleik.
Ég yrði hissa ef blótinu lyki á
öllum bæjum áður en fyrstu strætó-
arnir taka morgunbununa.
Með þingeyskri kveðju,
NÍELS ÁRNILUND,
Miðvangi 93, Hafnarfirði.
Samverustundir í
Laugarneskirkju
Frá Ingibjörgu Björnsdóttur:
FLESTIR tengja kirkjuna við hefð-
bundnar athafnir svo sem messur,
skírn, fermingar og jarðarfarir.
Starf kirkjunnar er langtum víð-
tækara, hún á marga liðsmenn og
velunnara.
í hverri sókn í Reykjavík eru
safnaðarfélög eða kvenfélög, sum
gömul, sem lagt hafa mikið af
mörkum bæði með hjálparstörfum
ogfjáröflun.
í Laugarnessókn eru margvísleg
störf unnin í þágu safnaðarins. Þar
er mjög góður kirkjukór og drengja-
kór sem öll borgin þekkir.
Fyrir nokkrum árum var stofnað-
ur þjónustuhópur kirkjunnar, í hon-
um voru fimm konur. Þær voru
sjálfboðaliðar og hafa aðstoðað- við
guðsþjónustur einkum fyrir aldraða
og heimsótt þá sem þess óskuðu...
Síðastliðið haust átti presturinn
séra Ólafur Jóhannsson frumkvæði
að samverustundum í safnaðar-
heimili kirkjunnar, vikulega kl. 2-4
á fimmtudögum. Þær voru einkum
ætlaðar eldra fólki enda þarf það
helst á afþreyingu að halda. Þarna
er setið og spjallað, gripið í spil ef
einhveijir vilja, hlýtt á upplestur,
drukkið miðdagskaffi og endað með
helgistund hjá prestinum.
Oneitanlega hefur aðsóknin verið
í minna lagi og því er vakin athygli
á þessu starfi. Ég er ein úr þjón-
ustuhópnum og þekki þetta vel.
Eigi fólk í fórum sínum eitthvert
efni sem þarna mætti flytja væri
það vel þegið.
Með ósk um gott samstarf og
fleiri gesti.
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Laugateigi 54, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er várðveitt I upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt' tit að ráðstafá efninu þáðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.